13.07.2015 Views

Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti

Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti

Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Mennta- og menningarmálaráðuneytiMat á starfi framhaldsskóla á að taka mið af þeim markmiðum og gildum sem fram komaí lögum, reglugerðum og aðalnámskrá. Jafnframt tekur innra mat mið af starfsaðferðumog sérstöðu hvers framhaldsskóla sem fram kemur í skólanámskrá. Innra mat á að verasamofið daglegu starfi, efla ígrundun og auka vitund starfsfólks um ábyrgð.Skólameistari, í samstarfi við starfsfólk, ber ábyrgð á gæðum þess starfs sem fer framí viðkomandi skóla. Í hverjum skóla skal móta skýra stefnu í samræmi við grunnþættií menntun, markmið og áhersluþætti framhaldsskólalaga og ákvæði í aðalnámskráframhaldsskóla. Hver framhaldsskóli mótar viðmið fyrir sína starfsemi og þróarmatsaðferðir sem henta starfsháttum skólans. Lýðræðisleg vinnubrögð við innra matstuðla að auknum gæðum í starfinu. Þar eru stjórnendur, kennarar, annað starfsfólk,nemendur og foreldrar mikilvægir þátttakendur.Í skólanámskrá er lagður grunnur að skólastarfinu en þar skal meðal annars birta stefnuskólans og lýsingu á því kerfisbundna innra mati sem notað er til að leggja mat á gæðiskólastarfsins. Í skólanámskrá skal einnig gera grein fyrir áherslum og áætlunum uminnra mat.17.2 Ytra mat á framhaldsskólastigiMennta- og menningarmálaráðuneyti annast öflun, greiningu og miðlun upplýsinga umskólahald í framhaldsskólum og er það liður í reglubundnu ytra mati á gæðum skólastarfsásamt úttektum, könnunum og rannsóknum. Ytra mat getur náð til framhaldsskóla íheild, aðferða við innra mat eða annarra skilgreindra þátta í starfsemi framhaldsskóla.Jafnframt getur ytra mat náð til nokkurra framhaldsskóla í senn. Framhaldsskólar skululeggja fram þá aðstoð og þau gögn sem matið útheimtir, þar með talið niðurstöður innramats. Að loknu ytra mati gerir framhaldsskóli grein fyrir því hvernig brugðist verður viðniðurstöðum þess. Ráðuneyti leitast við að fylgja innra og ytra mati eftir með stuðningi,fræðslu og ráðgjöf til viðkomandi skóla þannig að slíkt mat leiði til umbóta í skólastarfi.Ráðuneyti gerir áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir sem miða að því aðveita upplýsingar um framkvæmd laga, aðalnámskrár framhaldsskóla og annarra þáttaskólastarfs. Jafnframt getur ráðherra ákveðið að láta fara fram sérstakt ytra mat áframhaldsskóla eða einstökum þáttum skólastarfs ef ástæða þykir til. Gert er ráð fyrir aðúttekt á framhaldsskóla fari eigi sjaldnar fram en á fimm ára fresti.Samkvæmt lögum getur ráðherra ákveðið að leggja fyrir könnunarpróf í einstökum námsgreinumframhaldsskóla, svo og færnipróf sem tengjast hæfniviðmiðum og þrepaskiptingunáms.83

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!