Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Menntun, námskeið og nýsköpun

2009, 1. tbl. 1 árg.
• Menntun, námskeið og nýsköpun

Frá útgefanda

Nú þegar sumri fer að ljúka fara skólarnir

að opna dyr sínar að nýju og þjóðin

sest aftur á skólabekk. Í ljósi þrenginga

á atvinnumarkaði má ljóst vera að

menntun og fræðsla munu gegna nú

enn stærra hlutverki fyrir íslenskt samfélag

og í beinum tengslum við það hefur

nýsköpun fengið stóraukið vægi þar

sem nýjar og ferskar hugmyndir blása

fersku lofti inn í íslenskt atvinnulíf.

Marga órar vafalaust ekki fyrir því

framboði á fræðslu- og námsleiðum

sem er í boði. Upp hafa verið að spretta

nýjar og öflugar menntastofnanir sem

bjóða upp á sérhæfðara nám en áður

hefur þekkst. Starf sí- og endurmenntastofnanna

hefur farið ört vaxandi og

spilar nú stærri rullu en nokkru sinni

fyrr og gefur fólki út um allt land tækifæri

til að bæta stöðu sína á atvinnumarkaði.

Fjölbreytileiki námskeiðanna

sem í boði eru er gríðarlegur, allt frá

stuttum tómstundarnámskeiðum til

starfstengdsnáms. Innflytjendum er

gert kleift að aðlagast íslensku samstarfi,

ófaglærðir geta styrkt starfsferill

sinn, áhugasamir geta fræðst um tölvur,

bókmenntir, ljósmyndun og margt

fleira. Listaskólar lifa líka góðu lífi og

hefur söng, tónlistar og dansnám sjaldan

verið vinsælla.

Á þessum miklu breytingartímum

sem við lifum á er því mikið gleðiefni

að menntun, fræðsla og nýsköpun lifa

góðu lífi og við vonum að þetta blað gefi

lesendum innsýn inn í þessa fjölbreyttu

flóru .

Einar Þorsteinn Þorsteinsson

Menntun, námskeið og nýsköpun

– mi 2009, 1. tbl. 1. árg.

Útgefandi:

Land og Saga

Interland ehf

110 Reykjavík

Sími 534 1880

www.LandogSaga.is

LandogSaga@LandogSaga.is

Ritstjóri og framkvæmdastjóri:

Einar Þorsteinsson

Einar@LandogSaga.is 822 0567

Markaðs- og sölumál:

Sara Valný Sigurjónsdóttir

sara@landogsaga.is 698 6171

Auglýsingastjóri:

Ámundi Ámundason 824 2466

Blaðamenn:

Vignir Andri Guðmundsson

vignira@hotmail.com 864 6959

Fríða Björnsdóttir

fridabjornsdottir@gmail.com

897 3462

Geir A. Guðsteinsson

geir@mar.is 898 5933

Forsíðumynd:

Ingólfur Júlíusson

Umbrot:

Ingólfur Júlíusson

auglysingastofa@gmail.com

690 3411

Prentun:

Landsprent. Prentað í 80.000

eintökum.

Dreifing:

Með helgarútgáfu Morgunblaðsins,

allir sölustaðir N1 og

200 aðrir staðir á landinu.
• Menntun, námskeið og nýsköpun

Grunngildin fjögur

Þekkingarmiðlun sérhæfir

sig í að miðla þekkingu

og styrkja einstaklinga og

vinnustaði. Fyrirtækið býður

upp á námskeið og fyrirlestra

m.a. um einstaklinginn,

stjórnandann, vinnustaðinn,

viðskiptavininn og

um umhverfið, öryggið og

heilsuna. Grunngildi Þekkingarmiðlunar

eru:

Fagmennska í vinnubrögðum

Framúrskarandi þjónusta

Ábyrgð í orðum og gerðum

Metnaður fyrir árangri

Eyþór Eðvarðsson.

Ljósm. Ingó

Stjórnendur þurfa líka að vera leiðtogar

OPIÐ HÚS

LAUGARDAGINN 29. ÁGÚST

FRÁ KL. 13:00 - 16:00 - KENNARAR VERÐA Á STAÐNUM OG VEITA RÁÐGJÖF - 10 HEPPNIR GESTIR GETA UNNIÐ 25.000 KR. GJAFABRÉF

Upplýsingar og skráning:

Kreppan og þær hörmungar

sem hafa dunið yfir íslenskt

samfélag undanfarið tæpt

ár hafa haft alvarleg áhrif á

íslensk fyrirtæki sem mörg

hver eru í erfiðri stöðu. „Samfélagið

í heild og vinnustaðir

eru í einhverskonar tómarúmi

á milli þess sem var og verður,“

segir Eyþór Eðvarðsson M.A. í

vinnusálfræði sem á og rekur

fyrirtækið Þekkingarmiðlun

ásamt Ingrid Kuhlman.

Og Eyþór bætir við: „Þær stóru

breytingar sem átt hafa sér stað

hér á landi eru ekki hefðbundnar

eða sambærilegar við það þegar

fyrirtæki sameinast eða verið

er að skipta um tölvukerfi. Þess

vegna þarf að bregðast við þeim

á nýjan hátt. Það sem er sérstakt

við umbreytinguna sem við

erum í núna er mikið óöryggi,

óvissa, reiði, særindi, vonleysi

og framtíðin virðist svört. Hugmyndafræðin,

skipulagið og í

raun allt kerfið sem við unnum

eftir er breytt og það er ekkert

komið enn í staðinn. Í þannig

ástandi þrífst vantraust og tortryggni,

t.d. gagnvart yfirvöldum

og stjórnendum. Framleiðni,

afköst, frumkvæði og metnaður

minnkar. En það þarf ekki að

vera þannig.

Stór hluti starfs okkar er að aðstoða

stjórnendahópa og vinnustaði

við að ná tökum á ástandinu.

Mikilvægast núna er að

stjórnendahópar átti sig á hlutverki

sínu sem er að leiða vinnustaðinn

í gegnum ástandið og

Nýir og óvenjulegir fyrirlestrar

• Þekkingarmiðlun hefur hafið samstarf við Matvælaskólann

hjá Sýni við uppbyggingu á námskeiðum í stjórnun og

samskiptum. En Sýni hefur um nokkurt skeið staðið fyrir

metnaðarfullum námskeiðum fyrir m.a. fyrirtæki í matvælaiðnaðinum.

• Þekkingarmiðlun býður upp á nýja fróðlega og skemmtilega

fyrirlestra. Gott dæmi er „Hvernig borð vill Bára?“ þar

sem tekin eru fyrir 150 íslensk orðatiltæki, því lýst hvaðan þau

koma og hvað þau þýða.

• Annar fyrirlestur í svipuðum dúr fjallar um margs konar

bönn í samfélaginu sem byggjast á langri hefð, eins og t.d. að

ekki má gefa hníf þar sem það getur skorið á vináttuna eða

tómt veski sem boðar fátækt.

• Eitt af því sem boðið er upp á í vetur er samskipta- og leiðtoganámskeið

þar sem notast er við hesta, en næmi hesta á

óyrta tjáningu og samskipti gerir þá ákjósanlega þegar draga

á fram mikilvæg atriði í samskiptum eins og einlægni, skýr

skilaboð og traust. Hestar vilja leiðtoga sem þeir treysta og

skilja, annars láta þeir ekki að stjórn. Námskeiðið byggist að

nokkru leyti á aðferðum svokallaðra hestahvíslara sem kenndar

eru erlendis á samskipta- og leiðtoganámskeiðum.

• Bókakynningarnar, Gyrtu í brók...með góðri bók njóta

vaxandi vinsælda en þá er farið yfir valdar bækur, sagt frá þeim

og sérfræðingar Þekkingarmiðlunar fjalla um þær á fræðilegan

hátt. Mikill áhugi er á kynningunum og margir vinnustaðir

hafa sérstaklega beðið um þær og nýta umræðuna og tengja

hana við vinnustaðinn.

• Loks eru námskeið sem fjalla um hamingjuna og þakklætið

frá ýmsum sjónarhornum.

virkja þá krafta sem eru til staðar

eins og það að fólk vill leggja

sitt af mörkum. Stjórnendur og

starfsmenn verða að vera á varðbergi

gagnvart tilfinningum á

vinnustaðnum. Reitt fólk er ekki

þekkt fyrir skynsamar ákvarðanir

og hrætt fólk leitar alltaf að

fljótustu leiðinni í burtu. Fólk

þarf að vera yfirvegað og skynsamt

þegar aðstæður eru erfiðar

og flóknar.“

Langlíf fyrirtæki

„Reynsla langlífra framúrskarandi

fyrirtækja gefur sterka vísbendingu

um hvað það er sem

þarf að huga að. Eitt af því er fyrir

hvað vinnustaðurinn stendur.

Þegar á reynir skiptir máli

hvern mann þú hefur að geyma.

Sama gildir um vinnustaði. Þeir

vinnustaðir sem hafa skýr og lifandi

gildi og vita fyrir hvað þeir

standa eiga auðveldara með að

halda sjó. Við sem þjóð erum

t.d. núna að leita í gildin og að

svörum við spurningunni: Hver

erum við raunverulega og fyrir

hvað stöndum við. Annað sem

reynsla langlífra fyrirtækja sýnir

er að stjórnendur þurfa nú sem

aldrei fyrr að vera traustir, heiðarlegir,

einlægir og hreinskilnir.

Í ástandi þar sem óvissa ríkir

þarf allt að vera uppi á borðum,

gegnsæi í ákvarðanatöku og

opnar umræður um viðkvæma

hluti. Getan til að horfast í augu

við erfiðar aðstæður og taka erfiðar

ákvarðanir þarf að vera fyrir

hendi. Langlíf fyrirtæki kunna

einnig með peninga að fara. Við

gleymdum okkur hvað þetta

varðar í þessum svokallaða uppgangi.

Allt var hægt að kaupa og

fá lán fyrir öllu.“

Tímabil óvissu og óöryggis

má nýta vel

Ef vel er að verki staðið á

vinnustöðum er hægt að nýta

þetta tímabil óvissu og óöryggis

á uppbyggilegan hátt að mati

Eyþórs. „Vinnustaðir sem við

höfum unnið með hafa margir

hverjir náð að snúa ástandinu

sér í hag. Auðvitað er staða

margra mjög erfið en dæmi um

það sem fyrirtæki hafa gert er

að finna sparnaðartækifæri upp

á tugi milljóna, finna nýja markaði,

nýja viðskiptavini, nýjar

leiðir til að eiga viðskipti, styrkja

innviði vinnustaðarins og gera

hann kröftugri, straumlínulagaðri,

hreinskilnari og heilli.

Það sem fyrirtæki geta gert til

að flýta fyrir því að þau komist

út úr tómarúminu og í uppbygginguna

er að fara í gegnum

nokkra umbreytingarfasa.

Fyrsti fasinn er að gera ástandið

umræðuhæft, skilja hvað er að

gerast og átta sig á ástandinu.

Annar fasinn er að draga lærdóm

af fortíðinni, nýta það sem

gagnaðist og hætta því sem ekki

reyndist vel og skilja fortíðina

frá framtíðinni. Þriðji fasinn er

að móta framtíðarsýn sem er

raunhæf og spennandi og fjórða

stigið er að formgera framtíðarsýnina

í stefnunni, skipulaginu

og verklaginu.

Mikilvægt er að stjórnendur

hafi í huga að ástandið í dag

gerir kröfu á að stjórnendur geti

tekið að sér leiðtogahlutverkið

sem þýðir að þeir þurfa að horfa

lengra fram á tímann, hugsa

út fyrir rammann, ræða framtíðarsýnina,

spyrja spurninga

og leita leiða. Einnig að huga

að fólkinu og tryggja að hópurinn

haldist saman og stefni í

rétta átt. Ef vel er að verki staðið

munu þessir mánuðir sem

kreppan varir verða undirstaðan

fyrir öflugri fyrirtæki, öflugra

hagkerfi og umfram allt annað

enn sterkara og kraftmeira samfélag.

Framtíðin er í okkar höndum,“

segir Eyþór í lokin.

www.thekkingarmidlun.is

STARFSNÁM OG BRAUTIR

Skrifstofu- og tölvunám

Frumkvöðla og rekstrarnám

Sölu- og markaðsnám

Skrifstofunám & hönnun

Sölunám & hönnun

Skrifstofu- og rekstrarnám

Sölu-, markaðs- og rekstrarnám

ALMENNT TÖLVUNÁM

Tölvunám - fyrstu skrefin

Almennt tölvunám (ECDL)

TÆKNINÁM OG BRAUTIR

Diplomanám í forritun

Kerfisumsjón

Tölvuviðgerðir

MCITP (áður MCSA)

MCTS og Network+

Kerfisstjórinn

Cisco CCENT & CCNA

Windows Vista

MCDST

Styttri sérfræðinámskeið

í samvinnu við Opin Kerfi

NTV STYRKIR ATVINNULAUSA SEM NEMUR 25% AF VERÐI NÁMSKEIÐA

NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI : HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : WWW.NTV.IS

544 4500 / www.ntv.is

INNRITUN HAUSTANNAR STENDUR YFIR!

BÓKHALD OG NAVISION

Grunnnám í bókhaldi

Bókaranám framhald

MARGMIÐLUN OG GRAFÍK

Grafísk hönnun

Photoshop Expert

Myndvinnsla m. Photoshop

Alvöru vefsíðugerð
• Menntun, námskeið og nýsköpun

-Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra

Fjölbreytt flóra námskeiða

Farskólinn, miðstöð símenntunar

á Norðurlandi vestra hefur

boðið upp á fjölbreytt námskeið

síðan árið 1992. Þessa

dagana er Farskólinn að viða að

sér efni í námsvísi haustannar

sem kemur út um næstu mánaðarmót.

Tvö stór námskeið frá

fyrra ári byrja nú í september;

þau eru Grunnmenntaskólinn

á Hvammstanga og Eflum

byggð á Blönduósi.

Bryndís Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri

Farskólans, segir

að Farskólinn bjóði upp á öll

þau námskeið sem þau finni

að eftirspurn sé eftir. „Námskeið

í tölvum, og tungumálum

hafa verið eftirsótt. Við leggjum

aukna áherslu á að bjóða upp á

starfstengd námskeið samkvæmt

námsskrám Fræðslumiðstöðvar

atvinnulífsins. Grunnmenntaskólinn

og Skrifstofuskólinn eru

gott dæmi um það og það sem

laðar fullorðna ekki síst í námið

er að fyrir námið fá þeir framhaldsskólaeiningar.

Þetta skiptir

miklu máli.Tómstundanámskeið

eru ekki eins eftirsótt og áður var,

en þó verð ég að nefna það að þrjú

námskeið í silfursmíði voru haldin

á síðasta skólaári,“ segir Bryndís.

Símenntun á Norðurlandi

vestra efld

Hún segir að Farskólinn sé fyrir

alla íbúa á Norðurlandi vestra.

„Okkar markhópur er fyrst og

fremst fullorðið fólk á vinnumarkaði,

en Farskólinn er líka

fyrir þá sem stefna á háskólanám

eða eru þegar byrjaðir. Nemendur

skólans eru á öllum aldri; allt

frá 16 ára til eldri borgara. Innflytjendur

koma hingað til okkar

á íslenskunámskeið en þeir skrá

sig líka á starfstengd námskeið

eins og fagnámskeið fyrir starfsfólk

í heilbrigðisþjónustu. Við

ætlum að beina sjónum okkar að

iðnaðarmönnum næstu misserin,

bæði ófaglærðum og þeim sem

vilja fara í framhaldandsnám. Þeir

munu heyra frekar frá okkur í

haust,“ segir Bryndís.

Hlutverk

Farskólans

er að sinna

símenntun

fullorðinna á

svæðinu

Bryndís Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri

Farskólans,

Markmið Farskólans eru samkvæmt

skipulagsskrá að efla endur-

og símenntun á Norðurlandi

vestra, greina þarfir fyrir fræðslu

bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum.

„Farskólanum er ætlað

að vera í góðu samstarfi við

fyrirtæki og stofnanir á svæðinu

og nú erum við að spýta í lófana

hvað þetta varðar enda kominn til

okkar náms- og starfsráðgjafi sem

mun sinna fyrirtækjum sérstaklega,“

segir Bryndís.

Aðilar að skólanum eru sveitarfélög

á Norðurlandi vestra,

stéttarfélög, skólar og fyrirtæki.

„Hlutverk Farskólans er að sinna

símenntun fullorðinna á svæðinu,

bæði einstaklingum og í samvinnu

við fyrirtæki og stofnanir, ásamt

því að hafa umsjón með fjarnemendum

í háskólanámi. Farskólinn

starfar náið með öðrum fræðsluog

símenntunarmiðstöðvum á

Íslandi.

Farskólinn hefur mikla þýðingu

fyrir svæðið og ég tel atvinnulífið

gera sér grein fyrir því.

Sem dæmi nefni ég að þegar fólk

hefur misst vinnuna þá höfum

við getað brugðist fljótt við, að

beiðni Vinnumálastofnunar og

Margrét Björk Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi og

Jóhann Ingólfsson, verkefnastjóri.

boðið upp á námskeið fyrir hópinn.

Í Austur-Húnavatnssýslu er

til dæmis stórt námskeið, Eflum

byggð, sem styrkt er úr sjóði vegna

kvótaniðurskurðar og er ætlað

íbúum sem vilja efla sig í starfi

eða skipta um starfsvettvang á

sínu heimasvæði. Þar leggjum við

áherslu á mikla sjálfstyrkingu og

frumkvöðlafræði, svo dæmi séu

tekin. Samstarfsaðilar okkar þar

eru Fjölbrautaskólinn og Hólaskóli-háskólinn

á Hólum,“ segir

Bryndís.

efur ámsgagnastofnunar www.nams.is

tengir saman nám og leik

Vefur Námsgagnastofnunar er öllum opinn án endurgjalds. Á vefnum eru

hátt í 400 rafrænir titlar. Gagnvirkir vefir eru nærri 100 og þá má finna á

forsíðu www.nams.is undir Krakkasíðum og Unglingasíðum.

Efni vefjarins er gott að nota sem ítarefni með almennu námsefni barna

til heimanáms og tengja þannig saman nám og skemmtun. Foreldar eru

eindregið hvattir til að kynna sér það margvíslega efni sem stendur til

boða á www.nams.is

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á því námsefni sem er í boði fyrir

grunnskóla að skrá sig á póstlista Námsgagnastofnunar til að fá

sendar tilkynningar um allt nýtt efni sem kemur út.

Kennslubækur

-Ferðamálaskóli MK í Kópavogi

Ferðaþjónustan er ein bjartasta vonin í

atvinnulífi Íslendinga

Ferðamálaskóli MK í Kópavogi

hefur boðið upp á nám

í ferðaþjónustu frá árinu

1987 og leggur mikla áherslu

á öflugt starfsnám og gott

samstarf við atvinnulífið.

Helene H. Pedersen, fagstjóri

Ferðamálaskólans, segir að námið

sé mjög hagnýtt og undirbúi

nemendur beint undir frekara

starf í greininni. „Við bjóðum upp

á skemmtilegt alhliða nám á sviði

ferðaþjónustu þar sem nemendur

fræðast um land og þjóð og

uppbyggingu og starfsemi greinarinnar.

Námið býður upp á ótal

möguleika og starfsmöguleika

í greinnni, á ferðaskrifstofum,

upplýsingamiðstöðvum, flugfélögum,

hótelum og afþreyingarfyrirtækjum,

svo eitthvað sé

nefnt. Náin tengsl skólans við

atvinnulífið eru þýðingarmikil

og mörg fyrirtæki í greininni

leita til okkar eftir starfsfólki.

Eftir tveggja anna bóklegt nám

fara nemendur í starfsþjálfun

í þrjá mánuði þannig að flestir

eru komnir með starf í greininni

þegar þeir útskrifast úr náminu.

Sumir nemendur hafa líka valið

að mennta sig enn frekar eftir

námið hjá okkur og er samningur

í gangi milli okkar og Háskólans

á Hólum þannig að útskrifaðir

nemendur frá okkur geta

farið beint inn á annað ár í ferðamálafræðum

og lokið BA námi á

tveimur árum,“ segir Helene.

Fjölbreyttur

nemendahópur

Hún segir fjölbreyttan hóp

fólks sækja nám í Ferðamálaskólanum.

„Þeir nemendur sem

koma í þetta nám eru á öllum

aldri, allt frá tvítugu og alveg

upp að sextugu. Fólk kemur

með ólíkan bakgrunn inn í námið,

einhverjir koma beint eftir

stúdentspróf, aðrir hafa starfað í

greininni og vilja bæta við þekkingu

sína og enn aðrir koma inn

Náin tengsl skólans

við atvinnulífið

eru þýðingarmikil

og mörg fyrirtæki

í greininni leita

til okkar eftir

starfsfólki.

Nemendahópur Ferðamálaskólans er af öllum

aldri og úr öllum stigum lífsins.

gagngert til að breyta um starfsvettvang.

Einstaka hafa síðan

farið út í eigin rekstur eftir námið

hjá okkur,“ segir Helene.

Alhliða menntun

Í Ferðamálaskólanum eru

þrjár námslínur: starfstengt

ferðafræðinám, flugþjónustunám

og hagnýtt ferðafræðinám.

Markmið starfstengda

ferðafræðinámsins er að bjóða

upp á hagnýtt nám og alhliða

menntun á sviði ferðaþjónustu.

Flugþjónustunámið er undirbúningur

fyrir störf í farþegarými

flugvéla og er markmið

námsins að útskrifa nemendur

með undirstöðuþekkingu í flugöryggismálum

og ferðaþjónustu.

Hagnýtt ferðafræðinám er

námsleið sem veitir ferðaþjónustuaðilum

og öðrum áhugasömum

tækifæri til að sækja sér

menntun þegar þeim hentar. Í

skólanum er boðið upp á kvöldnám,

sem er eins árs nám fyrir

tuttugu ára og eldri og dagnám

fyrir menntaskólanemendur

sem geta valið sér ferðalínu til

stúdentsprófs.

Skortur á fagfólki

Helene segir að nám af þessum

toga sé ferðaþjónustuiðnaðinum

gríðarlega mikilvægt og

skortur hafi verið á menntuðu

fólki í greininni. „Þegar Ferðamálaskólinn

hóf starfsemi sína

var enginn annar sambærilegur

skóli starfræktur og var í

raun krafa frá atvinnulífinu um

svona nám. „Það er nauðsynlegt

að hafa fagfólk sem tekur

á móti erlendum sem innlendum

ferðamönnum. Ferðaþjónusta

mun á næstu misserum

vera okkar helsta vopn við að

styrkja ímynd Íslands á alþjóðavettvangi.

Ferðaþjónusta er

ein bjartasta vonin í atvinnulífi

okkar Íslendinga og þess vegna

er nauðsynlegt að byggja ferðaþjónustuna

vel upp strax,“ segir

Námsvefir

NÁMSGAGNASTOFNUN | Víkurhvarfi 3 | 203 Kópavogur | S: 535 0400

Á

er að finna:

✓ Gagnvirkt námsefni.

✓ Upplýsingar um námsefni.

✓ Póstlisti fyrir þá sem vilja fygjast með.

✓ Hljóðbækur til niðurhlaðs.

✓ Kennsluleiðbeiningar til útprentunar.

✓ Fræðslumyndir fyrir skóla.

Skoðið
• Menntun, námskeið og nýsköpun

Menntun, námskeið og nýsköpun •

Hljóðbókasíðan

Hlusta.is

Hljóðbókasíðan Hlusta.is hefur

nú verið starfrækt í nokkra

mánuði og verið vel tekið að

sögn eigenda. Markmiðið með

síðunni er að gefa almenningi

kost á afþreyingu og fróðleik

með því að hlusta á skemmtilegan

og áhugaverðan upplestur.

Geta notendur valið milli

þess að hlusta beint af tölvunni

sinni, hlaðið lestrunum á iPod

og/eða brennt þá á geisladisk.

Efnið er allt á íslensku og

margvíslegt, t.d. Íslendingasögur

og skáldsögur íslenskra

höfunda sem komnir eru úr

höfundarétti. Sem dæmi um

slíka höfunda má nefna Torfhildi

Hólm, Jón Trausta, Einar

Kvaran, Jónas Hallgrímsson,

Ólöfu frá Hlöðum o.m.fl.

Þeir hjá Hlusta.is segja stefnuna

vera þá að gefa hlustendum góða

yfirsýn yfir íslenskar bókmenntir

fram yfir fyrra stríð, og krydda

það svo með nýlegra efni eftir

höfunda á borð við Matthías Johannessen

ritstjóra og skáld sem

er mikill áhugamaður um hljóðbækur

og stuðningsmaður Hlusta.

is. Auk skáldsögunnar Vatnaskil

má heyra á Hlusta.is margt af

verkum Matthíasar og innan tíðar

verður hægt að nálgast þar úrval

úr samtölum hans við áhugaverða

einstaklinga, samtöl sem allir fagurkerar

gleyptu í sig á árum áður

og verða jafnvel enn áhugverðari

þegar horft er til baka. Já, nýjasta

tæknin er notuð til að styðja við

sígilt og íslenskt efni á Hlusta.is.

Gegnsæi er lykilorðið

-Viðtal við Kristínu Björnsdóttur, rekstrarhagfræðing og ráðgjafa hjá FOCAL

Software & Consulting (Hópvinnukerfi ehf ).

Gæðastjórnunarskóli FO-

CAL Software & Consulting

(Hópvinnukerfa ehf.) býður

reglulega upp á margvísleg

námskeið sem öll styðja við

innleiðingu á auknu gegnsæi

í stjórnun rekstrarheilda.

Kristín Björnsdóttir, rekstrarhagfræðingur

og ráðgjafi

hjá FOCAL, segir að gegnsæi

sé lykilorðið í gæða- og skjalastjórnun

og að FOCAL hjálpi

Námskeið í boði hjá

Gæðastjórnunarskólanum

• Verkefnastjórnun skv. ISO

9001 og PRINCE2

Farið er kerfisbundið í

gegnum helstu þrep verkefnastjórnunar,

en byggt

er á PRINCE2 aðferðafræðinni

við verkefnastjórnun

og alþjóðlegum

kröfum gæðastaðalsins

ISO 9001.

• Skjalastjórnun skv. alþjóðlegum

skjalastjórnunarstaðli

Farið er í meðhöndlun

skjala frá myndun til

loka líftíma þeirra með

aðferðafræði skjalastjórnunarstaðalsins

ISO 15489.

• Gerð verklagsreglna I

Tengsl verklagsreglna og

vinnulýsinga við gæðakerfi

eru skýrð og uppsetning

og ritun þeirra með flæðiritum

kennd með aðferðafræði

gæðastjórnunar.

• Gerð og skipulag handbóka

Kennt er hvernig best er að

raða upp verklagsreglum,

vinnulýsingum og öðrum

gögnum inn í handbækur

til að notendur geti fundið

skjöl og auðvelt sé að reka

og viðhalda handbók.

• Gerð verklagsreglna II

(framhald af Gerð verklagsreglna

I)

Kennt er hvernig best er

að innleiða verklagsreglur,

viðhalda og stýra ferlum,

setja markmið og mæla

árangur til að ná aukinni

hagræðingu í rekstri.

• Framkvæmd innri úttekta

Farið er í aðferðafræði

við framkvæmd innri úttekta,

skýrt frá kröfum

ISO 9001:2000, farið yfir

hlutverk úttektarmanna

og hvernig best er að framkvæma

úttektir.

• Starfsþróunarsamtöl

(Starfsmannasamtöl)

Farið í heildarferil

starfsþróunarsamtala

(starfsmannasamtala),

undirbúning, innleiðingu

og eftirfylgni.

fyrirtækjum og stofnunum að

koma á auknu gegnsæi í stjórnun

fyrirtækja og stofnana með

hugbúnaði, ráðgjöf eða þjálfun

með námskeiðunum í FOCAL

Gæðastjórnunarskólanum.

„Það er lögð mikil áhersla á

gegnsæi þessa dagana, það að

aðgengi að gögnum og upplýsingum

sé einfalt, verklag í takt

við lög og reglur og vilja fyrirtækja

um hvernig á að stjórna.

Þessu er auðvelt að kasta fram,

en reynslan hefur sýnt okkur að

þetta er ekki framkvæmanlegt

nema með þverfaglegri aðferðafræði,

þar sem gæðastjórnun,

ferlastjórnun, verkefnastjórnun,

skjalastjórnun, þekkingarstjórnun,

mannauðsstjórnun, breytingastjórnun,

markaðsstjórnun,

öryggisstjórnun og upplýsingatækni

koma saman. FOCAL hefur

því sameinað úr öllum þessum

fögum, á 14 ára starfsferli,

aðferðir til að hjálpa fyrirtækjum

og stofnunum að auka gegnsæi í

stjórnun þeirra,“ segir Kristín.

Vinnuferlar skilgreindir

Hún segir að þó einhverjum

kunni að vaxa í augum þessi

stóru og flóknu hugtök, sé ekki

til það fyrirtæki sem ekki þarf

að innleiða einhverskonar gæðastjórnunarkerfi

og það eigi við

um stór sem smá. „Fyrst þarf að

vita hvaða kröfur þarf að uppfylla,

þá þarf að skilgreina alla

ferla fyrirtækisins með flæði

þeirra skjala sem verða til í ferlinu

í huga, setja þá upp í verklagsreglu

og vinnulýsingu þar

sem kemur meðal annars fram

hvernig skal vista skjölin með

rafrænum hætti. Þá þarf að þjálfa

starfsmenn í verklaginu sem þarf

að sjálfsögðu að vera mjög aðgengilegt

og að lokum að taka út

verklagið með formlegum hætti

og koma á umbótum í kjölfarið

ef nauðsyn krefur,“ segir Kristín.

Víða pottur brotinn

Kristín segir að miðað við

núverandi þjóðfélagsástand sé

gegnsæi ekki síst mikilvægt.

„Ábyrgðin liggur á stjórnendum

að sjá til þess að fólk fylgi settum

vinnureglum og nú þegar

ýmis uppgjör í rekstri fyrirtækja

og stofnana eiga sér stað, hefur

komið á daginn að pottur er víða

brotinn. Það kemur allt heim

og saman við gæðastjórnunina,

það á að vera bæði einfalt að vita

hvernig á að vinna og hvort viðkomandi

hafi unnið eftir settu

verklagi. Þá er einnig gríðarlega

mikilvægt að það séu framkvæmdar

úttektir, en við kennum

meðal annars framkvæmd

úttekta í Gæðastjórnunarskólanum,“

segir Kristín.

Hnitmiðuð námskeið

FOCAL Gæðastjórnunarskólinn

er með sjö stutt og hnitmiðuð

námskeið í opinni dagskrá. Þá

hefur Gæðastjórnunarskólinn

um árabil boðið fyrirtækjum og

stofnunum að sérpanta námskeið

eða námskeiðahluta og hefur

sú þjónusta notið síaukinna

vinsælda. Fyrirtækjanámskeiðin

gera það að verkum að þeim

fjölgar sem taka þátt í starfinu og

fá áhuga á því, einsleitni í vinnubrögðum

er tryggð, verkefnið

Kristín segir að það sé ekki það fyrirtæki

til sem ekki þarf að innleiða einhverskonar

gæðastjórnunarkerfi.

ljósm. Ingó.

vinnst hraðar og ávinningurinn

kemur fyrr í ljós.

