29.07.2014 Views

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Að vera eða ekki

Íslensk gengismál á fyrri hluta tuttugustu aldar

JÓNAZ H. HARALZ

Jónas Haralz þekkir öðrum mönnum betur þróun hagsögunnar á Íslandi á 20. öld. Á síðari hluta aldarinnar kom hann mikið við

sögu efnahagsmála þjóðarinnar. Hér rekur hann mikilvægan þátt í sögu fyrri hluta aldarinnar.

Í þeim umræðum um gengismál, sem staðið hafa hér á landi undanfarin ár hefur athygli lítt verið vakin á því að á fyrri hluta síðustu

aldar hafi Íslendingar oftar en einu sinni orðið að taka afstöðu til tengingar krónunnar við gull eða erlendar myntir og til þátttöku í

alþjóðlegu samstarfi í peningamálum. Í því yfirliti sem hér fer á eftir er sjónum beint að þeim ágreiningi sem uppi var um þessi mál og

ástæðum þess og afleiðingum að dráttur varð á því að ákvarðanir væru teknar um þau.

Í upphafi aldarinnar var verðmæti íslensku krónunnar hið sama

og annarra króna innan norræna myntsambandsins og svaraði til

ákveðins þunga gulls samkvæmt myntlögum, eins og tíðkaðist

innan alþjóðlegs kerfis gullfótarins. Við upphaf styrjaldarinnar

1914 riðlaðist þetta kerfi, er hvarvetna í Evrópu þurfti í skyndi að

hverfa frá gullinnlausn. Að styrjöldinni lokinni var um það einhugur

á alþjóðavettvangi að endurreisa skyldi gullfótinn sem menn töldu

hafa verið grundvöll blómlegra alþjóðaviðskipta á árunum fyrir

styrjöldina. Þetta var þó hægara sagt en gert þar sem miklar almennar

verðhækkanir höfðu orðið á styrjaldarárunum, mismunandi miklar í

hinum ýmsu löndum. Mikill ágreiningur var um það hvort hverfa

skyldi aftur til fyrra gullgengis frá því í upphafi styrjaldar, eða

ákveða nýtt gengi í samræmi við það verðlag sem orðið var. Um

miðjan þriðja áratuginn varð niðurstaðan sú í næstu nágrannalöndum

okkar, Bretlandi og þremur Norðurlandanna, að fyrra gullgengi varð

fyrir valinu, en Finnland og ýmis önnur lönd Evrópu kusu að ganga

skemmra.

Hér á landi hafði verðlag á styrjaldarárunum hækkað mun meira

en í sambandslandinu Danmörku. Jafngildi íslensku krónunnar við

þá dönsku gat því ekki staðist, og tóku bankarnir upp sjálfstæða

skráningu íslensku krónunnar í júní 1922 eftir að gjaldeyrisútstreymi

hafði orðið og gjaldeyrisviðskipti færst út fyrir bankana tvo sem þá

störfuðu hér á landi. Var gengið í fyrstu breytilegt eftir mati bankanna

á aðstæðum, án beinna afskipta af opinberri hálfu. Tveimur árum

síðar, í júní 1924, voru hins vegar sett lög um gengismál þar sem

skráning gengisins var falin þriggja manna gengisnefnd með

23

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!