Ãttektarmælir Eurotest frá Metrel - Reykjafell
Ãttektarmælir Eurotest frá Metrel - Reykjafell
Ãttektarmælir Eurotest frá Metrel - Reykjafell
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
E U R O T E S T

Ú T T E K T A R M Æ L I R

E UÍSLENSKUR R O LEIÐARVÍSIR T E S T

Ú T T E K T A R M Æ L I R

ÍSLENSKUR LEIÐARVÍSIR

Reykjafell hf. · Skipholt 35 · 105 Reykjavík · Sími 588 6000 Fax 588 6012 · www.reykjafell.is

Reykjafell Akureyri · Furuvellir 13 · 600 Akureyri · Sími 462 5000 · Fax 462 5001
3.1 Einangrunarviðnám

Varúð!

Gangið úr skugga um að lögnin sem á að

prófa sé spennulaus.

Áður en einangrunarviðnám milli leiðara er

mælt skal aftengja öll tæki og rjúfa alla rofa.

Snertið ekki hluta lagnarinnar sem verið er að

prófa.

Tengið ekki mælinn við hærri spennu en

600V AC/DC, mælirinn er ekki varinn gegn

hærri spennu.

Ef prófuð er lögn með þéttum eða löng lögn

sem orsakað getur þéttaáhrif, þarf að huga að

því að lögnin hleðst upp og afhleðst ekki strax

að lokinni mælingu. Spenna lagnarinnar er

sýnd á skjánum á meðan lögnin afhleðst,

aftengið ekki mælinn frá lögninni fyrr en

spennan er komin niður fyrir 50V.
Hvernig á að framkvæma mælinguna:

Skref 1

Stillið mælinn á Riso stillinguna og eftirfarandi mynd á

að birtast:

Mynd 1.

(skýringar við mynd)

50V - Síðasta stilling á mælispennu.

1M - Síðasta lágmarksgildi sem stillt hefur verið inn.

Um - Raunveruleg prófunarspenna.

18:35:27 - Rauntímaklukka

Skref 2

Veljið prófunarspennuna með Uiso (F2).

Hægt er að velja milli 50, 100, 250, 500 & 1000V.

Valin spenna er sýnd efst á skjánum.
Skref 3

Stillið inn lágmarksgildi einangrunarinnar.

Ef lágmarksgildi er stillt inn þá sýnir mælirinn

aðvörunarmerki og “Result under limit” á skjánum

ef mælt gildi er undir innstilltu lágmarksgildi.

Range (M) Step (M)

0,01 - 0,25 0,01

0,25 - 1 0,05

1 - 10 1

10 - 200 10

Mynd 2.

Hvernig á að stilla inn lágmarksgildið?

Þrýstið á Llim (F3). Hægt er að velja gildi milli 0,00M

og 200M. Til að stilla inn gildið eru notaðir

hnapparnir (F2) og (F3). Ef ekki á að bera

mæligildið saman við lágmarksgildi þá er hægt að

slökkva á því með því að þrýsta á Off (F4).

Lágmarksgildið sem sýnt er efst á skjánum breytist þá

í *M og hnappurinn (F4) breytist í On þannig að

hægt er að kveikja aftur á lámarksgildinu.

Þrýstið á Back (F1) til að komast aftur yfir í mælinga

skjámyndina.
Skref 4

Tengið mælinn við lögnina, samanber mynd 6.

Mynd 3.

Skref 5

Þrýstið á START hnappinn og haldið honum niðri þar

til mæliniðurstaða er hætt að flökta. Sleppið þá

hnappnum. Mæliniðurstaðan er þá sýnd á skjánum,

sjá mynd að neðan.

Mynd 4.

Geymið mæliniðurstöðuna í mælinum, sjá kafla 4.3.

Ath.

Ef spenna hærri en 30V AC/DC er til staðar í lögninni

sem prófa á mun mælirinn ekki framkvæma mælingu.

Mælirinn sýnir þá viðvörunarmerki á skjánum og lætur

heyra í sér.
3.2 Yfirspennu varbúnaður (varistor varbúnaður)

Hvernig skal að haga spennufallsprófun?

Skref 1

Tengið kapalinn við eurotest 61557 mælinn.

Ath.

Styðjið á FUNC(F1), og eftirfarandi mynd birtist.