Kristín tekur það fram að opnu

námskeiðin séu algerlega ótengd

þeim heildarlausnum sem FO-

CAL býður upp á. „Þarna erum

við bara að kenna aðferðafræði,

sem er ekki tengd okkar hugbúnaðarlausnum.

Öll fyrirtæki eru

með einhverskonar gæðastjórnunarkerfi

og við erum að kenna

aðferðafræði sem nýtist öllum

fyrirtækjum. Við hugsum þessi

námskeið þannig að þátttakendur

geti, hver á sínum hraða, náð

að byggja upp grunnþekkingu á

þeim þáttum sem nauðsynlegt

er að hafa til að innleiða aukið

gegnsæi með gæða- og skjalastjórnun,

og aukið færni sína á

ákveðnu sviði. Þess vegna eru öll

námskeiðin í boði einu sinni eða

oftar á önn, sem líka gerir fyrirtækjum

og stofnunum mögulegt

að senda nýja starfsmenn á

námskeið sem forverar þeirra

hafa sótt,“ segir Kristín.

Hún tekur það fram að námskeiðin

henta öllum þeim sem

þurfa að auka færni sína á þessum

sviðum og að alls ekki sé nauðsynlegt

að vera starfandi hjá einhverju

fyrirtæki eða stofnun til

þess að sækja námskeið hjá skólanum.

„Nemendur, atvinnulausir

og heimavinnandi eru alveg sérstaklega

velkomnir. Bakgrunnur

þeirra sem sækja námskeiðin

hjá FOCAL er þverfaglegur og

á öllum stigum stjórnunar, en

segja má að flestir eigi það sameiginlegt

að hafa lokið formlegri

menntun,“ segir Kristín.

Þeir sem hafa áhuga á fróðleik

geta einnig fundið margt áhugavert

á vefnum og benda má sérstaklega

á Íslandssögu Halldórs

Briem og Mannkynssögu Páls

Melsteð, tvö öndvegisrit sem vert

er að hlusta á. Af nýrri fróðleik er

bent á Heimspekingar fyrr og nú

eftir Dr. Geir Sigurðsson, yfirlit

yfir sögu vestrænnar heimspeki

sem hann skrifaði fyrir vefinn.

Svo er á vefnum fjöldinn allur af

barnasögum og styttri þáttum,

áhugaverðum og fróðlegum.

Í viðtali í Víðsjá síðastliðið vor

líkti spyrjandi vefnum við “Gufuna”

og segjast forsvarsmenn

Hlusta.is vera sérlega ánægðir

með þá samlíkingu. Þeir leggi

mikinn metnað í að vera með

vandað menningartengt efni og

þar hafi „Gufan“ alltaf verið í fararbroddi.

Þrátt fyrir að megináherslan

á Hlusta.is sé á íslenskt efni

er þar einnig töluvert af þýddu

efni; margar öndvegisþýðingar

úr smiðju ekki ómerkari manna

en þjóðskáldsins Matthíasar

Jochumssonar, Björns Jónssonar

ritstjóra og Guðmundar Guðmundssonar

skólaskálds. Í þessu

sambandi er líka vert að nefna

að mikil áhersla er lögð á alls

kyns þjóðlegan fróðleik, svo sem

efni eftir Finn Jónsson frá Kjörseyri,

síra Ólaf Ólafsson frá Guttormshaga

og innan tíðar mun

verða boðið upp á þjóðhætti síra

Jónasar frá Hrafnagili.
10 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 11

Búsetugæðin

aukin

-Fræðslunet Suðurlands býður

upp á víðtæka fræðslu á svæðinu

Fræðslunet Suðurlands býður

upp á fjölda námskeiða á komandi

haustönn og segir Steinunn

Ósk Kolbeinsdóttir, verkefnisstjóri

Fræðslunetsins, að

meginmarkmiðið sé að efla

aðgengi íbúa fjórðungsins að

margs konar námi og símenntun

og auka með því búsetugæði

á svæðinu.

„Við erum núna á fullu að ljúka

undirbúningi fyrir haustönnina

hjá okkur. Það er verið að leggja

lokahönd á námsvísinn fyrir

haustönnina en hann verður veglegri

en venjulega vegna þess að

um þessar mundir á Fræðslunetið

tíu ára afmæli. Í ritinu verða

því nokkrar greinar um Fræðslunetið

og viðtöl við nemendur

sem eru hér í námi. Í tilefni af

afmælinu höfum við undirbúið

nokkur námskeið/fyrirlestra sem

verða ókeypis núna á haustönninni.

Þessi námskeið snúast um

vellíðan fólks, siðferðilegar hliðar

kreppunnar og hvernig konur

geta breytt heiminum,“ segir

Steinunn.

Fræðslunetið er sjálfseignarstofnun

og vinna þar tveir

starfsmenn í fullu starfi og þrír í

hlutastarfi. Aðalaðsetur Fræðslunetsins

er í Iðu á Selfossi, en námskeið

eru haldin á öllu Suðurlandi

að Vestmannaeyjum undanskyldum.

Fræðslunetið hefur einnig

-Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Fjölbreytt nám fyrir atvinnulífið

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

er sjálfseignastofnun

sem hefur sem markmið

að efla endur- og símenntun

Suðurnesjamanna, samstarf

atvinnulífs og skóla og tengsl

grunn- og endurmenntunar.

MSS býður einstaklingum,

fyrirtækjum og stofnunum

námskeið sem ekki heyra beint

undir formlegt námsframboð

skóla og er hér einkum átt við

frístundanám og starfstengd

námskeið og námskeiðaraðir.

MSS býður upp á tungumálanámskeið

og námskeið fyrir pólverja.

Einnig býður MSS upp á

nám eins og leikskóla- og félagsliðabrú

og háskólastoðir. Guðjónína

Sæmundsdóttir, forstöðumaður

MSS, segir að mikil ásókn hafi

verið í nám í háskólastoðum, en

námið henti þeim sem vilja hefja

nám á framhaldsskólastigi en vilja

fara aðra leið en í gegnum hið

hefðbundna framhaldsskólakerfi.

Nám fyrir atvinnulífið

Guðjónína segir að MSS bjóði

upp á fjölbreytt nám fyrir atvinnulífið.

„Í dag er ferðaþjónustan

vaxandi atvinnugrein hér á

landi og býður MSS upp á námið

Færni í ferðaþjónustu fyrir þá sem

vilja efla þekkingu sína á því sviði.

Svæðisbundið leiðsögunám hefst

í september en námið er fyrir einstaklinga

sem vilja starfa sem leiðsögumenn

á Reykjanesi og einnig

fyrir þá sem vilja einfaldlega bæta

sína þekkingu á svæðinu. MSS

heldur mikið af námskeiðum fyrir

sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga

og aðrar heilbrigðisstéttir. Einnig

fyrir starfsfólk á leikskólum.

Fjölmörg námskeið eru í boði

miðlað háskólakennslu í gegnum

fjarfundabúnað og segir Steinnun

að fjölmargir háskóla- og framhaldsskólanemar

taki einnig próf

hjá Fræðslunetinu á hverri önn.

Fólk verður ánægðara í

starfi

Hún segir að auka megi búsetugæði

svæðisins með því að gera

fólki kleift að sækja sér menntun

á ýmsum sviðum í margvíslegum

tilgangi, bæði formlega með

viðurkenndum námsleiðum og

óformlega, tengda atvinnu viðkomandi

eða áhugasviði. „Það

skiptir afar miklu máli fyrir svæðið

að hafa aðila sem getur veitt

þessa þjónustu og að fólk þurfi

Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, verkefnisstjóri

Fræðslunets Suðurlands.

fyrir atvinnulífið almennt eins og

síma- og tölvupóstsvörun, tölvunámskeið

og skapandi hugsun,“

segir Guðjónína.

Slæmt atvinnuástand en

margir möguleikar

Hún segir atvinnuástandið á

Suðurnesjum vera slæmt um

þessar mundir og að MSS bjóði

einstaklingum í atvinnuleit ný

tækifæri. „Atvinnuleysi er mikið

í landinu og er ástandið einna

verst á Suðurnesjum. MSS er í

samvinnu við Vinnumálastofnun

um námskeiðahald fyrir atvinnulausa.

Einstaklingum í atvinnuleit

er meðal annars boðið upp á námskeið

sem kallast Árangursríkari

Meginmarkmiðið er að efla aðgengi íbúa fjórðungsins að margs konar námi og símenntun og auka með því búsetugæði á svæðinu.

ekki að sækja sér aukna menntun

um of langan veg. Fyrir atvinnulífið

skiptir það miklu máli að

hafa viðurkenndan fræðsluaðila á

svæðinu sem getur tekið að sér að

halda námskeið fyrir fyrirtækin.

Starfsfólk sem hefur sótt námskeið

hjá okkur er yfirleitt mjög

ánægt og verður sáttara í sínu

starfi auk þess sem það tryggir

sig betur í starfi. Margir verða svo

áhugasamir að þeir halda áfram

að læra og það er fátt ánægjulegra

en að fylgjast með fólki sem taldi

að það ætti ekkert erindi í nám,

fyllast sjálfsöryggi og óbilandi

námsáhuga,“ segir Steinunn.

Fræðslunetið býður annars

vegar uppá starfstengd námskeið

og hins vegar íslenskukennslu,

tungumála- og tölvunámskeið og

svo tómstundanámskeið. Einnig

heldur Fræðslusetrið fræðsluerindi

um efni sem eru áhugaverð

á hverjum tíma.

Steinunn segir að tölvunámskeið

starfsleit þar sem farið er í færnimöppu,

ferilskrá og hagnýt ráð í

atvinnuleit. Einnig býður MSS

upp á náms- og starfsráðgjöf og

er mjög vinsælt að fara í áhugasviðsgreiningu

því margir nýta

svona stórar breytingar í lífi sínu

til að stokka upp og jafnvel fara að

læra eitthvað sem þá hefur langað

til en ekki gert vegna anna. Einnig

er boðið upp á íslenskunámskeið

og sjálfseflingarnámskeið,“ segir

Guðjónína.

MSS er í góðu samstarfi við Atvinnuþróunarráð

Suðurnesja og

Vinnumarkaðsráð Suðurnesja og

bjóða þessir aðilar einstaklingum

sem hafa hug á að stofna fyrirtæki

Margir verða svo

áhugasamir að

þeir halda áfram

að læra og það er

fátt ánægjulegra

en að fylgjast með

fólki sem taldi að

það ætti ekkert

erindi í nám,

fyllast sjálfsöryggi

og óbilandi

námsáhuga,“

Guðjónína segir fjölbreyttan og spennandi

vetur vera framundan hjá MSS.

eða eru með fyrirtæki upp á námskeið

sem eiga að efla þekkingu og

færni í rekstri og segir Guðjónína

það geta skapað ný atvinnutækifæri

sem ekki veiti af á þessum

tímum. Dæmi um námskeið sem

boðið er upp á er Gerð viðskiptaáætlana,

Stofnun og rekstur smá

fyrirtækja og Markaðsmál fyrir

lítil og meðalstór fyrirtæki.

séu alltaf vinsæl og einnig námskeið

í stafrænni myndvinnslu og

myndatökum. „Það er alltaf reynt

að halda námskeið sem tengjast

Suðurlandi t.d. átthaganámskeið

og örnefnanámskeið sem hafa

verið mjög vinsæl. Svo eru alltaf

einhver námskeið sem slá í gegn,

en það er alveg óútreiknanlegt

hvað virkar og hvað ekki og það

fer alls ekki eftir verði námskeiðanna,“

segir Steinunn.

Vísindastarf eflt

Eitt af markmiðum Fræðslunetsins

er að efla vísindastarf- og

rannsóknir á svæðinu og í því

skyni var stofnaður sérstakur

sjóður sem kallast Vísinda- og

rannsóknarsjóður Fræðslunets

Suðurlands og hann styrkja fjölmörg

sveitarfélög, félög og fyrirtæki

á Suðurlandi. Úr honum er

veittur veglegur styrkur einu sinni

á ári til verkefna sem tengjast Suðurlandi

með einhverjum hætti.

Námskeið og ráðgjöf fyrir

pólverja

Guðjónína segir mikla þörf vera

á ráðgjöf til síaukins fjölda útlendinga.

„Eins og hjá Íslendingum eru

miklar breytingar á þeirra högum

um þessar mundir. Hjá MSS

er starfandi pólskur ráðgjafi sem

aðstoðar við náms- og starfsleit

og sér einnig um að skipuleggja

námskeið fyrir þennan hóp,“ segir

Guðjónína.

Námskeið fyrir lesblinda

MSS hefur boðið reglulega upp

á nám fyrir lesblinda og er hægt

að komast í lesblindugreiningar

hjá MSS. Einnig mun MSS bjóða

upp á námið Aftur í nám sem

byggir á Ron Davis aðferðinn,

sem Guðjónína segir hafa hjálpað

mörgum lesblindum að hefja nám

að nýju og hjálpað til við að auka

einbeitingu.

Raunfærnimat

MSS mun í vetur fara af stað

með verkefni í raunfærnimati

fyrir aðila sem hafa góða starfsreynslu

í húsasmíði en hafa ekki

lokið formlegu námi á því sviði.

„Margir á vinnumarkaðnum hafa

í gegnum áralanga reynslu byggt

upp umtalsverða færni í ákveðinni

iðngrein, en ekki lokið námi

af einhverjum ástæðum. Þessir

einstaklingar búa yfir raunfærni

sem vert er að skoða og meta. Nú

þegar hafa margir farið í gegnum

raunfærnimat og fengið sína

þekkingu og færni metna inn í

skólakerfið og stytt þannig skólagöngu

sína,“ segir Guðjónína.

„Framundan er fjölbreyttur

og skemmtilegur vetur hjá MSS

og hvetjum við alla til að kanna

framboð okkar á www.mss.is eða

heimsækja okkur í nýtt húsnæði

að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ“

sagði Guðjónína að lokum.

skolavefurinn.is:

Þar sem fólk getur bætt námsárangurinn

Skólavefurinn hefur nú starfað í

rúm sjö ár og hefur vegur hans

vaxið með hverju ári. Upphaflega

var hann einkum hugsaður

sem verkefna- og æfingasjóður

fyrir kennara, en það breyttist

fljótt enda eftirspurn mikil eftir

gagnvirku námsefni og framboð

að sama skapi lítið.

Nú er svo komið að 97% grunnskóla

eru í fastri áskrift að vefnum,

rúmlega 50% framhaldsskóla

og vel á annað hundrað leikskóla,

auk annarra stofnana. Þá hefur

einstaklingum fjölgað jafnt

og þétt og eru nú á þriðja þúsund

heimili í áskrift að jafnaði, en mun

fleiri heimili koma svo inn í styttri

áskriftir á ákveðnum tímum eins og

fyrir próf. Við ákváðum að kynna

okkur betur starfsemi Skólavefsins

og mæltum okkur mót við þá Jökul

Sigurðsson framkvæmdastjóra og

Pál Guðbrandsson sem hefur með

upplýsinga- og sölumál að gera, á

skrifstofu þeirra Skólavefsfólks á

Laugavegi 163.

Þegar við komum á svæðið er

greinilega mikið um að vera og allir

á þönum. Þeir félagar gefa sér þó

tíma til að setjast niður með okkur.

„Já, þetta er annasamasti tíminn

hjá okkur,“ segir Páll. „Við erum að

undirbúa veturinn, en þar munum

við vera með mikið af glænýju

og áhugverðu námsefni, meira en

nokkru sinni fyrr. Þá fórum út

í að gefa út bækur í fyrra og það

hefur einnig undið upp á sig og nú

streyma inn pantanir.”

„Hafið þið þá ekkert fundið fyrir

„kreppunni“?

„Jú, vissulega höfum við fundið

fyrir henni,“ svarar Jökull, „en það

vinnur þó með okkur að við erum

mjög ódýrir og höfum ekki hækkað

áskriftarverð okkar í nokkuð langan

tíma. Við viljum að allir geti nýtt

sér efni okkar án þess að það komi

of mikið við budduna.”

„En hvað er það sem fólk sækir

helst í á vefnum ykkar.”

„Það væri að æra óstöðugan að

ætla að telja það allt upp, enda er

það stór og breiður hópur sem

notar vefinn reglulega og eitthvað

við allra hæfi á vefnum. Það sem

kannski rís hæst á þessum tímapunkti

eru þjálfunarnámskeiðin

okkar fyrir samræmdu prófin.

Undanfarin ár höfum við boðið

upp á stutt þjálfunarnámskeið fyrir

samræmd próf í 4. og 7. bekk sem

tekin eru að hausti og hafa þau

námskeið reynst mörgum mjög vel.

Þá hafa samræmd próf í 10. bekk

einnig verið færð fram á haustið

og höfum við útbúið námskeið

fyrir þau. Verða prófin haldin um

miðjan september svo við erum

að flýta okkur að gera prófin klár

fyrir almenning. Við bjóðum líka

upp á almennt þjálfunarefni í flestum

námsgreinum fyrir alla aldurshópa

sem nemendur og aðrir sækja

mikið í. Það hefur verið styrkur

okkar að bjóða upp á fjölbreytt

efni fyrir alla aldurshópa alveg frá

þeim yngstu sem ekki eru byrjuð í

grunnskóla og allt upp í framhaldsskóla.

Reyndar vorum við að setja

á fót nýjan vef fyrir framhaldsskóla,

sem nefnist einfaldlega framhaldsskoli.is

og við bindum miklar vonir

við. Þar er t. a. m. boðið upp á frábæra

kennslu í stærðfræði þar sem

nemendur geta séð á myndbandi

hvernig á að leysa ákveðin dæmi.

Er sú kennsla samvinnuverkefni

11 háskóla á Bretlandi en við urðum

okkur úti um réttinn á efninu

í fyrra. Efnið er reyndar á ensku,

en við höfum látið þýða allt efnisyfirlitið

þannig að nemendur eigi

auðveldara með að finna það sem

þeir eru að leita að hverju sinni og

þar sem um sýnikennslu er að ræða

skiptir tungumálið ekki öllu. Við

höfum reyndar útbúið sambærilegt

efni fyrir efstu bekki grunnskólans

og fyrstu áfanga framhaldsskólans,

sem nemendur sækja mikið í.. Ef þú

vilt t.a.m. læra hvernig á að reikna

með prósentum þá smellirðu bara

á það í efnisyfirlitinu og færð stutt

myndband sem leiðir þig í sannleikann

um það. Og svo geturðu horft á

það aftur og aftur þangað til að þú

skilur hvernig á að fara að.”

„Við bjóðum líka upp á mikið af

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 0 9 - 0 0 6 6

Áliðnaður

Byggingariðnaður

Matvælaiðnaður

Líftækni

bhs.is

bifrost.is

fa.is

fb.is

fg.is

fiv.is

fnv.is

frae.is

fsh.is

fss.is

fsu.is

fva.is

hi.is

hr.is

idan.is

idnskolinn.is

klak.is

misa.is

mk.is

simey.is

tskoli.is

unak.is

va.is

vma.is

áhugaverðu efni fyrir yngstu börnin

sem foreldrar eru í auknum mæli

að átta sig á. Er þá bæði um að ræða

alls kyns gagnvirkt efni og efni

sem hægt er að prenta út og vinna

þannig. Þar er m.a. hægt að fara

Listiðnaður

í gagnvirkar léttlestrarbækur þar

sem krakkarnir geta lesið í vefbók

og flett blaðsíðum eins og í venjulegri

bók og samhliða því geta þau

látið lesa bækurnar fyrir sig. Hefur

þetta hjálpað mörgum börnum að

Upplýsingatækni

Iðnaðurinn árið 2012 óskar eftir vel menntuðu fólki til starfa.

Á næstu árum verða vaxtarsprotar íslensks atvinnulífs

í áliðnaði, byggingariðnaði, listiðnaði, líftækni,

matvælaiðnaði, málm- og véltækni, prentiðnaði

og upplýsingatækni.

Nám í verkmenntaskólum, háskólum og öðrum

menntastofnunum er skynsamleg leið til að búa

sig undir fjölbreytt tækifæri.

Mótum eigin framtíð – Núna er rétti tíminn!

Samtök iðnaðarins – www.si.is

læra að lesa. Þetta efni krefst þess

þó að foreldrar kenni börnunum að

nota vefinn.”

„Eins og áður sagði höfum við

reynt að halda verðinu niðri og

kostar mánaðaráskrift einungis

1290 kr. svipað og ein ferð í kvikmyndahús.

Það er allt og sumt.

Það þarf ekki mikla notkun til að

áskrift borgi sig.”

Með þessum orðum eru þeir Páll

og Jökull roknir, enda mikið um að

vera hjá þeim þessa dagana. Hvetjum

alla til að kynna sér vel hvað

Skólavefurinn hefur upp á að bjóða.

Það gæti komið sér vel.

Véltækni

Prentiðnaður

Málmtækni

2012 tækifæri
12 • Menntun, námskeið og nýsköpun

Dansástríðunni haldið lifandi

-Viðtal við Láru Stefánsdóttur, skólastjóra Listdansskóla Íslands

Lára Stefánsdóttir hefur nýverið

tekið við skólastjórastöðu

Listdansskóla Íslands. Hún

segist muni einbeita sér að því

að viðhalda þeim gæðum sem

einkennt hafa skólann, ásamt

því að innleiða spennandi

nýjungar. Hún segir dansinn

vera og hafa alla tíð verið, heilbrigða

útrás fyrir líkama, anda

og sál og því henti listdansinn

í raun fyrir alla.

Að sögn Láru fylgja nýjum

stjórnanda nýjar áherslur, eðli

málsins samkvæmt og komi þær

í ljós á næstunni. „Ég mun leggja

áherslu á úrvals kennaralið með

gæði og þekkingu í fyrirrúmi. Það

hafa reyndar alla tíð verið góðir

kennarar starfandi við Listdansskóla

Íslands og við erum það lánsöm

að þeir eru margir enn hér

til staðar. Einnig tel ég afar mikilvægt

að í skólastarfinu ríki stöðug

viðleitini til að halda ástríðunni

fyrir dansinum lifandi. Áhuginn

verður að koma innan frá og öllu

starfsfólki sem og nemendum á

að þykja skemmtilegt og ögrandi

að koma til leiks,“ segir Lára.

Aukið samstarf við tónlistarfólk

Meðal nýjunga sem Lára hyggst

kynna fyrir nemendum er líkamsþjálfun

sem kallast Pilates. „Þetta

verður einskonar fagnaðarerindi

inn í skólann. Pilates þjálfunin

er iðkuð af flestum dönsurum

erlendis, bæði sem forvörn við

meiðslum og svo til að ná enn

frekari árangri í danstækni, hver

sem hún er. Listdanskennsla er

bæði erfið og skemmtileg og það

er að mörgu að hyggja til að ná

góðum árangri og Pilates þjálfunin

er ein leið til hjálpar,“ segir

Lára.

Þá hefur Lára áhuga á að efla

samstarf Listdansskólans við

tónlistarfólk og fá upprennandi

tónlistarnema til að flytja lifandi

tónlist á danssýningum Listdansskóla

Íslands. „Ég tel afar

mikilvægt að samvinna þessara

tveggja listgreina, dans og tónlistar,

verði eftirsóknarverður

hluti í dans og sköpunarvinnu

kennara og nemanda skólans,“

segir Lára.

Góður undirbúningur fyrir

lífið

Lára telur listdansnám mjög

gagnlegt að öllu leyti og vera góðan

undirbúning fyrir lífið. „Dansinn

kennir börnum meðal annars

að bera virðingu fyrir sjálfum sér

og listgreininni. Eftir listdansnám

lærir fólk frekar að njóta

þess að horfa á listdans, í hvaða

formi sem er. Þjálfaðir læra að

taka tilfinninguna inn frá þeim

dansi sem þeir horfa á, frekar

en að dæma um hvað eigi að sjá

eða skilja. Fyrir utan það tel ég

Listdanskóli Íslands hvetur alla 9 ára krakka, stráka og stelpur, að koma í prufutíma

þegar skólinn hefst 25.ágúst, prufutímar standa út september.

að gott listdansnám sé mjög góður

grunnur að allri góðri danstækni,“

segir Lára.

Hún segir að fyrir utan ótvíræða

gagnsemi námsins innan dansheimsins

fylgi því aðrir kostir.

„Þeir nemendur sem hafa stundað

listdansnámið að einhverju

Lára Stefánsdóttir skólastjóri

Listdansskóla Íslands.

„Dansinn

kennir börnum

meðal annars að

bera virðingu

fyrir sjálfum sér

og listgreininni.

Eftir

listdansnám

lærir fólk frekar

að njóta þess að

horfa á listdans,

í hvaða formi

sem er.

ráði hafa líka náð að skipuleggja

tíma sinn betur í hvaða starfi

sem þeir taka sér fyrir hendur.

Svo er það bara spurning hvort

farið er í dansnám til almennrar

ánægju eða hvort ætlunin er

að leggja dansinn fyrir sig til að

veita öðrum ánægju með því að

sýna listina. Þegar uppi er staðið

er markmiðið hjá okkur að nemendur

þekki möguleika sína betur

í hinum stóra dansheimi þar sem

vegirnir eru margir og ólíkir,“ segir

Lára.

Sagan mikilvæg

Lára segir að listdans sé vinsæll

á Íslandi um þessar mundir og æ

fleiri sem vilja dansa. „Viðhorf almennings

gagnvart listdansnámi

virðist jákvætt að öllu leyti. Saga

listdans á Íslandi er ung miðað

við önnur lönd og má segja að við

séum stutt á veg komin í alþjóðlegu

samhengi. En uppbyggingin

hefur verið góð og við höfum verið

að sækja í okkur veðrið á síðustu

árum og allt útlit fyrir að listdansinn

eigi eftir að blómstra enn frekar

á komandi árum. Við skulum bera

virðingu fyrir sögu íslensks listdans

- við værum ekki stödd hér í

dag ef ekki hefði allt þetta listafólk;

dansarar, danshöfundar, kennarar,

skólastjórar og aðrir frumkvöðlar

unnið af alhug brautryjendastarf á

Íslandi“ segir Lára.

„Mitt álit er að það þurfi aðeins

að hægja á hjólinu, svona yfirleitt

í öllu listnámi, minnka hraðann,

kryfja grunninn enn frekar, líta um

öxl og sjá hvað það er sem hefur

haft gildi í okkar listgreinum, þ.e.

þó við fæðumst öll með ákveðna

hæfileika, þá þarf að rækta þá og

leiða á brautir þar sem þeir dafna

sem best. Það er einfaldlega ekkert

“nýtt” undir sólinni. Á endanum

eru það gæðin sem skipta

máli, hvernig hlutirnir eru unnir,

mótaðir og hvaðan þeir spretta.

Árangurinn kemur ekki á einum

degi. Það kostar mikla vinnu að

verða góður dansari og gífurlega

vinnu að vera afburða dansari,“

segir Lára.

Listdansskóli

Íslands

` Aðalnámsgreinar skólans

eru samkvæmt kröfum

aðalnámskrár menntamálaráðuneytisins

á grunn- og

framhaldsstigi: klassískur

ballett, táskór, repertoire,

pas de deux, nútímalistdans,

spuni og snertispuni,

jass (funk, hiphop,

söngleikjadans), karakter,

danssmíði, kóreografía,

composition.

- Nám í Listdansskóla Íslands

hefur fyrst og fremst

það markmið að mennta

framtíðarlistdansara og

nemendur sem vilja halda

námi áfram á háskólastigi

en mikilvægt er að þjálfa

einnig nemendur sem

stunda nám sér til ánægju.

Nemendum er veitt kennsla

í tæknilegum og listrænum

greinum, skapandi færni

og þeir fá tækifæri til að

njóta sín á danssýningum.

Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum

og skapandi vinnubrögðum

og líka í samvinnu

með öðrum. Nemendur

læra einnig að njóta lista,

menningar og sögu listdansins

í gegnum námið.

TVÖ ÁR AF TÖKUM, SKRIFUM,

KLIPPINGUM, LEIK OG LEIKSTJÓRN

GETUM BÆTT VIÐ ÖRFÁUM

NEMENDUM Á HAUSTÖNN 2009

Kvikmyndaskóli Íslands býður tveggja ára nám í leikstjórn, tæknivinnu, handritagerð og leiklist

undir handleiðslu margra fremstu kvikmyndahöfunda og tæknisnillinga landsins. Nýtt og glæsilegt

húsnæði skólans tryggir nemendum frábæra umgjörð fyrir skapandi vinnu og aðstöðu til að skila

framúrskarandi verki. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er á www.kvikmyndaskoli.is.

Athugið að frá og með vorönn 2010 þurfa nýnemar stúdentspróf eða sambærilega menntun.

Leikstjórn og framleiðsla

Skapandi tæknivinna

Handrit og leikstjórn

VÍKURHVARF 1 203 KÓPAVOGUR S: 533 3309 WWW.KVIKMYNDASKOLI.IS

Leiklist
14 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 15

Það sem kannski

einkennir allt

námið í skólanum

er að fólk á

nokkurn veginn

að geta orðið hvað

sem er, út frá

hvaða deild sem

er. Það má segja að

við séum í raun að

búa til höfunda,

jafnvel þó þeir

fari í leiklist.

Þetta er fyrst og

fremst listaskóli

og við höfum enga

minnimáttarkennd

gagnvart

því.

Böðvar segir það vera geysilega spennandi

að starfa skólaiðnaði í dag og hann muni taka

miklum breytingum á næstunni.

Kvikmyndalandið Ísland

-Viðtal við Böðvar Bjarka Pétursson, stjórnarformann Kvikmyndaskóla Íslands

Kvikmyndaskóli Íslands

stendur í stórræðum um þessar

mundir, en skólinn opnaði

nýverið starfsemi í nýju 4000

fermetra húsi í Vatnsendalandi

og hefur lagt inn umsókn

til menntamálaráðuneytisins

um heimild til að

starfa á háskólasviði. Böðvar

Bjarki Pétursson, stjórnarformaður

Kvikmyndaskóla

Íslands, segir að markmið

skólans sé að verða 400 nemenda

listaskóli á háskólastigi,

með innlenda og erlenda

deild af svipaðri stærð. Að

mati Böðvars á skólaiðnaðurinn

eins og við þekkjum hann

í dag eftir að taka grundvallar

breytingum og sé í raun þegar

úreltur.

Böðvar segir það vera geysilega

spennandi að starfa skólaiðnaði í

dag, bæði á Íslandi og erlendis.

„Þetta er ört stækkandi iðnaður í

heiminum og það er mikil gerjun

í gangi. Bæði hefur skólaiðnaðinum

beint verið til að vinna gegn

atvinnuleysi, til dæmis í Evrópu,

og svo er starfsferill fólks orðinn

svo margskiptur að fólk þarf að

sækja sér æ meiri menntun. Þá

munu sértækari og nákvæmari

námsbrautir verða ofan á þar

sem fólk getur gengið nákvæmlega

inn í það sem það vill læra.

