29.07.2014 Views

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

í efnahagsmálum. Þegar fulltrúi hans,

Norðmaðurinn Rolf Evensen, kom til

landsins í nóvember 1959 til þess að

kynna sér umfangs-miklar fyrirætlanir

nýrrar ríkisstjórnar flutti hann þau

skilaboð að Íslandi stæði til boða

hækkun á kvóta sínum úr 1 milljón í

11 milljón dollara. Treysti landið sér

hins vegar ekki til róttækra umbóta og

vildi halda sér við ríkjandi kerfi, myndi

sjóðurinn ekki geta léð því samþykki.

Svo fór að hin auknu dráttarréttindi urðu

bakhjarl þeirra víðtæku umbóta sem

gengu undir nafninu viðreisn. Höfðu þá

liðið fimmtán ár frá því að Ísland gerðist

aðili að sjóðnum, án þess að landið færði

sér í nyt þá kosti sem aðildin gat veitt til

að endurheimta frjáls viðskipti.

Afdrifarík mistök

Á fyrri hluta tuttugustu aldar slógu íslensk stjórnvöld því þrisvar

sinnum á frest að laga gengismál landsins að breytingum sem orðið

höfðu í umheiminum. Í fyrsta skipti stafaði drátturinn einna helst af

ágreiningi um hækkun gengisins, enda þótt samstaða væri um sjálfa

tenginguna við gull. Í annað skiptið, þegar gullfóturinn brast árið

1931, var haldið fast við tengingu við sterlingspundið en ekki leitað

eftir jafnvægi á grundvelli hreyfanlegs gengis, eins og gert var á öðrum

Norðurlöndum. Þriðja sinnið, á árunum eftir síðari heimsstyrjöld, var

látið undir höfuð leggjast að fylgja þeim reglum um ákvörðun gengis

sem fólust í Bretton Woods kerfinu sem Íslendingar höfðu gerst

aðilar að um leið og því var komið á fót árið 1944.

Telja má að drátturinn í lok þriðja áratugarins hafi ekki skipt

sköpum vegna þess að skeið gullfótarins hafi hvort eð er verið á enda

runnið. Eigi að síður hefðu áherslur í stjórn efnahagsmála tvímælalaust

orðið aðrar en var hefði eindregið verið stefnt að tengingu við gull á

þessum tíma. Styrking gjaldeyris- og gullforða hefði þá haft forgang

umfram aukningu opinberra framkvæmda og landið verið betur

Kreppan hér á landi varð dýpri

og langvinnari en annars hefði

orðið, og landið festist æ meir

í haftakerfi sem erfitt reyndist

að brjótast undan. Hið sama

gerðist að styrjöldinni lokinni,

að dráttur á aðlögun að

nýjum kringumstæðum varð

til þess að Íslendingar flæktust

í æ margbrotnara hafta- og

styrkjakerfi

undir heimskreppuna búið en raun

varð á. Það fer á hinn bóginn ekki milli

mála hversu alvarlegar afleiðingar sú

gengisstefna hafði sem tekin var 1931

og fylgt allt fram til 1939. Kreppan

hér á landi varð dýpri og langvinnari

en annars hefði orðið, og landið festist

æ meir í haftakerfi sem erfitt reyndist

að brjótast undan. Hið sama gerðist að

styrjöldinni lokinni, að dráttur á aðlögun

að nýjum kringumstæðum varð til þess

að Íslendingar flæktust í æ margbrotnara

hafta- og styrkjakerfi, sem haldið var

uppi með erlendri efnahagsaðstoð, á

sama tíma og nágrannar þeirra nutu

góðs af vaxandi viðskiptum og frjálsara

athafnalífi.

Það væri fljótræði að draga þá ályktun af þessari reynslu fyrri tíma

að mestu skipti að laga stjórn gengis- og peningamála sem fyrst að

stefnu umheimsins, hver sem hún kynni að vera. Nokkur tími getur

liðið áður en ljóst er hver sú stefna raunverulega sé, og ekki er víst

að hún henti landinu í öllu tilliti. Það skiptir hins vegar miklu að fyrir

hendi sé sú umgjörð stofnana þar sem unnt sé að meta aðstæður

sem best og leggja á ráð um stefnuna og framkvæmd hennar, en því

var ekki að heilsa á fyrri hluta tuttugustu aldar þegar sjálfstæðum

seðlabanka hafði ekki verið komið á fót. Þá er ekki síður mikils um

það vert að stjórnmálamenn og stjórnmálaflokkar einskorði sig ekki

við afstöðu sem þeir geta trauðla horfið frá þegar vísbendingar leiða

til nýrra átta.

Heimildir:

Við þessa samantekt hefur verið stuðst við ritgerðir eftir þá Bjarna Braga Jónsson,

Jóhannes Nordal, Jónas H. Haralz og Magnús Svein Helgason í bókinni: Frá kreppu til

viðreisnar, Hið íslenska bókmenntafélag 2002. Enn fremur er stuðst við grein

Hannesar H. Gissurarsonar: Gengishækkunin 1925 í Landshagir, Landsbanki Íslands

1986, og við grein þeirra Jóhannesar Nordals og Ólafs Tómassonar: Frá floti til flots í

Klemensarbók, FVH , 1985.

Gutenberg

gleðileg jól

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða

Gutenberg ehf. | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík | Kt: 440734 0149 | Sími: 545 4400 Fax: 545 4401

27

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!