Mynd 5.

Skilgreining á Uac spennu:

Varnarbúnaður t.d. fyrir AC net er venjulega mældur

um það bil 20% af venjulegri yfirspennu.

Dæmi:

Netspenna Un = 230V

Yfirspenna = 230V*1,41 = 324V

Spennubrot = (yfirspenna + 0,2 * Un) = Un*1,6 =

368V

Skref 2

Stilla lámarksgildi. Seinna mun prófun vera samræmd

miðað við það gildi, ef mæling fer undir lámarksgildi

kemur þá upp merki “ ! “ og textinn

Result out of limits.
Hvernig á að setja lámarksgildi?

Þrýstið á Lim (F2) hnapp, til þess að stilla,

eftirfarandi mynd birtist.

Mynd 6.

Gildi milli 0 og 1000 V í 5 V skrefum má velja með því

að nota (F2) og (F3) hnappa. Ef prófun á ekki að

fara fram með lámarksgildi í huga, þá einfaldlega ýtið

á off (F4) hnappinn. Virkja lámarksgildi (birtist efst á

skjánum í línunni) skiptist út fyrir *V merki. Off

breytist þá í On, þetta er gert til þess að kveikja og

slökkva á virkni. Þrýstið á Back (F1) hnapp til þess að

komast til baka.

Skref 4

Tengið prufupinna til þess að prófa yfirspennu

búnað(varnarmótstöðuna), eins og mynd að neðan

sýnir (ýtið á help hnappinn fyrir grunnupplýsingar um

tengingar).

Mynd 7.
Skref 5

Þrýstið á Start hnappinn og sleppið.

Prufuspenna byrjar að rísa (500V/s) og um leið

og straumur mótstöðunnar nær gildi

1mA(brotspennan er skilgreind við það gildi),

prufuspenna mun birtast á skjánum.

Mælirinn hættir að keyra upp prufuspennu.

Sjá dæmi á mynd að neðan.

Mynd 8.

Vistið birtar niðurstöður til geymslu eða

skjalanotkunar, sjá leiðbeiningar um

hvernig á að vista í kafla3.4.

Ath.

Aftengja þarf samþykktar yfirspennuvarnir úr rásinni,

því þær geta haft áhrif á mælinguna.

Ef ekki er hægt að aftengja búnað úr rásinni, reynið

þá að taka úr sambandi alla þá hluti sem mögulega

geta haft áhrif.
3.3 Mæling á hlífðarleiðara

Mæling á hlífðarleiðara skal fara fram áður en spennu

er hleypt á nýrri eða breyttri lögn. (TN, TT veitur)

Varúð!

Gangið úr skugga um að lögnin sé

spennulaus.

Stillið mælinn á R200 mA / CONTINUITY continuiti

of protective conductors eða continuit mun birtast.

Veljið continuiti of protective conductors með því að

nota F1. Stilling er í lagi þegar R200 mA sést á

skjánum, sjá mynd að neðan.

Mynd 9.

Hægt er að nota vælu í mælinum sem gefur til kynna

hvort mæling sé innan marka eður ei, F3 til þess að

kveikja og slökkva á þeirri virkni. Setja þarf

hámarsgildi í mælinn og er það gert með því að styðja

á F2 og kemur þá upp gluggi eins og myndin sýnir.

Mynd 10.
F2 og F3 eru notaðir til að hækka eða lækka í það

gildi sem óskað er. Það er í skrefum á 0,1 fer hæst

í 20 . Hægt er að kveikja og slökkva á þessari virkni

með því að styðja á F4.

Að núllstilla viðnámsmælingu með tilliti til

mælasnúranna.

Mynd 11.

Ýtið á Comp (F4) og sleppið. Compensating t.leads

texti birtist og mun vera á í smá tíma, svo mun birtast

árangur 0,00 og Co merki mun koma á efri hluta

skjás sem gefur til kynna að mælitæki sé núllstillt með

tilliti til snúranna og tilbúið til notkunar.
Tengið svo mælinn eins og myndir að neðan sýna.

Mynd 12.

Mynd 13.

Styðjið á START hnappinn til þess að hefja mælingu

og hér er dæmi um útkomu.

Ath. R+ er annar endinn og R- hinn,

svo er tekið meðaltal þar á milli.