Þess vegna höfum við til dæmis

séð að fyrirtækjaskólar eru að

skipa sér í röð fremstu skóla í

heiminum, þeir mennta fólk af

mikilli nákvæmni til ákveðinna

starfa og útskrifa fólk sem gerir

ekki mistök og þannig nám vill

fólk fá,“segir Böðvar.

Úrelt skólakerfi

Í ljósi þessarar þróunar segir

Böðvar að skólastarf eins og

það tíðkast hér og víðar sé í raun

úrelt, sérstaklega hvað kennsluaðferðir

varðar. „Við þekkjum

öll það fyrirkomulag að ef til

vill eitt til tvö hundruð manns

sitji inni í gríðarstórum sölum

og helmingurinn er á netinu og

hinn að leggja kapal. Það sér það

hver maður að þetta er kennsluaðferð

sem gengur ekki upp og

er það því miður þetta kennsluform

sem hefur verið að þróast

hvað mest undanfarið. Þetta er

vélrænt nám þar sem reynt er að

koma sem flestum nemendum í

gegn til þess svo aftur að ná sem

mestum tekjum frá ríkinu. Þetta

er gamaldags nám og er einfaldlega

ekki rétta leiðin, en hún er

þó stunduð víða,“ segir Böðvar.

Böðvar segir að kvikmyndaiðnaðurinn henti Íslendingum

vel og hér séu mörg ónýtt tækifæri. Ljósmyndir Ingó.

„Það er mat sérfræðinga að

við séum nú að stefna inn í lærdómsöld

þar sem skólarnir verða

í lykilhlutverki, en það verði alger

umbylting í starfi þeirra. Við

sjáum fram á að mjög stór hluti

af æðra námi fer út á netið, háskólarnir

munu færast út í það

að vera mats- og viðurkenningarfyrirtæki

á prófgráðum og svo

tel ég að hið kerfislæga grunnog

framhaldsskólakerfi eigi eftir

að brotna upp. Ég sé fyrir mér

að aðstandendur sex ára barns

muni geta valið úr fjölmörgum

tilboðum, þar sem hægt er

að velja um áherslur í námi. En

ríkið mun vitaskuld hafa áfram

hlutverk eftirlits og mats,“segir

Böðvar.

Leitað að leiðtogum

Kvikmyndaskólinn er í 100%

eigu skólaþróunarfyrirtækisins

Telemakkus, sem er með fjórar

nýjar menntastofnanir á ólíkum

sviðum í þróun, en Böðvar segir

Kvikmyndaskólann vera ísbrjótinn

í því starfi. Böðvar segir að

framtíðarsýn Kvikmyndaskólans

sé mjög skýr, en hann á að verða

400 nemenda listaskóli sem

starfar á háskólastigi, með innlenda

og erlenda deild af svipaðri

stærð. Nú eru 170 nemendur

skráðir í skólann og er stefnt

að því að erlenda deildin verði

opnuð á næsta ári.

Kvikmyndaskólinn býður upp

á diplómunám í kvikmyndagerð

af fjórum námsbrautum: leikstjórnar

og framleiðsludeild,

tæknideild, handrita- og leikstjórnardeild

og leiklistardeild.

„Í leikstjórnar og framleiðsludeildinni

leitum við að leiðtogum

sem hafa listræna sýn og

sjálfstraust til að koma verkum

sínum í framkvæmd. Það er

nokkuð óvenjulegt að blanda

þessum tveimur sviðum saman,

en við byggjum þetta á íslenskri

reynslu. Þeir sem hafa náð hvað

lengst hér á landi eru þeir sem

hafa náð að blanda þessu tvennu

saman.Handrita og leikstjórnardeildin

er einnig mjög spennandi

deild, en þar erum við að

leggja mikla áhersla á handritagerð,

en með þjálfun í leikstjórn

samtímis. Það má í raun segja

að tvær mismunandi leiðir séu

í boði fyrir þá sem vilja leggja

leikstjórn fyrir sig. Það er mín

skoðun að handrita- og leikstjórnardeildin

sé í raun verðmætasta

deildin okkar, því þar

eru höfundarnir og ef við finnum

þá ekki verður enginn iðnaður.

Tæknisviðið er ef til vill praktískasta

sviðið. Þar menntum og

þjálfum fólk í kvikmyndatöku,

klippingu,hljóðvinnslu og leikimyndagerð.

Þetta er það sem

við köllum hönnunarlegu þætti

kvikmynda. Þetta er mjög öflug

deild og hefur komið nokkuð á

óvart að stúlkur sækja mikið í

hana. Leiklistardeild er svo bara

klassísk leiklistardeild þar sem

áherslan er á myndmiðla.

List og viðskipti

togast á

Það sem kannski einkennir

allt námið í skólanum er að fólk

á nokkurn veginn að geta orðið

hvað sem er, út frá hvaða deild

sem er. Það má segja að við séum

í raun að búa til höfunda, jafnvel

þó þeir fari í leiklist. Þetta er

fyrst og fremst listaskóli og við

höfum enga minnimáttarkennd

gagnvart því. Kvikmyndagerð er

á sama tíma mjög öflugur iðnaður,

en þetta tvennt togast á.

Það hefur alltaf verið skapandi

togstreita í kvikmyndaiðnaðinum.

Það kemur alltaf upp spurningin

um hvort þetta sé list eða

iðnaður. Hingað koma aðilar sem

vilja gera næsta meistaraverkið í

kvikmyndasögunni og aðrir sem

vilja gera grínefni á netið og við

tökum á móti báðum, því allt

er þetta kvikmyndagerð,“ segir

Böðvar.

Bylting í skólastarfinu

Mikil tímamót eru framundan

í sögu kvikmyndaskólans að

sögn Böðvars en skólinn hefur

lagt inn umsókn til menntamálaráðuneytisins

um að fá

viðurkenningu til að starfa á

háskólastigi. „Í beinu framhaldi

af því verður alger umbylting í

skólastarfinu strax e f t i r

áramót. Hér verður til dæmis

auglýst eftir nýju starfsfólki, við

stefnum að því að opna þessa erlendu

deild og búa hér til einn og

hálfan milljarð í gjaldeyri næstu

þrjú árin. Ástæðan fyrir því að

við verðum að starfa á Háskólastigi

er að markhópurinn sem

við viljum keyra á eru stúdentar,

en við viljum líka vera spennandi

viðbótarnám í raun fyrir

allar aðrar háskólagráður,“ segir

Böðvar.

Þrjú þúsund ný störf

Á fimmtán ára starfsafmæli

skólans var lagst í mikla rannsóknarvinnu

þar sem iðnaðurinn

var greindur og rannsakaður til

hlýtar. „Ég setti fram rannsóknarspurninguna

„Hvernig getum

við búið til 3000 ný störf og í

raun gert þetta að iðnaði sem

skipti verulegu máli fyrir íslenskt

samfélag.“ Niðurstaðan var sú

að til þess að það sé hægt, skiptir

mestu máli að rjúfa ákveðin

stækkunarmörk sem iðnaðurinn

hefur verið að glíma við. Ef

það tekst að rjúfa þessi mörk

eru möguleikarnir á heimsvísu

gríðarlega miklir. Ég hef sagt að

„Kvikmyndalandið Ísland“ geti

vel orðið að veruleika ef menn

eru tilbúnir til að stilla sig inn

á þá bylgjulengd. Það þurfa að

vera samhæfðar aðgerðir þeirra

sem þiggja fjármagn frá ríkinu,

það þarf að styðja við sjónvarpsframleiðsluna,

það þarf að

tryggja endurgreiðslukerfið til

að fá inn erlenda framleiðslu og

það hefur verið gert og í fyllingu

tímans þarf að verða til stór fjárfestingasjóður.

Í dag þegar fjárfestingartækifærum

hefur í raun

og veru fækkað eru fjárfestingatækifæri

í kvikmyndaiðnaðinum

allt í einu orðin spennandi vegna

aðkomu ríkissins að honum,“

segir Böðvar.

Hann segir ríkið styðji tiltölulega

vel við kvikmyndaiðnaðinn.

„Stjórnvöld koma mjög víða að

og setja meðal annars fjármagn í

kvikmyndamiðstöð, kvikmyndafræðideild,

Kvikmyndasafnið,

kvikmyndahátíð, setja mikið

fjármagn til RÚV, sem starfar

á myndmiðlamarkaði og kaupa

þjónustu af Kvikmyndaskóla

Íslands. Þetta er auðvitað harðskeytt

umhverfi, en kvikmyndagerðamenn

eru auðvitað töffarar

og hefur þeim tekist nokkuð vel

að takast á við þetta umhverfi.

Því er það bara nöldur að skjóta

á stjórnvöld varðandi peningamál,

það má miklu frekar gera

athugasemdir um að þessir

peningar séu nýttir betur,“ segir

Böðvar.

Hið nýja húsnæði er um

3500 fermetrar að stærð

og þar verður öll aðstaða

eins og best þekkist í kvikmyndaskólum

í heiminum,

meðal annar tveir bíósalir,

stórt upptökustúdíó, tvö

hljóðver, stórt bókasafn,

stórir æfingasalir fyrir

leiklistarnema og kennsluaðstaða

fyrir allt að 200

nemendur í fjórum deildum

skólans.

Kreppuiðnaður

Böðvar telur kvikmyndaiðnaðinn

henta Íslendingum sérstaklega

vel og liggi þar margar

ástæður að baki. „Ef horft er á

heildarmyndina sjáum við að það

er mjög sterk kvikmyndamenning

á Íslandi, við sækjum kvikmyndahús

meira en Evrópubúar

og til jafns við Bandaríkjamenn.

Íslenskur kvikmyndaiðnaður er

afarstór miðað við höfðatölu og

við framleiðum mjög mikið af

kvikmyndum og getur þessi iðnaður

stækkað enn ef við höldum

rétt á spilunum. Ástæðan fyrir

að ég tel að þessi iðnaður henti

Íslendingum vel er að þetta er

blanda af viðskiptum og list.

Þetta er sköpunariðnaður og þar

erum við sterk, með okkar öfluga

bókmenntabakgrunn. Við erum

Stefnt er að því að koma

upp Þjónustumiðstöð kvikmyndaiðnaðarins

við hlið

skólans með byggingu á

þremur fullkomnum upptökumyndverum

og stórri

leikmyndageymslu. Mjög

mikil vöntun hefur verið á

stúdíóaðstöðu til að þjóna

íslenskum kvikmynda- og

sjónvarpsiðnaði.

mjög tæknilega sinnuð þjóð og

eru miklar framfarir í myndmiðlum

hvað það varðar, sérstaklega

í tengslum við internetið og við

getum komið þar gríðarsterk inn,“

segir Böðvar.

Hann segir að bágt efnahagsástand

sé ekki til þess fallið að

aftra þessari þróun. „Kvikmyndaog

sjónvarpsiðnaðurinn er

kreppuiðnaður, þetta er skemmtun

sem fólk leyfir sér þegar það

er kreppa og er mjög algengt að

þessi iðnaður þrífist vel í kreppu,

því þetta er frekar ódýr skemmtun.

Það sem við gerum er beinlínis

að dæla út menntuðu fólki og

reynum að búa til þenslu með því.

Kreppan hefur í raun gert það að

verkum að þetta nám er orðið jafn

praktískt og hvað annað,“ segir

Böðvar.
16 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 17

-Kvasir, samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva

Aldrei mikilvægara að hækka menntastigið

Kvasir, sem eru samtök

fræðslu- og símenntunarmiðstöðva,

hafa verið starfandi

síðan árið 2000 og eru nú tíu

fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar

um land allt sem eiga

aðild að samtökunum.

Inga Dóra Halldórsdóttir, formaður

stjórnar Kvasis, segir að

öflug símenntun sé hagur allra,

þjóðfélagsins, einstaklinganna og

fyrirtækjanna og gegni nú mikilvgæra

hlutverki en nokkru sinni

fyrr.

Upphaflega var Kvasir samtök

fræðslu- og símenntunarmiðstöðva

á landsbyggðinni, en á síðasta

aðalfundi var samþykktum

breytt og nú á Mímir í Reykjavík

aðild að samtökunum. Flest allar

miðstöðvarnar eru stofnaðar á

árunum 1998-2000 og eru byggðar

á grunni gömlu farskólanna.

Yngsta miðstöðin var stofnuð árið

2004 og er hún í Vestmannaeyjum.

Inga Dóra segir að þeir sem

stóðu að stofnun Kvasis á sínum

tíma hafi lagt mikið upp úr sterku

tengslaneti miðstöðvanna og að

saman stæðu þær sterkari. „Það

er ekki síður markmiðið að auka

skilning almennings og stjórnvalda

á hlutverki fræðslu- og símenntunarmiðstöðva

í menntakerfi

þjóðarinnar. Það hefur sýnt

sig og sannað að þetta er kjarni

málsins og við vinnum markvisst

að því að efla okkur enn frekar,

skapa umræðu um fullorðinsfræðslu

og vekja athygli á okkur,“

segir Inga Dóra.

-Mímir-símenntun

Fjölbreytt námstilboð fyrir fólk

með stutta skólagöngu

Mímir-símenntun er fræðslufyrirtæki

sem leggur megin

áherslu á að vera með fjölbreytt

námstilboð fyrir fólk

Hulda Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis.

Mikil aðsókn

Hún segir símenntun hafa mjög

mikla þýðingu fyrir þjóðfélag-

Inga Dóra Halldórsdóttir, formaður

stjórnar Kvasis

ið og ekki hvað síst nú á tímum.

„Sókn í námskeið hjá fræðslu- og

símenntunarmiðstöðvunum hefur

aldrei verið meiri en nú, en

svo við áttum okkur á umfanginu

þá voru nemendur hjá okkur

rúmlega 15 þúsund árið 2008 og

við buðum upp á rúmlega 1.200

námskeið af ýmsu tagi. Auk þessa

starfa náms- og starfsráðgjafar

á flestum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum,

en þeir tóku

tæplega 2.800 viðtöl á árinu 2008.

Það er best að láta tölurnar tala

sínu máli.

Um 38% fólks á vinnumarkaði

hefur stutta formlega skólagöngu

og hefur alið með sér þann draum

að halda áfram í námi en treysta

sér hreinlega ekki. Þar komum við

að, en við bjóðum upp á fjölbreytt

námstækifæri fyrir þessa einstaklinga

þar sem sjálfstyrking er rauði

þráðurinn og þeir hafa einnig aðgang

að náms- og starfsráðgjafa.

Við þjónustum þannig hvern einstakling

betur og tökum mið af

hans þörfum, t.d. ef um les- og

skrifblindu er að ræða. Þegar einstaklingur

fær aukið sjálfstraust í

námi, skilar það sér meðal annars

í jákvæðara hugarfari, auknu

frumkvæði einstaklingsins og

ekki síst aukinni vellíðan og öryggi

sem skilar sér bæði í einkalífi

og í starfskraftinum,“ segir Inga

Dóra.

Af nógu að taka

Hún segir viðfangsefnin vera

mörg og af nógu að taka. „Við

hittumst að minnsta kosti tvisvar

á ári, bæði á haustin og á

vorin. Innan Kvasis starfar stjórn

sem eru skipuð þremur aðilum

frá jafnmörgum miðstöðvum og

situr hver fulltrúi tvö ár í senn.

Stjórnin kemur fram fyrir hönd

samtakanna út á við og vinnur að

sameiginlegum hagsmunamálum

fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna.

Það er mjög mikilvægt að hittast

reglulega og miðla upplýsingum

og ekki síður að vinna að

ákveðinni stefnumörkun fyrir

heildina. Það hefur meðal annars

færst í aukana að ýmsir aðilar leiti

eftir samstarfi við okkur í nafni

Kvasis og sem dæmi má nefna að

Kvasir gerði samning síðastliðið

haust við Endurmenntun Háskóla

Íslands sem felst meðal annars í

að auðvelda fólki á landsbyggðinni

aðgengi að námskeiðum EHÍ

með notkun fjarfundabúnaðar,“

segir Inga Dóra.

Staða símenntunar sterk

Inga Dóra segir stöðu símenntunar

vera sterka á Íslandi í dag

„Við á fræðslu- og símenntunarmiðstöðvunum

finnum fyrir miklum

meðbyr, en íbúarnir kunna að

með stutta skólagöngu. Hulda

Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri

Mímis, segir markmið

Mímis að vera virkur þátttakandi

í því að efla menntun

starfandi fólks í landinu

og þannig stuðla að hækkun

menntunarstigs þjóðarinnar,

aukinni fagmennsku í

atvinnulífinu og styrkja einstaklinga

í leik og starfi.

Hulda segir Mími bjóða upp

á margar námsleiðir sem henti

fólki á vinnumarkaði, bæði atvinnuleitendum

sem og einstaklingum

í vinnu. „Rúmlega 30

námskrár hafa verið gefnar út af

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

og eru þær allar viðurkenndar af

menntamálaráðuneytinu og gefa

einingar til styttingar á framhaldsskólanámi.

Nám sem gefur

aukin starfsréttindi er einnig að

finna hjá Mími og þannig er til

dæmis hægt að fara í leikskólaliðanám

og félagsliðanám. Jarðlagnatækni

er námsleið sem gefur

verktökum aukna möguleika á

að taka að sér verk fyrir veiturnar

og bætir stöðu þeirra á vinnumarkaði.

Í öllu námi hjá Mími er

lögð mikil áhersla á sjálfsstyrkingu

og að mæta einstaklingnum

þar sem hann er staddur. Allir

geta lært en það hentar ekki að

meta þá þjónustu sem við bjóðum

upp á og við erum orðin hluti af

menntakerfinu. Verkalýðshreyfingin

hefur verið mjög ötul við

að leggja áherslu á þennan málaflokk,

auk þess sem stjórnvöld

hafa lagt málaflokknum lið.

Við sinnum breiðum hópi fólks,

en auk símenntunar þjónustum

við líka háskólana og fjarnema.

Nemendur geta sótt fjarfundi

víða um land, tekið próf og lært

saman í hópum. Það er brýnt að

íbúar geti sótt þjónustuna heima

í héraði og ýtir ekki síður undir

jafnræði,“ segir Inga Dóra.

Öflugt samstarf

Kvasir hefur verið í góðu samstarfi

við Vinnumálstofnun,

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

og aðila á hverju svæði sem málið

snertir. „Styrkur fræðslu- og

símenntunarmiðstöðvanna felst

m.a. í miklum sveigjanleika,

þannig að við getum brugðist við

breyttu ástandi með stuttum fyrirvara.

Það verður boðið upp á

nota sömu aðferðafræði til náms

fyrir alla. Mikil áhersla er því

lögð á kennslufræði sem hentar

fullorðnu fólki,“ segir Hulda.

Hún segir náin tengsl við atvinnulífið

vera eina af sterku

hliðum Mímis-símenntunar.

Fjöldi námsleiða og námskeiða

er haldinn í nánu samstarfi við

stéttarfélög, félög atvinnurekenda,

stofnanir og fyrirtæki.

Náms- og starfsráðgjafar fara í

samráði við atvinnulífið á vinnustaði,

kynna ráðgjöfina og bjóða

einstaklingum upp á einstaklingsráðgjöf

þeim að kostnaðarlausu.

Skapandi námskeið

fyllast fljótt

Hulda segir að allir á aldrinum

5 – 90 ára geti fundið eitthvað við

sitt hæfi hjá Mími-símenntun.

Innflytjendum stendur til boða

íslenskunámskeið og starfstengd

námskeið. Eldri borgurum

býðst margskonar frístunda- og

tungumálanámskeið auk tölvunámskeiða

og fyrir börnin er

tilboð um námskeið í tungumálum

ásamt menningu og listum.

Hulda segir að vinsælustu

námsleiðirnar hafi einkum verið

Grunnmenntaskólinn og nám

fyrir lesblinda sem kallast Aftur

í nám. Grunnmenntaskólinn

styrkir undirstöðuatriði í íslensku,

stærðfræði og ensku og

eflir fólk til frekara náms. Mímir

námstækifæri, nú í haust, fyrir

atvinnuleitendur um allt land og

við munum eftir fremsta megni

þjónusta atvinnuleitendur eins og

við getum með námsframboði og

náms- og starfsráðgjöf,“ segir Inga

Dóra.

Samkeppnin hörð

Inga Dóra segir að aðstæður í

efnahagslífinu hafi verið þannig

undanfarin ár að það hafi vantað

vinnuafl, en nú hafi orðið

viðsnúningur og samkeppnin á

vinnumarkaðnum sé orðin mjög

hörð. „Aukið atvinnuleysi bitnar

hvað mest á þeim sem hafa stutta

formlega skólagöngu og það er

meðal annars okkar markhópur.

Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt

og núna að hið formlega og

óformlega skólakerfi vinni saman

til að hækka menntunarstigið í

landinu og auka samkeppnishæfni

okkar enn frekar sem þjóðar. Þess

vegna er brýnt að allir fái tækifæri

til að sækja sér menntun á sínum

forsendum,“ segir Inga Dóra.

er svo að fara af stað með fjölda

annarra námsleiða á næstu vikum,

til dæmis félagsliðanám,

leikskólaliðanám, fagnámskeið

fyrir fólk sem starfar við umönnun

eða á leikskólum.

Fjölþætt frístundanámskeið og

tungumálanámskeið eru á hverri

önn. „Helsta breytingin á því

sviði er sú að öll námskeið sem

snúa að sköpun hvort heldur er

myndlist, hannyrðir eða skapandi

skrif fyllast hratt og oft ekki

hægt að anna eftirspurn,“ segir

Hulda.

Náin tengsl við atvinnulífið

Á Íslandi eru yfir 30% einstaklinga

á vinnumarkaði sem hafa

ekki lokið formlegu námi eftir

grunnskóla. Hulda segir þetta

vera mun hærra hlutfall en hjá

þeim þjóðum sem við viljum bera

okkur saman við og mikilvægt að

bjóða þessum mikla fjölda fólks

upp á náms- og starfsráðgjöf og

menntunarúrræði við hæfi. „Atvinnuástandið

hefur margþætt

áhrif á eftirspurn eftir endur- og

símenntun. Einstaklingar sem

hafa minnstu formlegu menntunina

eru oft þeir sem fyrstir

missa vinnuna og eru jafnframt

síðastir til að fá vinnu aftur.

Margir þessara einstaklinga nýta

nú tækifærið og bæta við sig

námi til að styrkja stöðu sína á

vinnumarkaði,“ segir Hulda.

Námsúrræði í atvinnuleit

-Vefsíðan menntatorg.is veitir upplýsingar um nám fyrir atvinnulausa

Við hrun íslensku bankanna

í október 2008 fór í gang

samstarfshópur sem stjórn

Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

(FA) kom á laggirnar.

Hlutverk hópsins var að vakta

stöðuna á vinnumarkaði og

reyna að bregðast við breyttum

aðstæðum með þeim úrræðum

sem þegar eru til, meðal annars

ráðgjöf, raunfærnimati og námi

eða nýjum úrræðum. Fulltrúar

frá ASÍ, SA, Vinnumálastofnun,

fræðsluaðilum og menntamálaráðuneyti

eiga sæti í þessum

samstarfshópi sem er undir

forystu Ingibjargar Elsu Guðmundsdóttur,

framkvæmdastjóra

Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Eitt af því sem

samstarfshópurinn taldi vera

þörf á var vefsvæði með hagnýtum,

einföldum upplýsingum

um nám og námskeið fyrir þá

einstaklinga sem hafa minnsta

menntun og eru án atvinnu.

Niðurstaðan var vefsíðan www.

menntatorg.is sem var opnuð

formlega þann 6. mars sl. á svokölluðu

Menntatorgi þar sem

ýmsir fræðsluaðilar kynntu

nám og ýmis úrræði fyrir atvinnulausa.

Helmingur atvinnulausra

aðeins með grunnskólapróf

Björgvin Þór Björgvinssson,

hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

segir að í dag séu tæplega 16

þúsund manns atvinnulausir á

Íslandi. „Þegar þetta er skoðað út

frá menntun má sjá að um 50% af

öllum atvinnulausum eru aðeins

með grunnskólapróf, en sá hópur

er einmitt stærsti markhópur

Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Á vefnum www.menntatorg.is er

að finna upplýsingar um nám og

námskeið sem atvinnulausir geta

stundað á meðan þeir fá greiddar

atvinnuleysisbætur,“ segir Björgvin.

Í janúar 2009 setti þáverandi

félags- og tryggingamálaráðherra,

Jóhanna Sigurðardóttir, tvær

reglugerðir um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði

og um nám og

námsskeið sem atvinnuleitendur

geta tekið þátt í samhliða því að fá

greiddar atvinnuleysisbætur. Meginmarkmið

þessara vinnumarkaðsúrræða

er að sporna gegn atvinnuleysi,

auðvelda fólki í atvinnuleit

að halda virkni sinni, stuðla að

tengslum þess við atvinnulífið og

skapa fólki leiðir til að bæta möguleika

sína til atvinnuþátttöku á

nýjan leik. Á meðal þess náms og

námskeiða sem teljast til vinnumarkaðsúrræða

má nefna:

• Nám hjá fræðslu- og símenntunarstöðvum

og fræðslustofnunum

iðngreina.

• Nám hjá endurmenntunarstofnunum

háskólanna og Impru (Nýsköpunarmiðstöð

Íslands).

• Verk- og starfsnám á framhaldsskólastigi

og frumgreinanám á forsendum

fullorðinsfræðslu.

• Námskeið á vegum endurhæfingarstofnana

og önnur námskeið

sem eru líkleg til að styrkja fólk

á vinnumarkaði að mati ráðgjafa

Vinnumálastofnunar.

Á vefnum www.menntatorg

er að finna yfirlit um fræðslu- og

símenntunarmiðstöðvar víðsvegar

um landið sem bjóða nám og

námskeið samkvæmt vottuðum

námsleiðum Fræðslumiðstöðvar

atvinnulífsins. Þær bjóða einnig

tölvunámskeið, starfstengd námskeið

o.fl. Auk þess bjóða þær

námsráðgjöf og sumar bjóða raunfærnimat

í iðngreinum.

Atvinnulífið eflt

Björgvin segir allt benda til þess

að atvinnulífið eflist þegar starfsmenn

mennta sig. „Það á ekki hvað

síst við um menntun ófaglærðra. Í

þeim námsleiðum sem hafa verið

í boði hér á landi má sjá áhrif eins

og aukin gæði, færri mistök, aukna

starfsánægju, betri samskipti, betri

þjónustu og meiri nýsköpun. í síbreytilegu

samfélagi og atvinnulífi

er mikilvægt að starfsmenn

hafi sveigjanleika, þor og snerpu,

sem eykst með aukinni menntun.

Námsmannatilboðin gilda ekki með öðrum tilboðum sem í boði eru hverju sinni

Það er oft ófaglærða fólkið sem er

í framvarðarsveit fyrirtækja og í

beinu sambandi við viðskiptavini.

Það er stjórnendum ómetanlegt að

fá upplýsingar frá þessum starfsmönnum

sínum þegar bæta á og

byggja upp. Með menntun öðlast

starfsmennirnir trú á sér og miðla

upplýsingum innan fyrirtækja á

fagmannlegan hátt. Það hefur sýnt

sig að menntun ófaglærða verður

til þess að sömu starfsmenn sækja

síðan í meiri menntun,“ segir Björgvin.

Opnun vefsíðunnar www.menntatorg.is. Frá vinstri: Svanlaugur Þorsteinsson, Ingibjörg

Elsa Guðmundsdóttir og Björgvin Þór Björgvinsson

„Ég vil námsmannaþjónustu

Byrs“

Vertu hjá Byr og sparaðu helling:

• Frítt Byr námsmannadebetkort með 150 frífærslum á ári og afsláttum á

völdum stöðum.

• Frítt Byr námsmannakreditkort með 5.000 kr. ferðaávísun og fríu World for 2

korti fyrsta árið.

• Ódýrt í bíó hjá Sambíóunum. 2 fyrir 1 á mánudögum og

20% afsláttur alla hina dagana.

• Ódýrt í ræktina hjá World Class og Vaxtarræktinni.

Þú borgar fyrir sex mánuði en æfir í níu mánuði.

• Ódýrara í skólann með 10% afslætti af öllu hjá Eymundsson.

• Ódýrara hjá Subway með girnilegum 10% afslætti af öllu.

• Ódýrari tryggingar hjá Verði: 50% afsláttur af 24 mánaða tölvutryggingu,

15% afsláttur af ábyrgðar- og kaskótryggingu ökutækis og margt fleira.

Fjárhagsleg heilsa er betra líf!

fyrir námsmenn

DY N A M O R E Y K J AV Í K
18 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 19

Stærðfræðinámið auðveldað

-Kennsluvefurinn Rasmus.is býður nemendum og kennurum upp á nýja leið í stærðfræðinámi

Kennsluvefurinn Rasmus.is

hefur stöðugt verið að sækja í

sig veðrið allt frá sköpun hans

árið 1999 og telur nú viðskiptavinahópur

vefsins yfir 1300

skóla, bæði hérlendis og erlendis.

Vefurinn býður grunnog

framhaldsskólanemendum

upp á skýra og aðgengilega leið

til að auðvelda sér stærðfræðinámið.

Hugo Rasmus, kennari

við Menntaskólann í Kópavogi

og annar stofnenda vefsins,

segir að notagildi vefsins

sé margvíslegt, kennarar geti

notað hann sem kennslugagn,

nemendur geti notað hann við

upprifjun eða til þekkingaröflunar

og þá nýtist hann sem

tungumálavefur, enda sé hann

aðgengilegur á átta tungumálum.

Að vefnum stendur Hugo,

ásamt bróður sínum Tómasi

Rasmus, kennara við Salaskóla í

Kópavogi. Þeir semja einnig allt

efni vefsins ásamt Jóhanni Ísak

Péturssyni, námsefnishöfundi

og kennara við Menntaskólann í

Kópavogi. Höfundar efnisins eru

því allir með áratugalanga reynslu

af kennslu.

Hugo segir að höfuðáhersla

hafi verið lögð á að hafa efni

vefsins auðskiljanlegt. „Texti í

kennslubókum í stærðfræði reynist

mörgum nemendum erfiður

lestrar, við reynum því að skrifa

auðveldari texta með myndrænum

skýringum. Markmið vefsins

er að hjálpa nemendum að læra

stærðfræði og býður hann upp á

nýja leið til þess,“ segir Hugo.

Frá margföldun til afleiðureikninga

Vefnum er skipt eftir námsstigi

og svo eftir einstökum viðfangsefnum

stærðfræðinnar á hverju

námsstigi, allt frá byrjun grunnskóla

og upp í menntaskóla. Efnisþáttum

er svo fylgt eftir með

gagnvirku prófi þar sem notendur

geta sannreynt skilning sinn á

því efni sem síðast var lesið. Hugo

segir að í byrjun hafi efni vefsins

Menntakerfið auki

verðmætasköpun

Samtök iðnaðarins vilja öflugri

iðn- og tæknimenntun,

en Ingi Bogi Bogason hjá

Samtökum iðnaðarins segir

að eftirspurn sé eftir fólki

með þessa menntun. „Iðn- og

raungreinamenntun er best

til þess fallin að standa undir

aukinni verðmætasköpun

sem þjóðin þarf svo á að

halda,“ segir Ingi.

Samtök iðnaðarins hafa árum

saman lagt áherslu á mikilvægi

verk- og tæknifræðimenntunar

á háskólastigi og iðn- og starfsmenntunar

á framhaldsskólastigi.

