You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
116

Höfuðgrind með glærum skermi og

heyrnarhlífum

Höfuðgrind Peltor með eyrnahlífum og glærri

höggþolinni polycarbonat andlitshlíf. Hentar

vel þegar verið er að slá með vélknúnu orfi og

eins þegar verið er að vinna með slípirokk.

Vnr. 5850264

Hanskar

Góðir vinnuhanskar eru nauðsynlegir við

garðverkin. Í verslunum Húsasmiðjunnar er

mikið úrval vinnuhanska, sem henta fyrir allt

frá léttum garðverkum í erfiðisvinnu.

Vnr. 5865920

Greinaklippur

Einnar handar greinaklippur HiPoint, sem

henta vel til að klippa minni greinar, snyrta

rósir og runna. Öryggislás tryggir að þær

opnist ekki nema þegar verið er að klippa.

Vnr. 5084663

Fíflabani

Fíflabani “Wonderweed”, notar blöndu af

vatni og og illgresiseyðinum “Roundup”. Tekur

300ml af blöndu í einu – skammtar sjálfur,

hver skammtur er 0,3ml. Má geyma blöndu í

rörinu. Þægilegur og fljótlegur í notkun.

Vnr. 5087361

Laufhrífa

Létt laufhrífa með fjaðrandi tindum, 21 alls.

Með henni er auðvelt að sópa saman laufi

og léttu rusli af grasflötum, moldarbeðum

og malarsvæðum. Laufhrífa vinna best með

léttum sveiflandi hreyfingum og skilur þá eftir

lausamöl og smásteina.

Vnr. 5084335

Stungugaffall

Stungugafflall er nauðsynlegur til að stinga

upp moldarbeð og losa um jarðveg á milli

plantna til að hleypa lofti og næringarefnum

að plönturótunum. Einnig má nota þá til að

taka upp kartöflur eða losa moldaryfirborð.

Vnr.5084170

Stunguskófla

Stunguskóflur eru til margra verka nytsamlegar

í garðyrkju. Hægt er að velja um tvær megin

útfærslur; með þveru blaði sem hentar fyrir

lausan jarðveg og með yddu blaði, eins og hér

sést, sem passar best þar sem þarf að stinga

gegnum svörð.

Vnr. 5084080

Kantskeri

Kantskerar eru nauðsynlegir til að jafna kanta

á blómabeðum og skera til grasþökur við

þökulögn. Þríhyrndur kantskeri eins og hér

sést, þar sem skurðarflöturinn er L-laga, er

algengari og með þeim er auðvelt að skera

eftir snúru. Aldrei má stíga eða hoppa á

kantskerana, við það geta þeir skemmst.

Vnr. 5084402

Malarhrífa

Malarhrífur eru líka kallaðar garðhrífur. Þær

hafa járnhaus með útstönsuðum, sterkum

tindum. Notagildi þeirra felst í styrkleikanum

og þær eru mest notaðar til að vinna og jafna

mold í beðum fyrir útplöntun eða sáningu.

Einnig eru þær notaðar til að raka og jafna

sandi og möl.

Vnr. 5084280

Hekkklippur

Rafknúnar hekkklippur, IKRA, 550W, 60

sm blað, klippigeta 18 mm. Ef mikið þarf

að klippa af limgerðum í garðinum er koma

rafmagnshekkklippur sér vel. Við stærri

verk gæti verið hentugra að nota vélknúnar

hekkklippur með tvígengismótor.

Vnr. 5083540