You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
4

Sólpallurinn eykur lífsgæðin

Sólpallur við húsið eða sumarbústaðinn nýtist vel,

stækkar íverustað fjölskyldunnar og býður upp á

fjölbreytta möguleika auk þess að auka verðgildi

húseignarinnar.

Þetta á sérstaklega við þegar hægt er að ganga beint út á pallinn. Við

byggingu frístundahúsa er pallurinn oftast óaðskiljanlegur hluti hússins

með beint aðgengi, oftar en ekki frá fleiri en einum stað. Smíði sólpalla við

eldri hús í þéttbýli kallar oft á rækilega skoðun á aðstæðum, einkum hvað

varðar aðgengi, hvernig pallurinn snýr við sól og ríkjandi vindátt.

WWW.HUSA.IS

Allt fyrir pallinn á vefnum okkar husa.is

Timburmenn

Kennslumyndband

Lærðu að smíða pallinn með

Erni Árnasyni

Pallareiknivél

Reiknaðu efnisþörfina í sólpallinn og

fáðu tilboð á mjög auðveldan hátt með

sólpallareiknivélinni á www.husa.is

Hér á næstu síðum er fjallað um skjólgirðingar og pallasmíði, sem gefa

örugglega nokkrar hugmyndir um hvernig hægt er að smíða pall og skapa

skjól á sem bestan hátt.

Reiknivél sem hjálpar þér við að reikna út hvað sólpallurinn kostar er til

staðar á heimasíðu Húsasmiðjunnar, www.husa.is. Það kemur örugglega

á óvart að það er ekki eins dýrt og margir halda að smíða lítinn sólpall

við heimilið eða frístundahúsið. Þar er einnig að finna ráðleggingar hvernig

hreinsa má pallinn og bera á hann viðarvörn.

Fura • Lerki

SVONA FÆRÐU TILBOÐ Í PALLINN

Sérfræðingar okkar í Timburmiðstöðinni Grafarholti,

Skútuvogi og verslunum um land allt hjálpa þér að finna

bestu lausnina á lægra verði

- það er ekkert mál að smíða pallinn með okkur!

1. Þú kemur til okkar með teikningar eða þínar hugmyndir

2. Við hjálpum þér að efnistaka og útfæra pallinn og mæta þínum þörfum um verð og gæði

3. Þú sækir efnið eða við sendum þér það heim að dyrum.