You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
22 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 23

Viðskiptasmiðjan er

hraðbraut inn í nýja tíma

Annað starfsár hjá Viðskiptasmiðjunni

– hraðbraut nýrra

fyrirtækja er að hefjast en það

var Klak- Nýsköpunarmiðstöð

atvinnulífsins og Háskólinn

í Reykjavík sem komu Viðskiptasmiðjunni

á legg. Með

því skyldi gefa frumkvöðlum

möguleika á að stofna ný fyrirtæki

eða koma fyrirtækjum

sínum á rétta braut. Verkefnið

er einungis eitt: Að búa til

samkeppnishæft fyrirtæki.

„Það eru allavega fimm góðar

ástæður fyrir frumkvöðla og fyrirtæki

á ólíkum stigum að vera í

Viðskiptasmiðjunni,“ segir Eyþór

Jónsson, en auk þess að vera

framkvæmdastjóri Klaks kennir

hann við Viðskiptaháskólann í

Kaupmannahöfn. „Frumkvöðlarnir

í Viðskiptasmiðjunni eru

sumir hverjir að taka fyrstu

skrefin við koma fyrirtæki á

fót en aðrir stýra fyrirtækjum

sem þegar hafa náð langt en

vilja komast á hraðbraut til árangurs.“

Þeir sem skemmst eru

komnir fá aðstoð við að búa til

viðskiptaáætlanir en hinir sem

lengra eru komnir vilja skoða

og endurskipuleggja stöðu fyrirtækisins

og mögulega framtíð

þess. Frumkvöðlar sem vilja taka

að sér stjórnunarstöðu í vaxandi

fyrirtæki fá einnig mikla þjálfun

í stjórnun og stefnumótun.

Í Viðskiptasmiðjunni fara þeir

á nokkurs konar hraðbraut þar

sem þeir geta endurskipulagt

fyrirtækið og aukið enn vaxtarmöguleika

þess.“

Ástæðurnar fimm

-Hverjar eru þessar fimm

ástæður sem menn ættu að hafa

í huga þegar þeir leita til Viðskiptasmiðjunnar?

„Í fyrsta lagi má nefna að

í Viðskiptasmiðjunni styrkja

menn stoðir fyrirtækisins sem

er vissulega mikilvægt í þeim

umhleypingum sem gengið hafa

yfir Ísland að undanförnu,“ segir

Eyþór. „Leiðbeinendur, sérfræðingar

og kennarar hjálpa stjórnendum

fyrirtækjanna að finna

Klak – Nýsköpunarmiðstöð

rekur Sprotaþing Íslands

sem var stofnað árið 2005

með þátttöku helstu hagsmunaaðila

sprotafyrirtækja

á Íslandi. Eitt helsta verkefni

Sprotaþings Íslands hefur

verið Seed Forum Iceland

ráðstefnan sem hefur verið

haldin tvisvar á ári. Sú tíunda

verður haldin 9. október

næstkomandi. Hlutverk Seed

Forum er að hjálpa sprotafyrirtækjum

að kynna sig fyrir

fjárfestum og semja við þá

og hafa mörg af þekktustu

sprotafyrirtækjum landsins

einmitt kynnt sig fyrst á þessum

ráðstefnum.

Að jafnaði kynna um 4-6 íslensk

fyrirtæki sig á hverri

ráðstefnu og 2-4 erlend fyrirtæki.

Öll þessi fyrirtæki

fara í gegnum æfingabúðir

með það að leiðarljósi að

koma réttu boðunum til skila

til fjárfesta. Að miklu leyti

Eyþór Jónsson framkvæmdastjóri Klaks

hvernig best sé að bregðast við

aðstæðum. Þeir gefa einnig ráð

sem skipta máli og marg borga

sig í verðmætasköpuninni.

Í öðru lagi er frumkvöðlum

kennt hvernig þeir skuli nálgast

fjárfesta og styrktaraðila en þýðingarmikið

er að skapa trúverðugleika

gagnavart þeim, sem

og lánastofnunum. Fjárfestar

eru meðal ráðgjafa og kennara í

Viðskiptasmiðjunni og kynnast

frumkvöðlunum og fyrirtækjunum

um leið og þeir hjálpa til

Sprotaþing Íslands 9. október

snýst þetta um að skapa trúverðugleika.

