You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
„Það voru margir

vantrúaðir á að þjóðarsáttin

mundi skila sér“

Viðtal við Ásmund Stefánsson ríkissáttasemjara

Mynd: Páll Stefánsson.

Ásmundur Stefánsson hagfræðingur þekkir öðrum mönnum betur til samningamála á íslenskum

vinnumarkaði undanfarna áratugi. Hann var ráðinn hagfræðingur ASÍ árið 1973 og varð forseti

sambandsins árið 1980. Hann var lykilmaður í þjóðarsáttarsamningunum árið 1990. Síðar hóf hann störf

hjá Íslandsbanka og varð einn af framkvæmdastjórum bankans, sat í samninganefnd bankanna og

var formaður hennar um tíma. Hann var um skeið framkvæmdastjóri EFA, sem var fjárfestingarfélag.

Árið 2003 var hann skipaður ríkissáttasemjari. Hann hefur því kynnst kjarasamningum frá öllum

hliðum. Vísbendingu þótti forvitnilegt að fá Ásmund til þess að líta um öxl til þess að velta fyrir sér

kjarabaráttunni á undanförnum aldarþriðjungi.

32