Mynd 13.

Enn er vísað í kafla 4.3 um vistun mælinga.

Nánar á síðum 20-23 í user manual.
3.4 Leiðnimæling

Virkni mælis er eins og hefðbundinn ohm mælir.

Varúð!

Tryggið að lögnin sem á að mæla sé ekki

spennuhafandi.

Skref 1

Stillið mælinn á R200mA / continuity á skífunni, veljið

þar Resistance með því að styðja á F1 hnappinn.

Viðnám á snúrunum hefur þegar verið tekið með í

reikninginn þegar stillt er á R200mA mælingu.

Skref 2

Hægt er að stilla hámarks og lágmarksgildi með því

að styðja á F2, hægt er að velja gildi milli 0,1 og

20 með því að nota hnappa F2 og F3 .

Mynd 14.

Skref 3

Styðjið á START hnappinn til þess að framkvæma

mælingu.

Nánar á síðum 24-26 í user manual.
3.5 Jarðviðnám

Eurotest mælirinn getur mælt viðnám jarðar með

þremur mögulegum aðferðum. Skoðum eitt dæmi.

Mæling með hefðbundinni 4 pinna mælingu.

Skref 1

Stillum mælinn á p RE á skífunni “Earth resistance”

mun birtast á skjánum.

Mynd 15.

Rc ... sýnir mælingu með standard snúrunum sem eru

settar í mælinn.

Rp ... sýnir mælingu ef nota á aukasnúrur með í

mælingu, þessar aukasnúrur eru aukabúnaður við

mælinn. (Jarðsnúrusett 50m) bls. 29. mynd 26.

Skref 2

Stilling hámarks og lámarksgilda fer fram eins og áður

í kaflanum (3.4. skref 1).
Skref 3

Hér er dæmi sýnt með aukasnúrum 20m, tengið eins

og mynd sýnir og framkvæmum mælingu með því að

styðja á START hnappinn.

(Einnig er hægt að styðja á HELP hnappinn til

þess að sjá upplýsingar um viðkomandi mælingu)

Mynd 16.

Dæmi um niðurstöðu mælinga.

Nánar á síðum 27-36 í user manual.
3.6 Prófun á jarðtengingu

Á meðan þessi prófun fer fram þarf að vera spenna á

lögninni. (Stillingar Rloop, Zloop, eða RCD) Mælirinn

prófar hvort spenna sé fyrir hendi og hvort jarðtenging

sé til staðar. Þessa prófun þarf að gera í öllum

tenglum. (Einfasa sem og þrífasa) bæði á nýjum og

viðbættum tenglum. Þar sem allir geta átt það að

hættu á að víxla tengingum, er þetta mjög mikilvægt.

Skref 1

Að framkvæma prófun, tengið mæli við tengil eða

grein í töflu eins og myndirnar sýna.

Mynd 17.

Mynd 18.
Skref 2

Styðjið svo á PE pinnana við START hnappinn.

Varúð!

Ef fasi greinist á jarðtengingu tengils skal

stöðva allar mælingar og laga vandamálið

áður en haldið er áfram.

Ávallt skal vera vel einangraður frá gólfi við

mælingar.
3.7 Jarðlekaprófun

Snertispenna.

Skref 1

Stillið mælinn á RCD og veljið þar Contact Voltage

með því að nota FUNC (F1) hnappinn. Þá sjáum við

mynd eins og þessa hér að neðan.

Mynd 19.

Ulim ... hámarks snertispenna

RI ...

Ulpe ... spenna milli fasa L og varnarleiðara PE

Skref 2

Hægt er að stilla Ulim með hnapp F4, þessa spennu

getum við stillt á milli 25 eða 50 V.

Skref 3

Mismunastraum er hægt að stilla á milli 10, 30, 100,

300, 500, 1000 mA með því að nota hnapp (F2) In

Þetta þarf að velja með tilliti til lekaliða sem er á

lögninni.
Skref 4

Að velja réttan liða á mælinum fyrir mælingu. Notið

(F3) hnappinn. Eftirfarandi tegundir eru í boði:

Heilbylgjuliði G venjulegur

Heilbylgjuliði S með töf.

Hálfbylgjuliði G venjulegur

Hálfbylgjuliði S með púlsvörn

Skref 5

Mælingar getum við framkvæmt eins og eftirfarandi

myndir sýna.

