17.08.2013 Views

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Þá kom fram við aðalmeðferð að varðandi mörk við jökul er miðað við jökulbrún á hverjum

tíma þó þannig að innan landnáms sé.

3.5. Kröfur eigenda jarðarinnar Hofs

Þess er krafist að viðurkennt verði að þinglýstir eigendur Hofstorfu, þ.e. Hofs I, II, IV og Litla-

Hofs, „hafi beinan eignarrétt að öllu landi jarðarinnar, og að viðurkennt verði að heildarlandamerki

jarðarinnar séu þessi:

Að innan lína sem dregin er úr miðju Rótarfjalli, (p. 9) sem er uppí jökli og þaðan í innri enda

Litlafjalls, (p. 10) þaðan og í hæstu þúfu á svonefndum Miðjökli, (p. 11) svo þaðan beina sjónhending

út. (p. 12)

Að austan í línu sem dregin er úr fremri brún á Háskeri (p. 17) þar sem hún er hæst á klett sem

er innan við Kúaöldu (p. 16) í vörðu sem hlaðin er á Markhólma (p. 15) þaðan í melabót (p. 14) þá

sem er syðst af melum þeim sem eru upp undan Staðarfjöru, síðan ráða fjörumörk sem eru milli

Staðarfjöru og Tangafjöru. (p. 13). Við málflutning var kröfugerð fyrir Hof breytt þannig að til austurs

er gerð krafa frá upptökum Gljúfursár niður að fremri brún á Háskeri (p. 17) og svo áfram.

Kröfulínukort er teiknað í samræmi við þetta.

Ennfremur á jörðin Breiðamerkurfjall allt og land á Breiðamerkursandi, að vestan eru mörkin

sem hér segir: Toppurinn á Miðaftanstindi (p. 25) á Breiðamerkurfjalli sem beri í skarðið á Eiðnatindi

(p. 26) á sama fjalli. Hof á tvofimmtu hluta af grasnit í Ingólfshöfða.

Fjörur á jörðin þessar:

1. Tangafjara fyrir vestan Ingólfshöfða milli þessara marka: að vestan: Fremrimenn í Hafrafjalli

eiga að bera í klettinn fyrir norðan dýpsta skarðið á svonefndum Skörðum í Stafafellsfjöllum.

Að austan: Eystri endinn á vestustu melabótinni í Hofsmelum skal bera í eystra gilið

framan í Dalaskeri sem er upp af Mýravikinu Þaðan eru (mælt frá flæði) 3.550 metrar í beina

stefnu á haug þann sem er vestan undir Ingólfshöfða fyrir framan Kóngsöldu.

2. Hofsfjara fyrir austan Ingólfshöfða milli þessara marka: Að vestan: Máfasker sem er fyrir

austan Borgarklett á að bera í tindinn milli Skarðanna á Súlnatindum á Eystrafjalli. Að austan:

Mýramelur á að bera í nefið á Blesakletti.

3. Fjallsfjara milli þessara marka: Að vestan: Toppurinn á Miðaftanstindi (p.25) á Breiðamerkurfjalli

sem beri í skarðið á Eiðnatindi (p. 26) á sama fjalli. Að austan: Hærri þúfan á Máfabyggðum

skal bera austan í Múlahöfuðið sem er fremst austan í Breiðamerkurfjalli (p. 27)

og landamörk þau sömu (p. 27).“

Þá er krafist málskostnaðar úr hendi ríkissjóðs samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar, skv. framlögðum

málskostnaðarreikningi að skaðlausu.

„Landeigendur líta svo á að í kröfugerðinni felist jafnframt krafa um afnotarétt þeirra í þjóðlendu,

að öllum venjubundnum afnotum, að fornu og nýju, komi til þess að einhver hluti landsins

teljist þjóðlenda.“

Við aðalmeðferð var kröfugerð varðandi Hof breytt á þann veg að gerð er krafa frá upptökum

Gljúfursár í punkti 17a og í fremri brún á Háaskeri þar sem er punktur 17.

Þá kom fram við aðalmeðferð að varðandi mörk við jökul er miðað við jökulbrún á hverjum

tíma þó þannig að innan landnáms sé.

3.6. Kröfur eigenda jarðarinnar Fagurhólsmýrar

Þess er krafist að viðurkennt verði að þinglýstir eigendur Fagurhólsmýrar I, II og III „hafi beinan

eignarrétt að öllu landi jarðarinnar, og að viðurkennt verði að heildarlandamerki jarðarinnar séu

þessi: Landamörk Fagurhólsmýrar og Hofsnes eru: Frá upptökum Gljúfurár vestan Miðfellstanga

(p. 17 a) svo eftir gljúfrinu og fremst í gljúfurkjaft, þaðan í grjótvörðuna á Hamraenda, þaðan beina

línu í lítinn hólma, eða smáfit, næst vestan við Nýja-landið.

25

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!