29.07.2014 Views

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Samfelld velta kauphækkana,

gengisfellinga og verðbólgu ógnaði

rekstrarforsendum fyrirtækja og þar

með atvinnuörygginu.

Mynd: Páll Stefánsson.

sviðum þjóðlífsins legðist á eitt. Um þó nokkurn tíma höfðu ASÍ

og VSÍ haft gagnkvæman vilja til að finna leiðir til að brjótast út úr

vítahringnum. Sérstaklega vil ég nefna samningana 1986, sem gengu

hins vegar ekki eftir, fyrst og fremst af tveimur ástæðum. Það var of

miklu velt á ríkisfjármálin og það komu ekki aðrir að málum en ASÍ

og VSÍ. Það skorti sem sagt breidd.

Hafði það áhrif að atvinnuleysi var orðið nokkurt á þessum

árum?

Atvinnuleysi var reyndar ekki mikið þegar

þjóðarsáttarsamn-ingarnir voru gerðir. Það var hins vegar verulegur

uggur í fólki um atvinnuöryggið. Samfelld velta kauphækkana,

gengisfellinga og verðbólgu ógnaði rekstrarforsendum fyrirtækja og

þar með atvinnuörygginu.

Margir voru vantrúaðir á það að hægt væri að viðhalda

þeim árangri sem náðist árið 1990 því að áður höfðu náðst

áfangasigrar í baráttunni við verðbólguna sem svo glutruðust

niður síðar. Sumir segja að aðgerðir stjórnarinnar árið 1991 hafi

riðið baggamuninn. Hvað skipti mestu máli um að varanlegur

árangur náðist?

Það er rétt að það voru margir vantrúaðir á að þjóðarsáttin mundi

skila sér. Háskólahagfræðingarnir voru til dæmis nokkuð samhljóða

í því að ekkert mundi breytast. Um vorið sýndi Gallup-könnun að

almenningur var vantrúaður á að verðbólga mundi hjaðna.

Það sem réð úrslitum var tvímælalaust að samstaða um aðgerðir

var breið. ASÍ og BSRB voru fullkomlega samstiga við

samningsgerðina og bændasamtökin komu líka að henni. Samtök

atvinnurekenda voru einnig einhuga, sem og bæði stjórnarflokkarnir

og stjórnarandstaðan. Það var eindreginn vilji til að fylgja málum

eftir og það var í mörgum atriðum gert með handafli. Bankarnir

lækkuðu vexti í trausti þess að verðbólgan færi niður og

verslunarfyrirtæki lækkuðu álagningu í trausti þess að þau þyrftu

ekki að leggja til hliðar fyrir vöxtum og gengisbreytingum eins og

áður. ASÍ og VSÍ unnu vel saman í því að ná þessum árangri og lögðu

sameiginlega að fyrirtækjum að vinna með aðgerðunum. Það var

sterkur meðbyr með þessari tilraun til að rjúfa vítahringinn og það

vildi enginn láta standa sig að því að hann gerði ekki sitt.

Það skipti líka miklu að jarðvegurinn hafði verið vel undirbúin.

Þegar áttin hafði verið mörkuð stöðvaði ég samningaviðræður í

mánuð til að færi gæfist til að fara yfir málin með stjórnum félaga

og félagsmönnum ASÍ. Þessi ákvörðun var umdeild því að margir

vildu keyra samningana í gegn strax. Ég er hins vegar viss um að

ákvörðunin var rétt. Félagsmennirnir komu að undirbúningi og

voru fyrir fram meðvitaðir um að verið væri að gera tilraun og

umræður sýndu að þeir vildu gera tilraunina. Þeir vildu láta á það

reyna hvort hægt væri að rjúfa vítahringinn. Á samráðsfundum eftir

samningagerðina og við framlengingu þeirra um haustið 1990 var

viljinn enn eindreginn.

Á árunum 1990 til 1995 skertist kaupmáttur frá því sem samið

var um í þjóðarsáttinni. Hvers vegna vildi verkalýðshreyfingin

ekki beita afli til þess að reyna að rétta sinn hlut?

Á þessu tímabili var verið að festa árangurinn í sessi. Það var

samstaða um að treysta undirstöðurnar til frambúðar.

Síðan 1995 hefur kaupmáttur styrkst ár frá ári og er nú um 50%

betri en þá. Verkföll á almennum vinnumarkaði hafa ekki verið

mörg eða löng á þessum tíma. Þýðir þetta að baráttan á árum

áður hafi verið á röngum forsendum?

Ég held að það segi hvorki eitt eða neitt um baráttuna á árum áður.

Það endurspeglar aftur á móti þá víðtæku samstöðu sem var um að

rjúfa vítahringinn 1990 og nýta þann ávinning sem þjóðarsáttin gaf.

Voru einhver tækifæri á þessum árum sem menn misstu af? Var

hægt að ná sambærilegum árangri fyrr?

Auðvitað misstu menn af mörgum tækifærum en það þurfti of

margt að breytast til að viðsnúningur gæti orðið. Það þurfti að leita

leiða og ná samskiptum á breiðum grundvelli og það tókst 1990. Það

tókst ekki fyrr.

Við verðum líka að muna að áhrif bæði verkalýðshreyfingar og samtaka

atvinurekenda hafa alltaf verið fyrst og fremst bundin við þau atriði sem beint

snúa að vinnumarkaðsmálum og kjörum. Þannig sýnist mér til dæmis að stórar og

endurteknar yfirlýsingar verkalýðshreyfingarinnar um herinn hafi aldrei skipt sköpum.

34

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!