30.10.2014 Views

Full page fax print - Landbunadur.is

Full page fax print - Landbunadur.is

Full page fax print - Landbunadur.is

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Reynsla bænda af maísræktun undir plasti

Haustið 2003 var gerð úttekt á reynslu 19 bænda á Suður- og Norðurlandi af maísræktun undir

plasti. Niðurstöður hafa verið gefnar út í skýrslu sem er að finna á www.rala.is og þær hafa

jafnframt verið kynntar í Bændablaðinu og á bændafundum.

Sáðvélin sem var notuð var flutt inn af Vélum & Þjónustu hf og er frá SAMCO Agricultural

Manufacturing og heitir Samco X-Tend Drill. Vélin sáir í tvær raðir í einu með 70 sm

millibili, úðar með jarðvegsvirku illgresislyfi og leggur plastfilmu yfir, allt í sömu umferð. Að

sögn innflytjandans fékkst ekki leyfi til að flytja inn illgresiseitrið sem á að nota með tækinu

og þess vegna var ekkert lyf notað. Einnig kom vélin seint til landsins sem seinkaði

sáningum.

Til þess að meta árangurinn höfðu starfsmenn RALA samband við alla ræktendurna í

septemberbyrjun og þeir spurðir út úr. Einnig heimsóttu starfsmenn RALA 8 bændur á

tímabilinu 1. – 24. september og mynduðu, skoðuðu og mældu akra. Á 5 búum var uppskera

mæld.

Áburður

Það var afar mismunandi hvað bændurnir báru mikið á og kvörtuðu sumir yfir misvísandi

leiðbeiningum frá innflytjendum. Nokkrir leituðu til ráðunautar til að fá frekari upplýsingar.

Fimm bændanna báru engan skít á en aðrir báru á 10 – 100 t/ha. Einn bar á taðhálm

(undirburð). Þrír bændanna notuðu engan tilbúinn áburð. Aðrir báru á 400 – 1000 kg/ha,

flestir Græðir 5, eða samsvarandi, en sumir aðrar þrígildar tegundir ætlaðar á tún.

Sáning

Byrjað var að sá á Þorvaldseyri 27. apríl og endað í Garði í Eyjafjarðarsveit 20. maí. Margir

töldu sig hafa getað sáð fyrr. Raðbil var 70 sm og 100 sm á milli umferða (hjólfara) þar sem

það var mælt um haustið. Meðalraðbilið var því 85 sm sem er meira en mælt er með.

Ástæðan fyrir óþarflega miklu raðbili var að dráttarvélarnar, sem voru notaðar við sáninguna,

voru með of breið dekk til þess að hægt væri sá þéttar. Á flestum stöðum var sáð tveimur

blendingsyrkjum frá Pioneer Northern Europe, Justina og PR39B29. Bæði þessi yrki hafa

verið í yrkjaprófunum undir plasti í Bretlandi. Þar var heildaruppskera þurrefnis 14 – 17 t/ha

sumarið 2001.

Spírun

Flestir bændanna eða 14 töldu spírun hafa verið góða og að maísinn hafa farið vel af stað.

Mælingar, þar sem maísinn hafði náð að komast upp úr illgresi og/eða plastinu, staðfesta

þetta. Að jafnaði voru 91176 (±10189) spíraðar plöntur á ha þar sem talið var. Bil milli

plantna innan raða reyndist 13,0 (±1,6) sm að jafnaði. Þetta bendir til þess að sáðmagn hafi

verið á bilinu 100 – 110 þúsund fræ á ha.

Plastfok

Á öllum bæjum nema tveimur fauk plast af einhverjum eða stærstum hluta akranna, sums

staðar fáeinum dögum eftir sáningu. Þar sem það var verst hafði fokið af allt að 80% af

akrinum en algegnt var að plastið rifnaði af um 40 – 60% af ökrunum vegna vindálags eða

lélegs frágangs. Sumir bændur kvörtuðu að fyrra bragði yfir óvönduðum vinnubrögðum

vélamanna og sögðu þá hafa flýtt sér um of. Það kom mest niður á fergingu plastsins sem var

alls ekki nægilega góð sums staðar. Einnig var kennt um reynsluleysi vélamanna. Plastfokið

leiddi til þess að vöxtur og þroski plantna var afar breytilegur innan sama akurs. Þar sem

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!