29.07.2014 Views

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

Jóla-Vísbending 2006.pdf

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

FRÁ SÉR NUMIN FIJÓ‹

EYFIÓR ÍVAR JÓNSSON

Eyjaskeggjar Íslands eru með merkilegri þjóðum heims –

sérstaklega ef þeir sjálfir segja frá. Þeir eiga það sameiginlegt að

ýkja allverulega sögur, ekki síst afrekssögur af sjálfum sér.

Hugsanlega hefur það hjálpað þeim að búa til hina

„raunverulegu“ sögu þjóðarinnar. Sagan er merkileg vegna þess

að fámenn þjóð, í landi sem jafnan hefur þótt óbyggilegt, hefur

unnið sig frá örbirgð til auðsældar. Hvernig eyjaskeggjum tókst

þetta er umdeilt og flestar útskýringar í besta falli gróf einföldun

og misvísandi eftir því frá hvaða bæjardyrum er horft. 1 Sú

sögutúlkun sem sett er hér fram, er tilgáta um að upptök

stökkbreytingar þjóðarinnar og breyttra efnahagslegra aðstæðna

hennar megi að einhverju leyti, ef ekki að miklu leyti, finna í

þeim atburði þegar þjóðin var hernumin, frá sér numin, af

erlendum öflum.

Hernumið land

Sagan hefur verið sögð ótal sinnum, en aldrei eins og hún er sögð hér.

Lítil þjóð í nafla alheimsins, alls staðar og hvergi, var enn á ný fótum

troðin af útlendingum, sem vildu þjóðinni vel og tóku völdin í sínar

hendur. Nú var það ekki til þess að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér þó

óljóst sé hverju lýðurinn hefði tekið upp á ef hann hefði verið látinn

afskiptalaus í geðveikum heimi. Nú var verið að bjarga þjóðinni

frá illsku alheimsins, blóðrauðum kommúnisma og vægðarlausum

nasisma. Jafnvel þó að fylgismenn þessara tveggja stefna léku lausum

hala á dimmbláu og veðurblásnu skerinu í hversdagslegu þunglyndi

var hættan sú að erlend átrúnaðargoð þeirra uppgötvuðu mikilvægi

eyjunnar í heildarstríðsmyndinni. Ísland var vitinn á Atlantshafinu.

Árið var 1940, dagurinn 10. maí. Ísland var hernumið í

fyrsta skipti. Breska konungsveldið sýndi mátt sinn og megin.

Eyjarskeggjar höfðu þó ekki verið sjálfs síns herrar í sjö hundruð

ár eða allt frá því að þeir gengu undir verndarvæng Noregskonungs.

Þá var það vegna þess að klíkuskapur eylendinga og stríð þeirra á

milli stefndi í borgarastyrjöld. Þegar hér var komið sögu var lýðurinn

hins vegar undir verndarvæng danska konungsins. Eyjaskeggjar

réðu þó innanríkismálum og töldu sig fullvalda. Bretar voru engu

að síður að hrifsa völdin af Dönum þar sem Íslendingar voru ekki

sjálfstæð þjóð og voru danskættaðir eyjarskeggjar handteknir ásamt

Þjóðverjum og sendir af landi brott. Mótspyrnan við hernámið var

lítil. Heimastjórnin var samþykk hernáminu enda átti hún ekki

annarra kosta völ. Einhverjir eyjarskeggjar steyttu hnefa og mótmæltu

yfirganginum harðlega. Allt kom fyrir ekki, orrustan var fyrir fram

töpuð. Þeir áttu þó síðar eftir að hefna sín rækilega á stórveldinu, í

„stríði“ sem var háð á hentugri velli, á sæ úti, og hafði meira gildi,

þorskígildi. Eyjaskeggjar voru þó fljótir að sjá að það borgaði sig að

vinna með hernámsliðinu.

