06.06.2015 Views

3. tbl 1. árg. Nóvember 2007 - Land og saga

3. tbl 1. árg. Nóvember 2007 - Land og saga

3. tbl 1. árg. Nóvember 2007 - Land og saga

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

30 Einingaverksmiðjan

Frá Breiðhöfða og Færeyjum

Einingaverksmiðjan í sókn

heima og heiman

Einingaverksmiðjan að

Breiðhöfða 10 í Reykjavík er

13 ára gamalt fyrirtæki sem

sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra

eininga til byggingaframkvæmda.

Frá upphafi hefur fyrirtækið

starfað mestmegnis á verktakamarkaði

og þjónað stærstu verktökum

landsins en með aukinni

tiltrú á einingahús hefur þjónusta

við almenna húsbyggjendur

aukist síðustu ár. Sigurbjörn Óli

Ágústsson, framkvæmdastjóri,

segir að það hafi tekið tíma að

sannfæra markaðinn um kosti

eininga eins og gengur og gerist

með nýjungar en hérlendis hefur

orðið gríðarlegt stökk fram á

við í notkun húseininga og í dag

eru forsteyptar einingar ekki

bara seldar til verktaka, heldur

ekki síður til einstaklinga sem

eru að byggja hús fyrir fjölskylduna.

Fyrir um 10 árum síðan var

þáttur eininga í húsbyggingum

um 5%, og þá aðallega í gólfplötum

en í dag er hlutfall einingabyggðra

húsa allt að 25%,

jafnvel hærra á sumum svæðum.

Um 80% af framleiðslu Einingaverksmiðjunnar

fer á höfuðborgarsvæðið.

Einingar eru

ekki staðlaðar en framleiddar

eru hins vegar ákveðnar grunneiningar

sem hægt er að sníða til

eftir þörfum kaupanda. Einingar

eru mjög samkeppnishæfar í

verði miðað við hefðbundnar aðferðir

og eru í mörgum tilfellum

ódýrari. Gæðin eru enn betri þar

sem einingin er framleidd við

kjöraðstæður í verksmiðju undir

ströngu gæðaeftirliti.

Vaxandi umsvif í Færeyjum

Ekki hefur verið hefð fyrir einingahúsum

í Færeyjum þar sem

hefðbundið færeyskt hús er á

steyptum kjallara og síðan timburhús

þar ofan á með milligólfi

úr timbri, en síðustu ár hefur

þetta verið að taka breytingum.

Einingaverksmiðjan flytur nú

mikið af einingum til Færeyja en

þar hefur fyrirtækið verið með

umsvif í meira en 10 ár. Einingar

hafa verið fluttar þangað

frá verksmiðjunni á Breiðhöfða,

en nú er að verða breyting á því

þar sem verið er að reisa verksmiðju

í Færeyjum sem verður

tekin í notkun í ársbyrjun 2008.

Einingaverksmiðjan á fyrirtæki í

Færeyjum sem framleiðir steypu

og þar er nú verið að reisa verksmiðjuna,

að sjálfsögðu úr einingum

fyrirtækisins. Sigurbjörn

Óli segir mikinn uppgang hafa

verið í húsbyggingum í Færeyjum

sl. 2 - 3 ár og hefur Einingaverksmiðjan

tekið þátt í hverju stórverkinu

á fætur öðru. Þar á meðal

verkefnið „Undir Gráasteini”

sem er að klárast þessa dagana, 8

fjölbýlishús eða 90 íbúðir. Ekkert

sér fyrir endann á framkvæmdum

, búið er að gera saminga til

næstu 5 ára með verkefni þar

sem Einingaverksmiðjan er með

í öllu ferlinu með færeyskum aðilum

og kallast verkefnið „Undir

Kongavarða”. Það er verkefni sem

er skipulagt í fjórum áföngum

og samanstendur fyrsti áfangi af

77 fjölbreyttum íbúðum í fimm

raðhúsalengjum og fimm fjölbýlishúsum.

Mikið er lagt upp úr

sjónarspili náttúrunnar þar sem

útsýni úr hlíðum Hamarsins yfir

Þórshöfn er stórbrotið og óspillt

náttúran í baksýn.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!