Þau telja að iðnmenntun og

raungreinamenntun í háskóla,

sérstaklega verk- og tæknifræði,

veiti tækifæri til góðra og vel

launaðra starfa í framtíðinni.

Nýsköpun, sem reist sé á þessari

menntun, muni tryggja trausta

endurreisn hér á landi.

Samtök iðnaðarins eru meðal

eigenda Háskólans í Reykjavík,

Tækniskólans (sem áður var

Iðnskólinn og Fjöltækniskólinn)

og IÐUNNAR fræðsluseturs,

sem annast endurmenntunarstarfsemi

iðnaðarins.

miðast við grunnskólastigið, en

með innkomu Jóhanns í verkefnið

hafi framhaldsskólaefni verið

bætt við og nær nú kennsluefnið

á Rasmus.is yfir stærstan hluta

þeirrar stærðfræði sem kennd er í

framhaldsskólum. Þá er vefurinn

tengdur við nokkrar af þeim

kennslubókum sem almennt eru

notaðar í stærðfræðikennslu í

dag, en þannig getur notandi út

frá blaðsíðunúmeri kennslubókar

sinnar fundið ítarefni á Rasmus.

is.

Hugo segir að vefurinn hafi

þannig mikið notagildi fyrir nemendur

sem geta ef til vill ekki

fylgt þeim hraða sem kennslan

fer fram á og geti því farið aftur

yfir það efni sem nemendur hafa

misst af. Þá geti nemendur sem

þyki kennsluhraði of hægur haldið

áfram þekkingarleit sinni upp

á eigin spýtur. „Margir háskólanemar

nýta sér Rasmus til að rifja

upp menntaskólaefnið sem þeir

þurfa á að halda í sínu námi,“ segir

Hugo. Þá segir Hugo að hann hafi

fundið mikið þakklæti frá foreldrum

sem hafa nýtt sér vefinn til

upprifjunar þegar þeir veita börnum

sínum aðstoð í heimalærdómi

sínum.

Óbreytt verð frá upphafi

Efni vefsins er öllum aðgengilegt,

en með því að kaupa aðgang

er skólum leyfilegt að nýta sér

efnið á hvern þann hátt sem hver

skóli kýs, þannig hafi einhverjir

skólar til dæmis gert efni vefsins

að skyldulesningu í námskeiðum

sínum. „Við ákváðum að hafa allt

efnið opið og þannig höfum við

Tímabil Innlit af lista

2003 124,805 10.41%

2004 159,177 13.27%

2005 180,800 15.08%

2006 209,160 17.44%

2007 250,791 20.91%

2008 274,386 22.88%

Alls: 1,199,119 100%

Heimild:

Af hverju stöndum við ekki

framar?

Ingi Bogi Bogason, forstöðumaður

menntunar og mannauðs

hjá SI, var spurður hvaða áhrif

ástandið í atvinnulífinu hefði á

stefnu SI í menntamálum. Hann

segir að Samtökin hafi lengi barist

fyrir fjölgun iðn- og tæknimenntaðs

fólks og það hafi aldrei verið

mikilvægara en nú. Þessi menntun

standi undir mestri verðmætasköpun

í atvinnulífinu og iðnfyrirtæki

sækist eftir fólki með iðnog

tæknimenntun.

„Þessi fjölgun gerist hins vegar

ekki af sjálfu sér,“ segir Ingi Bogi.

„Stjórnvöld þurfa að einsetja sér

að ýta undir og auðvelda menntakerfinu

að vera einn af lykilþáttum

í endurreisn landsins, m.a.

með fjölgun tæknimenntaðra.

Íslendingar stæra sig af því að

verja einna mestu fjármagni til

menntakerfisins en spyrja má um

nýtingu fjárins. Af hverju stöndum

við okkur ekki betur í alþjóðlegum

sambanburði, t.d. í PISA

könnunum? Af hverju eigum við

ekki eins marga vel menntaða og

hæfa raungreinakennara og nágrannaþjóðir

okkar? ,“ segir Ingi

Bogi.

Menntun sem skapar

vinnu

Íslenskt menntakerfi er öflugt,

telur Ingi Bogi, en unnt er að nýta

það betur og markvissar án þess

að kosta miklu til. Iðnmenntun er

í boði við framhaldsskóla í öllum

landshornum. Fjölbreytni í verkfræði

og skyldum greinum hefur

aukist undanfarin ár, m.a. með

tilkomu öflugrar tækni- og verkfræðideildar

við HR.

„Einungis 75% íslenskra ungmenna

á aldrinum 18-24 ára ljúka

viðurkenndu námi í framhaldsskóla.

Á Norðurlöndunum er sú

tala 85-95%. Þetta þýðir að íslensk

fyrirtæki skortir aðgang að jafn

samkeppnishæfu starfsfólki og í

nágrannalöndunum.

Nýleg könnun evrópskrar rannsóknarstofnunar

í menntamálum,

OECD, spáir um 15% aukinni þörf

Bræðurnir Hugo og Tómas Rasmus segja vefinn hafa

hjálpað mörgum í námi sínu. Ljósm. Ingó.

Fjöldi innlita 06.08.2009 www.rasmus.is

Heimild: Modernus ehf. 1

getað haldið áskriftarverðinu í

lágmarki, en verðið hefur verið

óbreytt frá því vefurinn var opnaður

árið 1999, þrátt fyrir að við

höfum bætt við umtalsverðu efni.

Þetta hefur gefið góða raun og á

meðan skólarnir greiða þetta árgjald

fyrir sig og sína verður verðið

áfram lágt,“ segir Hugo.

Hugo segir að þar sem aðeins

takmarkaður fjöldi mögulegra

viðskiptavina sé á Íslandi hafi

fljótlega verið farið út í að þýða

efni vefsins á erlend

tungumál. Nú er svo

komið að vefurinn

er aðgengilegur á

átta tungumálum:

dönsku, norsku,

sænsku, ensku,

pólsku, rússnesku

Fjölgun iðn- og tæknimenntaðs fólks aldrei mikilvægari en nú.

fyrir tæknimenntað háskólafólk á

næstu árum. Þessi veruleiki þarf

að ráða áherslum í stefnumörkun

stjórnvalda.

„Samtökin verja árlega miklu

fjármagni í námsefnisgerð, vinnustaðakennslu

og þróunarstarf í

háskólum til að flýta fyrir breytingum

til batnaðar.

Margt ungt fólk er til vitnis um

að iðn- og tæknimenntun skilar

sér í góðum störfum síðar meir.

Bæði iðnmenntun og verkfræðimenntun

felur í sér möguleika til

margbreytilegra skapandi starfa.

Aðsókn í þessa menntun er góð

og spænsku.Flestir

erlendir kúnnar

Rasmus koma frá

n á g r a n n a þ j ó ð -

um okkar, enda

kennsluskrár þjóðanna

nokkuð svipaðar.

Hugo segist

hafa fengið mjög

góð viðbrögð erlendis

frá og hafi vefurinn fengið

góða umfjöllun í erlendum fjölmiðlum

og námsstofnunum.

Hugo segir þýðendur hjá Rasmus.is

flesta vera Íslendinga með

annað móðurmál en íslensku.

„Margir þeirra sem koma til

Íslands hafa mikla menntun að

baki og geyma mikinn mannauð.

Þess vegna höfum við leitað hér

heima að öflugu fólki til að vinna

með okkur. Þeir þýðendur sem

hafa unnið með okkur að öðrum

málum svo sem norðurlandamálunum

eru allir starfandi kennarar

hver á sínu málsvæði og hafa þýtt

efnið frá okkur úr ensku og síðan

staðfært það að kröfum síns

heimalands,“ segir Hugo.

Hann segir þó að gagnsemi

þýðinganna sé ekki einskorðað

við sölu á erlendri grundu. Hlutur

námsmanna af erlendum uppruna

fer sífellt stækkandi í íslenskum

skólum og segist Hugo því hafa

fengið virkilega góð viðbrögð við

þýðingu efnisins frá fólki af erlendum

uppruna búsettu á Íslandi.

„Nemendur geta haft opna glugga

með efninu á bæði móðurmáli

sínu og íslensku samtímis og lært

tungumálið um leið, þannig er

vefurinn orðinn tungumálavefur

líka,“ segir Hugo.

Metnaðarfullt starf framundan

Aðstandendur Rasmus.is sitja

fjarri því auðum höndum því að á

næsta skólaári stendur til að opna

tvo nýja vefi, annars vegar stjörnufræðivef

og hins vegar jarðfræðivef.

Efni vefjanna tveggja verður

miðað við framhaldsskólastigið,

en þó munu bæði skólastigin geta

nýtt sér efnið. Jóhann sér um að

smíða efni vefjanna tveggja og játar

hann því fúslega að um metnaðarfullt

verkefni sé að ræða, enda

verði þar heilum vísindagreinum

gerð skil. Þá verður einnig opnaður

veður- og haffræðivefur þar

sem veðurfarsbreytingar, gróðurhúsaáhrif

og hafstraumar verða

til umfjöllunar.

en þyrfti að vera meiri. Það þarf

nefnilega miklu fleira fólk með

menntun á þessum sviðum til

að byggja upp atvinnulíf morgundagsins.“

Auka þarf framleiðni

„Þegar öllu er á botninn hvolft,“

segir Ingi Bogi, „snýst málið um

að auka framleiðni í menntakerfinu,

alveg eins og í atvinnulífinu.

Við eyðum of mörgum vinnustundum

og fjármagni í að framleiða

of lítið – líka í menntakerfinu.“

Námskeið sem næra huga og sál á

krepputímum

VISKA er Fræðslu- og símenntunarmiðstöð

í Vestmannaeyjum

og er meðal markmiða

hennar að efla menntun í Vestmannaeyjum

með því að standa

fyrir fræðslustarfsemi sem

ekki heyrir undir námsskrárbundið

nám á grunn- og framhaldsskólastigi.

Valgerður

Guðjónsdóttir, forstöðumaður,

Visku segir að framboðið á

námi verði nú með ögn breyttu

sniði en hingað til hafi verið, en

þessa dagana er verið að leggja

drög að vetrardagskránni og

huga að útgáfu Námsvísis sem

og útgáfu kynningarbæklings

fyrir annars vegar háskólanám

og hins vegar um náms- og

starfsráðgjöf.

Valgerður segir að VISKA

reyni að koma til móts við þarfir

allra Vestmannaeyinga eins og

hægt sé. ”Fyrir þá sem litla eða

enga menntun hafa leitumst við

við að bjóða upp á námskeið sem

nýtast þeim til frekara náms sem

og áhugasviðsnámskeið. Fyrir þá

sem þegar hafa menntað sig bjóðum

við upp á alls konar viðbótarnám

sem og tómstundanámskeið.

Eldri borgarar hafa fengið

sérstök tölvunámskeið sem og

starfslokanámskeið sem við höfum

reyndar kallað ”nám fyrir fólk

á tímamótum.” Námskeiðsflokkarnir

eru hefðbundnir en þar má

nefna: andmennt, heilbrigðismál,

matargerð, samskipti og sjálfstyrkingu,

sjórnun og rekstur,

menningu og útivist, tungumál

og að lokum réttindanám og vottaðar

námsleiðir.

Nærandi námskeið í vetur

Hvað varðar

tómstundanámskeiðin

þá munum við

reyna að bjóða

upp á alls konar

handverk og

vonumst til að

þau verði vel

sótt.

Vestmannaeyingar hafa ekki

farið varhluta af kreppunni, en

Valgerður segir það þó fjarri lagi

að eyjaskeggjar leggist í eymd og

volæði. “Efnahagsþrengingar hafa

miklu frekar haft það í för með sér

að frekar er sóst eftir námskeiðum

sem ganga út á að næra sál og

huga og kenna fólki að fara sparlega

með það sem það á. Ég tel

að Vestmannaeyingar hafi tekist á

við alls konar áföll í lífinu eins og

eldgos og aflabrest svo eitthvað sé

nefnt og þeir kunna á vissan hátt

að bregðast við áföllum og því

leitast þeir við að spjara sig með

því að vera glaðir og bjartsýnir og

leggjast ekki í barlóm og athafnaleysi.

Því var nokkuð góð aðsókn

að fyrrgreindum námskeiðum

fyrr á þessu ári og við munum

reyna að bregðast við þessu með

því að bjóða upp á góð og nærandi

námskeið í vetur.

Hvað varðar tómstundanámskeiðin

þá munum við reyna að

bjóða upp á alls konar handverk og

vonumst til að þau verði vel sótt.

Einnig er ætlunin að bjóða upp á

námskeið fyrir ferðaþjónustufólk

þar sem hér mun mikið breytast á

næstu árum með tilkomu bættra

samgangna þegar Landeyjahöfn

er komin í gagnið. Við stefnum

og á að bjóða upp á nám fyrir

skrifstofufólk og fyrir fólk sem

hefur hug á að koma sér af stað í

nám aftur eftir nokkurt hlé. Hér

hefst og nám í hjúkrunarfræði frá

Háskólanum á Akureyri í haust og

fögnum við því. Einnig er ætlunin

að fara í frekara samstarf við HA

og þá við sjávarannsóknabrautina

þeirra,” segir Valgerður.

Eina símenntunarstöðin í

Vestmannaeyjum

„Viska er í raun eina símenntunarmiðstöðin

í Vestmannaeyjum,

að sögn Valgerðar, „eða öllu

heldur eina stofnunin sem hefur

það eitt að markmiði að bjóða upp

á fræðslu fyrir fullorðna bæði á

háskólastigi (um fjarfundabúnað

og annars konar fjarnám) en ekki

síður sem sí- og endurmenntunarúrræði

fyrir íbúa eyjarinnar. Viska

starfar í góðu samstarfi við Framhaldsskólann

í Vestmannaeyjum

sem og Nýsköpunarmiðstöð að

þessu verkefni og með fyrirtækjum

og stofnunum hér á staðnum.

Hér er boðið upp á tómstundanámskeið,

nám samhliða vinnu

og starfstengd námskeið ásamt

vottuðum námsleiðum í samstarfi

við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Einnig er unnið hér að raunfærnimati

í vélstjórnargreinum

með Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum.

Við hjá Visku teljum að aðstaða

okkar sé ögn öðruvísi en hinna

stöðvanna þar sem við erum jú

nokkuð mikið einangruð hér suður

undan landinu. Þó eru líkur á

að það muni breytast nokkuð með

tilkomu Landeyjarhafnar á næsta

ári. En hver og ein símenntunarmiðstöð

ber merki síns svæðis og

þeirrar menningar sem er í héraði

og við höfum reynt að bjóða

upp á menningartengd námskeið

sem byggja á sögu og menningu

eyjanna,“ segir Valgerður.

Námstækifæri færð heim

Valgerður segir að Viska hafi

gríðarlaga þýðingu fyrir samfélagið

í Vestmannaeyjum þar sem

markmið Visku sé að færa námstækifærin

til Vestmannaeyja í

stað þess að íbúar þurfi að fara

af eynni til að sækja sér frekari

menntun. “Viska hefur fest sig í

sessi í samfélaginu og vonumst

við til þess að bæjarbúar haldi

áfram að vera iðnir við að sækja

námskeið hjá okkur. Við höfum

óskað eftir því að fólk komi líka til

okkar með hugmyndir og óskir og

reynum að verða við því eins og

mögulegt er.“ segir Valgerður að

lokum.

Góð aðsókn hefur

verið að námskeiðum

Visku í Vestmannaeyjum.
20 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 21

Orkunám á alþjóðavísu

-viðtal við Eddu Lilju Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Orkuskólans REYST hf.

Orkuskólinn REYST hf. er nýr

af nálinni, en hann var stofnaður

í samvinnu við Orkuveitu

Reykjavíkur, Háskólann í

Reykjavík og Háskóla Íslands í

ársbyrjun 2008 og mun útskrifa

sinn fyrsta nemendahóp í byrjun

árs 2010. Edda Lilja Sveinsdóttir,

framkvæmdastjóri

REYST, segir að Orkuskólinn

REYST sé vel í stakk búinn til

að byggja upp framhaldsnám á

háskólastigi sem sé samkeppnisfært

á alþjóðavísu, enda sé

hér á landi áratuga reynsla af

nýtingu jarðhita og vatnsorku

og margir af færustu sérfræðingum

á þeim sviðum kenni

einmitt við REYST.

Undirbúningur að stofnun

skólans stóð yfir í hátt á þriðja ár,

en grunnurinn var lagður í apríl

2007 þegar Orkuveita Reykjavikur,

Háskólinn í Reykjavík og

Háskóli Íslands undirrituðu samkomulag

um stofnun alþjóðlegs

skóla um sjálfbæra orku. Þessir

aðilar stofnuðu hlutafélag, Orkuskólann

REYST hf., 25. febrúar

2008 og fyrsti nemendahópurinn

hóf nám hjá okkur í ágúst 2008.

Stóraukin þörf fyrir sjálfbæra

orku

Edda Lilja segir að hvatinn að

samstarfi þessara þriggja aðila um

REYST hafi verið þörfin fyrir stóraukna

notkun sjálfbærrar orku og

þörfin fyrir sérfræðiþekkingu á

því sviði. „Því er spáð að orkuþörf

heimsbyggðarinnar muni aukast

um 50% til ársins 2030 og að hún

muni aukast allstaðar í heiminum;

ekki síst í þróunarlöndunum. Aðeins

hluti orkuframleiðslunnar

kemur frá sjálfbærum orkugjöfum

og krafan er sú að auka þann

hluta. Íslenskt samfélag fær stóran

hluta þeirrar orku sem það

notar úr sjálfbærum orkulindum.

Það byggir á langri hefð við notkun

sjálfbærrar orku og býr yfir

mikilli vísinda- og tækniþekkingu

við að nýta jarðhita og vatnsorku.

Hér á landi hefur það sannast að

sjálfbær nýting orkulinda er undirstaða

hagvaxtar og velferðar og

verður það til framtíðar,“ segir

Edda Lilja.

Loftslagshlýnunin er vandamál

sem steðjar að öllum löndum

heims og segir Edda Lilja flesta

vera sammála um að það sé ekki

lengur spurning um hvort hægt

sé að snúa þróuninni við, heldur

hve langan tíma við höfum til

stefnu. „Talið er að mestu máli

skipti í þeirri baráttu að breyta

orkukerfunum í sjálfbæra orku.

Reynsla og þekking okkar Íslendinga

síðustu áratugina við

nýtingu jarðhita og vatnsorku er

dýrmæt. Það er skylda okkar að

koma þessari þekkingu áfram til

næstu kynslóða og til heimsins

alls. Skólinn er kjörið tæki til þess

að Íslendingar láti til sín taka í því

brýna verkefni. Þannig getum við

miðlað reynslu okkar og komið

tækniþekkingunni til annarra

landa,“ segir Edda Lilja.

Undirstaða hagvaxtar og

velferðar

Þá segir Edda Lilja að REYST

geti opnað nýjar víddir í aðstoð

við þróunarlönd „Á síðasta ári

fagnaði Jarðhitaskóli Sameinuðu

þjóðanna 30 ára starfsafmæli sínu

hér á landi, sem hefur verið mikilvægt

framlag okkar til að koma

þekkingunni til þróunarlanda.

Tækifæri er fyrir stjórnvöld að

nýta hinn nýja skóla, REYST til

frekara framlags Íslands til aðstoðar

við þróunarlönd auk þess

sem skólinn er opinn nemendum

frá öllum löndum heims því

vandamálið er allstaðar,“ segir

Edda Lilja.

REYST leggur áherslu á umhverfisvernd

og sjálfbæra nýtingu

orkulinda á alþjóðavísu. „Það er

almennt viðurkennd staðreynd að

sjálfbær nýting orkulinda sé undirstaða

hagvaxtar og velferðar til

framtíðar. En það er ekki nóg að

eiga auðlindir, heldur verður líka

að hyggja að skynsamlegri nýtingu

þeirra. Framtíðin er sjálfbær

nýting endurnýjanlegrar orku og

hér höfum við þekkinguna,“ segir

Edda Lilja.

Edda Lilja segi að ekki sé nóg að eiga

auðlindir, heldur verði líka að hyggja að

skynsamlegri nýtingu þeirra. Ljósm. Ingó.

Við vorum komin með

ákveðið forskot alþjóðlega

í vísindum og tækni

tengdum nýtingu jarðhita

og megum ekki tapa því

með því að láta þessa

þekkingu glatast.

Dýrmæt þekking

Edda Lilja segir að sú reynsla

og þekking sem Íslendingar hafa

aflað sér síðustu áratugina við

nýtingu jarðhita og vatnsorku sé

afar dýrmæt. „Þessi reynsla hefur

byggst upp hjá sérfræðingum

Orkustofnunar, ÍSOR og á verkfræðistofum

tengdum í útrás til

fjölda ára og síðast en ekki síst er

mikil þekking innan háskólanna.

Það er skylda okkar að koma

þessari þekkingu áfram til næstu

kynslóða og til heimsins alls.

Skólinn er kjörið tæki til þess að

Íslendingar láti til sín taka í því

brýna verkefni og þannig getum

við miðlað reynslu okkar og komið

tækniþekkingunni til annarra

landa.

Við vorum komin með ákveðið

forskot alþjóðlega í vísindum og

tækni tengdum nýtingu jarðhita

og megum ekki tapa því með því

að láta þessa þekkingu glatast.

Þá er mikilvægt að tryggja endurnýjun

í greininni því meðalaldur

starfsmanna orkufyrirtækja

hér á landi er yfir 50 ár, meðal

annars vegna þess að fólk hefur

undanfarin ár sniðgengið tæknigreinar

í háskólunum. Staðan var

því orðin sú að okkur vantar fólk

í margar tæknigreinar. Sú staða er

einnig staðreynd víða um heim.

Þess vegna var ákveðið að stofna

Orkuskólann REYST og nýta

þessa þekkingu og byggja hana

upp með nýju fólki og sameina

krafta háskólanna tveggja og OR.

Nú sem aldrei fyrr er þörf á því

að sameina kraftana. Með því að

samnýta námskeið og sérfræðinga

háskólanna og Orkuveitunnar

teljum við að unnt sé að byggja

upp öfluga einingu á sviði orkuvísinda.

Uppbyggingin fer fram

hér á landi og við treystum stoðir

menntunar og rannsókna á Íslandi

með mikilvægri alþjóðlegri

tengingu,“ segir Edda Lilja.

Nemendahópurinn er afar

fjölþjóðlegur og kemur frá

níu mismunandi löndum.

Fjölþjóðleg flóra nemenda

Meistaranám við Orkuskólann

REYST hófst í byrjun ágúst 2008.

Það er 120 ECTS einingar og tekur

18 mánuði sem skiptist í þrjár

annir. Fyrstu tvær annirnar eru

nemendur í námskeiðum og vinna

síðan eingöngu að lokaverkefnum

sínum þá síðustu. Tólf námskeið

hafa verið sérhönnuð fyrir REYST,

en nemendur velja síðan önnur

námskeið á meistarastigi úr háskólunum

tveimur. Öll námskeið

eru kennd á ensku.

Fyrsti árgangurinn kom í ágúst í

fyrra, 13 nemendur í meistaranámi

við REYST, sjö íslenskir, tveir frá

Indónesíu og einn frá hverju þessara

landa: Djibouti, Filippseyjum,

Fílabeinsströndinni, Skotlandi og

Þýskalandi. Annar hópur hóf nám

hér nú í ágúst, einnig 13 talsins og

þar eru sex íslenskir nemar

og sjö erlendir frá Indlandi, Kólumbíu,

Bandaríkjunum, Finnlandi,

Eþíópíu og Taíwan. Nemendurnir

hafa bakgrunnsmenntun, BS,

í ýmsum greinum s.s. verkfræði,

jarðfræði, jarðeðlisfræði, stærðfræði

og viðskiptafræði. Nokkrir

nemendanna hafa einnig MS gráður

í raunvísindum. Þetta eru öflugur

hópur og hefur ýmist nokkra

reynslu úr atvinnulífinu eða er að

koma beint úr grunnnámi við háskóla.

Nám við REYST fer fram á ensku

og segir Edda Lilja að markhópur

REYST sé allstaðar að úr heiminum.

„Við höfum auglýst á erlendum

vefsíðum um sjálfbæra orku,

nýtum stórt tengslanet eigenda

REYST – þ.e. samstarfsháskóla HÍ

og HR erlendis og fjölmarga samstarfsaðila

Orkuveitunnar erlendis.

Þá höfum við kynnt REYST á

fagráðstefnum hér á landi sem og

erlendis,“ segir Edda Lilja.

Doktorsnám innan fimm

ára

Edda Lilja segir að til viðbótar

við meistaranámið muni skólinn

bjóða upp á doktorsnám innan

fimm ára. „Það var ákveðið að

byrja á einu skrefi í einu og byggja

REYST upp hægt en örugglega þar

sem gæði og vönduð kennsla og

rannsóknir er höfð að leiðarljósi.

Á þann hátt erum við sannfærð

um að framtíðarsýnin, að REYST

sé leiðandi skóli á sviði sjálfbærrar

orku og í fararbroddi alþjóðlega í

öflugum rannsóknum og kennslu,

muni rætast,“ segir Edda Lilja.

Háskóli Íslands og Háskólinn

í Reykjavík bera faglega ábyrgð

á náminu, en Orkuveitan er fjárhagslegur

bakhjarl REYST ásamt

því að vinna náið með háskólunum

að hönnun námskeiða og

þjálfun nemendanna í rannsóknarverkefnum.

Edda segir að mikilvægur samráðsvettvangur

eigenda REYST sé

svokallað fagráð. „Fagráð REYST

er skipað fulltrúum allra samstarfsaðilanna.

Helsta hlutverk

þess er að þróa námið og setja saman

námsskrá, skipuleggja fræðilegt

og verklegt innihald kennsluskrár,

gera tillögur um kennara og val

nemenda auk þess að sjá um önnur

þau málefni sem snerta faglega

uppbyggingu REYST,“ segir Edda

Lilja.

Skyldunámskeið

Inngangsnámskeið

(ásamt 5 daga vettvangsferð)

Inngangur að jarðfræði

Inngangur að orkutækni

Inngangur að orkuhagfræði

Yfirlit yfir sjálfbær orkukerfi

Þverfaglegt verkefni

Fjármál og tæknimál tengd

Starfsvettvangur REYST er

rannsóknir og rannsóknatengt

framhaldsnám. Háskóli Íslands og

Háskólinn í Reykjavík bera faglega

ábyrgð á náminu og munu háskólarnir

útskrifa nemendur með

sameiginlega prófgráðu. Skólinn

er ætlaður fólki með BS gráðu í

verkfræði og öðrum raunvísindum

og viðskiptum sem hyggur á

framhaldsnám á sviði sjálfbærrar

orku.

Ein námsleiða REYST er viðskiptafræði

– orkuvísindi og segir

Edda Lilja að tilkoma námsleiðarinnar

sé að oft skorti á að

fjármálafólkið geti skilið hugtök

tæknifólksins – og öfugt. „Tvö

námskeiðanna sem eru kennd við

skólann krefjast þess að allir nemendur

úr þessu þremur greinum

starfi saman að lausn verkefna.

Við munum útskrifa sérfræðinga

sem verða leiðandi í stjórnun,

hönnun og rannsóknum um nýtingu

sjálfbærrar orku. Einstæð

reynsla og þekking samstarfsaðilanna

er hinn trausti grunnur

sem skólinn byggir á. Nemendur

okkar öðlast reynslu við að vinna

að raunverulegum verkefnum

með fyrirtækjum í orkugeiranum,

undir handleiðslu reyndra kennara

við háskólana.

Nú stöndum við frammi fyrir

því að einni stórri stoð – fjármálageiranum

– hefur verið

kippt undan efnahag landsins.

Við þurfum að skjóta mörgum,

minni stoðum undir í staðinn.

Ein þeirra er orkugeirinn og þar

er mikilvægt að sameina kraftana

hér innanlands sem utan. Þó svo

hægt hafi á orkuútrásinni í bili

erum við þess fullviss að hún taki

við sér aftur innan skamms. Þá

þarf að eiga mannskap í verkin,

bæði hér á landi og erlendis,“ segir

Edda Lilja.

Námskeið á viðskiptalínu

Alþjóðleg og evrópsk

orkulög

Arðsemismat og fjármögnun

verkefna

Alþjóðleg samskipti,

samningar og stjórnun

Öll námskeiðin á viðskiptalínu

eru skylda fyrir nemendur

sem velja þá línu.

Námskeið á

verkfræðilínu:

Orkuberar og orkugeymsla

Mælingar og kerfisgreining í

jarðhita-orkuverum

Valin viðfangsefni í

verkfræði

Námskeið á

jarðvísindalínu:

Greining borholugagna og

forðafræði – stýring jarðhita-

og vatnsforða

Nánari upplýsingar á

www.reyst.is
22 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 23

Viðskiptasmiðjan er

hraðbraut inn í nýja tíma

Annað starfsár hjá Viðskiptasmiðjunni

– hraðbraut nýrra

fyrirtækja er að hefjast en það

var Klak- Nýsköpunarmiðstöð

atvinnulífsins og Háskólinn

í Reykjavík sem komu Viðskiptasmiðjunni

á legg. Með

því skyldi gefa frumkvöðlum

möguleika á að stofna ný fyrirtæki

eða koma fyrirtækjum

sínum á rétta braut. Verkefnið

er einungis eitt: Að búa til

samkeppnishæft fyrirtæki.

„Það eru allavega fimm góðar

ástæður fyrir frumkvöðla og fyrirtæki

á ólíkum stigum að vera í

Viðskiptasmiðjunni,“ segir Eyþór

Jónsson, en auk þess að vera

framkvæmdastjóri Klaks kennir

hann við Viðskiptaháskólann í

Kaupmannahöfn. „Frumkvöðlarnir

í Viðskiptasmiðjunni eru

sumir hverjir að taka fyrstu

skrefin við koma fyrirtæki á

fót en aðrir stýra fyrirtækjum

sem þegar hafa náð langt en

vilja komast á hraðbraut til árangurs.“

Þeir sem skemmst eru

komnir fá aðstoð við að búa til

viðskiptaáætlanir en hinir sem

lengra eru komnir vilja skoða

og endurskipuleggja stöðu fyrirtækisins

og mögulega framtíð

þess. Frumkvöðlar sem vilja taka

að sér stjórnunarstöðu í vaxandi

fyrirtæki fá einnig mikla þjálfun

í stjórnun og stefnumótun.

Í Viðskiptasmiðjunni fara þeir

á nokkurs konar hraðbraut þar

sem þeir geta endurskipulagt

fyrirtækið og aukið enn vaxtarmöguleika

þess.“

Ástæðurnar fimm

-Hverjar eru þessar fimm

ástæður sem menn ættu að hafa

í huga þegar þeir leita til Viðskiptasmiðjunnar?

