Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
EM í Serbíu 2012 EM í Serbíu 2012

Rétta hugarfarið og fítonskrafturinn er til staðar

EM viðtal við Aron Pálmarsson

Þetta er þriðja mótið sem Aron Pálmarsson

er að fara á. En fólki finnst

eins og hann hafi alltaf verið með

liðinu og þá sérstaklega í gegnum

sigurtíðina sem byrjaði í Peking.

„Já, ég er náttúrulega búinn að vera í landsliðinu

í þrjú og hálft ár og um leið og ég kom

inn í hópinn var mér tekið mjög vel. Ég náði

öllum hlutum mjög fljótt sem landsliðið var

að gera og komst þannig inn í leikstílinn, skildi

hvað dæmið gekk út á. Þekkti kerfin fljótlega

mjög vel og vissi um hvað hlutirnir snérust. Ég

veit ekki af hverju fólki finnst að ég hafi verið

svo lengi, en er það ekki bara jákvætt?“ segir

Aron Pálmarsson fullur eftirvæntingar fyrir því

að fara á sitt þriðja stórmót með landsliðinu og

hefur aldrei verið í betra formi.

-Fólk hefur oft verið að undrast yfir því

að þú varst ekki með á Ólympíuleikunum

2008?

„Já, ég hef oft verið kallaður einn af silfurdrengjunum,

en ég minni oft fólk á það að þá var ég

bara nýorðinn 18 ára gamall og ekki alveg

kominn inn í þennan klassa sem A-landsliðið

er,“ segir Aron.

-Fólk hefur tekið eftir miklum farmförum

hjá þér frá því að þú byrjaðir með landsliðinu.

Ef þú berð saman, þetta fyrsta mót

þitt á EM 2010 og mótið nú, er þetta ekki

allt öðruvísi fyrir þig?

„Ég hef þroskast mjög mikið síðustu tvö árin,

það er ekki hægt að neita því, bæði persónulega

og handboltalega séð. Ég hafði að vísu

reynt það að fara á stórmót með unglingalandsliðinu,

en þetta er svoleiðis allt, allt öðruvísi.

Áður en ég fór á EM 2010 var ég búinn að

vera úti í hálft ár í atvinnumennskunni og hafði

spilað með heimsklassa leikmönnum, þannig

að það sem slíkt kom mér kannski ekki á óvart,

en stemningin í kringum svona stórmót, bæði

hérna heima og svo úti, er alveg ótrúleg. Núna

er maður auðvitað reynslunni ríkari og á leiðinni

á sitt þriðja stórmót. Það hefur í för með

sér meiri pressu og það má ætla að það séu

gerðar meiri væntingar til manns. Maður verður

að standa undir nafni og standa fyrir sínu.“

-Hefurðu orðið var við meiri væntingar til

þín fyrir þetta mót en áður?

„Já, ég hef heyrt svona aðeins um það. Mér

hefur vegnað mjög vel í Þýskalandi síðustu

tvö árin, þar sem ég spila með heimsklassaliði.

Maður hefur fundið fyrir því að fólk lítur ekki

lengur á mig sem unga og efnilega strákinn

í liðinu, heldur er farið að reikna með miklu

meira af manni og gerir kröfur og væntingar.

Það er náttúrulega klárlega eitt af mínum

markmiðum að standa mig vel og stíga fram

og gera það sem af manni er krafist og ætlast.

Maður verður ekki bara efnilegur alveg til

þrítugs! Það kemur ávallt að þeim tímapunkti

að menn verða stíga fram í ábyrgð og gera sér

grein fyrir því hvað sé manns hlutverk og framkvæma

það. Ég ætla einmitt að ná því sem

fyrst út og gera allt sem ég get til þess að liðinu

gangi vel og ekkert að vera að bíða með

það,“ segir Aron og má skynja eldmóðinn hjá

honum.

-Þú hoppaðir út í djúpu laugina mjög ungur

árið 2009 og byrjaðir að spila með einu

af bestu handboltaliðum heims, þar sem

voru troðfullar hallir og mikil stemning.

Hefur þetta ekki gefið þér alveg geysilega

mikið, bæði í þroska og auknu sjálfstrausti?

