You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Grjót

Þegar nýr garður er skipulagður er hægt að nota margvísleg efni til að brjóta upp

heildina, og nota til þess bæði trépalla og skjólgirðingar, ásamt gróðri og ýmsum

náttúrulegum efnum.

Eitt af því sem höfðar sterkt til náttúrunnar er íslenska grjótið, en með því að nota það með gróðri og

timbri er hægt að kalla fram skemmtilegt samspil náttúru og forma.

Stór steinn sem er felldur inn í horn á palli eða í stoðvegg úr bjálkum gefur allt annað yfirbragð á þann

hluta garðsins. Hlaðinn steinveggur úr grjóti eða falleg steinhæð með plöntum setur líka sinn svip á

næsta nágrenni og brýtur upp heildina.