„Í fyrsta lagi má nefna að

í Viðskiptasmiðjunni styrkja

menn stoðir fyrirtækisins sem

er vissulega mikilvægt í þeim

umhleypingum sem gengið hafa

yfir Ísland að undanförnu,“ segir

Eyþór. „Leiðbeinendur, sérfræðingar

og kennarar hjálpa stjórnendum

fyrirtækjanna að finna

Klak – Nýsköpunarmiðstöð

rekur Sprotaþing Íslands

sem var stofnað árið 2005

með þátttöku helstu hagsmunaaðila

sprotafyrirtækja

á Íslandi. Eitt helsta verkefni

Sprotaþings Íslands hefur

verið Seed Forum Iceland

ráðstefnan sem hefur verið

haldin tvisvar á ári. Sú tíunda

verður haldin 9. október

næstkomandi. Hlutverk Seed

Forum er að hjálpa sprotafyrirtækjum

að kynna sig fyrir

fjárfestum og semja við þá

og hafa mörg af þekktustu

sprotafyrirtækjum landsins

einmitt kynnt sig fyrst á þessum

ráðstefnum.

Að jafnaði kynna um 4-6 íslensk

fyrirtæki sig á hverri

ráðstefnu og 2-4 erlend fyrirtæki.

Öll þessi fyrirtæki

fara í gegnum æfingabúðir

með það að leiðarljósi að

koma réttu boðunum til skila

til fjárfesta. Að miklu leyti

Eyþór Jónsson framkvæmdastjóri Klaks

hvernig best sé að bregðast við

aðstæðum. Þeir gefa einnig ráð

sem skipta máli og marg borga

sig í verðmætasköpuninni.

Í öðru lagi er frumkvöðlum

kennt hvernig þeir skuli nálgast

fjárfesta og styrktaraðila en þýðingarmikið

er að skapa trúverðugleika

gagnavart þeim, sem

og lánastofnunum. Fjárfestar

eru meðal ráðgjafa og kennara í

Viðskiptasmiðjunni og kynnast

frumkvöðlunum og fyrirtækjunum

um leið og þeir hjálpa til

Sprotaþing Íslands 9. október

snýst þetta um að skapa trúverðugleika.

Eyþór Jónsson, framkvæmdastjóri

Klaks og stjórnarformaður

Sprotaþings Íslands,

segir að lengi vel hafi Seed

Forum Iceland verið eini

vettvangurinn þar sem eitthvað

var gert til að kynna

sprotafyrirtæki. Miklu meiri

áhugi hefur hins vegar vaknað

á nýjum og áhugaverðum

fyrirtækjum á Íslandi síðustu

misserin. Flestum kemur hins

vegar á óvart hversu mikið líf

er í grasrót fyrirtækjamarkaðarins.

Á síðasta ári tók

Eyþór saman lista yfir 100

áhugaverð íslensk sprotafyrirtæki

fyrir Frjálsa verslun og

urðu menn undrandi hversu

mörg og fjölbreytt þau voru.

Nú undirbýr hann nýjan lista

og þar verða hvorki fleiri né

færri en 200 fyrirtæki sem

sýnir svo ekki um verður um

villst að það er góður sprotavöxtur

á Íslandi.

við að auka fjárfestingarhæfni

þeirra. Þetta getur haft úrslitaáhrif

þegar leitað er eftir fjárfestum.

Í þriðja lagi skapast tengslanet

nýrra og ört vaxandi fyrirtækja

í Viðskiptasmiðjunni. Þar kemst

á samstarf fremur en samkeppni

nýrra og vaxandi fyrirtækja

sem skiptir miklu í framþróun

þeirra. Þarna skiptast menn á

skoðunum og ráðum og vinna

saman. Stjórnendur sem oft eru

einangraðir fá hér möguleika á

að skoða tækifæri og leita lausna

á vandamálum með öðrum sem

eru í svipaðri stöðu.

Fjórða ástæðan er að í Viðskiptasmiðjunni

auka menn

þekkingu sína á stjórnun og

stefnumótun en þetta tvenn

hefur verið vanmetið hér. Það

er nefnilega ekki nóg að hafa

fjármagn ef menn kunna ekki til

stjórnunar né hafa mótað fyrirtækinu

stefnu.

Fimmta ástæðan er tilgangur

Viðskiptasmiðjunnar sem

er að búa til ný fyrirtæki og sjá

til þess að þau nái árangri en

samtímis er hægt að stunda 90

eininga diplomanám við Háskólann

í Reykjavik. Nemendur

þurfa að taka níu námskeið, skila

lokaverkefni eftir hverja önn og

hljóta í lokin gráðu frá Háskólanum

í Reykjavík.“

Spurning um trúverðugleika

Fjölbreytt námsframboð

Á hverju ári er boðið upp á

80-90 hnitmiðjuð námskeið í

Viðskiptasmiðjunni sem velja

má úr og spanna þau fimm svið:

Stjórnun, stefnumótun, markaðsmál,

fjármál og nýsköpun.

Þessum námskeiðum svipar að

einhverju leyti til MBA-námskeiða

sem kennd eru víða í háskólum

en eru þó markvissari

og praktískari fyrir stjórnendur

bæði nýrra og eldri sprotafyrirtækja.

Einn meginkostur

námsins í Viðskiptasmiðjunni

er, að sögn Eyþórs, að þar eru

nemendur að vinna verkefni

sem eru ekki ímynduð heldur

byggð á raunveruleikanum úr

eigin fyrirtæki, eða fyrirtæki

sem þeir eru í þann veginn að

stofna. Viðskiptaáætlanir eru

unnar jafnhliða því að fyrirtækin

eru byggð upp og snúast um að

tengja betur saman aðgerðir og

áætlanir. Öll verkefni fjalla um

fyrirtækið sem menn eru að búa

til. Ráðgjafar og kennarar sem

starfa við Viðskiptasmiðjuna

gefa svo jafnóðum ráð og endurgjöf

fyrir aðeins lítið brot af

þeim kostnaði sem frumkvöðlar

þyrftu annars að leggja út ef þeir

vildu kaupa sér slíka sérfræðiþekkingu

annars staðar.

Viðskiptasmiðjan er ákveðinn

gæðastimpill og öryggisventill

á íslensk sprotafyrirtæki.

Styrktaraðilar og fjárfestar

geta verið miklu öruggari um

gæði og áræðni frumkvöðla

og þeirra sprotafyrirtækja

sem eru í Viðskiptasmiðjunni

vegna þess að það er svo mikill

fjöldi sérfræðinga sem er að

hjálpa frumkvöðlum að byggja

upp fyrirtæki sín. Fulltrúar

styrktaraðila og fjárfesta eru

einnig annað hvort dómarar

í prófkynningum eða kennarar

og ráðgjafar. Innlendir

sjóðir hafa fjárfest í fyrirtækjum

eins og Trackwell, AGR

og Gogoyoko sem eru í Viðskiptasmiðjunni

og átta fyrirtæki

úr Viðskiptasmiðjunni

hlutu styrki frá Tækniþróunarsjóði,

þar á meðal Fafu, Remake

Electronics og Vitver.

Jafnframt eru erlendir fjárfestar

að skoða fyrirtækin og

nokkur fyrirtæki eru að sækja

um erlenda styrki í samstarfi

við Klak og Háskóla Reykjavíkur.

Nemendahópurinn

þrískiptur

„Að jafnaði hafa um 30 fyrirtæki,

eða fulltrúar þeirra, notið

leiðsagnar Viðskiptasmiðjunnar

á hverri önn. Hópurinn skiptist

í þrennt, nýliða, fólk frá fyrirtækjum

sem þegar hafa tekið

til starfa en þurfa aðstoð við að

komast á verulegt flug og loks

er þriðji hópurinn, þeir sem eru

lengra komnir en vilja skoða nýjar

leiðir í rekstrinum og ná enn

lengra en þeir hafa þegar gert.“

Þar sem nemendur Viðskiptasmiðjunnar

koma jafn víða að og

raun ber vitni og eru á ýmsum

aldri og með ólíka reynslu skapast

mikil dýnamik innan hópsins.

Þar fyrir utan hafa jafnvel

komist á ný viðskiptasambönd

milli þeirra ólíku fyrirtækja sem

eiga þarna fulltrúa, sambönd

sem ekki voru fyrir hendi áður

en menn hittust í Viðskiptasmiðjunni.

Við þetta má bæta

að þegar komið hefur að því

að menn hafa viljað sækja um

styrki úr fjárfestingarsjóðum

hefur reynsla þeirra sem þegar

hafa hlotið styrki nýst þeim sem

eru að sækja um í fyrsta sinn og

hafa þeir jafnvel reynst bestu

leiðbeinendurnir hvað umsóknarferlið

varðar.

Næsta önn Viðskiptasmiðjunnar

hefst 14. september

næstkomandi en frumkvöðlar

geta sótt um þátttöku í Viðskiptasmiðjunni

þrisvar á ári, á

haustönn, vorönn og sumarönn.

Frumkvöðlar ráða hversu lengi

þeir taka þátt en ferlið er í heild

sinni þrjár annir eða eitt ár.

www.klak.is

Betra nám

Mannréttindamál að læra að lesa

Fyrirtækið Betra nám hefur

starfað síðan árið 2003

þegar innleiðing á svokölluð

Davis aðferðafræði hófst, en

hún hjálpar einstaklingum

að glíma við lesblindu. Síðan

þá hefur starfsemin þróast og

einskorðast nú ekki eingöngu

við námskeið tengd lesblindu,

heldur er einnig í boði námskeið

í hraðlestri, minnistækni,

hugarkortum (glósutækni) og

stærðfræði. Ein nýjungin er

vefnámskeið í grunnatriðum

stærðfræðinnar.

Kolbeinn Sigurjónsson, ráðgjafi

hjá Betra námi segir að staðreyndin

sé sú að fjöldi nemenda sé ekki

að ná ásættanlegum árangri og

Davis aðferðafræðin hafi vakið

athygli víða um heim fyrir góðan

árangur í glímunni við lesblindu,

en Kolbeinn er faglærður Davis

lesbilnduráðgjafi og með B.sc. í

Hefur þú sett þér

markmið

fyrir haustið?

Við bjóðum m.a. upp á:

Tölvunarfræði. Davis lesblindunámskeið

er vikulangt einstaklingsnámskeið

en þar er farið kerfisbundið

í rót lestrarvandans.

Upprifjunarlestur óþarfur

Betra nám býður einnig upp

á námskeið í minnistækni sem

byggir á aldagömlum aðferðum

sem gera utanbókarlærdóm

mun auðveldari. „Að muna mikið

magn nafna, atburða og ártala er

· Raunfærnimat í húsasmíði og vélvirkjun

· Skrifstofuskóla

· Grunnmenntaskóla

· Fagnámskeið fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu

· Tómstundanámskeið

· Áhugasviðspróf

· Greiningar á lestrarerfiðleikum

· Náms- og starfsráðgjöf

· …..og margt fleira

Varlega áætlað

má reikna með

að 15% þjóðarinnar

glími

við einhverja

lestrarörðugleika,

eða

30-45.000

einstaklingar, og

eru fjölmargir

þeirra hornreka

í skólakerfinu.

auðvelt. Hugarkort eru svo glósutækni

sem auðvelt er að nota því

lítið þarf að skrifa og nánast ekkert

að lesa. Gott hugarkort getur

gert upprifjunarlestur óþarfan

og því sparað mikinn tíma,“ segir

Kolbeinn.

Vefnámskeiðið „Reiknum hraðar“

er nýtt af nálinni hjá Betra

námi, en það þjálfar nemandann

í grunnatriðum stærðfræðinnar,

Getum við

aðstoðað þig?

samlagningu, margföldun, frádrætti

og deilingu. „Námskeiðið

er mjög myndrænt og einfalt

og árangur er nánast tryggur sé

námskeiðinu fylgt. Ég mæli hiklaust

með þessu námskeiði fyrir

þá glíma við erfiðleika á þessu

stigi, því öll stærðfræði byggir á

þessum grunni,“ segir Kolbeinn.

Fjölmargir hornreka í

skólakerfinu

Kolbeinn segir að flestir viðskiptavina

sinna séu nemendur

sem glíma við námsörðugleika og

fái því miður ekki úrlausn sinna

mála í skólakerfinu. „Fjölmargir

leita til mín með börn sem varla

geta lesið eftir nokkurra ára nám

í grunnskóla og mörg dæmi um

krakka sem varla kunna stafina í

4. bekk.

Ég tel það mannréttindamál

að læra að lesa, en varlega

áætlað má reikna með að 15%

þjóðarinnar glími við einhverja

lestrarörðugleika, eða 30-45.000

einstaklingar, og eru fjölmargir

þeirra hornreka í skólakerfinu.

Ég hef hitt allt of marga sem eiga

martraðarkennda skólagöngu að

baki.

Þessu þarf að breyta því þarna

fer gríðarlegur mannauður í súginn.

Staðreyndin er nefnilega sú,

og foreldrar þessara barna taka

líklega undir það, að oftast er um

að ræða bráðgreinda og fjöruga

einstaklinga með öflugt ímyndunarafl.

Þeir blómstra þegar um

er að ræða verklega, sjónræna

og skapandi vinnu, s.s. að smíða,

teikna, baka o.s.frv. Erfiðleikarnir

beinast að táknum fyrst og

fremst. Það er glerþak til staðar

í skólakerfinu sem stöðvar þessa

nemendur. Við hljótum að geta

gert betur,“ segir Kolbeinn.

Hringdu í okkur í síma 437-2390 til að fá

nánari upplýsingar eða sendu okkur tölvupóst

á simenntun@simenntun.is

Kíktu líka á vefinn okkar www.simenntun.is
24 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 25

-Söngstúdíó Igveldar Ýrr Jónsdóttur

Söngnámið mikill gleðigjafi

Söngstúdíó Igveldar Ýrr Jónsdóttur,

hefur verið rekið síðan

árið 2002 og segir hún námið

njóta mikilla vinsælda, jafnt hjá

þeim sem hyggjast leggja sönginn

fyrir sig og hinum sem vilja

bara gleðja sig og sína.

Söngstúdíó Ingveldar býður upp

á byrjendanámskeið, byrjendasönghóp

með aukakennslu í tónfræði

og nótnalestri, einkatíma sem

Ignveldur segir að stundum leiði til

þess að fólk fari í stigspróf og tónfræðinámskeið.

„Svo er ég alltaf

með sönghópinn minn Spectrum

í gangi, sem er bara fyrir vana, en

hópurinn kemur oft fram með mér.

Þá er ég líka með sönghópinn Blikandi

Stjörnur á mínum snærum, en

það er hópur skipaður fötluðum. Er

einnig í samstarfi við HR þar sem ég

kenni fólki raddbeitingu í tali,“ segir

Ingveldur, en hún hefur gefið út

geisladiska í raddbeitingu fyrir söng

og talrödd.

Í söngstúdíói Ingveldar er einnig

hægt að vinna í sérhönnuðum hópanámskeiðum.

„Ég hef sett þetta

hópafyrirkomulag upp til þess

að vinkonur/vinir, hjón, systkini,

vinnufélagar og fleiri geti tekið sig

saman og komið í tíma. Það hefur

margoft gerst að fólk vill vera með

svona “sér” námskeið, æfir röddina

og nokkur lög. Sumir hafa flutt þau

í fjölskylduboðum eða á árshátíðum.

Oft er þetta líka ágætis hópefli,“

segir Ingveldur.

Söngurinn beinir athyglinni

inn á við

Hún segir að meiri hluti fólks sem

komi til hennar séu ekki endilega að

sækjast eftir því að taka stigspróf í

söng, alla vega ekki til að byrja með.

„Fólk tekst oft á við margt í sjálfu

sér þegar það byrjar að læra söng;

sjálfsgagnrýni, spéhræðslu, feimni,

minnimáttarkennd, ótta við eigin

rödd og fleira. Ég reyni að leiðbeina

fólki þannig að það læri uppbyggilega

meðvitund um hljóðfæri sitt,

upplifi gleðina við að syngja, en nái

um leið tökum á röddinni þannig að

það verði sátt. Söngur er gleðjandi

eins og allir vita og margir koma

einfaldlega til þess, en ég kenni fólki

svo að bæta röddina í leiðinni. Fólk

fer iðulega glaðara frá mér en það

kemur inn og þá er ég ánægð.

Fólk sækist í auknum mæli eftir

einhverju sem beinir athygli inná

við, og söngur er tilvalinn til þess.

Einungis brot af þeim sem koma til

mín ætla sér eitthvað með sönginn.

Hinir koma til að kynnast röddinni,

læra tækni, geta sungið skammarlaust

innan um aðra. Margir hafa

lært á gítar og langar að geta sungið

betur með,“ segir Ingveldur.

Breiður hópur fólks leitar til Ingveldar

úr öllum þjóðfélagsstigum,

fólk á öllum aldri, atvinnumenn

og áhugamenn. „Hingað koma

starfandi söngvarar, popparar og

Ingveldur segir njóta þess til jafns að

kenna atvinnupoppurum “söngleyndarmál”

og að leiða manneskju í gegnum

fyrstu tónana. Ljósm. Ingó.

leikarar, stjórnmálamenn og þekktir

fyrirlesarar sem þurfa að nota

röddina mikið starfsins vegna eða

eru undir raddlegu álagi. Í þessu

starfi verður maður að vera svolítill

mannþekkjari, það þarf að vita hvað

hver þarf, því ekki gengur að vinna

eins með öllum og þarfir fólks eru

afar misjafnar. Ég stend mig oft að

því að laga mig að fólkinu, enda

lít ég svo á að ég sé í þjónustu við

nemandann, þó ég sé frekar kröfuharður

kennari. Það er einfaldlega

ekki hægt að neyða sömu aðferðina

á alla. enda eru ekki allir að sækjast

eftir því sama með því að koma

í raddþjálfun. Það hefur kennt mér

mikið að vinna með fötluðum.

Maður þarf að vera ansi uppfinningasamur

til að ná til misfatlaðra

einstaklinga,“ segir Ingveldur.

Gleymir sér í kennslunni

Ingveldur lauk BA gráðu frá

söngleikjadeild Tónlistarskóla Vínarborgar

þar sem hún lærði einnig

leiklist og dans. Árið 1991 lauk hún

síðan mastersgráðu frá Manhattan

School of Music í New York.

Hún hefur starfað meðal annars í

óperuhúsinu í Lyon í Frakklandi

og íslensku óperunni, ásamt ótalmörgum

verkefnum í gegn um

tíðina. „Mér finnst allt í sambandi

við sönginn skemmtilegt og gefandi,

þótt ekki sé allt dans á rósum í

faginu og oft mikið álag. Það krefst

mikils aga að vera söngkennari og

söngvari á sama tíma. Það hentar

mér vel að vinna svona upp á mínar

eigin spýtur, ég er þannig að ég

þarf að hafa fjölbreytileika í starfinu

og það fæ ég svo sannarlega

með því starfi sem ég er að vinna í

stúdíóinu mínu. Í raun er fyrir mér

jafnskemmtilegt að kenna eitt stórt

námskeið eins og taka þátt í stórri

óperuuppfærslu. Mér finnst jafngaman

að kenna atvinnupoppara

nokkur “söngleyndarmál” eins og

að leiða manneskju í gegnum fyrstu

tónana og sjá upplifunina við það.

En það getur verið auðvelt að týna

sér í kennslunni einni saman og

gleyma að halda sjálfri sér við, en ég

stend nú í útgáfu á diski með sjálfri

mér,“ segir Ingveldur.

Símenntunarmiðstöðin á

Vesturlandi fagnar sínu tíu

ára starfsafmæli á þessu ári

og segir Inga Dóra Halldórsdóttir,

framkvæmdarstjóri

SV, að á þeim tíma hafi oft

verið þörf á starfsemi SV, en

nú sé það nauðsyn að hennar

mati.

SV er þessa dagana að leggja

lokahönd á námsvísi haustannar,

en það er stefnt á að hann

komi inn um bréfalúgurnar

föstudaginn 4. september. Inga

Dóra segir þar vera að finna

yfirlit yfir flest námskeiðin, en

undantekningalaust þurfi einnig

að bregðast við eftirspurn og

sníða námskeið eftir þörfum

hverju sinni og oftar en ekki

með stuttum fyrirvara.

Fyrstu námskeiðin hefjast

síðan um miðjan september, en

ýmiss konar námskeið verða í

boði jafnt og þétt alla önnina.

Námskeiðin eru birt jafnóðum

á vef Símenntunar þannig að

það er um að gera að fylgjast

með á www.simenntun.is

Úr starfi Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi

Virk upplýsingaveita þeirra

sem vilja ganga menntaveginn

Fjölbreytt nám

Inga Dóra segir markmið SV

einkum vera að bjóða upp á fjölbreytt

nám, bæði styttri og lengri

námsleiðir, við hæfi sem flestra á

svæðinu og færa fólki námstækifærin

heim í hérað. „Það er stór

hópur fólks á vinnumarkaði og

atvinnuleitendur þar með taldir

sem hafa stutta formlega skólagöngu

að baki en langar í nám og

þessir einstaklingar eru m.a. hluti

af okkar markhópi.

Við erum með samning við

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

sem felur m.a. í sér að sinna þessum

hópi sérstaklega og þá með

námsframboði við þeirra hæfi og

náms- og starfsráðgjöf.

Við leggjum líka mikið upp úr

að byggja upp gott tengslanet á

svæðinu og vera í góðri samvinnu

við menntastofnanir, stéttarfélög,

sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki.

Eitt af markmiðum okkar felst

einnig í því að vera virk upplýsingaveita

um námsmöguleika

fullorðinna og greiða leið þeirra

sem hyggjast ganga menntaveginn,“

segir Inga Dóra.

Ótrygg staða ófaglærðra

„Það sem kemur nýtt inn hjá

okkur í haust er svokallað raunfærnimat

sem við bjóðum upp á í

samstarfi við Fjölbrautaskóla Vesturlands,

Iðuna-fræðslusetur og

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Við

munum bjóða upp á raunfærnimat

í húsasmíði og vélvirkjun, en raunfærnimat

er leið til að meta þá

færni sem einstaklingar hafa aflað

sér í námi og starfi. Markhópurinn

er einstaklingar, sem ekki

luku iðnnámi en eru starfandi í

starfsgreinum tengdu náminu sem

þeir hófu. Staða þessara einstaklinga

á vinnumarkaði er ótrygg, og

því mikilvægt að finna úrræði sem

gerir þeim kleift að ljúka námi og

öðlast réttindi í faginu.

Við bjóðum einnig upp á námsleiðir

eins og Skrifstofuskóla,

Grunnmenntaskóla og Fagnámskeið

fyrir heilbrigðis- og félagsþjónustu

en þetta er fjármagnað

með samningi við Fræðslumiðstöð

atvinnulífsins. Einnig bjóðum við

upp á tungumálanámskeið, matreiðslu,

handverk, lífsstílsnámskeið

og tölvunámskeið í staðnámi

og í fjarnámi í samstarfi við

Það er stór

hópur fólks á

vinnumarkaði

og atvinnuleitendur

þar

með taldir sem

hafa stutta

formlega

skólagöngu að

baki

Háskólann á Bifröst. Við munum

líka bjóða upp á námskeið í Njálu í

samstarfi við Snorrastofu og Landnámssetur,

en þá hittist fólk einu

sinni í mánuði með sérfræðingum

í viðkomandi Íslendingasögu

og undantekningalaust skapast

miklar umræður um viðfangsefnið

hverju sinni. Auk allra námskeiðanna

bjóðum við upp á ókeypis

náms- og starfsráðgjöf fyrir alla,

áhugasviðspróf á vægu verði og

greiningar á lestrarerfiðleikum svo

fátt eitt sé nefnt,“ segir Inga Dóra.

Eitt af hlutverkum er að þjónusta

háskólana og fjarnema, en

fjarnemar geta tekið próf hjá SV.

„Nemendum hefur fjölgað undanfarið

sem nýta sér þessa þjónustu,

en þetta er enn einn liðurinn

að þjónusta íbúana á svæðinu,“

segir Inga Dóra.

-Símey, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar,

Nær hundrað námskeið í boði

Starfsmenn

SÍMEY geta

skipulagt

námskeið fyrir

starfsmenn

fyrirtækja í heild

eða leitt saman í

hóp einstaklinga

frá fyrirtækjum

sem þurfa

svipaða þjálfun

eða fræðslu.

Símey, sem er Símenntunarmiðstöð

Eyjafjarðar, mun

á komandi önn bjóða upp á

nærri hundrað námskeið og

námsleiðir í samstarfi við

fjölda aðila. Hjá SÍMEY má

fimma allrahanda námskeið,

starfstengd námskeið, námskeið

til að efla persónuhæfni,

tómstundanámskeið,

tungumálanámskeið, tölvunámskeið

og námsleiðir

sem meta má til eininga á

framhaldsskólastigi.

Erla Björg Guðmundsdóttir,

framkvæmdastjóri SÍMEY, segir

SÍMEY vera vettvang símenntunar

á öllu Eyjafjarðarsvæðinu

og hafi samstarf við sveitarfélögin.

„SÍMEY hefur umsjón

með símenntun starfsmanna í

fjölda fyrirtækja í Eyjafirði. Þar

fyrirfinnst mikil reynsla af því

að klæðskerasníða námskeið eftir

þörfum einstakra fyrirtækja

eða hópa starfsmanna auk þess

sem miðstöðin býður fyrirtækjum

upp á þarfagreiningar með

tilliti til sí- og endurmenntunar.

Starfsmenn SÍMEY geta skipulagt

námskeið fyrir starfsmenn

fyrirtækja í heild eða leitt saman

í hóp einstaklinga frá fyrirtækjum

sem þurfa svipaða

þjálfun eða fræðslu. Þetta er

gert á forsendum fyrirtækjanna,

hvort sem er í tíma eða rúmi og

innan þess fjárhagsramma sem

fyrirtækin vinna eftir.

Náms- og starfsráðgjafar á vegum

SÍMEY fara mikið út í fyrirtækin á

svæðinu með sína ráðgjöf en þá geta

starfsmenn pantað viðtal hjá námsog

starfsráðgjafanum, sem hefur verið

vel nýtt og gefið afar góða raun, oft

sem fyrsta skrefið í þá átt að bæta við

sig þekkingu og frekara námi, segir

Erla Björg.

Hún segir SÍMEY vera símenntunarmiðstöð

fyrir fullorðið fólk, sem

þjónusti jafnt einstaklinga, fyrirtæki

og fræðara. „Við kappkostum að

bjóða einstaklingum upp á fjölbreytt

náms- og þjálfunartilboð, höfum umsjón

með fræðslustarfsemi fjölda fyrirtækja

og erum í frábæru samstarfi

við fjölda fræðara jafnt á Eyjafjarðarsvæðinu

sem utan þess. Við erum

t.d. að hefja samstarf við Fjölmennt,

sem er símenntunarmiðstöð fyrir fullorðið,

fatlað fólk,“ segir Erla Björg.

Lágmarksþátttöku

löngu náð

Erla Björg segir stöðuna á vinnumarkaði

í Eyjafirði í raun vera bjartari

nú fyrir haustið en reiknað var með.

Uppsagnir sem til stóð að kæmu nú

til framkvæmda hafa frestast og vonir

standa til að jafnvel komi ekki til þeirra.

En auðvitað hafa Eyfirðingar fundið heilmikið

fyrir þeim erfiðleikum sem þjóðfélagið

allt hefur staðið frammi fyrir. Fólk

er mikið að velta fyrir sér hvernig það

geti notað þennan tíma til að efla sig enn

frekar. Þeir sem eru í starfi vilja bæta

við sig með því að taka starfstengd námskeið

og mjög margir aðrir hugsa sér að

nota þennan tíma til að koma sér aftur

af stað í nám, sem þeir hafa hugsanlega

ekki klárað á sínum tíma. Þetta sjáum

við hvað best á skráningum í námsleiðir

sem verða í boði á önninni og meta

má til eininga á framhaldsskólastigi.

Lágmarksþátttöku í þær allar vorum

við búin að ná áður en farið var af stað

í kynningar af nokkru tagi, segir Erla

Björg.
26 • Menntun, námskeið og nýsköpun

Nám Alþjóðahússins aðstoðar einstaklinga við aðlögun einstaklinga inn í samfélagið.

Kennslustundin

nýtist strax í starfi

Alþjóðahúsið hefur boðið upp

á starfstengda íslenskukennslu

síðan árið 2005, og segir Ingibjörg

Hafstað, kennslustjóri

íslenskukennslu, að slíkt nám

sé gríðarlega mikilvægt fyrir

íslenskt atvinnulíf og samfélag.

Hugmyndafræði starfstengda

íslenskunámsins er að nemendur

geti notað það sem lært er í hverjum

tíma strax á þeim vettvangi

sem það starfar. „Við kennum

á vinnustöðunum og reynum

að vinna með þann orðaforða og

tungutak sem fólkið þarf nauðsynlega

á að halda. Hefðbundin

tungumálakennsla er yfirleitt

frekar almenn, en við reynum að

finna það sem fólk þarf og getur

notað í starfi sínu. Þetta hefur

verið sérstaklega áhugaverð nálgun

fyrir vinnustaði eins og leikskóla

og umönnunarheimili þar

sem mannleg samskipti skipta

höfuðmáli.

Svo eru minni félagsleg tengsl

milli starfsfólks til dæmis í byggingariðnaði

og fiskvinnslu. Þar

höfum við verið að einbeita okkur

að réttindum og skyldum á íslenskum

vinnumarkaði og kynningu

á íslensku samfélagi. Við

reynum að nýta íslenskukennsluna

til að gefa nauðsynlegar upplýsingar

um nýja samfélagið. Í því

starfi höfum við til dæmis rekist á

Stofnaður 1952

Skólaárið 2009 – 2010

Velkomin

Allir strákar og stelpur fædd 2000 eru velkomin í prufutíma

fram til 19. september 2009

Staður: Engjateigur 1/ 105 Reykjavík

fólk sem hefur talið sig vera skráð

inn í kerfið en verið í raun utan

þess, á utangarðsskrá af því það

býr ekki í húsnæði sem er viðurkennt

sem lögheimili, til dæmis

gistiheimili,“ segir Ingibjörg. Það

er ekki einfalt mál að fá nauðsynlegar

upplýsingar þegar maður

veit ekki hvers þarf að spyrja.

Við reynum einnig að kynna

menningarviðburði og annað

sem í boði er. Öllum nemendum

okkar er meðal annars boðið upp

á kynningarferð í Borgarbókasafnið.

Til viðbótar við starfstengda

námið hefur Alþjóðahúsið aðstoðað

þá hópa sem ekki hafa

fengið þjónustu annars staðar.

„Við höfum verið með kennslu

fyrir ólæst fullorðið fólk, sjálfsstyrkingu

fyrir konur sem hafa

félagslega veika stöðu, hópa fyrir

unglinga sem ekki passa inn

í íslenskt skólakerfi og svo höfum

við verið með sérstaka hópa

í framburði fyrir asíubúa. Þeim

reynist mörgum verulega erfitt að

ná utan um íslenska hljóðkerfið,“

segir Ingibjörg. Hún segir nám

af þessum toga vera afar þýðingarmikið

fyrir aðlögun einstaklinga

inn í samfélagið, til dæmis hafi

margir innflytjendur af asískum

uppruna hreinlega gefist upp á íslenskunámi

vegna erfiðleika með

framburð. „Fólk var kannski búið

Kennarar Listdansskólans

skólaárið 2009 – 2010

Tímar eru:

Þriðjudaga kl. 16.30

Fimmtudaga kl. 17.00

Laugardaga kl. 11.30

Ljósmyndari Hallgrímur Arnarson

www.listdans.is

að stunda nám af mikilli iðjusemi

og dugnaði en gat samt ekki gert

sig skiljanlegt við heimamenn og

veldur það auðvitað ákveðinni

einangrun,“ segir Ingibjörg.