„Jú, algjörlega, þetta er búinn að vera mikil

og góður reynslutími og hef ég lært alveg

afskaplega mikið til þess að verða betri handboltamaður

á þessum tíma. Þá bæði varðandi

skilninginn á leiknum og hvað þarf að gera til

þess að dæmið gangi upp. Ég er að spila með

þannig liði í Þýskalandi sem hefur gefið mér

alveg geysilega mikið. Það eru mikil forréttindi

að fá að spila með svona liði eins og Kiel

með öllum þessum frábæru, reynslumiklu leikmönnum.

Það eru miklar kröfur gerðar til okkar

og þegar við göngum til leiks, þá er ekki farið

fram á annað en sigur. Þetta hefur skilað okkur

miklu og erum við t.a.m. að spila um alla helstu

titla, bæði í Þýskalandi og á Evrópumótunum.

Ég hef fengið það innstimplað inn í hugarfarið

hvernig það er að spila með liði sem ætlar

sér ekkert annað en að sigra og vinna alla þá

titla sem í boði eru. Þannig hugarfar er mjög

mikilvægt að hafa og ég tala nú ekki um að

hafa reynt og upplifað það í eigin persónu. Svo

þegar að landsliðinu er komið, þar sem saman

koma bestu leikmenn landsins, þá er það

mjög mikilvægt að vera með þannig hugarfar

og við getum uppörvað hver annan og smitað

út frá okkur sigurhugarfarinu. Ég finn fyrir

þessu hugarfari hjá okkur í íslenska landsliðinu

og flestir okkar þekkja það af eigin raun,“ segir

Aron.

Á öllum sínum ferli þá hefur Aron tekið út

meiri þroska á þessum tíma og eflst mjög

mikið sem handboltamaður síðan hann

fór til Kiel.

„Ég var mjög ungur þegar ég fór út og vissi

í rauninni ekkert hvað ég var að fara út í. Ég

flutti einn þarna út 19 ára og kunni ekkert

í tungumálinu og svo þekkti ég fáa. Þetta

var alveg nýtt fyrir mér og allt öðruvísi, bæði

félagslega og andlega. Þetta getur verið erfitt

að fara svona ómótaður og ungur út í svona

mikla hluti og „feisa“ alvöruna eins og hún er í

atvinnumennskunni í handboltanum. Það tók

svolítið á fyrsta árið, sérstaklega andlega, en

svo þegar maður fór að venjast þessu og stilla

sig inn á þetta, þá kom þetta allt saman. Handboltinn

sem slíkur kom mér kannski ekkert svo

á óvart. En maður þurfti að hafa sig allan við.

Þetta gengur svo mikið út á það að vera klár

og tilbúinn og vera á tánum allan tímann. Það

er ekki hægt að leyfa sér að slaka á eða taka

því rólega, maður verður að vera vel einbeittur

allan tímann. Þetta eru allt saman toppklassa

alvöru leikir sem við erum að spila, með öllu

sínu álagi. En umfram allt, þá er þetta bara svo

skemmtilegt og er ég mjög þakklátur fyrir það

að fá að ganga í gegnum þennan skóla að spila

með slíku klassaliði,“ segir Aron þegar hann rifjar

upp fyrstu árin sín í atvinnumennskunni.

-Alfreð Gíslason er nú að þjálfa liðið. Hefur

hann ekki reynst þér vel?

„Jú, vissulega, þó ég geti alveg sagt að hann

hafi ekkert verið að hlífa manni með einhverjum

bómulli, var jafnvel harðastur við mig af

öllum. Nei, nei, ég segi bara svona. Auðvitað

var afskaplega gott að eiga hann að og þegar

hugsa til baka þá hefði ég kannski ekki haft

það af fyrsta árið ef að hann hefði ekki verið

þarna. Kara, kona Alfreð, er ein yndislegasta

kona sem ég hef kynnst og hefur hjálpað mér

með allt og verið mér innan handar, hvort sem

er innan vallar eða utan. Þannig að bæði Alfreð

og Klara hafa reynst mér alveg ákaflega vel og

ég væri örugglega ekki það sem ég er í dag ef

þeirra hefði ekki notið við,“ segir Aron.

