17.08.2013 Views

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

1. ÚRLAUSNAREFNI, SKIPAN OG AÐILD

Ár 2003, föstudaginn 14. nóvember, er í óbyggðanefnd, sem starfar samkvæmt lögum um þjóðlendur

og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, sbr. lög nr. 65/2000, tekið

fyrir málið

nr. 1/2001, Öræfi í sveitarfélaginu Hornafirði,

hvort og þá hvaða land teljist til þjóðlendna,

hver séu mörk þjóðlendu við eignarland,

hvaða hluti þjóðlendu sé nýttur sem afréttur

og hver séu eignarréttindi innan þjóðlendu,

og í því kveðinn upp svohljóðandi

ÚRSKURÐUR

Úrskurð þennan kveða upp Karl Axelsson, formaður óbyggðanefndar, og nefndarmennirnir Allan

V. Magnússon og Ragnheiður Bragadóttir.

Aðilar málsins eru: 1

Fjármálaráðherra f.h. íslenska ríkisins vegna þjóðlendna og jarðanna Skaftafells I og III og

Sandfells, samkvæmt 11. gr. laga nr. 58/1998.

(Ólafur Sigurgeirsson hrl.).

Eigendur jarðanna Svínafells, Hofs, Fagurhólsmýrar, Hnappavalla, Kvískerja og eyðijarðanna

Fjalls og Breiðármerkur.

(Ólafur Björnsson hrl.)

Eigendur jarðarinnar Skaftafells II.

(Páll Arnór Pálsson hrl.)

Eigandi jarðarinnar Núpsstaðar.

(Bragi Björnsson hdl. og Einar Jónsson lögfræðingur)

Landsvirkjun.

(Þórður Bogason hdl.).

2. MÁLSMEÐFERÐ

Þann 1. júlí 1998 tóku gildi lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og

afrétta, nr. 58/1998. Lögin kveða á um að starfa skuli óbyggðanefnd sem hafi með höndum eftirfarandi

hlutverk, skv. 7. gr.:

a. Að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og

eignarlanda.

b. Að skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur.

c. Að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna.

1 Sjá nánar í fylgiskjali nr. IV (aðilaskrá).

17

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!