Fjölmenningarleg fræðslumiðstöð

InterCultural Ísland er fjölmenningarleg

fræðslumiðstöð

og túlka- og þýðingaþjónusta.

Fyrirtækið hefur starfað í rúmlega

sex ár, var upphaflega

stofnað af fimm konum, sem

allar höfðu menntun eða reynslu

á sviði fjölmenningarlegrar

kennslu og fordómafræðslu og

þótti vanta framboð á faglegum

námskeiðum á þessu sviði. ICI

er algjörlega sjálfstætt og óháð

enda ekki rekið í hagnaðarskyni

og nýtur engra styrkja, hvorki

opinberra né frá fyrirtækjum.

Fastir starfsmenn eru þrír á

Íslandi og einn í hlutastarfi í

Þýskalandi auk fjölda verktaka.

Helstu verkefni ICI eru þríþætt:

Fyrst ber að nefna túlka- og þýðingaþjónustu,

en ICI hefur á sínum

vegum 120 túlka og þýðendur og

getur veitt þjónustu á 65 tungumálum.

ICI leggur mikla áherslu á góða

þjálfun og endurmenntun þeirra

túlka sem fyrir það starfa og því eru

haldin regluleg endurmenntunarnámskeið

og fræðslufundir fyrir þá

sem þegar hafa lokið byrjendanámskeiðum.

Allir túlkar sem starfa fyrir

ICI þurfa að ljúka þremur stigum

byrjendanámskeiða sem ICI býður

upp á áður en þeir hefja störf. ICI er

aðili að rammasamningi Ríkiskaupa

um túlkaþjónustu og sinnir því fjölmörgum

verkefnum fyrir ríki og

sveitarfélög.

Fræðsla og námskeiðshald er

annar aðal áhersluþáttur fyrirtækisins.

ICI hefur frá upphafi boðið

upp á margvísleg námskeið er snúa

að fjölmenningu, fordómum og fjölmenningarlegri

kennslu. Námskeiðin

eru ætluð ólíkum hópum fólks og

eru sniðin að þörfum þátttakenda

og markmiðum. Endurmenntunarnámskeið

fyrir kennara eru þau

námskeið sem mest hefur verið

sóst eftir undanfarin ár en þau eru

35 klst. námskeið sem dreifast yfir

skólaárið. Guðrún Pétursdóttir,

framkvæmdastjóri ICE segir námskeiðin

alltaf vera mjög „praktísk“

og kennarar reyni aðferðirnar sem

Atvinnutengd starfsþjálfun

hjá EKRON

EKRON á Grensásvegi 16.a er

sértæk einstaklingsmiðuð atvinnutengd

starfsþjálfun og

endurhæfing fyrir einstaklinga

með skerta vinnufærni sökum

afleiðinga af áfengis- og vímuefnasýki.

Starfsþjálfunin og

endurhæfingin er þátttakendum

að kostnaðarlausu. Í upphafi

þátttöku er lögð áhersla á að aðstoða

þátttakendur við að vinna

úr lögreglu- og dómsmálum,

koma reglu á og fá yfirsýn yfir

skuldastöðu og efla tengsl við

fjölskyldu. Unnið er með sjálfsstyrkingu,

fortíð, bakfallsvarnir

og önnur persónuleg vandamál

í reglulegum einkaviðtölum hjá

ráðgjafa. Á námskeiðum er unnið

með gerð ferilskrár, vinnumöppu,

sjálfsstyrkingu, fjármál,

samskiptafærni, heimilisfræði,

tréútskurð o.fl.

Herdís Hjörleifsdóttir félagsráðgjafi

segir flesta þeirra skjólstæðinga

vera ungt fólk, en þó megi

finna fólk allt frá 18 ára til 55 ára.

Margir þeirra skjólstæðinga hafa

aldrei verið á vinnumarkaðnum

og því sé aðstoð Ekron við þá eftir

áfengis- eða fíknaefnameðferð

þeim gríðarlega mikils virði. Hlutfall

vímuefnafíkla hefur verið að

aukast, en um 70 manns geta verið

í starfsþjálfun hjá Ekron á hverjum

tíma. Flestir þeirra sem sækja

starfsþjálfun hjá Ekron hafa aðeins

lokið grunnskólanámi og mjög

margir eru þjáðir af þunglyndi eða

ICI býður upp á margvísleg námskeið er snúa að fjölmenningu, fordómum og fjölmenningarlegri

kennslu.

kynntar eru með nemendum sínum

á milli námskeiðsdaga. „Við heyrum

oft þann misskilning að fjölmenningarleg

kennsla snúist fyrst og

fremst um kennslu innflytjenda en

í raun er megin markmið hennar að

undirbúa alla nemendur undir líf í

fjölbreyttu samfélagi og að tryggja

jafnan aðgang allra að lærdómsferlinu.

Þannig eru aðferðirnar til þess

fallnar að koma ákv. námsefni til

skila til nemenda en á þann hátt að

nemendur með hæfni á ólíkum sviðum

geti tileinkað sér efnið og um

leið örva samvinnu- og samskiptahæfni

nemenda, nýta fjölbreytileika

hópsins þannig að nemendur þjálfi

t.d. frumkvæði, skapandi- og gagnrýna

hugsun, sveigjanleika, málamiðlanir

og sjálfstæð vinnubrögð.

Með fjölbreyttum kennsluaðferðum

og áherslum læra nemendur

og kennarar að meta fjölbreytileikann

í stað þess að líta á hann sem

vandamál eða hindrun. Kennarar

vinna því óbeint gegn fordómum

og útilokun í gegnum aðferðirnar

sem þeir nota en ekki með sérstakri

fræðslu eða predikunum um efnið,“

segir Guðrún.

Þriðji þáttur í starfi ICI snýr að

evrópsku samstarfi. ICI hefur frá

upphafi tekið þátt í evrópskum

samstarfsverkefnum Menntaáætlunar

Evrópusambandsins. Nýlega

ofvirkni. Bæjarfélögin Kópavogur

og Hafnarfjörður styrkja Ekron um

sem svarar 8 plássum og í gangi eru

samningaumleitandir við ríkisvaldið

um styrk til starfseminnar.

Frá því að Ekron hóf starfsemi í

júlí 2007 hafa um 20 einstaklingar

útskrifast í vinnu, sex í nám, níu

þátttakendum verið vísað í önnur

úrræði, 22 féllu, sex hættu án

ástæðu og einn fór í afplánun. 31%

héldu áfram í endurhæfingu, 24%

féllu, 21% útskrifuðust í vinnu, 10%

var vísað í önnur úrræði, 6% útskrifuðust

í nám og 6% hættu án ástæðu

en aðrar ástæður vógu minna.

Starfsfólk Ekron leggur mikla

áherslu á að vera í góðu samstarfi

við meðferðarstofnanir, sjúkrahús,

heilsugæslu, lögreglu, Fangelsismálastofnun,

félagsþjónustu og

Tryggingastofnun ríkisins. Einnig

við fjölskyldur þátttakenda eftir

þörfum hvers og eins.

Með endurhæfingu eins og Ekron

má fækka afbrotum, ofbeldisglæpum,

innlögnum á sjúkrahús,

lækniskostnaði, fangelsisvistun,

barnaverndarmálum o.fl. Út í þjóðfélagið

koma einstaklingar sem lifa

heilbrigðu lífi, hugsa um börnin sín

og greiða sína skatta og skyldur. Árangur

Ekron hefur verið mjög góður

miðað við rannsóknir sem gerðar

hafa verið á bata vímuefnaneytenda

en það er markmið Ekron að sporna

við þeirri þróun sem á sér stað hjá

einstaklingum sem ekki hafa náð

bata eftir vímuefnameðferðir.

lauk tveggja ára samstarfsverkefni

með þýskum, ítölskum og spænskum

stofnunum en það verkefni

snerist um tengslin milli fjölmenningarlegrar

hæfni og frumkvöðlahugsunar

og hvernig örva megi

þessa þætti hjá nemendum í fullorðinsfræðslu.

„Þau evrópsku samstarfsverkefni

sem ICI tekur þátt í

um þessar mundir eru tvö. Annars

vegar verkefni á vegum Leonardo

áætlunarinnar en það snýst um að

safna og vinna að aðferðum innan

verknámsskóla sem vinna gegn

brottfalli nemenda úr verknámi og

er ICI í samvinnu við Fjölbrautaskóla

Suðurnesja í þessu verkefni

auk stofnana og skóla frá Skotlandi,

Frakklandi, Tyrklandi, Belgíu

og Finnlandi. Hitt verkefnið sem

við tökum þátt í núna er á vegum

Grundtvig áætlunarinnar og snýst

um óhefðbundnar kennsluaðferðir í

fullorðinsfræðslu og eru samstarfslöndin

Þýskaland, Austurríki, Bretland

og Ítalía,“ segir Guðrún.

Auk þessa hefur ICI boðið upp

á endurmenntunarnámskeið fyrir

evrópska kennara síðan 2004

en þá koma kennarar allra skólastiga

til Íslands á vikunámskeið þar

sem þeir læra um fordóma og fordómafræðslu

og fjölmenningarlega

kennslu.

Ómengaðar

íslenskar vörur!

Notaðu aðeins það besta í andlitsvörum.

Purity Herbs framleiðir 100% náttúruvörur sem fá

húð þína til að skríkja af ánægju og skína af gleði.

VELJUM

ÍSLENSKT!

Purity Herbs andlitsvörur

eru án allra aukaefna, svo

sem ilm-, paraben- og

erfðabreyttra hráefna.

Purity Herbs notar aðeins

umhverfisvæn hráefni

sem gefa hámarks virkni.

Purity Herbs vörurnar eru

ekki prófaðar á dýrum.

Furuvöllum 5, 600 Akureyri, sími 462 3028

www.purityherbs.is

Þú færð vörurnar frá Purity Herbs í Blómaval, Heilsuhúsunum, apótekum og sölustöðum um land allt.
28 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 29

-Tónskóli Hörpunnar

Tungumál,

tækni og tónlist

Tónskóli Hörpunnar fagnaði

nýverið tíu ára starfsafmæli

sínu með nemendatónleikum í

vor, í haust verða svo sérstakir

kennaratónleikar af sama tilefni.

Tónskóli Hörpunnar er almennur

tónlistarskóli og sinnir

fólki á öllum aldri, kennir á flest

algengustu hljóðfæri og er einnig

með forskólakennslu á blokkflautu.

Kjartan Eggertsson, skólastjóri

Tónskóla Hörpunnar, segir

að áhersla sé lögð á hefðbundið

tónlistarnám þar sem hin svokölluðu

þrjú T séu leiðarvísir í starfi

skólans, en téin þrjú eru tungumál,

tækni og tónlist. „Með T3 vill

skólinn leggja áherslu á að nemendur

átti sig á því í hverju hljóðfæranám

sé fólgið. Nótnalestur er

eins og tungumál, sem hægt er að

lesa, skrifa og tala, tæknin er aðferðin

sem notuð er við að spila á

hvert og eitt hljóðfæri og tónlistin

er sú, sem nemandinn hefur áhuga

á að glíma við, sú sem kennarinn

villa að hann kynnist og sú sem er

viðfangsefni í kennslubókunum,“

segir Kjartan.

Hann segir markmið skólans

vera að nemendur öðlist þá

reynslu að þeir líti á hljóðfæraleik

sem sjálfsagðan hlut, í einrúmi,

með öðrum og í áheyrn annarra,

til ánægju og yndisauka. „Mestu

verðmæti tónlistarnáms felast

í þeirri reynslu að spila á hljóðfæri,

til dæmis undir því áreiti að

foreldrar og aðrir nemendur eru

áheyrendur, en þá eru flest skynfæri

virk; sjón, heyrn, jafnvægisskyn,

grófhreyfingar, fínhreyfingar,

snertiskyn og svo framvegis

og einbeitingin mikil og hvert

sekúndubrot skiptir máli. Sköpunarþörfin

fær góða útrás í hljóðfæraleik,“

segir Kjartan.

Draumar um partýspil

Hann segir að auk hefðbundinnar

klassískar tónlistarkennslu

læri nemendur að leika án nótna

og semja sína eigin tónlist. „Til

dæmis þurfa gítarnemendur að

læra klassískan nótnalestur, en

einnig gítargrip og hljóma og blús

og rokk tónstiga svo þeir verði

hæfari að leika af fingrum fram

og spinna,“ segir Kjartan

Tónskóli Hörpunnar býður

einnig upp á kvöldnámskeið fyrir

fullorðna í gítarleik í hóptímum

sem Kjartan segir að hafi verið

vel sóttir og hafi í sumum tilfellum

leitt til frekara náms. „Hversu

marga dreymir ekki um að kunna

gítargrip til að geta spilað í partýum

eða með skólasöngvum

barnanna sinna,“ segir Kjartan.

-Þekkingarsetur Þingeyinga

Sálrænt og félagslegt gildi

Kjartan segir tónlistariðkun

vera þroskavænlega athöfn, auk

þess að hafa mikið sálrænt og

félagslegt gildi og einmitt þess

vegna hafi tónlistarnám átt stóran

sess í samfélaginu. „Sá sem hefur

á einhverju árabili á grunnskólaaldri

stundað tónlistarnám nýtur

þess um alla framtíð, því hann á

þá auðveldara með að vera virkur

þátttakandi í hljóðfæraleik og

söng og er hæfari til að njóta hvers

konar tónlistar,“ segir Kjartan.

Í skólanum eru 250 nemendur,

en Reykjavíkurborg greiðir með

68 nemendum. „Skólinn hefur

í mörg ár vænst þess að allir

nemendur í sambærilegu tónlistarnámi

fengju sömu niðurgreiðslu

á námskostnaði frá borginni, en

borgarfulltrúar hafa ekki lagt

fram tillögur um breytingar á

úthlutun til tónlistarnema og

tónlistarskólanna til að jafna aðstöðumun,

þrátt fyrir yfirlýsingar

um jafnrétti til náms handa öllum

börnum og heiðarlega samkeppni

í skólarekstri. Á tímum sem

þessum ætti að auka fjármagn til

tónlistarkennslu og hvers konar

þroskandi náms handa börnum til

að reyna að mæta þeim afleiðingum

sem efnahagsleg kreppa hefur

á samfélagið,“ segir Kjartan.

Kjartan segir að framundan

hjá Hörpunni sé að takast á við

21% niðurskurð fjárframlaga frá

borginni. „Skólinn stefnir að því

að sinna öllum sínum nemendum

þrátt fyrir niðurskurðinn og vonar

að hann sé bara tímabundinn.

Í vetur stefnir skólinn að því

að halda námskeið fyrir tónlistarnema

og tónlistarkennara

undir nafninu „Líkamsvitund

tónlistarfólks“. Kennari verður

Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir,

sjúkraþjálfari og tónlistarkennari.

Viðfangsefni námskeiðsins

er álagsmeiðsli tónlistarfólks, líffærafræði,

líkamsbeiting og áhrif

líkamsþjálfunar,“ segir Kjartan.

Starfstengt nám sérsniðið að óskum fyrirtækja

Þekkingarsetur Þingeyinga er

miðstöð símenntunar, háskólanáms

og rannsókna í Þingeyjarsýslum.

ÞÞ stendur fyrir námskeiðum

og hefur milligöngu

um nám í samstarfi við einstaklinga

og atvinnulífið. Setrið

rekur háskólanámssetur með

þjónustu og vinnuaðstöðu fyrir

háskólanema á svæðinu. Einnig

er setrið miðstöð rannsókna á

svæðinu, og hýsir til lengri og

skemmri tíma fólk, stofnanir og

fyrirtæki sem stunda rannsóknir

í héraðinu.

Óli Halldórsson, forstöðumaður

ÞÞ segir að setrið standi sjálft fyrir

stærstum hluta þeirra námskeiða

sem haldin eru á svæðinu. „Frá því

síðasta haust höfum við verið að

breyta áherslum hjá okkur. Áður

lögðum við töluverða áherslu á

tómstunda-, tungumála- og tölvunámskeið

en nú er mest áhersla

lögð á starfstengt nám þá ýmist

eftir námskrám Fræðslumiðstöðvar

atvinnulífsins eða sérsniðin að

óskum fyrirtækja. Námskeiðin sem

boðið verður upp á í haust taka mið

af þessu,“ segir Óli.

Miðstöð rannsóknastarfs

Óli segir hlutverk Þekkingarseturs

Þingeyinga vera í meginatriðum

þríþætt. „Fyrir það fyrsta er

stofnunin hefðbundin símenntunarmiðstöð

og starfar sem slík á

sínu starfssvæði við hlið annarra

níu svæðisbundinna miðstöðva

á landinu. Í öðru lagi er stofnunin

háskólanámssetur og rekur

öflug námsver og þjónustu á því

sviði fyrir alla háskólanema á sínu

svæði. Það sem skilur Þekkingarsetur

Þingeyinga svo frá flestum

hinum símenntunarmiðstöðvunum

er svo það að stofnunin er miðstöð

rannsóknastarfs á norðausturhorni

landsins og bæði veitir rannsakendum

þjónustu og stundar eigin

rannsóknir. Þekkingarsetrið starfar

náið með öðrum símenntunarmiðstöðvum

á landinu og tilheyrir því

stoðkerfi menntakerfisins. Vegna

þessa rannsóknahlutverks Þekkingarsetursins

er þó eina systurstofnun

stofnunarinnar Þekkingarnet

Austurlands, en sú stofnun starfar

í meginatriðum með nákvæmlega

sama hætti, þ.e. hefur ekki eingöngu

hlutverki að gegna á sviði símenntunar

heldur líka rannsókna.

Síðastliðinn vetur höfðum við

Kjartan Eggertsson, skólastjóri Tónskóla

Hörpunnar.

frumkvæði að samstarfi við Vinnumálastofnun,

Framsýn stéttarfélag,

Félagsþjónustu Þingeyinga og Húsavíkurdeild

Rauða Kross Íslands um

málefni atvinnuleitenda í héraðinu.

Eitt af markmiðum samstarfsins var

að stuðla að símenntun atvinnuleitenda

og búa þá undir endurkomu

á vinnumarkaðinn. Við búum að

því samstarfi og munum halda því

áfram í vetur og leggjum okkur

fram við að þjónusta atvinnuleitendur

á sem bestan hátt bæði með

námskeiðum fyrir þá og náms- og

starfsráðgjöf,“ segir Óli

Mörg sóknarfæri

Hann segir að ýmis sóknarfæri

séu á komandi vetri. „Við horfum

Við horfum

bjartsýn á

veturinn

framundan,

en ástandið á

vinnumarkaðnum

batnaði til

muna í vor og

er ágætt eins og

staðan er í dag.

Kjartan segir tónlistariðkun vera þroskavænlega athöfn,

sem auk þess að hafi mikið sálrænt og félagslegt gildi

bjartsýn á veturinn framundan, en

ástandið á vinnumarkaðnum batnaði

til muna í vor og er ágætt eins og

staðan er í dag. Nú eru 112 manns

á atvinnuleysisskrá á svæðinu og

þeim mun fækka um næstu mánaðarmót

þegar skólarnir byrja, sláturtíð

hefst og fiskvinnslan fer aftur

af stað hjá Vísi á Húsavík. Þó er ljóst

að samdráttur hefur orðið í nokkrum

atvinnugreinum. Má þá helst

horfa til iðn- og þjónustugreina.

Það er helst á tímum sem þessum

sem hægt er að ná til einstaklinga

innan þessa geira og hvetja þá til

þátttöku og virkni í eigin símenntun.

Það ætlum við okkur að gera

með því að auka samstarf við fyrirtæki

í þessum greinum,“ segir Óli.

Bætir, hressir og kætir

Þó ÞÞ starfstengt nám fái aukna

áherslu í vetur, segir Óli að tómstundir

og afþreying séu ekki látin

sitja á hakanum. „Við bíðum mjög

spennt eftir að sjá hvernig íbúar á

starfssvæðinu munu taka í nýjan

lið hjá okkur sem við köllum Bætir,

hressir, kætir og snýst kannski

meira um afþreyingu og tómstundir

en störf fólks. Með þessum lið

er ætlunin eins og nafnið ber með

sér að bæta, hressa og kæta þá sem

munu taka þátt í þessu með okkur.

Undir þessum flokki ætlum við

að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá

sem felur í sér ýmist fyrirlestra

sem byggja á fræðilegum grunni

eða léttmeti, örnámskeið sem geta

verið til gagns eða ánægju eða hvort

tveggja og svo skemmtilegar kvöldstundir

þar sem þátttakendur útbúa

mat eða sælgæti,“ segir Óli.

-Þekkingarnet Austurlands

Þekkingarsamfélagið styrkt

Þekkingarnet Austurlands

hefur á tíu árum þróast

frá því að vera eins manns

stofnun yfir í tólf manna

stofnun með fimm starfsstöðvar

víða um Austurland,

þar sem boðið er upp á

náms- og starfsráðgjöf ,

aðstöðu til náms og stuðning

bókasafnsfræðings og

kennara við nemendur. S-

tefanía Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri

ÞNA, segir

að með góðu samstarfi við

sveitarfélög, fyrirtæki og

stofnanir leitist ÞNA við að

styrkja innviði og þróun

þekkingarsamfélagsins í

dreifðum byggðum landsins.

Stefanía segir að tilurð ÞNA

á Austurlandi hafi orðið til

þess að auka verulega framboð

á símenntun og fullorðinsfræðslu

á Austurlandi, þá

hafi verið byggð upp aðstaða

og þjónusta fyrir nemendur í

dreifnámi á háskólastigi, enda

hafi fjöldi þeirra tvöfaldast

á síðustu fimm árum. „ÞNA

býður fyrirtækjum og stofnunum

á Austurlandi upp á

margvíslega þjónustu, sérsniðin

námskeið, námsráðgjöf og

markvissa greiningu og ráðgjöf

(stefnumótunarferli er varðar

starfsþróun og símenntunarstefnu

fyrirtækja). ÞNA hefur

með ráðgjöf sinni og þjónustu

orðið til þess að margir hafa

farið aftur í nám á fullorðinsaldri,“

segir Stefanía.

Markmið ÞNA eru víðtæk

og ná meðal annars yfir: að

auka framboð á símenntun og

fullorðinsfræðslu, veita einstaklingsmiðaða

þjónustu til

íbúa varðandi nám og starf,

raunfærnimat í verkgreinum,

Markviss ráðgjöf til fyrirtækja,

fjölgun háskólanemua og auka

framboð á háskólanámi í dreifnámi,

stuðla að þróun staðbundins

háskólanáms í samstarfi

við stofnanir og sérfræðinga á

Austurlandi og stuðla að uppbyggingu

og þróun rannsókna

og rannsóknanáms á Austurlandi.

Hún segir að ástandið á atvinnumarkaði

á Austurlandi sé

nokkuð gott miðað við landið

allt og stöðuna eins og hún var

í vor. „Búist er við neikvæðri

þróun með haustinu og auknu

atvinnuleysi. ÞNA er í góðu

samstarfi við Vinnumálastofnun

og aðila vinnumarkaðarins

um þróun úrræða fyrir atvinnuleitendur.

Þar er horft til

námskeiða, ráðgjafar, áhugasviðsgreininga

og raunfærnimats

sem mögulegra úrræða.

Þessi úrræði má tvinna við

það námsframboð sem þegar

er í boði hjá framhalds- og

háskólum sem og úrræði tengd

starfsþjálfun,“ segir Stefanía.

Framundan eru fjölbreytt

námskeið, bæði tómstunda og

starfstengd námskeið. „Síðari

ár hefur verið lögð áhersla á

að þróa lengri námskeið fyrir

ákveðna hópa oft í samstarfi

við sveitarfélög, stofnanir,

fyrirtæki og hópa á svæðinu

sem mótað hafa hugmyndir

að námskeiðum í samráði við

starfsmenn ÞNA,“ segir Stefanía

Dæmi um námskeið

á haustönn:

• Hönnunarnám í samstarfi við Menningaráð Austurlands

með áherslu á þjálfun í hönnun og efnismeðferð.

Markhópurinn er handverksfólk á

Austurlandi.

• Meistari Megas, námskeið um líf og starf, lög og

ljóð Meistarans. Áhersla á náttúrusýn, slangur og

hæðni í verkum Megasar.

• Menningartengd ferðaþjónusta á Vopnafirði,

áhersla á sögu Vesturfara og heiðarbýla.

• Frumkvöðlanámskeið fyrir innflytjendur.

• Rússneska fyrir byrjendur í fjarnámi

• Nýjar leiðir - námskeið fyrir fiskvinnslufólk á

Hornafirði • Evrópunámskeið, krass- kúrs fyrir

þá sem vilja vita um hvað málið snýst

SKÓLA

FARTÖLVUBAKPOKI

FYLGIR FRÍTT MEÐ!

ALLAR TECAIR

FARTÖLVUTÖSKURUR

Á 30% AFSLÆTTI

WWW.SVAR.IS

SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000

Vopnafjörður

Egilsstaðir

Höfn í Hornafirði

Neskaupstaður

Reyðarfjörður

Starfsstöðvar ÞNA

TILBOÐ!

ACER ASPIRE 5536

Öflug fartölva með stórum og björtum 15.6“

skjá. Þægilegt lyklaborð með talnaborði og

nýjasta kynslóð snertimúsar. Öflugur tveggja

kjarna örgjörvi, 3GB vinnsluminni, 250GB

harður diskur og ATi Radeon 3200 skjákort.

119.900

www.tna.is
30 • Menntun, námskeið og nýsköpun

ARGUS / 08-0415

ALLTAF

Daníel Rúnarsson,

Vöru- og markaðsstjóri

og Rúnar Sigurðsson

Framkvæmdastjóri hjá

Svar tækni.

Ljósmyndir Ingó.

GAMAN

Leiðandi á fistölvumarkaði

-Svar tækni kynnir spennandi og litríka kosti fyrir skólafólk

Þegar litið er yfir skólastofur

á framhalds- og háskólastigi

í dag er ekki óalgengt að

sjá glampann af ótal fartölvuskjám

sem lýsa upp andlit

áhugasamra nemenda. Daníel

Rúnarsson, Vöru- og markaðsstjóri

hjá Svar tækni, segir

að fartölvan gegni orðið lykilhlutverki

í kennslu í dag og

bjóði Svar tækni því upp á fjölbreytta

möguleika fyrir námsmenn,

allt frá örsmáum og

stílhreinum fistölvum og upp í

fartölvur með allt að átta tíma

rafhlöðuendingu, sem kemur

sér vafalaust vel fyrir óstundvísa

stúdenta sem missa af

þeim sætum sem eru í seilingarfjarlægð

við innstungur.

Daníel segir að tölvunotkun

við kennslu hafi stóraukist á

undanförnum árum og það megi

segja að fartölvan sé orðin ákveðin

miðpunktur, bæði í samskiptum

nemenda og kennara utan

skólastofunnar sem og í dreifingu

og miðlun kennsluefnis. „Flestir

framhalds- og háskólar eru svo

„Þetta gefur fólki

möguleika á að vera án

rafmagns allan skóladaginn

og veitir þar með mun

meira frelsi,“ segir Daníel.

með eigin upplýsingakerfi sem

eru aðgengileg á netinu og algengt

er að kennsla geri ráð fyrir því að

nemendur séu með eigin tölvu í

kennslustund,“ segir Daníel.

Fistölvur á stærð við bók

Kröfur námsmanna geta verið

æði misjafnar að sögn Daníels, en

sumir vilji litlar og meðfærilegar

tölvur á meðan aðrir vilji stóra og

skýra skjái. Hann bendir á að Svar

tækni, sem er sölu- og þjónustuaðili

fyrir Acer á Íslandi, séu nú

að kynna nýja línu sem heitir Timeline

og býður upp á sex til átta

klukkustunda rafhlöðuendingu.

„Þetta gefur fólki möguleika á að

vera án rafmagns allan skóladaginn

og veitir þar með mun meira

frelsi,“ segir Daníel. Hann segist

verða var við aukinn áhuga á léttari

og meðfærilegri tölvum hjá

viðskiptavinum sínum og bendir

á svokallaðar fistölvur í því samhengi.

„Fistölvur eru fartölvur í

smærri kantinum, allt niður í að

vera ekki stærri en hefðbundin

bók og undir einu kílói að þyngd.

Þær fást líka upp í ellefu tommu

skjá sem er þá líkara stílabók að

stærð,“ segir Daníel.

Hann segir að Acer standi sérlega

vel að vígi á fistölvumarkaðnum.

„Fistölvurnar eru í raun

sérstakur markaður út af fyrir sig,

en á þeim markaði er Acer með

yfir helmings markaðshlutdeild

á heimsvísu sem er ótrúlegur árangur.

Acer fistölvurnar skera

sig líka úr fjöldanum því þær eru

fáanlegar í fjölmörgum litum,

svo sem bláum, hvítum, bleikum,

rauðum, brúnum og auðvitað

svörtum. Helsti kostur þeirra

er þó auðvitað verðið en þær eru

afar hagkvæmar en þrátt fyrir það

er þriggja ára ábyrgð á þeim eins

og á öllum Acer fartölvum frá

Svar tækni,“ segir Daníel.

Metnaður í þjónustu

Daníel segir að Acer hafi alla tíð

verið mjög samkeppnishæfar og

Acer fistölvurnar eru fáanlegar í öllum

regnbogans litum.

telur að fullyrða megi að Acer fartölvur

séu bestu kaupin á markaðnum

í dag. „Þær eru í flestum

tilfellum ódýrastar en jafnframt

mjög vel búnar og með þriggja

ára ábyrgð. En við viljum ekki

bara selja tölvurnar ódýrt heldur

líka veita góða þjónustu og því er

það okkur alveg jafn mikilvægt að

þjónusta tölvuna eins og að selja

hana,“ segir Daníel.

Bilanatíðni Acer er þó með því

besta sem gerist að sögn Daníels

og segir hann að því megi þakka

að Acer sé ávallt með þeim fyrstu

til að tileinka sér nýja tækni sem

bætir endingu og nýtingargildi

tölvunnar. „Sem dæmi má nefna

sérstaka vörn fyrir harða diska

sem virkar þannig að ef tölvan

nemur hristing, til dæmis vegna

þess að hún hefur dottið í gólfið,

fer harði diskurinn í hlé til að

reyna að koma í veg fyrir gagnatap,

en slíkt getur auðveldlega

gerst ef ekki er varlega farið. Jafnframt

hefur Acer þróað tækni

sem kallast SignalUp sem ætlað

er að auka drægni þráðlauss netsambands,“

segir Daníel.

Í SUNDI

GLÆSILEGAR SundLAuGAR Í KÓPAVOGI

Í sundlaugum Kópavogs er úr nógu að velja, jafnt

fyrir unga sem aldna: frábærar úti- og innilaugar,

huggulegir heitir pottar, þægilegar vaðlaugar,

spennandi rennibrautir og hvers kyns önnur aðstaða

til góðrar hreyfingar, slökunar og skemmtunar.

