You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
NÝTUR FJÖ

Kíkt í innkaupakörfuna hjá Dagnýju Jónsdóttur

EITTHVAÐ FYRIR ALLA!

Í Bóksölu stúdenta má finna fjölda

gersema við allra hæfi. Dagný er

nýbökuð móðir og valdi bókina um

Stúf handa dóttur sinni.

PASSAR ÞESSI?

Eftir að hafa fyllt

innkaupakörfuna af

bókum freistaðist Dagný

til að skoða glæsilegt

fataúrval Bóksölunnar.

14

Miklar breytingar hafa orðið

á lífi Dagnýjar Jónsdóttur

síðustu misserin. Í fyrra hætti

hún þingmennsku og leitaði á ný mið.

Í viðtali við Frétt og spurt ræðir Dagný

um móðurhlutverkið, háskólanámið og

skilnaðinn við þingheim.

„Ég tók þá ákvörðun haustið 2006 að

hætta á þingi í bili,“ segir Dagný. „Mig

langaði á þeim tímapunkti að ljúka

náminu og einbeita mér að öðrum

hlutum. Ég gifti mig á síðasta ári og

eignaðist dóttur sem kom í heiminn á

Þorláksmessu. Þetta er mikil breyting

á lífinu og hafði eitthvað að segja um

ákvörðun mína um að taka pásu frá

pólitíkinni. Þingmennska er ekki mjög

fjölskylduvænt starf. Ég vildi ekki eiga

barn, reka tvö heimili, eitt í Reykjavík

og eitt fyrir austan, og vera á sífelldum

þvælingi. Alla vega ekki fyrst um sinn

meðan maður er að venjast þessu

nýja hlutverki. Mér finnst að sumir

mættu gera meira ráð fyrir börnunum

sínum í tímaplaninu. Mig langaði að

njóta fjölskyldulífsins og geri það nú.

Ég hafði reyndar dálitlar áhyggjur

af því að mér myndi dauðleiðast í

fæðingarorlofinu og viðurkenni að oft

hef ég kveikt á alþingisrásinni heima

hjá mér. Ég sakna mest erilsins og