Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
• Menntun, námskeið og nýsköpun

-Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra

Fjölbreytt flóra námskeiða

Farskólinn, miðstöð símenntunar

á Norðurlandi vestra hefur

boðið upp á fjölbreytt námskeið

síðan árið 1992. Þessa

dagana er Farskólinn að viða að

sér efni í námsvísi haustannar

sem kemur út um næstu mánaðarmót.

Tvö stór námskeið frá

fyrra ári byrja nú í september;

þau eru Grunnmenntaskólinn

á Hvammstanga og Eflum

byggð á Blönduósi.

Bryndís Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri

Farskólans, segir

að Farskólinn bjóði upp á öll

þau námskeið sem þau finni

að eftirspurn sé eftir. „Námskeið

í tölvum, og tungumálum

hafa verið eftirsótt. Við leggjum

aukna áherslu á að bjóða upp á

starfstengd námskeið samkvæmt

námsskrám Fræðslumiðstöðvar

atvinnulífsins. Grunnmenntaskólinn

og Skrifstofuskólinn eru

gott dæmi um það og það sem

laðar fullorðna ekki síst í námið

er að fyrir námið fá þeir framhaldsskólaeiningar.

Þetta skiptir

miklu máli.Tómstundanámskeið

eru ekki eins eftirsótt og áður var,

en þó verð ég að nefna það að þrjú

námskeið í silfursmíði voru haldin

á síðasta skólaári,“ segir Bryndís.

Símenntun á Norðurlandi

vestra efld

Hún segir að Farskólinn sé fyrir

alla íbúa á Norðurlandi vestra.

„Okkar markhópur er fyrst og

fremst fullorðið fólk á vinnumarkaði,

en Farskólinn er líka

fyrir þá sem stefna á háskólanám

eða eru þegar byrjaðir. Nemendur

skólans eru á öllum aldri; allt

frá 16 ára til eldri borgara. Innflytjendur

koma hingað til okkar

á íslenskunámskeið en þeir skrá

sig líka á starfstengd námskeið

eins og fagnámskeið fyrir starfsfólk

í heilbrigðisþjónustu. Við

ætlum að beina sjónum okkar að

iðnaðarmönnum næstu misserin,

bæði ófaglærðum og þeim sem

vilja fara í framhaldandsnám. Þeir

munu heyra frekar frá okkur í

haust,“ segir Bryndís.

Hlutverk

Farskólans

er að sinna

símenntun

fullorðinna á

svæðinu

Bryndís Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri

Farskólans,

Markmið Farskólans eru samkvæmt

skipulagsskrá að efla endur-

og símenntun á Norðurlandi

vestra, greina þarfir fyrir fræðslu

bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

„Farskólanum er ætlað

að vera í góðu samstarfi við

fyrirtæki og stofnanir á svæðinu

og nú erum við að spýta í lófana

hvað þetta varðar enda kominn til

okkar náms- og starfsráðgjafi sem

mun sinna fyrirtækjum sérstaklega,“

segir Bryndís.

Aðilar að skólanum eru sveitarfélög

á Norðurlandi vestra,

stéttarfélög, skólar og fyrirtæki.

„Hlutverk Farskólans er að sinna

símenntun fullorðinna á svæðinu,

bæði einstaklingum og í samvinnu

við fyrirtæki og stofnanir, ásamt

því að hafa umsjón með fjarnemendum

í háskólanámi. Farskólinn

starfar náið með öðrum fræðsluog

símenntunarmiðstöðvum á

Íslandi.

Farskólinn hefur mikla þýðingu

fyrir svæðið og ég tel atvinnulífið

gera sér grein fyrir því.

Sem dæmi nefni ég að þegar fólk

hefur misst vinnuna þá höfum

við getað brugðist fljótt við, að

beiðni Vinnumálastofnunar og

Margrét Björk Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi og

Jóhann Ingólfsson, verkefnastjóri.

boðið upp á námskeið fyrir hópinn.

Í Austur-Húnavatnssýslu er

til dæmis stórt námskeið, Eflum

byggð, sem styrkt er úr sjóði vegna

kvótaniðurskurðar og er ætlað

íbúum sem vilja efla sig í starfi

eða skipta um starfsvettvang á

sínu heimasvæði. Þar leggjum við

áherslu á mikla sjálfstyrkingu og

frumkvöðlafræði, svo dæmi séu

tekin. Samstarfsaðilar okkar þar

eru Fjölbrautaskólinn og Hólaskóli-háskólinn

á Hólum,“ segir

Bryndís.

efur ámsgagnastofnunar www.nams.is

tengir saman nám og leik

Vefur Námsgagnastofnunar er öllum opinn án endurgjalds. Á vefnum eru

hátt í 400 rafrænir titlar. Gagnvirkir vefir eru nærri 100 og þá má finna á

forsíðu www.nams.is undir Krakkasíðum og Unglingasíðum.

Efni vefjarins er gott að nota sem ítarefni með almennu námsefni barna

til heimanáms og tengja þannig saman nám og skemmtun. Foreldar eru

eindregið hvattir til að kynna sér það margvíslega efni sem stendur til

boða á www.nams.is

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á því námsefni sem er í boði fyrir

grunnskóla að skrá sig á póstlista Námsgagnastofnunar til að fá

sendar tilkynningar um allt nýtt efni sem kemur út.

