Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti
Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti
Aðalnámskrá framhaldsskóla 2011 : almennur hluti
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Mennta- og menningarmálaráðuneytiNÁMSBRAUTALÝSINGAR10Framhaldsskólar, einn eða fleiri sameiginlega, gera tillögu að námsbrautarlýsinguog leggja hana fyrir ráðuneyti til staðfestingar. Námsbrautalýsingar, sem hlotið hafastaðfestingu, eru þar með <strong>hluti</strong> af aðalnámskrá framhaldsskóla.Ráðuneytið mun gefa út námsbrautalýsingar, dæmabrautir, sem einstakir framhaldsskólargeta haft til viðmiðunar við gerð námsbrautalýsinga til framhaldsskólaprófa,starfsréttindaprófa, stúdentsprófa og annarra lokaprófa. Gert er ráð fyrir að dæmabrautirséu unnar í samstarfi við framhaldsskóla, háskóla og atvinnulíf og verði hafðar til hliðsjónarí staðfestingarferli ráðuneytisins. Ráðuneyti getur staðfest dæmabrautir þannig að þærverði <strong>hluti</strong> af aðalnámskrá framhaldsskóla.Við þróun námsbrauta leggur ráðuneytið áherslu á að nemendum gefist kostur ánámslokum á ólíkum hæfniþrepum. Jafnframt sé tryggt að nemendum sem ljúka námisem skilgreint er á fyrsta eða öðru hæfniþrepi, gefist kostur á áframhaldandi námi.Námsbrautalýsingar skulu byggðar upp í samræmi við ákvæði almenns hluta aðalnámskrárframhaldsskóla og skólanámskrár viðkomandi skóla. Í námsbrautarlýsingu skal m.a.fjallað um:• tengsl náms við atvinnulíf og/eða önnur skólastig,• skipulag náms, svo sem lokamarkmið, umfang náms, á hvaða hæfniþrepinámslokin eru skilgreind, hvort um er að ræða framhaldsskólapróf, próf tilstarfsréttinda, stúdentspróf, önnur lokapróf eða viðbótarnám við framhaldsskóla,51