Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
44

Barnahús 2,69 m 2

Vnr. 600230

Breidd = 167 sm

Lengd = 167 sm + verönd 100 sm

Vegghæð = 170 sm (brúttó)

Bjálkaþykkt = 32 mm

Þekjandi viðarvörn

Það er mikilvægt að velja sérhæfða

viðarvörn fyrir sumarhús og sólpalla, sem

vörn gegn vatni, örverugróðri og sem ekki

upplitast. Viðarvörnin getur verið byggð á

olíuefnum eða vatnsblandanleg. Mjög miklar

framfarir og þróun hafa orðið í viðarvörn

á undanförnum árum og í dag stendur

viðarvörn sem byggir á vatnsgrunni fyllilega

jafnfætis efnum sem byggja á olíugrunni,

en er jafnframt þægilegri í meðhöndlun og

umhverfisvænni.

Hvað varðar sólpallinn er vatnspróf auðveldasta

leiðin til að finna út hvort það þarf

að viðarverja hann. Þetta er gert með því að

sprauta vatni á pallinn. Ef yfirborðið drekkur

vatnið strax í sig, þarf að endurviðarverja.

Ef vatnið perlar eða flýtur ofan á pallinum

er ekki þörf á nýrri viðarvörn. Það gæti

hinsvegar verið í góðu lagi að bera á eina

umferð af pallaolíu eða álíka efni til að fríska

upp á útlitið. Ef þú ert viss um að viðurinn

þarfnist nýrrar viðarvarnar, þá er rétt að

pússa yfir grófa bletti með 80-sandpappír.

Ef óskað er eftir þekjandi

efni skal grunna fyrst

með Jotun Visir

Grunning og síðan

bera tvær umferðir með

Demidekk Maling.