Bretar voru aldrei sérstaklega velkomnir á Íslandi þó að sumir

landsmenn væru fegnir því að þeir yrðu á undan Þjóðverjum sem

voru í miklum útrásarham á þessum árum. Síðar kom í ljós að

Hitler og hyski hans hafði augastað á landinu fyrir og eftir að Bretar

hertóku það. Segja sagnfræðingar að það hafi einungis verið happ

að áætlun Þjóðverja – sem kölluð var „Íkarus“ – um að ráðast inn

frá vesturströnd Íslands, hafi ekki orðið að veruleika. Af hverju

þýsku hugmyndafræðingarnir völdu heitið Íkarus er óljóst en það

er kaldhæðni örlaganna að notuð var tilvísun í hinn unga Íkarus, úr

grískri goðafræði, sem flaug á heimatilbúnum vængjum of nálægt

sólinni svo að vaxið sem hélt fuglafjöðrum við líkama hans bráðnaði

og hann féll bjargarlaus í sjóinn og endaði þar með ævi sína. Viðvera

Breta gerði Þjóðverjum erfiðara fyrir og tafði árásina á Ísland sem

varð að lokum að engu vegna annarra stríðsaðgerða Hitlers. „Sólin“

var of heit fyrir metnað nasismans.

Bretar urðu aldrei frelsishetjur á Íslandi. Þeir hlutu litlar þakkir

fyrir að aldrei varð stríð á Íslandi sem hefði verið óumflýjanlegt ef

Þjóðverjar hefðu orðið fyrri til. Bretar stöldruðu stutt við á landinu.

Skipt var inn á árið 1941. Þá kom Kaninn og þjóðin varð frá sér

numin.

Amerískasti útkjálki Evrópu

Mynd: Geir Ólafsson

Eyþór Ívar Jónsson rekur hér hugmyndir sínar um hvað hafi

skipt mestu um efnahagsþróun á Íslandi síðari hluta 20. aldar.

Árið 2006 yfirgaf bandaríski herinn flugvöllinn í Keflavík og skildi

eftir tóma og afgirta „borg“ á Suðurnesjum. Höfðu bandarískir

hermenn þá verið hér á landi í 65 ár. Eyjaskeggjar sögðu brottförina

sviksemi, rétt eins og þegar hjónaband byggt á venju frekar en ást

brestur. Í upphafi voru þó eyjaskeggjar yfirsig ástfangnir.

Þegar Kaninn kom hingað, þann 7. júlí árið 1941, virðist sem

hann hafi átt greiðari leið í fiðurmjúkan faðm þjóðarinnar en

Bretar. Íslendingar höfðu líka beðið Bandaríkjamenn um að koma

sér til verndar þar sem þörf var fyrir breska setuliðið annars staðar

á þessum styrjaldartímum. Bandaríkjamenn, sem á þeim tíma tóku

ekki þátt í stríðinu, voru því miklu meiri bjargvættir þjóðarinnar en

Bretar. Koma bandaríska hersins markaði tímamót, því að hvorki

Ísland né Bandaríkin voru hlutlaus í stríðinu eftir samkomulag um

hervernd Bandaríkjanna. Hið nýja herlið þurfti ekki að hlusta á ákúrur

eyjarskeggja eða horfa upp á steytta hnefa. Aðdáunin var bæði dulin

og ljós. Þetta var upphafið á ástarævintýri.

Nútíminn hafði gert innrás á Íslandi. Sveitamenning og tómleiki

sjávarþyrpingarinnar vék fyrir popp-kultúr og neyslugleði.

Íslendingar litu aldrei til baka og fyrirheitna landið varð fyrirmyndin

og markmiðið. Þröngsýnir eyjarskeggjar voru táldregnir með glitri

glingursins. Amerísku hermennirnir urðu vinsælli en hinir bresku

þar sem þeir áttu sand af seðlum í samanburði við aðþrengda

Breta sem voru farnir að sætta sig við fyrstu ölframleiðslu Egils

Skallagrímssonar. Íslenska þjóðin varð aldrei hin sama.

19

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!