03.01.2013 Views

Sælureitur - Húsasmiðjan

Sælureitur - Húsasmiðjan

Sælureitur - Húsasmiðjan

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Gólfefni

Þegar hugað er að gólfefnum á íbúð,

sumarhús eða annað er margt sem þarf

að taka inn í reikninginn. Eftir hverju er

verið að leita? Á að setja viðar- eða

plastparket, á að flísaleggja eða á að velja

aðra lausn.

Húsasmiðjan selur hágæða viðarparket frá Weitzer

(Austurríki) og Tarkett (Svíþjóð). Einnig plastparket

frá Egger (Austurríki). Í Húsasmiðjunni er einnig

mikið úrval af flísum. Við bjóðum eingöngu upp á

flísar sem framleiddar eru á Spáni eða Ítalíu.

Viðarparket

Weitzer

Weitzer parket uppfyllir óskir flestra kaupenda.

Þessi margverðlaunaði Austurríski framleiðandi

býður upp á eina sterkustu fáanlegu krækju í 3 laga

efni í dag. Fagmenn gefa Weitzer toppeinkunn, því

parketið er framleitt með hliðsjón að því að einn

maður leggi það. Yfirborðsmeðferð Weitzer gerir

það að verkum að kaupandi þarf að hafa lítið sem

ekkert fyrir því að halda parketinu í upprunalegu

horfi. Svo skemmir ekki fyrir að Weitzer parket er

mjög fallegt efni.

(www.weitzer-parkett.com/en)

66

Tarkett

Húsasmiðjan bíður upp á Rumba línuna frá

Tarkett. Rumba línan er með 2,5 mm spónþykkt

(13mm heildarþykkt) í stað hefðbundinnar 3,5-4

mm þykktar. Samt sem áður er þessi lína í mjög

háum gæðaflokki og yfirborðsmeðferðin sú sama

og á öðrum línum frá framleiðandanum, þ.e.

meðhöndluð með Proteco lakki sem er eitt það

sterkasta á markaðnum.

(www.tarkett-floors.com)

Mismunandi yfirborð á

plastparketi frá Egger

Náttúruleg viðaráferð (Natural Pore)

Yfirborð sem kallar á snertingu. Fínlegar

æðarnar í viðnum undirstrika viðaráferðina og

gera gólfið líflegra.

Olíuborið (Oiled)

Áferð sem er verulega öðruvísi. Flott og um

leið mött áferð, sem undirstrikar eiginleika

viðarins, en er um leið silkimjúk í snertingu.

Líflegt yfirbragð (Rustic)

Djúpar æðarnar í viðnum undirstrika líflegt og

“rústik” yfirbragð viðarins, sem gefur honum

kraftmikinn svip.

Vel notað gólf (Used Look)

Merkjanlegur og áþreifanlegur munur á milli

mattra og gljáandi flata á yfirborði gefa viðnum

þetta hlýlega yfirbragð, sem er eins og á

gólfum eftir áralanga notkun.

Mött áferð (Velvet Matt)

Flauelsmjúk áferðin gerir sitt til þess að

þetta parket skapar sitt eigið yfirbragð og

stemmningu.

Viðaráferð (Woodline)

Náttúrulegt yfirbragð undirstrikar glæsileika

og fágun viðarmynstra og lyftir þeim í hæstu

hæðir.

Flísaáferð (Ceramic)

Flísaáferðin gefur alvöru flísum ekkert eftir.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!