Mynd 20.

Mynd 21.
Skref 6

Styðjið á START og hefjið mælingu.

Dæmi um útkomu:

Mynd 22.

RE (jarðleiðni) kemur fram í mælingu ef auka

prufupinni er notaður, Uc er þá mælt með tilliti til auka

pinna (raunveruleg jörð).

RL(hringrásarviðnám) kemur fram ef auka prufupinni

er ekki til staðar, þá er snertispenna mæld með tilliti til

fasa.

Mæling snertispennu á venjulegum lekaliða með

mismunastraum 100mA eða lekaliða með töf er

margfölduð með 1,05 af öryggisástæðum og svo birt.

Birting viðnáms RE eða RL er reiknað sem Uc/ In.
Hringrásarviðnám til jarðar

Mælirinn er áfram stilltur á RCD og F1 hnappurinn

notaður til þess að fá upp RCD Rs í vinstra hornið

uppi.

Mynd 23.

Ulim ... hámarks snertispenna.

Uc ... snertispenna mæld

Ulpe ... spenna á milli fasa L og varnarleiðara PE

Skref 2 til skref 5

Endurtekning á fyrri mælingu.

Skref 6

Styðjið á START. (Ef aðeins er verið að mæla fasa L

og jörð PE þá þarf að ýta á hnappinn tvisvar).

Þessi mæling gæti tekið aðeins lengri tíma til þess

að fá mikla nákvæmni. (Allt að 1 mín).

Nánar á síðu 42 í user manual
3.8 RCD Útsláttartími

Af öryggisástæðum verður að mæla útsláttartíma

lekaliða, ef ske kynni að tæki eða annar búnaður

væri ekki í lagi.

Tafla . Leyfilegur útsláttartími samkvæmt staðli

EN 61009

Tegund In 2In 5 Stjörnumerkt

liða

In*

Venjulegur 0,3s 0,15s 0,04 Hámarks

útsláttartími.

Púlsliði 0,5s 0,2s 0,15 Hámarks

útsláttartími.

0,13s 0,06s 0,05s Lágmarks

útsláttartími.

Hvernig skal haga mælingu?

Mælir skal vera stilltur á RCD og notið

FUNC (F1) og veljið RCD t, sem á að birtast

í efra horni vinstramegin.

Mynd 24.

Ulim ... hámarks snertispenna

Uc ... snertispenna mæld

Ulpe ... spenna á milli fasa L og varnarleiðara PE
Veljið viðkomandi liða með (F2) og byrjið

mælingu með því að styðja á START.

Dæmi um útkomu:

Mynd 25.

Nánar á síðum 43-45 í user manual
3.9 Útsláttarstraumur

Enn er mælirinn stilltur á RCD á skífunni og valið

með (F1) RCD + rísandi merki eins og mynd sýnir.

Mynd 26.

Ulim ... hámarks snertispenna

Uci ... snertispenna mæld með útsláttartíma

Ulpe ... spenna milli fasa L og varnarleiðara PE

Að velja rétta stærð liða með (F2) og rétta tegund liða

með (F3)

Hefjið mælingu með því að styðja á START.

Dæmi um útkomu:

Mynd 27.

Nánar á síðum 46 og 47 í user manual
3.10 RCD sjálfvirk prófun

Stillið mælinn á AUTO test með (F1),

mynd eins og þessi mun birtast:

Mynd 28.

Tengið mælinn við tengil hvar sem er á lögninni (helst

sem lengst frá töflu) munið að alltaf má fara í hjálpina á

mælinum til þess að sjá hvernig tengja má mælinn við

veitu. Til að byrja styðjið á START og hefjið mælingu.

Gott er að vera sjálfur við mælinn og sjá mælingarnar

fara fram Mælirinn slær út liða og kemur með texta

SWICH ON þegar má slá inn lekaliðanum aftur, þessa

mælingu gerir hann 6 sinnum og það eina sem gera þarf,

er að fylgjast með og slá inn liðanum á milli mælinga.

Svona gæti þetta litið út eftir mælingu, mælir

sýnir 6 útsláttatíma og að RCD (lekaliði) sé í lagi.

Uc snertispenna innan marka.

Mynd 29.