Er hægt að hafa það betra?

Sumartími 1. apríl - 30. september:

Virkir dagar frá kl. 6:30 til 22:30

helgar frá kl. 8:00 til 22:00

Sundlaug KópavogS

SundlaugIn vERSÖluM
32 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 33

Starfsfólkið mesta auðlind fyrirtækja

-Þjónustufyrirtækið Vinnuvernd sinnir meðal annars fjölbreyttu fræðslustarfi

Vinnuvernd er þjónustufyrirtæki

sem sérhæfir sig á sviði

vinnuverndar, heilsuverndar og

heilsueflingar. Þjónusta Vinnuverndar

miðar að því að aðstoða

fyrirtæki og starfsmenn þeirra

við að bæta öryggi, líðan og

heilsufar á vinnustað og á þann

hátt að draga m.a. úr fjarvistum.

Hjá Vinnuvernd starfa læknar,

hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar,

lýðheilsufræðingur,

vinnuvistfræðingur og sálfræðingar

sem allir sinna fjölbreyttum

verkefnum. Alls er þetta 12-

14 manna teymi.

Sem dæmi um þjónustuþætti

má nefna trúnaðarlæknisþjónustu,

úttektir á vinnuaðstæðum,

vinnuvistfræðilega ráðgjöf, heilsufarsmælingar,

áhættumat, vinnu

við eineltismál, áfallahjálp, ýmis

konar fræðsla, námskeið og margt

fleira. Einnig hafa sérfræðingar

Vinnuverndar aðstoðað fjölmörg

fyrirtæki við að skipuleggja heilsueflingu

til lengri tíma.

Aldrei mikilvægara

Valgeir Sigurðsson hjá Vinnuvernd

segir það er líklegast aldrei

hafa verið mikilvægara en nú að

fyrirtæki sinni vinnu- og heilsuverndarstarfi.

„Starfsfólkið er

mesta auðlind fyrirtækja og má

segja að það sé lykilatriði að hlúa

vel að því við uppbyggingarstarfið

sem framundan er. Bæði starfsmenn

og stjórnendur eru vængbrotnir

eftir áföll síðastu 10-12

mánaða, víða hefur fólki verið

fækkað, starfshlutfall fært niður

eða laun og fríðindi skert. Engu

að síður er launakostnaður stærsti

einstaki kostnaðarliðurinn í öllum

rekstri og það er mjög mikilvægt

að leggja rækt við uppbygginguna

á öllum vinnustöðum. Vinnuverndarstarfið

er líklegast ódýrasta

ráðgjafaþjónusta sem völ er á nú í

dag og það er hægt að gera býsna

margt fyrir lítið fjámagn. Verkefni

sem ná beint til starfsmanna og eru

sýnileg á vinnustaðnum eru mjög

mikilvæg um þessar mundir, „segir

Valgeir.

Valgeir segir það er líklegast aldrei hafa

verið mikilvægara en nú að fyrirtæki sinni

vinnu- og heilsuverndarstarfi. Ljósm. Ingó.

Fræðsla og námskeið

Allt frá upphafi hefur Vinnuvernd

sinnt fjölbreyttu fræðslustarfi

sem hefur farið fram í formi

fræðslufunda og námskeiða, auk

þess sem Vinnuvernd sendir mánaðarlega

fræðslupistla til þeirra

fyrirtækja sem hafa gert þjónustusamninga

við fyrirtækið.

Valgeir segir að áhersla hafi

verið lögð á að hafa fræðsluerindi

og námskeið stutt og hnitmiðuð.

„Tíminn er dýrmætur auk þess sem

ýmsir starfshópar eru óvanir því að

sitja lengi og hlusta. Snörp námskeið

með virkri þátttöku eru því

það sem við höfum boðið uppá.

Meðal fræðslufunda og námskeiða

má nefna skyndihjálp, einelti,

líkamsbeitingu, streitu og áföll

og gerð áhættumats á vinnustað.

Nú síðast höfum við boðið uppá

fyrirlestur þar sem fjallað er um

sóttvarnir á vinnustað í tengslum

við heimsfaraldur inflúensu

(H1N1). Flestir fræðslufundir og

námskeið fara fram á vinnustöðum

og reynum við að tengja efnistök og

framsetningu hverju fyrirtæki og

starfshóp fyrir sig,“ segir Valgeir.

Hann segir að síðastu mánuði

hafi starfið hjá Vinnuvernd snúist

talsvert um þau áföll sem orðið

hafa í samfélaginu. Ýmsum áfallaverkefnum

hafi verið sinnt og það

hafi verið unnið með þau innan

sem utan vinnustaðanna.

„Nú þegar ný inflúensa (H1N1)

hefur skotið sér niður hafa hjúkrunarfræðingar

okkar og læknar

aðstoðað fyrirtæki við viðbraðgsáætlanir

þar sem menn leggja

það niður fyrir sér hvernig best sé

fyrir vinnustaðinn að búa sig undir

og bregðast við þessum vágesti.

Þessi vinna hefur verið unnin samkvæmt

þeim leiðbeiningum sem

sóttvarnarlæknir hefur gefið út,“

segir Valgeir.

Stuðningur stéttarfélaga

Að sögn Valgeirs átta sig ekki

allir á því að fjölmörg stéttarfélög

styðja ríkulega við námskeiðahald

á vinnustöðum. „Segja má að stéttarfélögin

hafi þetta hvert með sínu

lagi. Full ástæða er til þess að nefna

framgöngu Eflingar – stéttarfélags

sérstaklega en félagið hefur stutt

dyggilega við fræðslustarf í fyrirtækjum

og innan stofnana.

Annars er bjart framundan og

þó ótrúlegt megi virðast er Vinnuvernd

að stækka og eflast. Fjölmargir

stjórnendur hér á landi eru fyrir

nokkru búnir að átta sig á því að

það er hagkvæmt að sinna vinnuog

heilsuverndarstarfi og heilsueflingu

á vinnustað og ég á ekki von á

öðru en þeim muni fjölga í framtíðinni,“

segir Valgeir.

Rannsóknarþjónustan Sýni ehf.

setur á stofn matvælaskóla

Nú er að taka til starfa nýr skóli

á höfuðborgarsvæðinu. Ber

hann nafnið Matvælaskólinn

hjá Sýni. Hann er starfræktur

af Rannsóknarþjónustunni

Sýni ehf. sem var upphaflega

stofnuð sem rannsóknarstofa

fyrir matvæla- og fóðuriðnað.

Snorri Þórisson, matvælafræðingur

og framkvæmdastjóri

Sýnis, segir að Matvælaskólinn

hjá Sýni sé hugsaður sem

umgjörð utan um fjölbreytt

námsefni fyrirtækisins og

samstarfsaðila þess og verða

fjölmörg námskeið í boði hjá

skólanum.

Rannsóknarþjónustan Sýni ehf.

var stofnuð 1. apríl 1993. Þótti

gárungunum dagsetningin benda

til þess að um grín væri að ræða,

þ.e. að einkarekin rannsóknarstofa

ætti litla framtíð fyrir sér.

Hjá Sýni starfa nú 14 manns, þar

af níu háskólamenntaðir, sumir

með áratuga reynslu í þjónustu

við matvælaiðnaðinn. Dótturfyrirtæki

Sýnis, Promat ehf. er rekið

á Akureyri og þar eru þrír starfsmenn.

Snorri segir að öll verkefni sem

Sýni tekst á við snúist um matvæli

og gæði á einn eða annan hátt. „Til

að byrja með voru helstu verkefnin

örverumælingar og efnamælingar

fyrir framleiðendur í matvæla- og

fóðuriðnaði en smám saman jókst

áhersla á ráðgjöf og fræðslu.“

Fjölbreytt námskeiðahald hefur

verið sívaxandi þáttur í starfseminni

hjá Sýni. Áhersla hefur verið

lögð á að aðlaga námskeiðin að

þörfum hvers fyrirtækis eða hóps.

Til að mæta þörfum fyrirtækja úti

á landsbyggðinni hafa starfsmenn

RÞS haldið námskeið um allt land.

Hafa þau auk þess verið haldin á

nokkrum tungumálum með aðstoð

túlka svo að efnið skili sér

sem best til þeirra sem ekki hafa

full tök á íslensku. Og loks hefur

efni sem dreift er verið þýtt á

nokkur tungumál.

„Í umræðu um heilsueflingu og

vellíðan á vinnustað hefur umræða

um mataræðið verið vanrækt,“

segir Snorri. „Við höfum

því boðið fyrirtækjum og stofnum

upp á námskeið sem við köllum

Borðum betur. Í þessu samhengi

höfum við aukið áherslu á

mataræði og fjölbreytni í hráefnisvali

og þróað ýmis námskeið á

því sviði. Meðal annars má nefna

matreiðslunámskeið þar sem

hressir krakkar koma og matreiða

og borða saman.”

„Í umræðu um

heilsueflingu

og

vellíðan á

vinnustað

hefur umræða

um mataræðið

verið

vanrækt,“

Nýjasta verkefnið

Matvælaskólinn hjá Sýni, nýjasta

verkefni Sýnis, er hugsaður

sem umgjörð utan um fjölbreytt

námsefni fyrirtækisins og samstarfaðilanna

og er ætlað að svara

mikilli þörf á fræðslu í matvælaiðnaði.

Námskeiðum má skipta í

grófum dráttum í þrjá flokka:

•Gæði og öryggi matvæla.

•Hollusta og matseld – t.d.

krakkamatur og hópeflisnámskeið

þar sem hópar elda og borða

saman.

•Sérhæfð námskeið t.d. nám

fyrir almenna starfsmenn í matvælaiðnaði

sem metið er til fimm

eininga á framhaldsskólastigi.

„Námsskráin er unnin í samstarfi

við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins,

Starfsafl, Landsmennt,

Eflingu og Matvælastofnun.

Þar er ætlunin að bjóða upp á

framhaldsnám sem miðar að því

að viðkomandi geti starfað sem

gæðastjóri í matvælafyrirtækjum.

Einnig viljum við endilega

nefna nýtt námskeið sem haldið

verður í haust; Stofnun fyrirtækja

í matvælaiðnaði, en það

fékk styrk frá Starfsmenntaráði.

Þá erum við í góðu samstarfi

við Þekkingarmiðlun sem býður

námskeið varðandi mannauðsmál

og stjórnun og Verkís hf. með

námskeið um vinnuvernd, öryggismál,

neyðarstjórnun og hönnun

húsnæðis og búnaðar. Sýni ehf.

hefur gert samstarfssamninga

við Landsmennt og Starfsafl sem

styrkja mörg okkar námskeiða,“

segir Snorri en bendir á í lokin að

frekari upplýsingar um starfsemi

Matvælaskólans hjá Sýni megi fá

á heimasíðunni www.syni.is eða í

tölvupósti á netfangið matvaelaskolinn@syni.is

Öryggi og umhverfismál í öndvegi

-Verkfræðistofan Verkís býður meðal annars upp á námskeið á sviði öryggis- og heilbrigðismála.

Verkfræðistofan Verkís 2008

er öflugt, leiðandi ráðgjafarog

þekkingarfyrirtæki á meginsviðum

verkfræði og tengdra

greina með áherslu á orkumál.

Hlutverk þess og markmið er að

veita viðskiptavininum vandaða

og faglega ráðgjöf. Þá hefur

Verkís boðið upp á námskeið og

fyrirlestra á sviði öryggis- og

heilbrigðismála á vinnustöðum.

Verkís var stofnuð í nóvember

2008 við sameiningu Verkfræðistofu

Sigurðar Thoroddsen, Rafteikningar,

Fjarhitunar, Fjölhönnunar

og RT-Rafagnatækni sem

hvert um sig var með áratuga

reynslu í ráðgjöf og leiðandi á sínu

sérsviði.

Dóra Hjálmarsdóttir, deildarstjóri

Verkís, segir að í fyrirtækinu

sé fyrir hendi sérfræðiþekking

sem spannar allar þarfir

framkvæmda- og rekstraraðila frá

fyrstu hugmynd að nýju verkefni,

til aðstoðar við margháttuð rekstrar-

og viðhaldsverkefni.

Meðal þeirra þjónustu sem fyrirtækið

býður er:

• Undirbúningur framkvæmda og

áætlanagerð.

• Hönnun hvers kyns mannvirkja,

svo sem íbúðar- atvinnu- og þjónustuhúsnæðis,

orkuvera, samgöngumannvirkja

og allra þeirra

sérkerfa sem þarf í slík mannvirki.

• Verkefnastjórnun, bæði við hönnun

og á framkvæmdastað.

• Framkvæmdaeftirlit.

• Umhverfisráðgjöf.

• Öryggis- og heilbrigðisráðgjöf.

„Styrkur Verkís felst meðal annars

í því að á einum og sama stað

geta viðskiptavinir okkar sótt alla

hefðbundna verkfræðiráðgjöf, auk

þeirrar stoðþjónustu sem nú er

orðin eðlilegur hluti af undirbúningi

og rekstri flókinna verkefna.

Verkís leggur sig fram um að

sinna þörfum viðskiptavina sinna

fljótt og örugglega, og veita trausta

ráðgjöf við byggingu og rekstur

mannvirkja í sátt við umhverfið

og skynsamlega nýtingu auðlinda.

Fyrirtækið hefur þjónustað marga

af viðskiptavinum sínum í áratugi

og talar það sínu máli um viðhorf

þeirra til þjónustunnar,“ segir Dóra

Áhersla á öryggi

Um árabil hefur Verkís boðið upp

á öfluga öryggisráðgjöf varðandi

alla þætti mannvirkjagerðar og almenns

rekstrarumhverfis mannvirkja.

Þar má nefna áhættugreiningar

mannvirkja, brunavarnir,

öryggis- og innbrotavarnir, ásamt

verkefnum sem snúa að neyðarvörnum

veitufyrirtækja svo sem

áhættugreiningar, viðbragðsáætlanir

og neyðarfjarskipti. Verkís

hefur á því sviði boðið viðskiptavinum

sínum upp á þjálfun í formi

æfinga, námskeiða, fyrirlestra og

leiðbeininga.

Dóra segir að á síðustu árum hafi

áherslan á öryggis- og umhverfismál

framkvæmda og reksturs

farið vaxandi. „Má segja að vakning

hafi orðið í þeim málum á Íslandi

og hefur Verkís tekið fullan

þátt í því að auka veg öryggis- og

heilbrigðis á vinnustað með því að

auka framboð sitt á þjónustu á því

sviði í formi almennrar ráðgjafar,

námskeiða, fyrirlestra og ráðstefnuhalds,“

segir Dóra

Síðustu árin hefur Verkís

boðið upp á ýmsa fyrirlestra

og námskeið á sviði öryggis

og heilbrigðis á vinnustöðum.

Námskeiðin eru sérsniðin að

þörfum hvers viðskiptavinar

og haldin hjá Verkís eða hjá

viðkomandi viðskiptavini.

Meðal þess efnis sem fjallað

er um er:

• Innleiðing öryggismála hjá

fyrirtækjum

• Afbrot og forvarnir

• Öryggiskerfi, uppbygging

og virkni þeirra

• Efling öryggisvitundar

starfsmanna

• Öryggis- og heilbrigðisáætlun

á vinnustað og áhættumat

starfa

• Öryggishandbók fyrir

smærri verktaka og fyrirtæki

• Viðbragðsáætlun vegna farsótta

Námskeiðin löguð af

þörfum fyrirtækja

Verkís hefur staðið fyrir námskeiðum

um framkvæmd áhættumats

starfa og gerð öryggis og

heilbrigðisáætlana. Efni námskeiðanna

hefur verið lagað að þörfum

fyrirtækja þannig að starfsmenn

þeirra, öryggisverðir og öryggistrúnaðarmenn

ásamt öðrum sem

sinna öryggismálum fyrirtækisins

séu betur í stakk búnir að framkvæma

áhættumat á sínum vinnustað

og fylgja úrbótum eftir. Einnig

býður Verkís upp á heilsufarsmælingar

og heilsufars- og næringarráðgjöf

í samvinnu við Rannsóknarþjónustuna

Sýni ehf.

Nú þegar heimsfaraldur inflúensu

geisar býður Verkís upp á

ráðgjöf um smitvarnir í formi fyrirlestra

og leiðbeininga til starfsmanna,

auk þess að bjóða fyrirtækjum

leiðbeiningu við gerð

viðbragðsáætlana til að tryggja sem

best samfelldan rekstur og öryggi

framleiðslunnar.

Verkís hefur aflað sér viðurkenningar

Vinnueftirlitsins sem alhliða

ráðgjafar- og þjónustuaðili á sviði

öryggis- og heilbrigðis á vinnustöðum

og er í samstarfi við sérfræðinga

á sviði öryggismála og vinnuverndar

m.a. Rannsóknarþjónustuna

Sýni ehf, Aðgát Eldvarnarþjónustu

ehf, Meton ehf, Forvarnir ehf og

Magnús Ólafsson sjúkraþjálfara.

Yfir 300 starfsmenn

Starfsemin, og þar með öll þjónusta

Verkís, uppfyllir kröfur ISO

9001 til vottaðra gæðakerfa auk

þess að fylgja metnaðarfullri stefnu

í öryggis- og umhverfismálum.

Yfir 300 einstaklingar starfa hjá

fyrirtækinu í höfuðstöðvunum í

Reykjavík og á sex öðrum stöðum

á landsbyggðinni. Rekstur dreifðra

útibúa tryggir þekkingu á staðháttum

og aðgang viðskiptavina

að sérfræðiþjónustu hvar sem er á

landinu.

Helstu viðskiptavinir Verkís eru

opinber- og einkafyrirtæki sem

eru m.a. byggjendur, eigendur og/

eða rekstraraðilar vatnsaflsvirkjana,

jarðvarmavirkjana, vatns- og

hitaveitna, stóriðju, samgöngu-,

mennta-, íþrótta-, og heilbrigðismannvirkja.

Einnig veitir Verkís

ýmsum þjónustufyrirtækjum og

verktökum ráðgjöf og þjónustu.

• TETRA fjarskipti – námskeið

og leiðbeiningar

• Eldvarnir og notkun slökkvibúnaðar

• Rýmingar og notkun slökkvibúnaðar

• Innleiðing öryggismála hjá

fyrirtækjum

• Neyðarvarnir og neyðarviðbrögð

/ viðbragðsáætlanir

• Smitvarnir.
34 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 35

-Margvís – tungumálamiðstöð

Íslenskunám í Eyjafirðinum

Margvís hefur undanfarin

þrjú ár boðið uppá íslenskunámskeið

fyrir útlendinga á

Akureyri, Hrísey, Dalvík, Ólafsfirði

og Siglufirði. Guðrún

Blöndal framkvæmdastjóri

segir að grunnhugmyndin

með stofnun Margvís

hafi verið sú að veita öllum

útlendingum á Eyjafjarðarsvæðinu

og víðar tækifæri

til að sækja námskeið í íslensku.

“Tækifæri útlendinga til þess

að sækja íslenskunámskeið á

þessu svæði voru í raun tilviljunarkennd

en markmið okkar

var að bæta aðgengið og gera

námskeiðahald skilvirkari” segir

Guðrún.

Íslenskunám á öllum

stigum

Margvís býður uppá almenn

íslenskunámskeið á öllum stigum

og einnig starfstengd íslenskunámskeið

fyrir erlent

starfsfólk fyrirtækja þar sem

námskeiðin fara fram í fyrirtækjunum

og námsefnið er

sniðið að þörfum þess.

“Við leggjum mikla árherslu á

að hafa námskeiðin og námsefnið

lifandi og tímana skemmtilega

og umfram allt árangursríka.

Einnig leggjum við áherslu

“Við leggjum

mikla áherslu

á að hafa

námskeiðin

og námsefnið

lifandi og

tímana

skemmtilega

og umfram allt

árangursríka.

á að þátttakendur fái tækifæri

til að þess að sækja námskeið

sem hentar þeirra getu, því þá

verður árangurinn að sjálfsögðu

meiri,” segir Guðrún.

Reyndir kennarar

Guðrún segir að hjá Margvís

Fræðandi gamanleikrit fyrir alla aldurshópa

Kraðak er kraftmikið afþreyingarfyrirtæki

sem býður

m.a. upp á áhugaverðar leiksýningar

sem í senn eru fræðandi

fyrir áhorfendur og hafa

mikið skemmtanagildi. Kraðak

reið á vaðið í nóvember á

síðasta ári með sýningunni

Let´s talk Christmas sem

vakti mikla lukku. Í þeirri

sýningu tók sjálf Grýla, móðir

jólasveinanna á móti gestum

og uppfræddi þá um íslensku

jólin og hvernig jólahaldinu

hér á Fróni er háttað.

Anna Bergljót Thorarensen

eigandi Kraðaks leikstýrir Let´s

talk sýningunum, en höfundur

verksins er Snæbjörn Ragnarsson.

Þann 15.júlí síðastliðinn

frumsýndi Kraðak leikritið Let´s

talk local sem er af sama meiði

og Let´s talk Christmas nema

að viðfangsefnið þetta sinnið er

saga Reykjavíkurborgar allt frá

landnámi til dagsins í dag, með

léttu ívafi og skemmtanagildið

Jóel Sæmundsson leikari klár í slaginn

fyrir sýninguna Let´s talk local.

starfi mjög reyndir og metnaðarfullir

kennarar sem flestir

hafi starfað hjá fyrirtækinu

frá upphafi. Tveir þeirra gáfu

nýverið út námsbækurnar “Íslenska

á allra vörum” I og II

ásamt fjölnota efni sem er sérhannað

til íslenskukennslu fyrir

Viðtökurnar

á sýningunni

hafa verið

afbragðsgóðar

og áhorfendur

einatt gengið út

með bros á vör,

margsvísari um

höfuðborgina.

í fyrirrúmi. Verkið sem flutt er

á ensku er sýnt á hverjum degi

klukkan 18:00 í koníaksstofunni

á Restaurant Reykjavík. Tveir

leikarar sjá um flutning á verkinu,

en vegna þess hve ört það er

sýnt er tvöfalt gengi sem skiptir

með sér sýningunum, en það eru

leikararnir Anna Brynja Baldursdóttir,

Jóel Sæmundsson,

Jón Stefán Sigurðsson og Ólöf

Hugrún Valdimarsdóttir, en þau

1

1

Markmið Marvís er að var að bæta aðgengi útlendinga að fræðslu og gera námskeiðahald skilvirkari.

útlendinga.

Námskeiðahald í íslensku

fyrir útlendinga hefst 14. og

15. september, en hægt er að

nálgast frekari upplýsingar um

námskeiðin og námsefnið á

www.margvis.is

námu öll leiklist í Bretlandi. Viðtökurnar

á sýningunni hafa verið

afbragðsgóðar og áhorfendur

einatt gengið út með bros á vör,

margsvísari um höfuðborgina.

Verkið verður áfram sýnt í vetur

og með haustinu fer Kraðak

í samstarf við menntaskóla og

elstu bekki grunnskóla. Þar sem

sýningin Let´s talk local er öll

á ensku verður fléttað saman

tveimur námsgreinum sögu og

ensku og sýningin verður kynnt

námsmönnum sem viðbót við

þeirra nám. En Kraðak lætur

ekki þar við sitja, hugmyndirnar

eru við hvert fótmál. Í bígerð eru

fræðandi og skemmtilegar Let´s

talk sýningar sem m.a. gera grein

fyrir Húsavík, tónlist og Valhöll

ásamt því að jólasýningin verður

aftur tekin upp fyrir jólin. Það

verður því spennandi að fylgjast

með framhaldinu hjá Kraðak

þar sem uppspretta hugmyndanna

er óþrjótandi og úr nægu

að moða.

Nánari upplýsingar á www.

kradak.is

Fyrstu frumkvöðlarnir útskrifast hjá Keili

Fólkið sem við þurfum

fyrir hið nýja Ísland

Fyrstu nemendur í frumkvöðlafræðum

í Skóla skapandi

greina hjá Keili, 11 talsins

útskrifuðust nú í sumar. Rúnar

Unnþórsson, framkvæmdastjóri

Orku- og tækniskóla

Keilis, segir að margir útskriftarnemar

séu þegar farnir af

stað með fyrirtæki og nokkrir

þeirra auk þess komnir með

aðstöðu á Ásbrú, sem menn

þekktu hér áður sem Varnarliðssvæðið

á Keflavíkurflugvelli.

Þar er aðstaða fyrir frumkvöðlana

í frumkvöðlasetrinu

Eldey og meðal nýjunga í vetur

eru að í skólanum verður aðstaða

til frumgerðasmíðar og

verkstæðisaðstaða. Nýr hópur

frumkvöðla er að hefja nám í

skólanum nú í september.

„Frumkvöðlanámið var skipulagt

af forvera mínum, Magnúsi

Árna Magnússyni, sem nú gegnir

stöðu forstöðumanns Félagsvísindastofnunar

Háskóla Íslands,

Jóhanni Malmquist, prófessor

við Verkfræðideild HÍ, og Sigríði

Ingvarsdóttur, framkvæmda- og

rekstrarstjóra frumkvöðlaseturs

Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands,“

segir Rúnar. Hann tók við starfi

Magnúsar á vormánuðum og

fylgdi því fyrsta frumkvöðlahópnum

síðustu metrana.

Komu með eigin viðskiptahugmyndir

„Þessir fyrstu útskriftarnemendur

í frumkvöðlafræðum hófu

námið með sínar eigin viðskiptahugmyndir

og þróuðu þær undir

handleiðslu kennara skólans.

Viðskiptahugmyndirnar voru

afar fjölbreyttar og sem dæmi má

nefna nýja græna og hagkvæma

lausn á sorphirðu, græna orkuframleiðslu

úr viðarkurli, fiskeldi,

framleiðslu á próteini, sérstaklega

ætlað fyrir konur, heilsukodda og

íslenska teframleiðslu.

Markmiðið með náminu í frumkvöðlafræðum

er að nemendur

læri ákveðna aðferðafræði við að

þróa viðskiptahugmyndir og í lok

námsins hafi hver og einn fullþróað

sína viðskiptahugmynd þannig

að hún sé tilbúin til að leggja hana

undir fjárfesta. Útskriftarnemendurnir

skiluðu allir af sér vel

ígrunduðum og vel útfærðum

viðskiptaáætlunum.“

Rúnar segir ennfremur að framkvæmd

nokkurra viðskiptaáætlana

sé þegar komin af stað og bætir

við að sannir frumkvöðlar, eins

og þeir sem útskrifaðir hafi verið

í sumar, séu stöðugt að fá nýjar

viðskiptahugmyndir. „Sú aðferðafræði

sem nemendur okkar hafa

tileinkað sér í vetur gerir þeim

mögulegt - með skilvirkum hætti

- að meta og útfæra hugmyndir

sínar og fylgja þeim vænlegustu

til enda.“ Og við útskriftina kastaði

Rúnar fram spurningunni: „Er

það ekki einmitt fólkið sem við

þurfum fyrir hið nýja Ísland?“

Gekk vel að afla styrkja

Þess má geta að nemendur

voru látnir skrifa umsóknir um

styrki vegna hugmynda sinna og

tókst þeim að afla rúmlega ellefu

milljóna króna með þeim hætti.

Umsóknirnar skrifuðu nemendur

sjálfir en með aðstoð kennara

sinna. Rétt er að taka fram að ekki

sendu allir inn umsóknir sem sýnir

að afrakstur þeirra sem það gerðu

var svo sannarlega með ágætum.

Jafnvel hefur spurst að þeir sem

ekki sendu inn styrkumsóknir

nagi nú neglur sínar þegar þeir

sjá hversu vel hinum gengur enda

ástæða til að ætla að velgengnin

hefði verið svipuð hjá öllum hópnum

ef á það hefði reynt. „Árangur

nemendanna bæði í náminu

sjálfu og á þessu sviði má ekki

Rúnar Unnþórsson framkvæmdastjóri. Ljósmyndir Ingó

„ . . .má ekki

síst þakka

þeim góðu

kennurum

sem skólinn

hefur á að

skipa. Þeir hafa

áratuga reynslu

í stofnun

fyrirtækja,

rekstri, gerð

viðskiptaáætlana

og

öðru sem nýtist

frumkvöðlum.“

síst þakka þeim góðu kennurum

sem skólinn hefur á að skipa.

Þeir hafa áratugareynslu í stofnun

fyrirtækja, rekstri, gerð viðskiptaáætlana

og öðru sem nýtist

frumkvöðlum. Við þetta má bæta

að ómetanlegt tengslanet myndast

meðan á náminu stendur og

afrakstur sést best á því að margir

frumkvöðlanna eru þegar farnir

að ræða mögulegt samstarf innbyrðis

í nýjum verkefnum.“

Fleiri spennandi námsbrautir

hjá orku- og tækniskólanum

Frumkvöðlanám er ekki eina

námið til háskólagráðu sem í boði

er hjá Keili. Í haust hófst nám í

orkutæknifræði og mekatrónískri

tæknifræði til BS gráðu við

skólann. Námið er eins og frumkvöðlanámið

skipulagt í samvinnu

við Háskóla Íslands. Markmið

Orku- og tækniskóla Keilis er

að útskrifa nemendur með framúrskarandi

þekkingu og færni á

sínu kjörsviði ásamt því að hafa

náð að virkja og efla sköpunargleðina.

Aðstaða til kennslu er

til fyrirmyndar. Verkleg kennsla

mun fara fram í sérstöku rannsóknarsetri

í orkufræðum sem

staðsett er í húsnæði skólans.

Ásbrú orðin að frumkvöðlasamfélagi

Varnarliðssvæðið sem nú nefnist

Ásbrú hefur á undra skömmum

tíma breyst í samfélag frumkvöðla,

fræða og atvinnulífs. Þar

er m.a. stærsti háskólagarður

Íslands og þarna fá nemendur

húsnæði á afar góðum kjörum.

Rúnar segir að í vetur hafi íbúar

á svæðinu verið um 2000 en vel

sé hægt að bæta þar mörgum við

enn. Þeir sem stunda nám sem er

metið lánshæft hjá Lín eiga rétt á

íbúðum á þessu svæði á hagstæðum

kjörum.

Á Ásbrú er mikil og góð þjónusta

sem hefur vaxið hratt þetta

fyrsta ár. Þar er grunnskóli, leikskóli,

frístundaskóli, félagsmiðstöð

unglinga og meira að segja

glæsilegur fjölskylduvænn veitingastaður

og kaffihús sem tekur

um 100 manns í sæti. Íþróttahús

og líkamsræktaraðstaða var opnuð

í desember 2007 og geta íbúar

á Ásbrú nýtt sér hana gegn vægu

gjaldi. Samkaup reka matvöruverslun

á svæðinu og í vetur var

opnuð þarna hársnyrtistofa. Nánari

upplýsingar um svæðið í heild

má nálgast á heimasíðu Ásbrúar,

www.asbru.is. www.keilir.net
36 • Menntun, námskeið og nýsköpun Menntun, námskeið og nýsköpun • 37

Fræðslusjóðir atvinnulífsins á landsbyggðinni

styrkja stöðugt fleiri einstaklinga til náms

Einn þáttur í stuðningsumhverfi

nýsköpunar á Íslandi

er samstarfsnetið Enterprise

Europe Network, sem ætlað

er að leiða saman og auka

samstarf lítilla og meðalstórra

fyrirtækja, rannsóknaraðila

og háskóla. Enterprise Europe

Network þjónustar fyrirtæki

og rannsóknaraðila meðal

annars með því að koma nýjungum

á framfæri erlendis og

nálgast nýja tækni eða þekkingu

erlendis frá.