Eyþór Jónsson, framkvæmdastjóri

Klaks og stjórnarformaður

Sprotaþings Íslands,

segir að lengi vel hafi Seed

Forum Iceland verið eini

vettvangurinn þar sem eitthvað

var gert til að kynna

sprotafyrirtæki. Miklu meiri

áhugi hefur hins vegar vaknað

á nýjum og áhugaverðum

fyrirtækjum á Íslandi síðustu

misserin. Flestum kemur hins

vegar á óvart hversu mikið líf

er í grasrót fyrirtækjamarkaðarins.

Á síðasta ári tók

Eyþór saman lista yfir 100

áhugaverð íslensk sprotafyrirtæki

fyrir Frjálsa verslun og

urðu menn undrandi hversu

mörg og fjölbreytt þau voru.

Nú undirbýr hann nýjan lista

og þar verða hvorki fleiri né

færri en 200 fyrirtæki sem

sýnir svo ekki um verður um

villst að það er góður sprotavöxtur

á Íslandi.

við að auka fjárfestingarhæfni

þeirra. Þetta getur haft úrslitaáhrif

þegar leitað er eftir fjárfestum.

Í þriðja lagi skapast tengslanet

nýrra og ört vaxandi fyrirtækja

í Viðskiptasmiðjunni. Þar kemst

á samstarf fremur en samkeppni

nýrra og vaxandi fyrirtækja

sem skiptir miklu í framþróun

þeirra. Þarna skiptast menn á

skoðunum og ráðum og vinna

saman. Stjórnendur sem oft eru

einangraðir fá hér möguleika á

að skoða tækifæri og leita lausna

á vandamálum með öðrum sem

eru í svipaðri stöðu.

Fjórða ástæðan er að í Viðskiptasmiðjunni

auka menn

þekkingu sína á stjórnun og

stefnumótun en þetta tvenn

hefur verið vanmetið hér. Það

er nefnilega ekki nóg að hafa

fjármagn ef menn kunna ekki til

stjórnunar né hafa mótað fyrirtækinu

stefnu.

Fimmta ástæðan er tilgangur

Viðskiptasmiðjunnar sem

er að búa til ný fyrirtæki og sjá

til þess að þau nái árangri en

samtímis er hægt að stunda 90

eininga diplomanám við Háskólann

í Reykjavik. Nemendur

þurfa að taka níu námskeið, skila

lokaverkefni eftir hverja önn og

hljóta í lokin gráðu frá Háskólanum

í Reykjavík.“

Spurning um trúverðugleika

Fjölbreytt námsframboð

Á hverju ári er boðið upp á

80-90 hnitmiðjuð námskeið í

Viðskiptasmiðjunni sem velja

má úr og spanna þau fimm svið:

Stjórnun, stefnumótun, markaðsmál,

fjármál og nýsköpun.

Þessum námskeiðum svipar að

einhverju leyti til MBA-námskeiða

sem kennd eru víða í háskólum

en eru þó markvissari

og praktískari fyrir stjórnendur

bæði nýrra og eldri sprotafyrirtækja.

Einn meginkostur

námsins í Viðskiptasmiðjunni

er, að sögn Eyþórs, að þar eru

nemendur að vinna verkefni

sem eru ekki ímynduð heldur

byggð á raunveruleikanum úr

eigin fyrirtæki, eða fyrirtæki

sem þeir eru í þann veginn að

stofna. Viðskiptaáætlanir eru

unnar jafnhliða því að fyrirtækin

eru byggð upp og snúast um að

tengja betur saman aðgerðir og

áætlanir. Öll verkefni fjalla um

fyrirtækið sem menn eru að búa

til. Ráðgjafar og kennarar sem

starfa við Viðskiptasmiðjuna

gefa svo jafnóðum ráð og endurgjöf

fyrir aðeins lítið brot af

þeim kostnaði sem frumkvöðlar

þyrftu annars að leggja út ef þeir

vildu kaupa sér slíka sérfræðiþekkingu

annars staðar.