Nánar á síðum 48-51 í user manual
3.11 Hringrásarviðnámsmæling

Hvað er hringrásarviðnám?

Leiðnin sem myndast þegar bilun verður í einangrun

og skammhlaup myndast milli fasa og jarðar er kölluð

hringrás. Stærð bilunarstraums ræðst af spennunni

og viðnáminu í hringrásinni (hringrásarviðnáminu).

Því hærra sem hringrásarviðnámið er því lægri verður

bilunarstraumurinn. Eftir því sem bilunarstraumurinn

er lægri því lengur eru varnirnar (bræðivör / sjálfvör)

að bregðast við og rjúfa strauminn.

Til að tryggt sé að vörin rjúfi snöggt við bilun þarf

hringrásarviðnámið að vera nógu lágt til að

straumurinn verði nægjanlega mikill.

Hversu mikið hringrásarviðnámið má vera ræðst af

gerð varnanna. Hver lögn verður að vera prófuð til

þess að tryggt sé að hringrásarviðnámið sé

nægjanlega lágt til að viðkomandi varnir geti brugðist

við innan ásættanlegs tíma.

Hvernig skal haga hringrásaviðnámsmælingu?

Hér má nota hvort tveggja pinna eða klóna og skífan

stillt á Zloop og upp kemur eftirfarandi mynd:

Mynd 30.

Isc...uppreiknaður skammhlaupsstraumur

R.....raunviðnám

XI....spanviðnám

UipeSpenna milli fasa og jarðar
Ath.

Til þess að skipta á milli gilda (sjá spennu eða tíðni)

þá notum við (F4) U/f hnappinn.

Skref 2

Veljið rétta pólun, notið hnapp (F1) POL,

pólun getur verið jákvæð eða neikvæð.

Af hverju þarf að velja rétta pólun ?

Við þessar mælingar eru sumir lekaliðar viðkvæmir

fyrir réttri pólun og geta slegið út. Með því að velja

rétta pólun minnka til muna líkurnar á að þetta geti

gerst þar sem straumur fer aðeins um hálfa bylgju á

hringrásaviðnámsmælingu.

Skref 3

Tengið mælinn eins og myndir sýna,

smellið á START og fáið niðurstöðu.

Mynd 31.
Mynd 32.

Mynd 33.

Ath.

Ef texinn Overheated birtist,

hafið engar áhyggjur og reynið aftur síðar,

(leyfið mælinum að kólna í smá stund).
3.12 Snertispenna við skammhlaupsstraum

Hér er aftur Zloop mæling notuð og gert eins og áður,

veljið rétta pólun, tengið eins og myndin hér

að neðan sýnir.

Mynd 34.

Smellið á START, mælirinn mun sjálfkrafa gera ráð

fyrir aukapinnanum sem við sjáum á myndinni að

ofan. Svona gæti mælingin litið út. Uc=snertispenna

þessi spenna má aldrei fara uppfyrir 50V.
3.13 Hringrásarviðnám milli fasa og núlls.

Hér er mæling nákvæmlega sú sama og í kafla 3.12

nema að hér er mælt á milli fasa og núlls, svo hér er

mælingu hagað eins. Notað er Zline á skífunni, munið

að nota HELP hnappinn til þess að forðast rangar

tengingar.

3.14 Hringrásaviðnám milli núlls og jarðar.

Hér breytist ekki mikið milli mælinga, nema það er

verið að nota aðrar aðferðir. Helsti kostur þessara

mælinga er að hér er notaður mjög lágur

prófunarstraumur eða minna en 15mA. Í mælingu hér

áður gat lekaliði verið að slá út og ef það er að gerast

þá flytjum við mælinguna hingað Rloop N-PE til þess

að forðast þau leiðindi. Mælt er með notkun Zloop þar

sem hún er nákvæmust.

Hvaða niðurstöðu fáum við úr þessu.

Jú í veitum TT og TN er þessi mæling (niðurstaða)

mjög svipuð standard hringrásamælingu eins og sýnd

er í kafla 3.11.

Hagið mælingum hér er eins og áður, og

skoðið tengingar með hjálp HELP hnappsins.

Nánar á síðum 52-61 í user manual
3.15 Fasaraðasjá

Stillið mælinn á phase rotation á skífu mælis og

veljum með (F1) phase rotation og mynd birtist eins

og hér að neðan.