-Nú er hópurinn góði að fara saman á enn

eitt stórmótið. Hvernig finnst þér þetta

hafa gengið í undirbúningnum og finnurðu

fyrir sama gamla góða neistanum í

liðinu?

„Já, ég finn fyrir neistanum í liðinu. Það hefur

ekkert breyst og það er sami eldmóðurinn í

okkur strákunum sem við smitum hvern annan

af. Það er alltaf mikil uppörvun að koma hérna

heim, hitta strákana og gíra sig inn fyrir mótið,

og svo hitta fjölskylduna, vini og vandamenn

og vera í snertingu við þjóðina. Ég finn alltaf

strax á fyrstu æfingunni með liðinu fyrir metnaðinum

og kraftinum, það er svo mikill keppnisandi

í hópnum. Það langar öllum svo innilega

að gera það gott og ná árangri og stefna einbeittir

að því. Þá hjálpar það mikið til hvað við

finnum fyrir miklum væntingum og vonum

frá nær allri þjóðinni, sem setur aukna pressu

á okkur og kveikir í okkur. Það virkar sem stöðug

hvatning á okkur til þess að ná góðum árangri

og ekkert annað. Við finnum svo berlega

hvernig þjóðin styður við bakið á okkur og allan

meðbyrinn sem því fylgir. Það er um 90%

áhorf á þessa leiki okkar á stórmótunum og

við finnum það svo sterkt og meðtökum það

í hópnum sem heild og mér finnst það alveg

gríðarlega spennandi. Þetta eru svo skemmtilegir

strákar í hópnum og alltaf jafn gaman

þegar við hittumst og keppum allir sem einn

að sama markinu. Guðmundur þjálfari nær að

halda svo vel utan um þetta, ásamt þeim sem

eru honum til aðstoðar. Þannig að neistinn er

alltaf til staðar og það þarf ekki mikið til, þegar

hópurinn hittist hér á Íslandi, til þess að hann

geri vart við sig og fari að virka. Það að fara að

taka þátt í erfiðu móti með öllum sínum undirbúningi

virkar ekki endilega á okkur sem eitthvert

erfitt verkefni sem við þurfum að leysa

af hendi, heldur brýst miklu frekar fram sem

einhver ákefð sem leysir út þennan fítonskraft.

Það er því mjög svo gaman að þessu og mikil

tilhlökkun. Eftir að við fórum að sjá að það væri

virkilega mögulegt fyrir okkur að ná árangri á

stórmótum, þá breyttist eitthvað innra með

okkur og hefur haldist síðan. Það segir margt

um þetta að við sögðum hver við annan að

við hefðum BARA náð 6. sætinu á HM, eins og

við gerðum í fyrra, og vorum drullufúlir yfir því

að komast ekki í undanúrslit. Ég sé þetta alla

vega þannig fyrir mér að það sé enginn efi í

mínum huga og þá skiptir engu máli á móti

hverjum við erum að fara að spila, við ætlum

bara sigra leikinn. Ég er ekkert að vekja upp

einhverja tilfinningu eða hugsun um að það sé

bölvað að þurfa að mæta Spánverjum, Frökkum

eða Dönum. Þótt fjölmiðlar og alls konar

handboltaspekingar séu að spá í það hvaða

möguleika við eigum og hverja við komum til

með að spila við í milliriðli og þess háttar, þá

hugsum við ekki þannig. Við horfum til dæmis

riðilinn okkar á EM í ár sem flottan sterkan riðil

með góðum liðum og hlökkum mikið til þess

að takast á við þessa áskorun. Það er hugsun

okkar númer eitt. Svo þegar í milliriðil er komið,

þá tekur bara næsta áskorun við og við eflumst

í tilhlökkuninni um það að takast á við

jafnvel enn betri lið. Við ögrum okkur sjálfum

með því sama í tilhlökkuninni um það hvað

það verði nú gaman að eiga við þessi lið og

sigra þau. Við sjáum þessi lið sem hafa þessum

frábæru leikmönnum á að skipa og segjum

bara; gott mál. Við erum líka með svo góða

leikmenn og góðan þjálfara og leikskipulagið

á hreinu og förum með það markmið í hvern

einasta leik að sigra hann. Þetta er hugarfarið

og andinn. Svo verður útkoman bara að koma

í ljós. Við höfum trú á því að við getum sigrað

hvaða lið sem er og höfum reynslu af því, þótt

það komi á móti að við getum líka tapað fyrir

hvaða liði sem er á svona stórmóti eins og EM,

því þar spila aðeins góðar þjóðir í handbolta.

