03.01.2013 Views

Sælureitur - Húsasmiðjan

Sælureitur - Húsasmiðjan

Sælureitur - Húsasmiðjan

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Gluggar

Eitt af þeim verkum sem margir húseigendur

geta annast sjálfir er viðhald á gluggum. Góð

regla er að skoða gluggana vel á hverju vori og

skoða hvernig þeir koma undan vetri.

Er málningin farin að losna eða flagna? Með því

að skoða málninguna vel kemur strax í ljós ef svo

er. Besta leiðin er að bregða málningarsköfu eða

svipuðu áhaldi á málninguna næst glerinu, eða

stinga í málninguna með hnífsoddi, og ef hún

lætur ekki undan þá er ástand gluggans í góðu

lagi og ekki þörf á viðhaldi að sinni.

Ef málningin á hinn bóginn losnar upp þá er

komin þörf á viðhaldi og þá þarf að skoða

vandlega hversu umfangsmikið það þarf að vera.

Ef málningin losnar af í stórum bitum, þannig að

viðurinn einn er eftir,þá hefur undirvinnu verið

áfátt, eða ekki hafa verið notuð rétt efni í byrjun. Í

slíkum tilfellum þarf að skoða vel hvort viðurinn sé

farinn að fúna, og grípa þurfi til víðtækara viðhalds

en bara að mála. Leitið aðstoðar sérfræðinga eða

fagmanna ef vafi leikur á ástandi gluggans.

Einnig þarf að skoða vel ástand glerlista og

þéttingar á milli lista og glers, hvort hætta sé á því

að leki geti myndast á milli lista og glers þannig

að vatn eða raki eigi greiða leið undir glerið og

geti hraðað hrörnun gluggans sjálfs.

Hreinsa vel alla eldri málningu

Grundavallaratriði við málun á glugga er að

hreinsa vel í burt alla eldri málningu. Leitið

upplýsinga í málningardeildum Húsasmiðjunnar

hvaða verkfæri henti best til að hreinsa burtu

gamlar málningarleifar.

Þegar búið er að skafa alla lausa málningu

af, getur verið gott að fara yfir gluggann með

milligrófum sandpappír til þess að gera yfirborðið

móttækilegra fyrir nýrri umferð af málningu. Ef

málningin hefur losnað frá viðnum þannig að

hann sést, þarf að grunna hið minnsta þessa

fleti með viðeigandi grunni. Ef um er að ræða

glugga sem ekki hafa verið málaðir áður, verður

að grunna viðinn fyrst áður en hafist er handa við

að mála.

Að þessu loknu er hægt að hefjast handa við

að mála gluggann. Gætið þess að glugginn

sé örugglega þurr áður en málað er. Gott ráð

getur verið að líma málningarlímband á glerið

til að komast hjá því að málning setjist á það

þegar verið er að mála. Hafið í huga að fjarlægja

límbandið fljótlega eftir að málað er, áður en

málningin nær að harðna þannig að hún losni ekki

upp þegar límbandið er rifið af og myndi þannig

greiða leið fyrir vatn og raka undnir málninguna.

Á eldri gluggum getur verið gott að líma

málningarlímbandið með um það bil 2ja millimetra

bil frá gleri að gluggalista því þá myndar málningin

þéttingu á milli glers og lista. Ekki er þörf á þessu

á nýrri gerðum glugga þar sem gúmmíkantur er á

milli lista og glers og myndar þéttinguna í þessu

tilfelli má ekki fara málning á gúmmíkantinn því

þá tapar þéttingin eignleikum sínum. Ef málning

nær eftir sem áður að sullast á glerið er auðvelt

að hreinsa hana af með glersköfu ef það er gert

áður en hún harðnar.

Það getur verið gott að vera með tvær stærðir

pensla í gangi þegar verið er að mála glugga.

Minni kantpensil til að mála næst glerinu og

gluggapósta, en stærri pensil til að mála stærri

fleti. Fáið ráðgjöf í málningardeild Húsasmiðjunnar

varðandi val á penslum þegar málningin er keypt.

Byrjið á því að mála næst glerinu og gætið þess

að málningin ná vel í öll horn. Málið síðan stærri

fleti í lengri strokum til að fá fallega áferð.

Olíubornir gluggar

Nokkuð hefur færst í vöxt að gluggar í nýrri húsum

eru ekki málaðir en í staðinn meðhöndlaðir með

olíu eða viðarvörn. Þessi gluggar þurfa ekki síður

viðhald en málaðir gluggar og því þarf að fylgjast

vel með ástandi viðarins.

Þegar þörf er á viðhaldi skiptir það miklu máli

að hreinsa gluggann vel áður en ný yfirferð af

olíu eða viðarvörn er borin á. Ryk og óhreinindi

sem eru á yfirborðinu þarf að hreinsa vel. Með

nægum fyrirvara getur verið gott að þvo gluggana

einfaldlega með sápuvatni og láta þá þorna vel

áður en málað er. Ef þess er ekki kostur þarf

að hreinsa viðinn vel með stífum bursta, ekki er

ráðlagt að nota vírbursta því hann getur skaðað

viðaryfirborðið. Vætið síðan tusku með terpentínu

(white spirit) og þurrkið yfirborðið vel áður en olía

eða viðarvörn er borin á. Að öðru leyti eiga aðrar

leiðbeiningar um málun glugga við í þessu tilfelli.

Þegar viðargluggar eru olíubornir er mikilvægt

að umframefni sem ekki gengur inn í viðinn sé

þurrkað af (þetta á aðeins við um harðan við,

t.d. mahoný. Bæði geta ryk og óhreinindi sest

í olíupolla á viðnum og einnig geta slíkir pollar

myndað filmuhúð sem síðan flagnar af þegar hún

þornar og eftir stendur óvarinn viðurinn.

Viðhald

103

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!