17.08.2013 Views

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SKÐRSLA ÌBYGGžANEFNDAR - Óbyggðanefnd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

140

Fjara tilheyrandi Fagurhólsmýri er sérstakleg tilgreind í landamerkjabréfi jarðarinnar og fer hún

ekki saman við lýsingu landamerkja en sá háttur er algengur í Öræfum. Fyrir landi Fagurhólsmýrar

eru, auk fjöru jarðarinnar sjálfrar, fjörur frá Sandfelli (Höfðavík), Hofi og Hofsnesi (Stúfur). Þá

hefur Hnappavallahjáleiga átt engjaítak í Húsfit, sjávarmegin við Landálinn. Í máli þessu hefur

verið upplýst um þann almenna skilning jarðeigenda í Öræfum að í fjörueign fyrir landi annarrar

jarðar felist einungis óbeinn eignarréttur, þ.e.a.s. ítaksréttur, svo sem til reka og selveiði. Engar vísbendingar

eru um að fyrir landi Fagurhólsmýrar sé að finna svokallaða almenningsfjöru, sbr.

umfjöllun um fjörur í almennum niðurstöðum óbyggðanefndar.

Á norðurhluta svæðisins er hálendi það og heiðarlönd sem að framan er lýst. Í fjalllendi Öræfa

teygir mosagróðurinn sig nú oft upp í 500-600 m hæð þar sem ekki er of mikill halli eða lausar

skriður. Við bestu gróðurskilyrði í fjalllendinu, s.s. í daldrögum og í snjódældum, er gróður fjölbreyttari

og gróskumeiri. Fjalllendið ofan við Fagurhólsmýri er nær alveg ógróið niður að undirhlíðum

þess. Í undirhlíðunum er strjáll mosagróður og unnið að uppgræðslu. Talið er vafalaust að

við upphaf landnáms hafi gróðurþekja í Öræfum, sem og á Íslandi í heild, verið mun meiri að víðáttu

og grósku en nú er, sbr. kafla 5.2.

Ekki eru heimildir um annað en að jörðin Fagurhólsmýri hafi verið byggð og nýtt eftir búskaparháttum

og aðstæðum á hverjum tíma. Innan þeirra marka, sem tilgreind eru í landamerkjabréfi

1922, og að því marki, sem land hefur komið undan jökli síðan, hafa eigendur jarðarinnar farið með

umráð og hagnýtingu og gert ráðstafanir með löggerningum á sama hátt og gildir um eignarland

almennt. Fjalllendið upp við jökul og Skeiðarársandur hafa ekki verið þar undanskilin enda þótt

nýting þar hafi verið takmörkuð. Óbyggðanefnd telur að tilvist ítaka á þessu svæði styrki beinan

eignarrétt þar, sbr. umfjöllun um ítök í almennum niðurstöðum óbyggðanefndar.

Ekki verður annað séð en að þetta eignarhald hafi verið án ágreinings eða athugasemda. Engar

heimildir eru um að land innan marka jarðarinnar hafi mismunandi eignarréttarlega stöðu og verða

staðhættir, gróðurfar eða nýtingarmöguleikar ekki taldir hafa úrslitaáhrif í því sambandi. Þá verður

fyrirkomulag smölunar ekki talið hafa eignarréttarlega þýðingu.

Sá jökuljaðar, sem eigendur jarðarinnar Fagurhólsmýrar gætu hafa horft til þegar þeir lýstu

merkjum í jökul, síðast 1922, hefur gengið til baka. Land, sem þá var hulið jökli, er því jökullaust

nú. Sá jökuljaðar, sem líkur eru á að landnám hafi miðast við, hefur hins vegar síðar gengið fram.

Land, sem nú er hulið jökli, hefur því verið jökullaust á þeim tíma. Engin leið er að ákvarða með

nokkurri vissu hvaða landsvæði hafa horfið undir jökul frá landnámi. Þá hefur óbyggðanefnd

komist að þeirri niðurstöðu, sbr. kafla 9.3., að þegar merki jarðar eru miðuð við jaðar jökuls og

þeim því ekki lýst nema að takmörkuðu leyti í landamerkjabréfi, beri að miða við stöðu jökuljaðarsins

við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998, sbr. 22. gr. þjóðll. Um réttarstöðu þess

jökulsvæðis ofan Fagurhólsmýrar sem til meðferðar er í máli þessu vísast til kafla 10.12.

Af hálfu íslenska ríkisins hefur ekki verið sýnt fram á að land innan tilgreindra landamerkja

jarðarinnar Fagurhólsmýrar sé þjóðlenda. Rannsókn óbyggðanefndar leiðir einnig til þeirrar

niðurstöðu að þar sé um eignarland að ræða, sbr. einnig umfjöllun í kafla 9.6., án þess þó að tekin

sé afstaða til þess hver fari með þau eignarréttindi eða hver séu mörk milli eignarlanda, sbr. 7. gr.

laga nr. 58/1998.

Það er því niðurstaða óbyggðanefndar að land jarðarinnar Fagurhólsmýri, svo sem því er að

framan lýst, að jökuljaðri eins og hann var við gildistöku þjóðlendulaga 1. júlí 1998, teljist ekki til

þjóðlendu í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr., laga nr. 58/1998.

10.8. Hnappavellir

Hér verður fjallað um landsvæði það sem afmarkað er í landamerkjabréfi Hnappavalla, dags. 3. maí

1890 og þingl. 14. maí 1891. Við þá umfjöllun verður ekki tekið tillit til síðari skiptingar lands

innan þeirra merkja en jörðin skiptist nú í Hnappavelli I-VIII.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!