Maður hefur heyrt það að mörgum þjóðum

finnist ekkert skemmtilegt að þurfa að spila

við okkur á stórmóti og vilja helst sleppa við

það. Það er svo mikið keppniskap hjá okkur og

þjóðerniskennd. Við erum að spila fyrir þjóðarstoltið.

Það er ólíkt því sem er hjá sumum

þjóðunum þar sem leikmenn eru að fá miklar

fúlgur fyrir að spila á stórmóti og það á að vera

hvatningin til þess að ná árangri. Það er ekkert

svoleiðis hjá okkur. Það er óviðjafnanlegt að fá

að spila með íslenska landsliðinu í handbolta.

Sem dæmi má nefna að ég er að spila um

hverja helgi í Þýskalandi í troðfullum höllum

sem taka hátt í 10.000 manns. Þegar ég kem

hérna heim í Laugardalshöllina og spila fyrir

3.500 manns, þá fæ ég hundrað sinnum meiri

gæsahúð þegar ég geng inn á völlinn þar en

þegar ég geng inn á völlin úti í höllum þar sem

eru allt að 10.000 manns. Þjóðarstoltið er mikill

drifkraftur hjá okkur, enda er svo mikil ástríða

fyrir handboltanum og landsliðinu hér á landi

sem á sér vart sinn líka innan handboltans,“

segir Aron.

Það er stundum talað um það að handboltinn

sé eitt helsta sameiningarafl íslensku

þjóðarinnar og þegar vel gengur

þá ríkur hamingjuvísitala þjóðarsálarinnar

upp úr öllu valdi.

„Það að vera með sigurhugarfarið og tilfinninguna

skiptir gríðarlega miklu máli og gerir

þetta svo miklu skemmtilegra. Það þýðir ekkert

að hittast og undirbúa sig fyrir mót með

það hugarfar hvort að við eigum einhverja

möguleika gegn þessu og þessu liði, eða hvort

við getum komist áfram, eða eigum möguleika

á að komast á eitthvert mót. Þannig hugarfar

er niðurdrepandi og bara leiðinlegt. Við höfum

svo mikla ástríðu fyrir því að gera vel fyrir landsliðið

okkar og það kemst enginn upp með það

að vera að dóla eitthvað og hugsa um eitthvað

annað en að mæta til þess að sigra. Við gerum

okkur alveg grein fyrir því að við þurfum að

vera gríðarlega vel einbeittir og leggja okkur

meira en 100% fram. Það getur enginn leyft

sér að vera að þessu með hangandi hendi eða

leggja sig bara 70-80% fram. Það verða allir að

standa saman og skila sínu hlutverki alveg í

botni. Það þarf að vera með hugarfarið og einbeitinguna

í lagi, annars getur illa farið,“ segir

Aron Pálmarsson sem ætlar svo sannarlega að

standa fyrir sínu á EM og það er ekki laust við

það að maður smitist af fítonskraftinum sem

geislar af honum.

Alltaf ódýrara

á netinu

GRÆNLAND

ÍSAFJÖRÐUR

REYKJAVÍK

GRÍMSEY

AKUREYRI

ÞÓRSHÖFN

VOPNAFJÖRÐUR

EGILSSTAÐIR

FÆREYJAR

flugfelag.is

Aðeins nokkur skref á netinu og þú ferð á loft

Það getur ekki verið auðveldara.

Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem

þú finnur ódýrustu fargjöldin og að

auki frábær tilboð.

Smelltu þér á flugfelag.is,

taktu flugið og njóttu dagsins.

ÍSLENSKA SIA.IS FLU 57822 01.2012