Mynd 35.

U12 ... spenna milli fasa 1 og 2

U13 ... spenna milli fasa 1 og 3

U23 ... spenna milli fasa 2 og 3

Hér er hægt að tengja mælinn eins og sýnt er hér að

neðan og styðjið á START. Þá ætti að fást mæling

eins og er sýnd hér að neðan, ef fasaröðun er rétt.

Mynd 36.
Mynd 37.

Ath.

Hægt er að gera þessa prófun á spennu 100 til 440V.

3.16 Straummæling

Stillið mælinn á current á skífunni.

Tvær innri stillingar eru á mælinum. Current fyrir

hefðbundnar straummælingar með ampertöng og

peak current sem er sérstaklega ætluð til þess að

mæla ræsistrauma. Skipt er á milli stillinga með því

að styðja á (F1).

Ampertöngin er aukabúnaður og þarf að kaupa sér.

Nánar á síðum 64-67 í user manual
3.17 Ljósmæling

Stillið mælinn á sensor á skífunni og eftirfarandi mynd

birtist.

Mynd 38.

Hér þarf aðeins að koma ljósmælinum í samband við

Eurotest mælinn og styðja á START og mælirinn

gefur upp lúx tölu.

Ljósmælirinn er aukabúnaður og þarf að kaupa sér.

Nánar á síðum 68-69 í user manual
3.18 Greinaleitari

Tvær leiðir eru til þess að nota greinaleitarann í

Eurotest mælinum.

Á spennuhafandi lögn þar sem mælirinn gefur púls

eftir lögninni með spennu, eða á spennulausri lögn

þar sem mælirinn gefur sitt eigið merki eftir lögninni.

Mælirinn er stilltur á Locator á skífunni og eftirfarandi

skjámynd birtist.

Mynd 39.

Mælinum er komið fyrir á eftirfarandi grein í tengli eða

beintengt, og svo er greinaleitaranum rennt eftir

greinum á stigalögn eða töflu til þess að finna

viðkomandi grein. Greinaleitarinn gefur frá sér hljóð

þegar hann hefur fundið rétta grein.

Ekki er sama skjámynd sem birtist þegar er mælt á

spennuhafandi- eða spennulausri lögn. Vinstri mynd

sýnir mælingu á spennuhafandi lögn og hægri mynd

sýnir spennulausa lögn.

Mynd 40.

Greinaleitarinn er aukabúnaður og þarf að kaupa sér.

Nánar á síðum 70-72 í user manual.
3.19 Aflmæling

Tengið ampertöngina við mælinn sem og

prufupinnana og stillið mælinn á Power / energy á

skífu mælisins og veljið viðkomandi aflmælingu með

(F1).

Mynd 41.

W ... raunafl

VA ... sýndarafl

Var ... launafl

PF ... afl stuðull

Mynd 42.
Tengið mælinn svona við lögnina og styðjið á

START til þess að hefja mælingu og svo aftur til þess

að stöðva mælingu. Dæmi um útkomu:

Mynd 43.

Hægt er að framkvæma þessa mælingu á 10 til 440V

spennu. Og 10 mA til 200A.

3.20 Orkumæling

Hér er hægt að mæla orkunotkun yfir ákveðið

tímabil og tími er stilltur inn með (F2) fyrir

klukkutímann og (F3) fyrir mínútur.

Hægt er að setja tíma að 24 klukkutímum og

59 mínútum. Við tengjum mælinn eins og sýnt er á

mynd 41.

Styðjið á START hnappinn til þess að hefja mælingu,

niðurstöður uppfærast á 2 sek fresti, mælingin mun

standa yfir þangað til að settur tími er runninn út.
3.21 Harmoniskar sveiflur

Skref 1

Setjið ampertöngina við mælinn 1A/1mA ef ætlunin er

að mæla harmoniskar sveiflur á straum.

Annars er unversal snúrun sett við mælinn A1002 til

þess að mæla þessar sveiflur á spennu.

Stillið mælinn á HARMONICS á mælinum spennu eða

straummæling mun birtast eins og mynd sýnir.

Mynd 44.

Stillið spennu eða straumbjögun með því að styðja á

FUNC (F1) hnappinn.

