You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
2

Fléttur og hlið

Skjólgirðingar eru til í ýmsum afbrigðum, með heilli klæðningu, standandi, liggjandi eða

á ská og einnig með fléttum.

Flétturnar geta gefið skjólveggnum alveg nýtt yfirbragð. Vegna þess að það sést í gegnum þær, þá

gefa þær veggnum léttara yfirbragð, en samt ná þær aðeins að draga úr áhrifum vindsins. Gróðurinn

nýtur sín einnig betur í gegnum flétturnar og í sumum tilfellum hentar fléttan vel fyrir klifurjurtir, sem

verða hluti af veggnum.

Rétt samspil á heilum skjólveggjum og fléttum eykur fjölbreytileikann, gefur heildstætt útlit og færir

saman vegg og hús. Fléttur eru einnig góðar til að tengja saman misháar girðingareiningar og á þann

hátt er auðveldara að láta girðinguna fljóta eftir misháu landslagi garðsins. Ein lítil bogamynduð flétta

á milli tveggja mishárra heilla veggjaeininga getur gert kraftaverk hvað varðar útlitið og myndað betri

heild.