Honda CR-V
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
HREYFISTILLANLEGT – RAFKNÚIÐ AFLSTÝRI

Hreyfistillanlegt - rafknúið aflstýri er tækninýjung sem vinnur

með stöðugleikastýringunni; við yfirstýringu (sem er dæmigerð

í snjó eða hálku), eykur hún átakið sem þarf til að halda stýrinu í

innanverðri beygju og minnkar átakið við að stýra í hina áttina

og hemlar um leið með ytri hjólunum. Með öðrum orðum:

Þessi tækni hjálpar þér að aka rétt og eðlilega út úr

aðstæðunum með fullkominni stjórn.

HÁLSHNYKKJAVÖRN Í FRAMSÆTUM

Ef árekstur verður eru sætisfjaðrirnar stilltar

til að draga jafnt úr högginu til að lágmarka

möguleika á hálshnykk.

NEYÐARSTÖÐVUNARLJÓS

Neyðarljósið blikkar ört til að aðvara þá sem á eftir koma, ef þú

þarft að hemla skyndilega, til að draga úr líkum á aftanákeyrslu.

BREKKUAÐSTOÐ

Brekkuaðstoðin hindrar að bíllinn renni til baka þegar

ekið er af stað í brekku. Með brekkuskynjara er

hemlaþrýstingur ákveðinn og bílinn er kyrr í

1,5 sekúndur eftir að stigið er af hemlum.

RAFSTÝRT ALDRIF

Rauntímaaldrif með snjallstýringu gefur CR-V

sjálfvirkt og þægilegt aldrif í rigningu og snjó

og á malarvegum og þurru malbiki.