You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
28

EM í Serbíu 2012

Allt undir okkur sjálfum komið að standa okkur

EM viðtal við Arnór Atlason

„Það er alltaf sami spenningurinn í manni og

tilhlökkunin að taka þátt í þessu janúarmóti

með íslenska landsliðinu. Ekkert nema gaman

og mikil tilhlökkun. Það gefur manni alltaf svo

mikið að hitta strákana, komast í stemninguna,

koma heim til Íslands og ná tengingunni við

landið. Þetta er í eðli sínu stórt ár sem við eigum

framundan í landsliðinu, því við ætlum

okkur að gera fína hluti á þessu móti og svo

að komast á Ólympíuleikana. Við þurfum því

að halda vel á spöðunum til þess að undirbúa

okkur sem best fyrir þessi átök og ná markmiðunum

okkar. Maður finnur alltaf strauminn frá

íslensku þjóðinni þegar maður er hérna heima

og, alltaf þegar nær dregur að hverju móti

fyrir sig, hvað þetta fær mikla athygli fólksins

í landinu og allflestir innstilltir á þetta. Þetta

gefur okkur byr undir báða vængi. Nú er svo

komið að þetta er undir okkur sjálfum komið

að standa okkur og þess vegna þurfum við að

haga að hlutunum í réttu samhengi og gefa

okkur alla í þetta,“ segir Arnór Atlason sem er

stoltur af því að vera fulltrúi þjóðarinnar sem

leikmaður íslenska liðsins á stórmóti sem nær

öll þjóðin er með hugann við.

-Ef við horfum á riðilinn í ár, þá eru þetta

mjög ólík lið sem þið eruð að fara að spila

við?

„Já, liðin eru ólík en það skiptir okkur ekki máli,

heldur förum við bara og spilum okkar leik og

höfum trú á sjálfum okkur og okkar eigin getu.

Fyrirfram séð ætti lið Króatíu að vera það erfiðasta

í riðlinum, en það hefur einkennt Króatana

svolítið að þeir verða alltaf betri og betri

þegar líða fer á mótið. Að því séðu er kannski

gott að byrja á þeim í fyrsta leik, auk þess sem

við byrjum yfirleitt mjög vel á svona stórmótum.

Við verðum vel undirbúnir fyrir leikinn

gegn Króatíu, því gera má ráð fyrir því að þessi

leikur skiptir miklu máli upp á framhaldið. Við

ætlum okkur að komast áfram í milliriðilinn,

það er fyrsta markmiðið, og þar sem má telja

líklegt að Króatía komist þangað að öllu gefnu,

þá kemur leikurinn við Króatíu til með að telja

og skipta miklu máli þegar í milliriðilinn er komið.

Þannig séð er þetta mjög mikilvægur leikur

sem við byrjum á. Að spila svo við lið Slóveníu í

Serbíu verður ekki talið okkur til tekna, því þeir

eru hálfpartinn á heimavelli. Á móti kemur að

Slóvenar hafa gengið í gegnum ýmislegt á síðustu

árum og ekkert verið sérstaklega stöðugir

á stórmótum að undanförnu. En þeir eru með

þrusugott lið og eru að stimpla sig inn aftur

enda mikil handboltaþjóð. Þetta verður hörkuleikur

sem við komum til með að spila gegn

Slóveníu, það er alveg á hreinu, en það er eitthvað

sem er bara gaman. Að spila á móti þjóðum

eins og Króatíu og Slóveníu, sem eru með

mjög blóðheit lið frá fornu fari, og það í Serbíu,

verður alveg sérstaklega gaman,“ segir Arnór.

-Svo spilum við líka við Norðmennina og

vilja þeir ekki alltaf vinna okkur eins og við

viljum alltaf vinna Danina?

„Jú, algjörlega og sem betur fer hefur þeim

ekkert gengið alltof vel að náð því að sigra

okkur. Við vitum það að þegar við spilum við

Noreg, þá þýðir það ekkert annað en hörkuleikur,

blóð, sviti og tár. Það er alveg á hreinu

að hvorugt liðið vill tapa þessum innbyrðisleik

og allt gefið til þess að ná fram sigri. Það hjálpar

okkur kannski aðeins að það eru forföll í

hópnum hjá þeim, en þeir eru með mjög gott

lið og breiðan hóp. Ef litið er á það með hvaða

liðum þeir eru að spila, þá segir það sína sögu.

Það eru nokkrir leikmenn þarna sem hafa verið

okkur frekar erfiðir í gegnum tíðina, þetta eru

heimsklassa leikmenn, en við verðum tilbúnir

að mæta þeim eins og vera ber. Þessir sterku

leikmenn norska liðsins geta átt mjög misjafna

leiki, geta hitt á alveg toppleik þar sem að allt

gengur upp og svo dottið niður þess á milli.

