You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
114

Viðarklæðning á

útveggjum

Náttúruleg, hlýleg og umhverfisvæn

klæðning

Timbur er náttúruleg afurð og þolir vel miklar

sveiflur í hita og kulda, jafnvel betur en flest önnur

byggingaefni. Einangrunargildi timburs er einnig

sérstaklega mikið. Þess vegna eru timburhús,

eða hús klædd með timbri eitt algengasta

byggingaefni á norðurhveli jarðar.

Í dag er algengast að timburhús séu klædd með

“vatnsklæðningu”, liggjandi borðum sem læst

er saman með tappa og nót. Hvert borð leiðir

rigningarvatn yfir samskeytin og niður á næsta

borð og þannig áfram til jarðar. Á árum áður

tíðkaðist einnig “standandi” klæðning og þá var

klætt “ein utan á tvær” sem fólst í því að eitt

viðarborð huldi samskeyti borðanna á bakvið.

Töluvert hefur verið um það að blandað sé saman

viðarklæðningu og öðrum efnum, svo sem báruáli

eða sléttu áli. Hægt er að fá vatnsklæðningu í

nokkrum gerðum.

Viðarklæðning húsa færist í vöxt, fólki líður betur

í timburhúsum og þau eru í sókn vegna þess

hversu umhverfisvæn þau þykja.

Timbur utanhússklæðningar

Húsasmiðjan hefur framleitt staðlaðar

utanhúsklæðningar úr timbri í fjölda ára t.d.

vatnsklæðningar, bæði heflaðar og bandsagaðar,

sléttar og kúptar, ásamt bjálkaklæðningu

og hefðbundinni standandi klæðningu.

Klæðningarnar eru framleiddar úr valinni,

skandínavískri þéttvaxinni furu, ofnþurrkaðri

niður í 16-18 % rakastig.

Klæðningarnar eru til í lengdum frá 3,6 og upp í

allt að 6,0 m.

Mikilvægt er að bera strax á utanhússklæðningar

og þarf að grunna þær með t.d. Vísi grunni og bera

síðan á 2 umferðir af hálfþekjandi eða þekjandi

viðarvörn. Ekki er mælt með mjög ljósum litum á

timburklæðningar svo sem natur eða furu lit.