Honda_CR-V_web_2017
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ÖRYGGI : 21

TÍMAROFI Á AÐALLJÓSUM

Þetta kallast stundum heimkomuljós og lætur

ljósin loga í 60 sekúndur eftir að slökkt er

á vélinni. Þannig lýsir bíllinn upp leið þína inn.

VIRK BEYGJULÝSING

Því fyrr sem þú sérð breytingar á veginum

framundan, þeim mun fyrr geturðu brugðist

við þeim, einkum á dimmum eða illa upplýstum

vegum. Virk beygjulýsing lýsir upp væntanlega

beygju um leið og gefið er stefnumerki

eða stýri snúið.

TRYGGIR

ÖRYGGI ÞITT

Fjölbreyttur búnaður CR-V tryggir

öryggi þitt og farþega þinna.

Honda kappkostar að smíða bestu öryggisþættina sem

flestir eru staðalbúnaður í öllum bílum eins og vottað er með

Euro NCAP 5 stjörnu einkunninni sem CR-V fékk, en það

er hæsta fáanlega einkunn í óháðum árekstursprófunum.

Snjöll tækni er alltaf virk við akstur CR-V og ökumaður veit

oft ekki af henni, jafnvel við notkun. Allt snýst um samvinnustjórn,

þar sem öryggisþættir veita ökumanni stöðugan stuðning.

STÖÐUGLEIKAAÐSTOÐ

Stöðugleikaaðstoðin fylgist með öllum fjórum

hjólum bílsins og reiknar út afl eða hemlunarkraft

sem þarf til að halda stjórninni ef veggripið

bregst. Í hálku sér þetta kerfi um togkraft

vélar og hemlun á hverju hjóli og dregur

úr hraða til að tryggja örugga og jafna ferð.

HALLASTÝRING

STÖÐUGLEIKAKERFI FYRIR TENGIVAGN

SRS LOFTPÚÐAR

Hámarksvörn er tryggð með tveggja þrepa

útblæstri á framsætisloftpúðum miðað við

tíma og höggþunga. Hliðarloftpúðar verja

ökumann og farþega að framan og aftan við

hliðarárekstur og vinna með þriggja punkta

neyðarlæsingu á sætisbeltum.

Hallastýring tryggir lipran

akstur niður brekku með því að

ýta á einn hnapp, án þess að

ökumaður þurfi að hemla. Kerfið

fylgist með hraða bílsins á leið

niður og ef hraðinn eykst án

aðkomu ökumanns beitir kerfið

hemlunum til að hægja á bílnum.

Stöðugleikakerfið fyrir tengivagn fylgist stöðugt

með hreyfingum tengivagnsins miðað við CR-V

og ef munurinn er of mikill (t.d. í hliðarvindi

eða við akreinaskiptingu) er gripið

inn í áður en hætta skapast.

Með stilling á togkrafti vélar og nákvæmri

hemlun á réttum hjólum getur

stöðugleikakerfið rétt álagið.

* Fáanlegt með sjálfskiptingu.

Δ

Eingöngu fáanlegt í Lifestyle og Executive útfærslum.