30.10.2014 Views

Full page fax print - Landbunadur.is

Full page fax print - Landbunadur.is

Full page fax print - Landbunadur.is

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

láleitir sem bendir eindregið til fosfórskorts. Einnig var köfnunarefnis- eða kalískortur

greinilegur í allt að 80% akranna.

Yrkjamunur

Átta bændur sögðust sjá greinilegan eða einhvern mun yrkja. Fæstir vissu þó hvort yrkið var

hvað. Hinir bændurnir annað hvort vissu ekki að sáð hafði verið tveimur yrkjum eða sáu

engan mun. Í 6 af 8 ökrum sem starfsmenn RALA skoðuðu var greinilegur munur á yrkjum.

Hins vegar var landmunur oft það mikill í ökrunum að ekki er hægt að útiloka að hann hafi

orsakast að hluta til af breytilegum ræktunarskilyrðum.

Uppskera

Uppskera var metin á 5 ökrum Norðanlands 1. september. Ákveðið var að velja bestu raðirnar

til uppskerumælinga á hverjum stað. Það var gert til þess að fá mat á uppskeru sem hefði

getað náðst, ef allur akurinn hefði þroskast jafn vel og rétt hefði verið staðið að frágangi á

plasti, illgresisvörnum og áburðargjöf. Þó að uppskerumælingar hafi einungis verið gerðar á

Norðurlandi má ætla af myndum að dæma, sem teknar voru um svipað leyti af sunnlenskum

ökrum, að uppskeran á bestu blettunum hafi þar verið svipuð og fyrir norðan. Sláttuhæð var

um 15 sm. Uppskeran var að meðaltali 2,2 (±0,6) t þe./ha. Þurrefni var 10,4 (±0,8)% að

meðaltali. Ljóst er að bil milli raða var óþarflega mikið. Ef raðbilið hefði verið 70 sm í stað

85 hefði uppskeran reiknast vera um 2,4 t þe./ha.

Nýting

Minnst af maísnum var nýttur. Á a.m.k. tveimur bæjum var hann nýttur til beitar fyrir

mjólkurkýr. Annar bóndinn sagði kýrnar vera „vitlausar“ í maísinn og að þær ætu hann alveg

niður. Hinn bóndinn sagði að kýrnar veldu repju og rýgresi fram yfir maísinn. Á a.m.k.

tveimur bæjum var maísinn sleginn um miðjan september. Á Stóru-Ökrum í Skagafirði

fengust 5 rúllur af 0,3 ha (samsvarar um 16 rúllum/ha). Þar var mikið gras í akrinum sem

hugsanlega hefur farið með í rúllurnar. Miðað við 10 – 15% þurrefni má gróflega áætla að

uppskeran sé á bilinu 1,6–2,0 t þe./ha. Á Bjólu í Rangárþingi ytra, þar sem maísræktunin

heppnaðist hvað best, voru uppskornar 12 rúllur af ha. Maísinn var saxaður að mestu í

rúllurnar og af lýsingum af dæma var þurrefnið 15% hið minnsta. Gróft áætlað er uppskeran

því svipuð og á Stóru Ökrum. Gera má ráð fyrir talsverðu þurrefnistapi með frárennsli safa.

Mat bænda

Þegar bændurnir voru beðnir um að meta hvort árangurinn hafi staðist væntingar sögðu fimm

þeirra svo vera miðað við allt sem betur hefði mátt gera. Sjö sögðu að árangurinn væri undir

væntingum og nokkrir nefndu að árangurinn væri fjarri því sem að þeim hafði verið talin trú

um. Aðrir svöruðu spurningunni með jái og neii.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!