Skref 2

Tengið snúrurnar við mælinn eins og myndin að

neðan sýnir. Einnig má styðja á HELP hnappinn til

frekari skoðunar.

Mynd 45.
Skref 3

Styðjið á START hnappinn. Mæling hefst og verður

stöðug, niðurstaða kemur strax í ljós. Heildar

harmoniskar sveiflur (THD) er hægt að láta birtast eða

gildi einstakra sveiflna. Veljið niðurstöðu með því að

styðja á DISP (F2) og skoðum eftirfarandi myndir.

Dæmi um niðurstöðu mælinga

(THD) og árangur gilda af prófaðri spennu/straum.

Mynd 46.

Dæmi um niðurstöðu mælinga

(einstakar sveiflur frá fyrstu til elleftu).

Mynd 47.
Dæmi um niðurstöðu mælinga

(einstakar sveiflur frá 13. til 21.)

Mynd 48.

Styðjið á START hnappinn til þess að stöðva

mælinguna. Síðasta straum mæling mun halda sér á

skjánum. Vistið inn mælingar eins og kafli 3.22 segir

til um.

Nánar á síðum 77-79 í user manual.
3.22 Að vista inn mælingar

Flestar mælingar er hægt að vista í mælinn. Eftir að

mæling hefur verið framkvæmd og niðurstaða birst á

mælinum, er stutt á SAVE hnappinn og eftirfarandi

mynd birtist.

Mynd 49.

Hér þarf að velja hvar við viljum vista viðkomandi

(setja í flokka) mælingu, með því að nota F1, F2 og

F3 hnappana. Alltaf er hægt að bæta við með því að

styðja á add hnappinn. Svo þarf að styðja aftur á

SAVE hnappinn til þess að staðfesta vistun.

Ath.

Hverja niðurstöðu fyrir sig er aðeins hægt að

vista einu sinni

Ef ekki á að sundurliða mælingar í vistun þá

er hægt að tvísmella á SAVE hnappinn og

allar niðurstöður vistast á sama stað.

Einnig er hægt að hætta við vistun með því

að styðja á ESC hnappinn.

Out of memory mun birtast þegar mælirinn

getur ekki tekið við fleiri gögnum, því að

minni hans fullt.
3.23 Að sækja áður vistaðar upplýsingar

Allar mælingar er hægt að sækja aftur með því

að nota RCL hnappinn og er það gert eins og áður.

Hnappar F1, F2 og F3 eru notaðir til þess að velja

hvað kalla á fram, síðan er stutt aftur á RCL

hnappinn til þess að staðfesta. Sést þá eitthvað

líkt og mynd 50 sýnir.

Mynd 50.
3.24 Að eyða vistuðum mælingum

Þetta er hægt að gera á þrjá vegu.

Hver niðurstaða tekin fyrir sig.

Niðurstöðum er eytt úr viðkomandi flokk.

Öllum vistuðum mælingum er eytt.

Ef ætlunin er að eyða einni færslu þarf að kalla fram

áður vistaðar mælingar og velja viðkomandi mælingu

eins og sýnt er hér að ofan. Þegar mælingin er fundin

er F4 eða clr notaður til þess að eyða.

Þegar heilum flokk er eytt er þetta gert nánast eins,

en veljið viðkomandi flokk og styðjið á F4 eða clr.

Til að eyða öllum vistuðum mælingum þarf að styðja á

SETUP hnappinn á mælinum, nota F2 til að flétta

niður að memory clear línunni. Þegar þangað er

komið er stutt á F3 til að opna glugga og síðast stutt á

F4 til að eyða öllum mælingum. Væntanlega mun

Wait texti birtast.

Nánar á síðum 85-90 í user manual.
3.25 Að setja mælinn í upphaflega uppsetningu

Hér þarf einfaldlega að halda inni F1 þegar mælirinn

er ræstur. Hard Reset texti mun birtast á skjánum

sem gefur til kynna að mælirinn hefur verið settur á

verksmiðjustillingu.

Sjá töflu 3 á bls. 91. í user manual.

Mælt er með að mælirinn sé kvarðaður

(endurstilltur af framleiðanda) á ársfresti til þess að

halda nákvæmni.

Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi,

en koma vonandi að góðum notum.

Íslensk þýðing:

Adam Þorsteinsson Reykjafell h/f