Viðskiptasmiðjan er ákveðinn

gæðastimpill og öryggisventill

á íslensk sprotafyrirtæki.

Styrktaraðilar og fjárfestar

geta verið miklu öruggari um

gæði og áræðni frumkvöðla

og þeirra sprotafyrirtækja

sem eru í Viðskiptasmiðjunni

vegna þess að það er svo mikill

fjöldi sérfræðinga sem er að

hjálpa frumkvöðlum að byggja

upp fyrirtæki sín. Fulltrúar

styrktaraðila og fjárfesta eru

einnig annað hvort dómarar

í prófkynningum eða kennarar

og ráðgjafar. Innlendir

sjóðir hafa fjárfest í fyrirtækjum

eins og Trackwell, AGR

og Gogoyoko sem eru í Viðskiptasmiðjunni

og átta fyrirtæki

úr Viðskiptasmiðjunni

hlutu styrki frá Tækniþróunarsjóði,

þar á meðal Fafu, Remake

Electronics og Vitver.

Jafnframt eru erlendir fjárfestar

að skoða fyrirtækin og

nokkur fyrirtæki eru að sækja

um erlenda styrki í samstarfi

við Klak og Háskóla Reykjavíkur.

Nemendahópurinn

þrískiptur

„Að jafnaði hafa um 30 fyrirtæki,

eða fulltrúar þeirra, notið

leiðsagnar Viðskiptasmiðjunnar

á hverri önn. Hópurinn skiptist

í þrennt, nýliða, fólk frá fyrirtækjum

sem þegar hafa tekið

til starfa en þurfa aðstoð við að

komast á verulegt flug og loks

er þriðji hópurinn, þeir sem eru

lengra komnir en vilja skoða nýjar

leiðir í rekstrinum og ná enn

lengra en þeir hafa þegar gert.“

Þar sem nemendur Viðskiptasmiðjunnar

koma jafn víða að og

raun ber vitni og eru á ýmsum

aldri og með ólíka reynslu skapast

mikil dýnamik innan hópsins.

Þar fyrir utan hafa jafnvel

komist á ný viðskiptasambönd

milli þeirra ólíku fyrirtækja sem

eiga þarna fulltrúa, sambönd

sem ekki voru fyrir hendi áður

en menn hittust í Viðskiptasmiðjunni.

Við þetta má bæta

að þegar komið hefur að því

að menn hafa viljað sækja um

styrki úr fjárfestingarsjóðum

hefur reynsla þeirra sem þegar

hafa hlotið styrki nýst þeim sem

eru að sækja um í fyrsta sinn og

hafa þeir jafnvel reynst bestu

leiðbeinendurnir hvað umsóknarferlið

varðar.

Næsta önn Viðskiptasmiðjunnar

hefst 14. september

næstkomandi en frumkvöðlar

geta sótt um þátttöku í Viðskiptasmiðjunni

þrisvar á ári, á

haustönn, vorönn og sumarönn.

Frumkvöðlar ráða hversu lengi

þeir taka þátt en ferlið er í heild

sinni þrjár annir eða eitt ár.

www.klak.is

Betra nám

Mannréttindamál að læra að lesa

Fyrirtækið Betra nám hefur

starfað síðan árið 2003

þegar innleiðing á svokölluð

Davis aðferðafræði hófst, en

hún hjálpar einstaklingum

að glíma við lesblindu. Síðan

þá hefur starfsemin þróast og

einskorðast nú ekki eingöngu

við námskeið tengd lesblindu,

heldur er einnig í boði námskeið

í hraðlestri, minnistækni,

hugarkortum (glósutækni) og

stærðfræði. Ein nýjungin er

vefnámskeið í grunnatriðum

stærðfræðinnar.