Það verður forvitnilegt að sjá hvernig Norðmönnum

tekst upp á móti okkur og á hvernig

dag þeir hitta.“

„Það kemur ekkert annað til greina hjá okkur

en að komast upp úr riðlinum og við förum

í hvern einasta leik til þess að vinna hann.

Við gerum okkur grein fyrir þýðingu þess að

standa sig vel í riðlinum upp á framhaldið. Ef

við spjörum okkur ekki vel í riðlakeppninni og

tökum ekki mikið af stigum með okkur þangað,

þá minnka möguleikar okkar verulega á

því að ná góðum árangri á þessu móti, því í

milliriðlinum bíða okkar þvílíkir mótherjar. Við

verðum því að fara með sem flest stig áfram

til þess að eiga einhverja möguleika í milliriðlinum,“

segir Arnór Atlason þegar við fórum að

velta því fyrir okkur hvað riðillinn væri tvísýnn

og að allt gæti gerst. Ekkert lið virðist öruggt

með það að komast áfram.

-Hvaða lið heldur þú að verði í milliriðlinum?

„Það er voðalega erfitt að segja. EM er svo

svakalega sterkt mót og öll liðin eru líkleg til

þess að geta spjarað sig. Þó hægt sé að bóka

að Frakkar og Spánverjar verði í milliriðlinum,

liðin sem lentu í fyrsta og þriðja sæti á síðasta

heimsmeistaramóti, þá getur allt gerst á svona

sterku móti. Rússar og Ungverjar eru með

mjög góð lið og aldrei að vita hvað þau koma

til með að gera. Við erum klárlega í erfiðari

helmingnum á þessu móti svona fljótt á litið,

þ.e. að milliriðillinn úr riðlum C og D er sterkari

en hin milliriðillinn. Annars eru öll liðin góð á

EM og allir geta unnið alla eins og við ræddum

um áðan. Það er fyrst og síðast okkar að standa

okkur, hafa trú á okkur og ná þeim markmiðum

sem við ætlum okkur,“ segir Arnór Atlason

og er bjartsýnn á gengi íslenska liðsins í Serbíu,

en segir að liðið verði að halda vöku sinni, annars

geti brugðið til beggja vona.

Sterkur

leikur

Hvernig fara leikirnir?

Ísland - Slóvenía

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A / A c t a v i s 1 1 2 1 6 1

Ásbjörn

Sveinbjörnsson:

Guðríður Guðjónsdóttir:

Ingi Þór Guðmundsson:

Logi Geirsson:

Ásbjörn Sveinbjörnsson: Snúinn leikur þar sem íslenska liðið leiðir með þremur mörkum

allan leikinn og landar síðan fimm marka sigri, 30:25, og sigrar í riðlinum.

Guðríður Guðjónsdóttir: Þeir eiga 2-3 heimsklassa leikmenn en annars er þetta lið sem

við eigum að klára á venjulegum degi. Þeir spila venjulega „aggressíva“ vörn sem hentar

okkur ágætlega. Sigur 35 - 29.

Ingi Þór Guðmundsson: Síðasti leikur Íslands í riðlakeppninni er við Slóveníu og unnum

við þá í æfingamóti í Danmörku rétt fyrir EM og reikna ég með jöfnum leik en íslenskum

sigri, en þetta gæti þó endað með óvæntu jafntefli, 35 - 34 fyrir Ísland.

Logi Geirsson: Jafntefli 27 - 27. Slóvenar ætla að selja sig dýrt og spila sterka vörn og agaðan

sóknarleik með einn besta miðjumann í heimi. Þessi leikur getur dottið hvoru megin

sem er.

Páll Ólafsson: Siggi Sveins: Valdimar Grímsson

Páll Ólafsson: Þetta verður „töff“ leikur, eins og reyndar allir leikir í þessari keppni. Eftir

góða byrjun í mótinu er erfitt að fylgja því eftir. En ég hef bullandi trú á okkar mönnum.

Við vinnum þennan leik eftir mikla baráttu og mikil læti. Það verður mikil barátta í þessum

leik og gæti hann kostað okkur eitthvað síðar í keppninni.

Siggi Sveins: Þetta er lykilleikur upp á framhaldið en við þurfum sigur til að fara áfram

með 2 - 4 stig. Slóvenarnir eru með gott lið en hafa kannski ekki náð saman, eins og svo

oft með þennan blóðheita þjóðflokk. Aftur á móti um leið og þeir fá „blod pa tannen“, þá

geta þeir verið erfiðari en andskotinn. Þetta er skyldusigur fyrir okkar menn og allir verða

að gera sér grein fyrir því og gefa allt af sér í þessum leik. Guðmundur verður að nota alla

leikmenn liðsins, því framhaldið er enginn barnaleikur.

