You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Áhrif niðurfellingar búfjáráburðar á efnanýtingu, ísáðar fræplöntur

og smádýralíf (161-9505)

Þetta verkefni er kynnt í Jarðræktarrannsóknum 2002 (Fjölrit RALA nr. 213). Sumarið 2003

voru mæld eftirverkunaráhrif vor- og haustdreifningar búfjáráburðar og vallarfoxgrasfræs á

Húsavík á Ströndum og í Keldudal í Skagafirði frá árinu 2002. Þá voru lagðar út nýjar

tilraunir á þessum stöðum um haustið. Tilraunaskipulag á báðum stöðum var sem hér segir:

H. Haust 2003 1. Ekkert gert (Núll)

V. Vor 2004 2. Yfirbreiddur búfjáráburður lítið (YBL)

3. Niðurfelldur búfjáráburður lítið (NBL)

4. Yfirbreiddur búfjáráburður mikið(YBM)

5. Niðurfelldur búfjáráburður mikið (NBM)

Tilraunirnar verða tvíslegnar sumarið 2004. Reitarstærð er 8×20m og eru tilraunirnar í

þremur endurtekningum. Í mykjuna er blandað vallarfoxgrasfræi af yrkinu Öddu. Í núllreitum

tilraunarinnar voru lagðir út smáreitir 2×6 m að stærð og bornir á vaxandi skammtar af

blönduðum áburði í Græði 5. Áburðinum var dreift á sama tíma og búfjáráburðinum.

Skammtarnir voru sem hér segir: a. 0 kg N/ha (viðmiðunarreitur)

b. 30 kg N/ha

c. 60 kg N/ha

d. 90 kg N/ha

Mykjusýnin voru efnagreind á Rannsóknastofu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og eru

niðurstöður eftirfarandi (sjá nánari skýringar í Fjölriti RALA nr. 213):

Þurrefni

Efnamagn, % af þurrefni

Staður Dreifing % N heild NH 3 -N K P Ca Mg Na

Keldudalur 29.5.2002 6,2 4,50 2,39 3,14 0,95 1,08 0,76 0,55

Keldudalur 21.10.2002 11,0 3,98 1,50 1,98 0,92 0,87 0,68 0,19

Húsavík 1) 12.6.2002 8,7 6,28 3,79 3,56 1,21 1,16 0,70 1,16

Möðruvellir 5.6.2002 5,1 6,98 4,67 7,40 1,10 1,47 0,70 0,70

Neðri-Háls 28.5.2002 6,8 4,08 2,01 2,34 0,64 1,04 0,57 0,31

Meðaltal 7,6 5,2 2,9 3,7 1,0 1,1 0,7 0,6

1) Kindaskítur. Haustsýnið misfórst af óþekktum ástæðum

Úr dagbók:

30. júní Tilraunin í Keldudal slegin og þekja vallarfoxgrass metin. Lítil spretta, talsverð mjöldögg.

Vallarfoxgras sást í röndum, einkum vestast, en háliðagras austast.

18. júlí Tilraunin á Húsavík slegin og þekja vallarfoxgrass metin.

19. sept. Lögð út ný tilraun á Húsavík, gróðurþekja metin í túninu, jarðvegs- og skítasýni tekin og borinn á

tilraunina kindaskítur, tilbúinn áburður og fræ samkvæmt plani. Grashæð allt að 20 sm.

Mykjudreifari sá sami og lýst er í Fjöriti RALA nr 213. Einn spíss stíflaður, annar hálfstíflaður.

Liðir 4 og 5 fengu sem svar u.þ.b. ~49 t mykju/ha (aksturshraði 4,5 km/t) og liðir 2 og 3 fengu sem

svarar u.þ.b. ~34 t/ha (aksturshraði 6,75 km/t). Blandað var u.þ.b. 800 g af fræi í hvern rúmmetra

af skít.

10. okt. Lögð út ný tilraun í Keldudal, gróðurþekja metin í túninu, jarðvegs- og skítasýni tekin, og borið á

tilraunina mykja, tilbúinn áburður og fræ samkvæmt plani. Mykjudreifari sá sami og lýst er í

Fjölriti RALA nr 213. Liðir 4 og 5 fengu sem svar u.þ.b. ~80 t mykju/ha (aksturshraði 3 km/t) og

liðir 2 og 3 fengu sem svarar u.þ.b. 48 t/ha (aksturshraði 5 km/klst). Blandað var u.þ.b. 750 g af

fræi í hvern rúmmetra af skít.