Kolbeinn Sigurjónsson, ráðgjafi

hjá Betra námi segir að staðreyndin

sé sú að fjöldi nemenda sé ekki

að ná ásættanlegum árangri og

Davis aðferðafræðin hafi vakið

athygli víða um heim fyrir góðan

árangur í glímunni við lesblindu,

en Kolbeinn er faglærður Davis

lesbilnduráðgjafi og með B.sc. í

Hefur þú sett þér

markmið

fyrir haustið?

Við bjóðum m.a. upp á:

Tölvunarfræði. Davis lesblindunámskeið

er vikulangt einstaklingsnámskeið

en þar er farið kerfisbundið

í rót lestrarvandans.

Upprifjunarlestur óþarfur

Betra nám býður einnig upp

á námskeið í minnistækni sem

byggir á aldagömlum aðferðum

sem gera utanbókarlærdóm

mun auðveldari. „Að muna mikið

magn nafna, atburða og ártala er

· Raunfærnimat í húsasmíði og vélvirkjun

· Skrifstofuskóla

· Grunnmenntaskóla

· Fagnámskeið fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu

· Tómstundanámskeið

· Áhugasviðspróf

· Greiningar á lestrarerfiðleikum

· Náms- og starfsráðgjöf

· …..og margt fleira

Varlega áætlað

má reikna með

að 15% þjóðarinnar

glími

við einhverja

lestrarörðugleika,

eða

30-45.000

einstaklingar, og

eru fjölmargir

þeirra hornreka

í skólakerfinu.

auðvelt. Hugarkort eru svo glósutækni

sem auðvelt er að nota því

lítið þarf að skrifa og nánast ekkert

að lesa. Gott hugarkort getur

gert upprifjunarlestur óþarfan

og því sparað mikinn tíma,“ segir

Kolbeinn.

Vefnámskeiðið „Reiknum hraðar“

er nýtt af nálinni hjá Betra

námi, en það þjálfar nemandann

í grunnatriðum stærðfræðinnar,

Getum við

aðstoðað þig?

samlagningu, margföldun, frádrætti

og deilingu. „Námskeiðið

er mjög myndrænt og einfalt

og árangur er nánast tryggur sé

námskeiðinu fylgt. Ég mæli hiklaust

með þessu námskeiði fyrir

þá glíma við erfiðleika á þessu

stigi, því öll stærðfræði byggir á

þessum grunni,“ segir Kolbeinn.

Fjölmargir hornreka í

skólakerfinu

Kolbeinn segir að flestir viðskiptavina

sinna séu nemendur

sem glíma við námsörðugleika og

fái því miður ekki úrlausn sinna

mála í skólakerfinu. „Fjölmargir

leita til mín með börn sem varla

geta lesið eftir nokkurra ára nám

í grunnskóla og mörg dæmi um

krakka sem varla kunna stafina í

4. bekk.

Ég tel það mannréttindamál

að læra að lesa, en varlega

áætlað má reikna með að 15%

þjóðarinnar glími við einhverja

lestrarörðugleika, eða 30-45.000

einstaklingar, og eru fjölmargir

þeirra hornreka í skólakerfinu.

Ég hef hitt allt of marga sem eiga

martraðarkennda skólagöngu að

baki.

Þessu þarf að breyta því þarna

fer gríðarlegur mannauður í súginn.

Staðreyndin er nefnilega sú,

og foreldrar þessara barna taka

líklega undir það, að oftast er um

að ræða bráðgreinda og fjöruga

einstaklinga með öflugt ímyndunarafl.

Þeir blómstra þegar um

er að ræða verklega, sjónræna

og skapandi vinnu, s.s. að smíða,

teikna, baka o.s.frv. Erfiðleikarnir

beinast að táknum fyrst og

fremst. Það er glerþak til staðar

í skólakerfinu sem stöðvar þessa

nemendur. Við hljótum að geta

gert betur,“ segir Kolbeinn.

Hringdu í okkur í síma 437-2390 til að fá

nánari upplýsingar eða sendu okkur tölvupóst

á simenntun@simenntun.is

Kíktu líka á vefinn okkar www.simenntun.is