Þá sér Enterprise Europe Network

um að leita að samstarfsaðilum

í Evrópu, veita upplýsingar

um útboð í Evrópu og leita eftir

viðskiptasamböndum tengdum

þeim og veita upplýsingar um

styrkjamöguleika í Evrópu, bæði

tengt 7. rammaáætluninni sem

og öðrum áætlunum Evrópusambandsins.

Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð

Íslands leiðir

Enterprise Europe Network á Íslandi

í samstarfi við Útflutningsráð

og Rannís. Kristín Halldórsdóttir,

verkefnastjóri Enterprise

Europe Network á Íslandi, segir

að nú þegar öll lönd Evrópu séu

nú í alls konar aðgerðum til að

sporna við afleiðinum þeirrar

hjöðnunar sem nú á sér stað séu

viðskiptatækifærin ótalmörg, en

sem fyrr þurfa áherslur að taka

mið af breyttum væntingum og

þörfum markaðarins.

Landsmennt , Sveitamennt og

Ríkismennt eru fræðslusjóðir

verkafólks á landsbyggðinni.

Aðildarfélögin eru 17 og er

þar um að ræða stéttarfélög

innan Starfsgreinasambands

Íslands (SGS) utan þriggja aðildarfélaga

þess á höfuðborgarsvæðinu

sem standa að Flóabandalaginu.

Helstu verkefni

sjóðanna eru að sinna stuðningsverkefnum

og þróunar-og

hvatningaraðgerðum í starfsmenntun.

Sjóðunum er ætlað

að styrkja rekstur námskeiða

og stuðla að nýjungum í námsefnisgerð

ásamt því að veita

einstaklingum, verkalýðsfélögum

og vinnuveitendum beina

styrki vegna símenntunar og

endurmenntunar.

Landsmennt er stærstur þessara

þriggja sjóða og tengist kjarasamningi

Samtaka atvinnulífsins

og verkalýðsfélaga SGS á landsbyggðinni

(ca. 22.000 manns), Ríkismennt

er þróunar og símenntunarsjóður

um 2.500 starfsmanna

ríkisins á landsbyggðinni innan

sömu félaga og Sveitamennt er

starfsmenntunarsjóður um 3.500

starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni

innan aðildarfélaga

SGS. Allir þrír sjóðirnir starfa eftir

svipuðum markmiðum og eiga

fyrst og fremst að auka möguleika

fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana

þeirra og ríkisstofnana á að

þróa starfssvið sitt þannig að það

samræmist kröfum sem gerðar

eru á hverjum tíma og efla starfsmenntun

starfsmanna svo þeir

verði færari til að takast á við

stöðugt fjölbreyttari verkefni.

Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður

sjóðanna, segir að árlega

sæki rúmlega 3.000 manns í sjóðina

um einstaklingsstyrki vegna

námskeiða eða formlegs náms.

Hæsta nýtingarhlutfallið sé hjá

félagsmönnum innan Sveitamenntar,

eða um 20% árlega, en

hjá Landsmennt og Ríkismennt

sækja milli 12 og 14% félaga árlega

um styrki vegna náms/námskeiða.

Hámarksstyrkveiting á ári

er 75% af heildarkostnaði en getur

þó aldrei orðið hærri en 60.000

krónur. Þá eiga félagsmenn rétt á

styrk vegna meiraprófs að upphæð

100.000 krónur hjá öllum

Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður

fræðslusjóðanna Landsmenntar, Ríkismenntar

og Sveitamenntar.

sjóðunum en hver einstaklingur

getur aðeins fengið slíkan styrk

einu sinni. Einnig eru styrkt kaup

á hjálpartækjum fyrir lestrarog

ritstuðning og veittir styrkir

vegna tómstundanámskeiða.

Einstaklingar sækja um styrki

til viðkomandi stéttarfélags á

þar til gerðum eyðublöðum sem

úthlutar þeim í umboði Landsmenntar,

Sveitamenntar og Ríkismenntar.

Fyrirtæki innan SA,

sveitarfélög landsbyggðarinnar,

ríkisstofnanir, stéttarfélög og/eða

fræðsluaðilar sækja um styrki

til stjórna sjóðanna með því að

senda umsókn þess efnis þar sem

fram koma helstu upplýsingar

vegna viðkomandi fræðsluverkefnis.

Til þess að auðvelda vinnuveitendum

aðgengi að sjóðunum

er hægt að sækja um með rafrænum

hætti beint frá heimasíðum

sjóðanna. Umsóknir þeirra

eru síðan eins og áður sagði afgreiddir

af stjórnum sjóðanna

sem hittast reglubundið einu

sinni í mánuði.

Sjóðirnir tvískiptir

Sjóðirnir eru tvískiptir eins og

komið hefur fram, annars vegar

styrkir til fyrirtækja, stofnana,

stéttarfélaga og fræðsluaðila og

hins vegar styrkir til einstaklinga.

Vinnuveitendur hafa margir

hverjir um land allt orðið meðvitaðir

um kosti þess að mennta

sitt starfsfólk, ekki síður en stéttarfélögin,

en símenntun starfsmanna

er oftar en ekki lykill að

Nýsköpun lykillinn að

samkeppnishæfi fyrirtækja

Nýsköpun mikilvæg forsenda

hagvaxtar

Kristín segir að nýsköpun og

tækniyfirfærsla séu mikilvægar

forsendur hagvaxtar og velferðar

landa um ókomin ár. Auk þess

gefi nýsköpun og tækniyfirfærsla

hagkerfinu meiri vídd og sé til

vitnis um virkni þess. „Alþjóðlegar

rannsóknir sýna að nýsköpun

er lykillinn að samkeppnishæfni

fyrirtækja og þjóða og líta má svo

á að velgengni þeirra stafi fyrst

og fremst af getu og færni þeirra

til nýsköpunar. Sterk og vel þróuð

nýsköpunarumgjörð bæði

hjá hinu opinbera og í almennu

viðskiptaumhverfi skapar þá nýsköpunarmenningu

sem stuðlar

að og hvetur til nýsköpunar,“ segir

Kristín.

Margir samtvinnaðir þættir

hafa þar áhrif og má gróflega

draga þá saman í þrjá flokka:

• Forsendur sem skapast af

menntun, hæfu starfsfólki, hugmyndum,

rannsóknum, einkaleyfum

og grunngerð þjóðfélagsins.

• Viðskiptaumhverfi sem

myndað er af frumkvöðlastarfsemi,

fjármagni, ráðgjöf og hæfni

stjórnenda.

• Nýsköpunarhvati sem samanstendur

af skapandi hugsun,

samskiptum og áhuga eða athygli.

„Nú sem aldrei fyrr, þarf að

taka mið af þessum áhrifavöldum

nýsköpunar, því hættan er

sú, að þegar vægi einhvers þeirra

minnkar, raskist þessi nýsköpunarumgjörð.

Íslensk fyrirtæki

standa frammi fyrir því að kaupmáttur

manna fer minnkandi, aðföng

fara hækkandi og fjármagn er

betra starfsumhverfi og aukinni

framleiðni.

Þá hafa einstaklingarnir sjálfir

verið meðvitaðir um mikilvægi

þess að mennta sig, en flestir

þeirra sem sótt hafa um styrk

hafa sótt námskeið utan síns

vinnutíma og eru t.d. að sækja

nám í framhaldsskólum, iðnskólum

eða jafnvel háskólum. Framboð

á námi hefur aukist verulega

og stöðugt fleiri námskeið gefa

einingar til frekara náms og það

eru félagsmenn að nýta sér. Einstaklingarnir

sem eiga aðild að

sjóðunum er það fólk sem vinnur

hvað lengstan starfsdaginn á

landsbyggðinni enda nýtir margt

-Enterprise Europe Network þjónustar nýsköpun í alþjóðaumhverfinu

Kristín Halldórsdóttir, verkefnastjóri

Enterprise, Europe Network á Íslandi.

Aðstoð til árangurs

Símenntunarmiðstöðvarnar hafa í raun skipt mestu máli við að koma á menntun

fyrir fólk á landsbyggðinni. Ljósm. Ingó.

af skornum skammti. Þetta getur

leitt til minnkandi áhuga eða getu

til nýsköpunar. Því er mikilvægt

að hlúa að þessari nýsköpunarumgjörð,

þ.a. við drögumst ekki

aftur úr í nýsköpun og þróun.

Með því dvínar samkeppnishæfni

okkar og lífskjör fara versnandi.

Þetta er í raun verkefnið sem við

stöndum frammi fyrir í dag; Við

þekkjum fortíðina, við erum að

ná áttum í nútíðinni, og framtíðin

sem við komum til með að skapa,

er óskrifað blað – hún er í okkar

höndum,“ segir Kristín.

Evrópumiðstöð Impru

stuðlar að samstarfi í

stofnfrumurannsóknum

Kristín segir að í gegn um Enterprise

Europe Network hafi

ýmis tengslamyndun orðið til á

milli fyrirtækja á Íslandi og annarra

landa Evrópu. „Meginmarkmiðið

er þó alltaf að aðilar fari

formlega að vinna saman. Má

þar nefna samstarfsverkefni

milli aðila innan fiskiðnaðarins,

líftæknigeirans og upplýsingatæknigeirans.

Ekki má

gleyma að aðilar í Evrópu hafa

sýnt orkumálum okkar mikinn

áhuga. Vonast er eftir samstarfi

tengdum þeim málum innan tíðar.

Ekki alls fyrir löngu náðust

mikilvægir samstarfssamningar

í stofnfrumurannsóknum milli

Blóðbankans á Íslandi og rannsóknaraðila

í Skotlandi og Spáni

þeirra sér kosti fjarnámsins og

margir sækja sér menntun sem

tengist þeirra vinnu.

Ekki má gleyma að nefna símenntunarmiðstöðvarnar

sem

hafa verið mjög mikilvægar í sambandi

við fullorðinsfræðslu almennt

og hafa í raun skipt mestu

máli við að koma á menntun fyrir

fólk á landsbyggðinni.

Að sögn Kristínar Njálsdóttur,

forstöðumanns, hefur tilkoma

fræðslusjóðanna reynst fólki raunveruleg

hvatning til að mennta sig

og hefur verið ánægjulegt að upplifa

aukningu á notkun sjóðanna

nánast á hverju ári frá því þeir

tóku til starfa.

Ef þú ert að leita að samstarfsaðilum,

styrkjum

vegna samstarfsverkefna,

þarft að koma þinni vöru eða

þjónustu á framfæri og/eða

þarft tækni eða þekkingu

sem nýtist þínu fyrirtæki

má finna nánari upplýsingar

á www.een.is

fyrir tilstilli Evrópumiðstöðvar

Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

Í þessu tilfelli kom svokallaður

„prófíll“ eða beiðni frá Blóðbankanum

þar sem þeir óskuðu eftir

samstarfi við rannsóknarstofnanir

eða fyrirtæki með ákveðna

tækni sem þeir vildu tileinka sér

í stofnfrumurannsóknum.

Þetta leiddi til samninga um

tækni- og þekkingaryfirfærslu

milli þriggja aðila, Blóðbankans,

þekkts vísindamanns í Skotalandi

og Stofnfrumubanka Spánar

Í kjölfar samningsins mun

Blóðbankinn fá aðgang að mikilvægri

þekkingu samstarfsaðila

á sviði stofnfrumurannsókna

en samstarfaðilarnir græða ekki

síður á samstarfinu því Blóðbankinn

er virt stofnun erlendis.

Þess má geta að í kjölfar vinnu

Evrópumiðstöðvar og EEN

sótti Blóðbankinn um styrk í 7.

rammaáætlun ESB í samstarfi

við fleiri aðila og var umsóknin

samþykkt,“ segir Kristín.

Það er leikur að læra

Innritun í kvöld- og f jarnám

Kvöldskóli

Byggingatækniskólinn

Raftækniskólinn

Tæknimenntaskólinn

Véltækniskólinn

Meistaraskólinn

Fjarnám

Byggingatækniskólinn

Fjölmenningarskólinn

Upplýsingatækniskólinn

Skipstjórnarskólinn

Raftækniskólinn

Véltækniskólinn

Meistaraskólinn

Lækkað verð vegna nýrrar reglugerðar

Innritun lýkur 26. ágúst.

Aðstoð við innritun 26. ágúst frá kl. 16:00 – 19:00.

Diplómanám

Endurmenntunarskólinn

Rekstur og stjórnun í atvinnulífinu

- Útvegsrekstrarfræði

- Flugrekstrarfræði

- Almenn lína í rekstri og stjórnun

- Rekstrarfræði

Lýsingarfræði

Lýsingarhönnun

Innritun fer fram á www.tskoli.is

ÓBREYTT

verð frá haust / vetur

s.l. vetri

www.myndlistaskolinn.is

barna- og unglinganámskeið

miðvikud. 15:15-17:00

laugard. 10:15-12:00

NÝTT:

3 - 5 á r a

6 - 1 2 á r a

K O R P Ú L F S S T A Ð I R

6 - 12 ára

u n g t f ó l k

2009 - 2010

3-5 ára Hildigunnur Birgisdóttir

3-5 ára Arkitektúr-Sigr.Maack / Hildur Steinþórsd.

mánud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Ína S. Hallgrímsd.Brynhildur Þorgeirsd.

þriðjud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Ína Salóme Hallgrímsdóttir

þriðjud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Arkitektúr-Sigr.Maack / Hildur Steinþórsd.

miðvikud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Anna Hallin

fimmtud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Anna Hallin eða Gerður Leifsdóttir

föstud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Björk Guðnadóttir

laugard. 10:15-12:00 6 - 9 ára Björk Guðnad. og Ólöf Björnsdóttir

fimmtud. 15:00-17:15 8 -11 ára Leirrennsla og mótun - Guðbjörg Kárad.

mánud. 15:00-17:15 10-12 ára Arkitektúr-Sigr. Maack/Hildur Steinþórsd.

þriðjud. 15:00-17:15 10-12 ára Myndasögur og hreyfimyndir.

Þórey Mjallhvít og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

miðvikud. 15:00-17:15 10-12 ára Myndlist, handverk og hönnun

Kristín Reynisdóttir, Bjarni Kristjánsson og Þorbjörg Þorvaldsdóttir

fimmtud. 15:00-17:15 10-12 ára Teikning / Málun Katrín Briem

laugard. 10:00-12:15 10-12 ára Leirrennsla og mótun

Guðbjörg Káradóttir og Anna Hallin

NÝTT:

NÝTT:

mánud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Korpu Elva Hreiðarsdóttir

þriðjud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Korpu Brynhildur Þorgeirsdóttir

fimmtud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Korpu NN

föstud. 15:15-17:00 6 - 9 ára Korpu Elva Hreiðarsdóttir

miðvikud. 15:00-17:15 10-12 ára Korpu Brynhildur Þorgeirsdóttir

föstud. 16:00-19:00 13-16 ára Teikn-málun-Þorbj.Þorvaldsd/JBK Ransu

föstud. 16:00-19:00 13-16 ára Leirmótun - Guðný Magnúsdóttir

laugard. 10:00-13:00 13-16 ára Myndasögur f. ungt fólk - Bjarni Hinrikss.

laugard. 10:00-13:00 13-16 Myndrænar rokkstjörnur - Sara Riel

NÝTT:

almenn námskeið

mánud. 17:30-21:30 Teikning 1 Eygló Harðardóttir

miðvikud. 17:30-21:30 Teikning 1 Kristín Reynisdóttir

þriðjud. 17:30-21:30 Teikning 2 Sólveig Aðalsteinsd.

miðvikud. 09.00-11.45 Teikning 1 morgunt. Eygló Harðardóttir

miðvikud. 09:00-11:45 Teikning 2 morgunt. Katrín Briem

mánud. 17:45-21:30 Módelteikning Þorbjörg Þorvaldsdóttir

miðvikud. 17:45-20:30 Módelteikning frh. Katrín Briem

fimmtud. 17:30-21:40 Litaskynjun Eygló Harðardóttir

þriðjud. 17:30-20:15 Málun 1 - Þorri Hringsson og gestakennari.

mánud. 17:30-20:15 Málun 2 - Sigtryggur B.Baldvinsson og gestak.

miðvikud. 17.30-20.15 Málun 3 - Mögul. Formsins morgunt.- JBK Ransú

fimmtud. 17.30-20.15 Málun 4 - Málað gegnum listasöguna - JBK Ransú

laugard. 10.00-12.45 Málun 4 - Módel- og Portretmálun

Karl Jóhann Jónsson og Birgir Snæbjörn Birgisson

föstud. 09.00-11.45 Málun 1 morguntímar - Þorri Hringsson

föstud. 09.00-11.45 Málun 2 morguntímar - Sigtryggur B. Baldvinsson

miðvikud. 09.00-11.45 Málun 3 morgunt. Mögul. Formsins.- JBK Ransú

föstud. 13:00-15:45 Frjáls málun - Sigtryggur B. Baldvinsson

þriðjud. 17:30-20:15 Vatnslitun byrjendur - Ásdís Arnardóttir og gestak.

þriðjud. 17:30-20:15 Vatnslitun framhald- Hlíf Ásgrímsdóttir og gestak.

miðvikud. 09:00-11:45 Vatnslitun /Teikning morgunt.Hlíf Ásgrímsdóttir

fimmtud. 17:30-21:40 Litaskynjun - Eygló Harðardóttir

NÝTT:

mánud. 17:30-20:15 Leirkerarennsla Guðbjörg Káradóttir

þriðjud. 17:30-20:25 Leirmótun og rennsla Guðný Magnúsdóttir

miðvikud. 18:00-22:00 Grundvallaratriði í keramiki - KEV173

Guðbjörg Káradóttir og Guðný Magnúsdóttir

fös - lau tími sjá lýs. Listsköpun -Viðskipti - Margrét Sigurðardóttir

miðvikud. 17:30-20:40 Form, rými og hönnun - Sólveig Aðalsteinsd.

Brynhildur Pálsd. og Guja Dögg Hauksd.

Þ-M-F-F-L tími sjá lýs. InDesign-Photoshop - Magnús Valur Pálss.

fimmtud. 17:30-21:40 Litaskynjun - Eygló Harðardóttir

mán og lau. tími sjá lýs. Ljósm. sv/hv - Erla Stefánsdóttir

sun og þri. tími sjá lýs. Ljósm. sv/hv frh.-Erla Stefánsd./Vigfús Birgiss.

mán og lau. tími sjá lýs. Ljósmyndun stafræn - Brooks Walker

þri. og sun. tími sjá lýs. Ljósmyndun stafræn framhald- Brooks Walker.

LJÓSMYNDANÁMSKEIÐIN BYRJA 5. OG 6. SEPTEMBER

NÝTT:

NÝTT:

t e i k n i n g

NÝTT:

m á l u n

k e r a m i k

ý m i s n á m s k e i ð

l j ó s m y n d u n

www.myndlistaskolinn.is

INNRITUN HAFIN

sími 551-1990 á skrifstofutíma mán-fim kl.13-17 og fös kl.13-16
38 • Menntun, námskeið og nýsköpun

Ferðamálaskóli Íslands

Eini viðurkenndi, alþjóðlegi ferðamálaskólinn á landinu

Ferðamálaskóli Íslands hefur

margra ára reynslu í að kenna

fólki hvernig taka ber á móti

erlendum ferðamönnum sem

koma til Íslands og ekki síður

þeim sem leiðsegja Íslendingum

erlendis. Nám í Ferðamálaskólanum

er fjórskipt og skólastjóri

er Friðjón Sæmundsson.

„Í fyrsta lagi er þetta alþjóðlegur

skóli á vegum IATA, alþjóðasamtaka

flugfélaga og

ferðaskrifstofa. Kennd er ferðaráðgjöf

sem er viðurkennd um

allan heim enda krafa um að

fólk sem sinnir þessum störfum

státi af IATA-prófi. Við erum

eini skólinn hér sem býður þetta

nám og höfum gert í 20 ár,“ segir

Friðjón.

Í Ferðamálskólanum er einnig

kennd IATA UFFTA sölu- og

markaðsfræði sem er fyrir alla

sem eru í ferðaþjónustu, jafnt

ferðaskrifstofur, flugfélög. bílaleigur

og smærri fyrirtæki þar

sem þekking í sölu- og markaðsfræði

tengdri ferðmálum

er bráðnauðsynleg. Námsefnið

beggja þessara námsbrauta

kemur frá IATA UFFTA og

prófin sömuleiðis. Allt efni er

á ensku en kennslan fer fram á

íslensku. Friðjón segir að mikilvægt

sé að hafa IATA UFFTA

próf enda gildi það um allan

heim og gefi fólki möguleika á

að starfa á þessu sviði erlendis.

Í leiðsögunáminu, sem er

þriðja brautin í skólanum, lærir

fólk að taka á móti erlendum

ferðamönnum. Námsefnið er

fjölbreytt, allt frá sögu og bókmenntum

að raddbeitingu, tjáningu

og framkomu. Námið er

Um miðjan maí mánuð síðastliðinn

opnaði Hugmyndahús

Háskólanna frumkvöðlasetur

þar sem tugir hugmyndaríkra

aðila vinna nú hörðum höndum

við að þróa spennandi

hugmyndir og skapa á sama

tíma fjöldamörg atvinnutækifæri

sem munu vafalaust

koma sér vel fyrir land og

þjóð miðað við ástand vinnumarkaðarins

í dag. Gunnar

Karl Níelsson, verkefnastjóri

Hugmyndahúss Háskólanna,

segist ekki í nokkrum

vafa um að slíkt umhverfi sé

nauðsynlegt til að veita fólki

þann stuðning sem þarf til að

breyta góðri hugmynd í fullmótað

fyrirtæki.

Hugmyndahús

Háskólanna

tvær annir og hefst í október og

lýkur í maí.

Þörfin fyrir leiðsögumenn er

gífurleg, enda fjölgar erlendum

ferðamönnum hér ár frá

ári. Í lokin er tekið próf í þeim

tungumálum sem menn velja að

sérhæfa sig í. Flestir velja ensku

en hins vegar vantar fólk með

spænsku-, rússnesku- og jafnvel

ítölskukunnáttu því að ferðamönnum

frá þessum löndum

hefur fjölgað mikið. Nokkuð er

um að útlendingar búsettir hér

stundi nám í Ferðamálaskólanum

og mikill akkur er í að fá

þá til að leiðsegja löndum sínum

sem hingað koma.

Fjórða námsleiðin í Ferðamálaskóla

Íslands er fararstjórn

erlendis. Á þessari braut lærir

fólk um menningu, listir og sögu

og heimsálfurnar eru teknar

fyrir, hver fyrir sig, sem og valdir

ferðamannastaðir. Jóhanna

Kristjónsdóttir kennir fólki um

Mið-Austurlönd, Sigurður A.

Magnússon fjallar um Grikkland,

Magnús Björnsson um

Kína og Ómar Valdimarsson um

Austurlönd fjær. Guðfræði- og

trúarbragðafræðsla er í höndum

Bjarna Randvers Sigurvinssonar

og séra Bjarna Karlssonar.

Pétur Óli Pétursson kennir

mönnum allt um Rússland og

Kjartan Trausti Sigurðsson, sem

er með 30 ára starfsreynslu sem

fararstjóri erlendis, tekur fyrir

Tyrkland, Spán, Portúgal, Kúbu

og Kanaríeyjar en á þessum

stöðum er hann svo sannarlega

á heimavelli. Pétur Björnsson,

konsúll Ítala, fræðir um heimsálfurnar

sem og Ítalíu.

er samstarfsverkefni Háskólans

í Reykjavík og Listaháskóla

Íslands. Á meðal markmiða

Friðjón Sæmundsson skólastjóri. Ljósm. Ingó

„Þó að kreppi nú að hjá okkur

Íslendingum ferðast fólk alltaf

eitthvað og ferðalög munu

alls ekki leggjast af. Erlendir

ferðamenn halda líka áfram að

streyma hingað eins og verið hefur.

Því má segja að nám í Ferðamálaskólanum

sé mjög gagnlegt

og gefi mönnum margvísleg

atvinnutækifæri,“ segir Friðjón

Sæmundsson skólastjóri.

Útskriftarhópur frá

Ferðamálaskóla Íslands.

Listir, verkfræði og viðskipti

krauma í hverju horni

Hugmyndahússins er að stuðla

að stofnun að minnsta kosti 50

fyrirtækja innan tveggja ára sem

veiti að minnsta kosti 500 manns

atvinnu og að minnsta kosti

3.000 manns nýti sér starfsemi

hússins. Nú þegar eru um sjötíu

manns með fast aðsetur í Hugmyndahúsinu

að vinna að einum

17 mismunandi hugmyndum.

Gunnar segir að þó að aðstaðan

sé ef til vill frekar hrá þá sé þar

allt til alls, þar sé kaffihús, fullkomið

vídeóstúdíó af bestu gerð,

salur sem rúmar 200 manns í

sætum og aðstaða til að taka á

móti þeim sem eru ekki með

fasta aðstöðu í húsinu.

Svar við

markaðshruninu

Hugmyndahúsinu var hrundið

af stað sem svari við þörfum

markaðarins eftir hrunið, að

sögn Gunnars. „Svafa Grönfeldt

og Hjálmar Ragnarsson

eiga upphaflegu hugmyndina að

þessu húsi og vildu með því búa

til einhverja aðstöðu þar sem listir,

verkfræði og viðskipti myndu

krauma í hverju horni. Nú þegar

æ fleiri fyrirtæki lognast út af

þarf að skapa önnur í staðinn til

að viðhalda jafnvægi í atvinnulífinu

og við teljum Hugmyndahúsið

gera það,“ segir Gunnar.

Gunnar segir að Hugmyndahúsið

virki í raun sem fyrsti

hlekkurinn í „virðiskeðjunni“.

„Fólk kemur hingað inn með

hugmynd og vinnur að henni

með það að markmiði að úr

Hugmyndahús Háskólanna

Í Hugmyndahúsi Háskólanna eru fjöldi fyrirtæki þar má m.a.

nefna; Exedra, fyrirtækið Clara, RECTV, Medizza og MindGames.

Jafnframt hefur aðsetur í húsinu Hugmyndaráðuneytið.

Hugmyndaráðuneytið er grasrótarhreyfing sem stuðlar m.a.

að nýsköpun á Íslandi.

MindGames stefnir að því að setja á markað tölvuleik fyrir

farsíma sem stýrt er með litlum og handhægum heilabylgjuskanna.

Hann getur lesið hugarástand spilarans og notað það

við stjórnun leiksins.

Clara er tæplega tveggja ára gamalt fyrirtæki sem hefur frá

stofnun unnið að þróun að næstu kynslóðar markaðsrannsóknartóla.

Exedra er vettvangur umræðna fyrir valinn hóp áhrifamikilla

kvenna úr öllu atvinnulífinu, t.a.m. úr viðskiptum, stjórnmálum,

fjölmiðlum, menntamálum, heilbrigðismálum, hópi sérfræðinga

og listamanna.

RECTV er eitt fullkomnasta upptökustúdíó landsins sem hefur

m.a. búnað til beinna útsendinga ofl.

Medizza er hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar hugbúnað í næstu

kynslóð opinna myndlykla.

henni verði fullmótað fyrirtæki.

Þessir aðilar geta svo fengið

aðstoð frá sérfræðingum sem

við erum með á okkar snærum

sem og stuðning og aðstoð frá

öðrum fyrirtækjum sem þegar

eru inni í Hugmyndahúsinu. Þá

eru stærstu grasrótaraðilar sem

eru enn á lífi í húsinu; Stofnun

og rekstur fyrirtækja og Hugmyndaráðuneytið,“

segir Gunnar.

Hann leggur mikla áherslu á

mikilvægi þess að fá stuðning

jafningja sem eru gjarnan að

ganga í gegn um sömu hlutina

þegar kemur að því að stofna og

þróa nýtt fyrirtæki og segir það

raunar vera skilyrði fyrir veru

í húsinu að hjálpast að. „Þegar

við metum þær hugmyndir sem

okkur berast, metum við þær

aðallega út frá því hvort þær

bæti einhverju við þann hóp

sem fyrir er í húsinni. Til dæmis

myndi fjármálafyrirtæki bæta

við heilmiklu gildi fyrir önnur

fyrirtæki í húsinu þegar þarf að

gera fjárhagsáætlanir og annað

slíkt. Þannig reynum við að meta

heildaráhrifin sem nýjar hugmyndir

kunna að hafa á þann

hóp sem við erum með, þetta er

því í raun draumaland fyrir hópsálir,“

segir Gunnar.

Tengslanetið

nauðsynlegt

Gunnar leggur mikla áherslu á

samvinnuna og segir að viðveru

í Hugmyndahúsinu fylgi í raun

bara tvær kvaðir, annars vegar

þarf að mæta og hins vegar að

vera reiðubúinn í samvinnu. „Við

sjáum að hlutirnir ganga miklu

hraðar í slíku umhverfi, en til

dæmis við eldhúsborðið heima.

Hér getur fólk tengst fólki sem

getur ef til vill helmingað tímann

sem það tekur að koma hugmynd

á koppinn,“ segir Gunnar.

F í t o n / S Í A

HEFUR ÞÚ

HUGMYND?

Sendu inn

hugmynd á

n1.is/start

N1 kynnir hugmyndasamkeppni

sem er annar áfangi

verkefnisins Start09 sem

hófst með fjölsóttum hugmyndafundi

í Borgarleikhúsinu

í júní

Markmiðið er að hvetja fólk og fyrirtæki

til nýrrar sóknar og uppbyggingar um

allt land og leysa nýjar hugmyndir úr

læðingi til að auka verðmætasköpun í

landinu.

Sendu inn þína hugmynd á

n1.is/start

Allir geta tekið þátt í samkeppninni,

sérfræðingar jafnt sem almenningur,

börn og fullorðnir. Eina skilyrðið er að

hugmyndin snúist um aukna

verðmætasköpun á Íslandi.

Vegleg verðlaun í boði

Dómnefnd mun verðlauna myndarlega

þær hugmyndir sem skara fram úr. Þar

að auki mun N1 leita leiða til að hrinda

sem flestum góðum hugmyndum í

framkvæmd, t.d. í samvinnu við önnur

fyrirtæki.

Dómnefnd skipa

Hermann Guðmundsson, forstjóri N1

Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ

Ragnheiður H. Magnúsdóttir, annar stofnenda Uppsprettu

Jeff Taylor, frumkvöðull, stofnandi monster.com

Guðjón Már Guðjónsson, Hugmyndaráðuneytismaður

Nánari upplýsingar um innsendingu hugmynda er

að finna á www.n1.is/start, heimasíðu verkefnisins.
SALÍBUNA!

Í LAUGARDALSLAUG

Skelltu þér í sund í Laugardalslauginni og prófaðu

nýju rennibrautina sem er ein sú glæsilegasta á landinu.

Við lofum fjöri og fiðringi!

Sumarafgreiðslutími:

Virka daga kl. 6:30–22:30

Helgar kl. 8:00–22:00

F Í T O N / S Í A