You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Blómaskel

Blá, fín granít, 6-7 manna

Heildarbreidd 194x194 cm

Dýpt í miðju 82,5 cm, dýpt að

setbekk 56 cm

Vnr. 8070617

Verð er að finna á

www.husa.is, sjá bls. 3

72

Heitir pottar

Heitur pottur er frábær viðbót við pallinn, hvort sem er við heimahús eða sumarbústaði.

Hægt er með einföldum hætti að koma honum fyrir. Í megin atriðum er um tvær gerðir

potta að ræða, rafhitaða potta sem eru með öllum búnaði og skeljar, sem tengdar eru

við heitt vatn, sem settar eru niður í pallinn eða stéttina. Skeljar geta verið með eða án

nudds.

Samkvæmt byggingarreglugerð má ekki fella potta að fullu niður í pallinn eða jörð vegna hættu fyrir

smábörn. Því þarf að ganga þannig frá niðurfelldum pottum að þeir sitji vel og örugglega og ganga

síðan frá þeim hluta sem stendur upp úr jörð eða palli. Sé pottur felldur niður í pall eða stétt verður

efri brún að standa hið minnsta 40 sm upp úr pallinum eða stéttinni. Samkvæmt byggingarreglugerð

verður heitur pottur að vera með læsanlegu loki.

Áður en heitum potti er valinn staður verður að huga að því að hann liggi vel við sól, ef þess er kostur,

en þó án þess að taka upp besta sólbaðssvæðið. Einnig þarf að hyggja að lagnaleiðum fyrir að- og

frárennsli ef um skeljar er að ræða. Margir vilja skerma pottinn af og njóta þess í næði að slaka á

í pottinum. Þó ber að hafa í huga að það flokkast undir öryggisatriði að hægt sé að fylgjast með

pottinum frá húsinu um eldhús- eða stofuglugga, ef börn eru á heimilinu, en rétt er að undirstrika að

minni börn noti aldrei heita potta án aðgæslu fullorðinna.