23.11.2023 Views

Kraftaverk - Tímarit Omega - 1 tölublað nóvember 2023

Greinar og vitnisburðir um kristna trú og kraftaverk.

Greinar og vitnisburðir um kristna trú og kraftaverk.

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Orð ritstjóra

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eiríkur Sigurbjörnsson

Auglýsingasala: Omega

Útgefandi: Sólartún ehf.

Ljósmyndari: Kazuma Takigawa

Forsíðumynd: Kazuma Takigawa

Blaðamenn: Reynir Traustason og Svava Jónsdóttir

Ágæti viðtakandi.

Í þessu blaði eru viðtöl við fólk úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins

og úr kristnum samfélögum. Allt á það fólk sameiginlegt að

hafa upplifað styrk frá Guði til að komast áfram í lífinu.

Sagan af Betty Baxter er einstök. Hún þurfti frá fæðingu

að þola miklar þjáningar og ganga í gegnum miklar raunir, en

hún gafst ekki upp. Frásögn hennar hefur kallað fram tár frá

lesendum um allan heim.

Guð er megnugur öllum þeim sem treysta honum.

Ég treysti því að þetta blað verði þér til blessunar og

uppörvunar og hvatning til að setja traust þitt á lifandi

Guð sem sendi Jesú Krist í þennan heim til að gefa líf sitt á

krossinum á Golgata svo við gætum átt eilíft líf með honum.

Það segir í litlu Biblíunni (Jóhannesarguðspjall 3.16): „Því svo

elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess

að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“

EFNISYFIRLIT

Orð ritstjóra

Ávarp biskups Íslands

Sálmur 121

Viðtal - Kaþólskum fjölgar mjög mikið

Forsíðuviðtal - Sigríður Guðnadóttir

Viðtal - Guðrún Margrét Pálsdóttir

Viðtal - Eiríkur Sigurbjörnsson

Hvítasunnusöfnuður - Aðsend grein

Uppáhaldsbænin

Umfjöllun um Friðfinn Frey Kristinsson

Lykilhlutverk Íslands

Séra Pétur Þorsteinsson - Aðalsyndin

Drengurinn læknaðist

Billy Graham og Albert Einstein

Eiríkur Magnússon - Yfirgaf öryggið

Spádómur konunnar í Noregi

Sagan um Betty Baxter

2

4

5

6

12

22

28

36

40

42

44

48

52

54

56

60

62

Það er von mín að við getum haldið áfram að gefa út

uppbyggilegt tímarit sem inniheldur fagnaðarerindið og góða

vitnisburði til landsmanna.

Með bestu kveðju,

Eiríkur Sigurbjörnsson

2

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!