Kennslubækur

-Ferðamálaskóli MK í Kópavogi

Ferðaþjónustan er ein bjartasta vonin í

atvinnulífi Íslendinga

Ferðamálaskóli MK í Kópavogi

hefur boðið upp á nám

í ferðaþjónustu frá árinu

1987 og leggur mikla áherslu

á öflugt starfsnám og gott

samstarf við atvinnulífið.

Helene H. Pedersen, fagstjóri

Ferðamálaskólans, segir að námið

sé mjög hagnýtt og undirbúi

nemendur beint undir frekara

starf í greininni. „Við bjóðum upp

á skemmtilegt alhliða nám á sviði

ferðaþjónustu þar sem nemendur

fræðast um land og þjóð og

uppbyggingu og starfsemi greinarinnar.

Námið býður upp á ótal

möguleika og starfsmöguleika

í greinnni, á ferðaskrifstofum,

upplýsingamiðstöðvum, flugfélögum,

hótelum og afþreyingarfyrirtækjum,

svo eitthvað sé

nefnt. Náin tengsl skólans við

atvinnulífið eru þýðingarmikil

og mörg fyrirtæki í greininni

leita til okkar eftir starfsfólki.

Eftir tveggja anna bóklegt nám

fara nemendur í starfsþjálfun

í þrjá mánuði þannig að flestir

eru komnir með starf í greininni

þegar þeir útskrifast úr náminu.

Sumir nemendur hafa líka valið

að mennta sig enn frekar eftir

námið hjá okkur og er samningur

í gangi milli okkar og Háskólans

á Hólum þannig að útskrifaðir

nemendur frá okkur geta

farið beint inn á annað ár í ferðamálafræðum

og lokið BA námi á

tveimur árum,“ segir Helene.

Fjölbreyttur

nemendahópur

Hún segir fjölbreyttan hóp

fólks sækja nám í Ferðamálaskólanum.

„Þeir nemendur sem

koma í þetta nám eru á öllum

aldri, allt frá tvítugu og alveg

upp að sextugu. Fólk kemur

með ólíkan bakgrunn inn í námið,

einhverjir koma beint eftir

stúdentspróf, aðrir hafa starfað í

greininni og vilja bæta við þekkingu

sína og enn aðrir koma inn

Náin tengsl skólans

við atvinnulífið

eru þýðingarmikil

og mörg fyrirtæki

í greininni leita

til okkar eftir

starfsfólki.

Nemendahópur Ferðamálaskólans er af öllum

aldri og úr öllum stigum lífsins.

gagngert til að breyta um starfsvettvang.

Einstaka hafa síðan

farið út í eigin rekstur eftir námið

hjá okkur,“ segir Helene.

Alhliða menntun

Í Ferðamálaskólanum eru

þrjár námslínur: starfstengt

ferðafræðinám, flugþjónustunám

og hagnýtt ferðafræðinám.

Markmið starfstengda

ferðafræðinámsins er að bjóða

upp á hagnýtt nám og alhliða

menntun á sviði ferðaþjónustu.

Flugþjónustunámið er undirbúningur

fyrir störf í farþegarými

flugvéla og er markmið

námsins að útskrifa nemendur

með undirstöðuþekkingu í flugöryggismálum

og ferðaþjónustu.

Hagnýtt ferðafræðinám er

námsleið sem veitir ferðaþjónustuaðilum

og öðrum áhugasömum

tækifæri til að sækja sér

menntun þegar þeim hentar. Í

skólanum er boðið upp á kvöldnám,

sem er eins árs nám fyrir

tuttugu ára og eldri og dagnám

fyrir menntaskólanemendur

sem geta valið sér ferðalínu til

stúdentsprófs.

Skortur á fagfólki

Helene segir að nám af þessum

toga sé ferðaþjónustuiðnaðinum

gríðarlega mikilvægt og

skortur hafi verið á menntuðu

fólki í greininni. „Þegar Ferðamálaskólinn

hóf starfsemi sína

var enginn annar sambærilegur

skóli starfræktur og var í

raun krafa frá atvinnulífinu um

svona nám. „Það er nauðsynlegt

að hafa fagfólk sem tekur

á móti erlendum sem innlendum

ferðamönnum. Ferðaþjónusta

mun á næstu misserum

vera okkar helsta vopn við að

styrkja ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.

Ferðaþjónusta er

ein bjartasta vonin í atvinnulífi

okkar Íslendinga og þess vegna

er nauðsynlegt að byggja ferðaþjónustuna

vel upp strax,“ segir

Námsvefir

NÁMSGAGNASTOFNUN | Víkurhvarfi 3 | 203 Kópavogur | S: 535 0400

Á

er að finna:

✓ Gagnvirkt námsefni.

✓ Upplýsingar um námsefni.

✓ Póstlisti fyrir þá sem vilja fygjast með.

✓ Hljóðbækur til niðurhlaðs.

✓ Kennsluleiðbeiningar til útprentunar.

✓ Fræðslumyndir fyrir skóla.

Skoðið