Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Hér sést stór pallur smíðaður úr pallaeiningum, sem lagðar

eru á stétt. Með því að láta einingarnar snúa sitt á hvað næst

fram léttara yfirbragð.

26

Pallaeiningar

Léttar pallaeiningar sem raða má saman eru auðveld lausn fyrir þá sem vilja njóta

hlýleikans sem viðarklæddur pallur gefur, án þess að standa í því stórvirki að smíða

heilan pall við húsið.

Þessar pallaeiningar er einnig hægt að leggja beint á gras, á timburgrind eða á steinstétt, sem þá

gefur jafna og góða undirstöðu. Einingarnar er hægt að taka upp að hausti, sem gefur þá grasinu

tækifæri á að jafna sig, og eins er þá hægt að varna þess frekar að viðurinn í einingunum taki í sig

raka úr jarðveginum og fúni fljótar. Pallaeiningar úr harðviði, 0x 0cm, sem læsast saman, henta vel á

svalir, og auðvelt að taka þær inn yfir veturinn.

Hægt er að búa til göngustíga í garðinum með þessum einingum, eða raða í kring um heita pottinn,

einkum í þeim tilfellum þar sem hellulagt er í kring um þá.