Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
FRÁ RITSTJÓRA

BENEDIKT JÓHANNESSON

Í þetta sinn er meginþema jólablaðsins þættir úr hagfræðisögu

20. aldarinnar á Íslandi og deilur manna um ýmis álitamál.

Hugmyndafræðileg barátta setti svip á öldina og meira en

helmingur mannkyns var lengst af í fjötrum flokka sem

aðhylltust hugmyndir sem sagan hefur sannað að voru rangar.

Íslendingar fóru ekki varhluta af hugsjónabaráttu. Hér er hluti af

hugmyndasögunni rakinn af þeim mönnum sem best þekkja til.

Hannes H. Gissurarson segir söguna af því þegar kenningar

frjálshyggjunnar voru aftur kynntar fyrir landsmönnum á áttunda og

níunda áratug síðustu aldar. Við þá sögu komu fjölmargir ungir menn

sem enn eru áberandi í þjóðlífinu. Vilhjálmur Bjarnason staðnæmist

við nokkrar ákvarðanir sem mestu hafa skipt í peningamálum

þjóðarinnar. Niðurstaða hans er sú að Alþingi ráði lítt við slíkar

ákvarðanir og veltir því fyrir sér hvort sú verði einnig raunin með

upptöku evru hérlendis. Eyþór Ívar Jónsson telur að koma ameríska

hersins árið 1941 hafi markað þáttaskil í sögu þjóðarinnar síðan.

Jónas Haralz segir frá því hvernig Íslendingar þurftu að taka

stefnumarkandi ákvarðanir í gengismálum á fyrri hluta aldarinnar,

en bankakerfið var alls ekki undir slíkt búið og skilningur flestra

stjórnmálamanna lítill. Ásgeir Jónsson veltir vöngum yfir því hvers

vegna Reykjavík varð höfuðborg Íslands. Loks er viðtal við Ásmund

Stefánsson ríkissáttasemjara en hann þekkir öðrum mönnum betur

átökin sem einkenndu stéttabaráttuna á árunum eftir 1970.

Mynd: Geir Ólafsson.

Af því að nú fara jól og áramót í hönd birtum við líka jólalag

ársins og vangaveltur um jólakvæði guðleysingjans og róttæklingsins

Stephans G. Rifjaðir eru upp atburðir ársins úr Vísbendingu og loks

kemur smásaga úr óvæntri átt. Lesendum Vísbendingar er þökkuð

samfylgdin á liðnu ári og óskað gleðilegra jóla og velfarnaðar á

komandi árum.

EFNISYFIRLIT

Frá ritstjóra .............................................................................2

Jólasálmur ...............................................................................4

Forsendur frjálshyggjubyltingarinnar ...................................6

– Hannes Hólmsteinn Gissurarson

firautir flingsins í fjármálum .................................................12

– Vilhjálmur Bjarnason

Ári› 2006 í Vísbendingu ........................................................15

– Annáll

Frá sér numin fljó› ...............................................................19

– Eyflór Ívar Jónsson

A› vera e›a vera ekki .............................................................23

– Jónas H. Haralz

Clemensía frænka ..................................................................28

– Smásaga

Afhverju er Reykjavík höfu›borg Íslands? ...........................30

– Ásgeir Jónsson

Vi›tal vi› Ásmund Stefánsson ríkissáttasemjara ..................32

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson.

Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105 Reykjavík.

Sími: 512 7575. Myndsendir: 561 8646.

Netfang: visbending@heimur.is

Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Háskólans

Umbrot og hönnun: Ágústa Ragnarsdóttir

Auglýsingar: Vilhjálmur Kjartansson, vilhjalmur@heimur.is

Prentun: Gutenberg. Upplag: 5.000 eintök.

Forsíðumynd: Sigurður Tómasson

Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda.

2