Valdimar Grímsson: Eins og alltaf verður þessi leikur mikil barrátta um það hverjir komast

áfram og reikna ég með að þessi leikur endi 31-31.

Íbúfen ®

– Bólgueyðandi og verkjastillandi

Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen tilheyrir flokki lyfja sem kölluð eru NSAID lyf (bólgueyðandi lyf sem ekki eru sterar). Íbúfen er notað við

vægum til meðal miklum verkjum eins og höfuðverk, mígreni, tannpínu, tíðaverkjum og hita. Ekki má taka Íbúfen: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir íbúprófeni, öðrum skyldum lyfjum eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem

fengið hafa ofnæmisviðbrögð eins og astma, nefrennsli, útbrot með kláða eða ef varir, andlit, tunga eða háls hafa bólgnað upp eftir að hafa tekið íbúprófen eða skyld lyf. Þeir sem þjáðst hafa af sárum eða blæðingum í

maga eða smáþörmum (skeifugörn) í tengslum við fyrri notkun bólgueyðandi verkjalyfja, þjást núna af sárum eða blæðingum í maga eða smáþörmum (skeifugörn) eða hafa áður þjáðst af slíku, tvisvar eða oftar, með

alvarleg lifrar-, nýrna-, eða hjartavandamál (kransæðasjúkdómar meðtaldir), þeir sem þjást af umtalsverðum vökvaskorti (vegna uppkasta, niðurgangs eða of lítillar vökvaneyslu), eru með einhverjar blæðingar

(blæðingar í heila meðtaldar), eru með sjúkdóm af óþekktum uppruna sem leiðir til óeðlilegrar myndunar blóðfrumna. Sérstök varnaðarorð: Þeir sem eru með rauða úlfa (SLE) eða aðra sjálfsnæmissjúkdóma, arfgengan

sjúkdóm sem hefur áhrif á blóðrauða, hemoglóbín (purpuraveiki), langvarandi bólgusjúkdóma í þörmum eins og bólgur í ristli með sárum (sáraristilbólgu), bólgur í meltingarvegi (Crohn´s) eða aðra maga- eða þarmasjúkdóma,

truflanir á blóðfrumnamyndun, vandamál tengd blóðstorknun, ofnæmi, ofnæmiskvef, astma, langvarandi bólgur í nefslímhúð, kinnbeinaholum, kokeitlum eða langvarandi teppusjúkdóma í öndunarvegi,

blóðrásarkvilla í slagæðum handleggja og fóta, lifrar-, nýrna- eða hjartavandamál eða háan blóðþrýsting, nýkomnir úr meiriháttar skurðaðgerð ættu ekki að nota lyfið. Meðganga/brjóstagjöf: Íbúprófen má ekki taka

á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Aðeins ætti að nota Íbúfen á fyrstu 6 mánuðum meðgöngu í samráði við lækni og ef það er algerlega nauðsynlegt. Íbúprófen getur gert konum erfiðara með að verða þungaðar. Þessi

áhrif ganga til baka þegar hætt er að taka lyfið. Íbúprófen berst í brjóstamjólk í litlum mæli og brjóstagjöf þarf yfirleitt ekki að hætta meðan á skammtíma meðferð stendur. Ef lengri tíma meðferð er áætluð, ætti að meta

hvort hætta eigi brjóstagjöf. Aukaverkanir: Svartar, tjörukenndar hægðir eða blóðlituð uppköst (sár í meltingarvegi með blæðingum), brjóstsviði, kviðverkir,

meltingartruflanir, truflanir í meltingarfærum s.s. niðurgangur, ógleði, uppköst, vindgangur og harðlífi, sáramyndun í meltingarvegi með eða án rofs, þarmabólga

og versnandi bólga í ristli og meltingarvegi (Crohn´s) og pokamyndun í digurgirni (rof eða fistlar), smásæjar blæðingar frá þörmum sem geta leitt til blóðleysis, sára

og bólgu í munni, höfuðverkur, syfja, svimi, sundl, þreyta, æsingur, svefnleysi og viðkvæmni. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára (≥ 40 kg):

200-400 mg sem einn skammtur eða 3-4 sinnum á dag með 4-6 klst. millibili. Hámarks dagsskammtur er 1200 mg. Börn 6-9 ára (20-29 kg): 200 mg, 1-3 sinnum á

dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks skammtur er 600 mg á dag. Börn 10-12 ára (30-40 kg): 200 mg, 1-4 sinnum á dag á 4-6 klst. fresti eftir þörfum. Hámarks

skammtur er 800 mg á dag. Sjá nánar í fylgiseðli. Börn 12 ára og yngri eiga ekki að nota Íbúfen nema í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri

en 6 ára. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2011.