You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Hér með er skorað á þá er telja til eignarréttinda yfir landi eða annarra réttinda á ofangreindu

landsvæði að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir óbyggðanefnd, Hverfisgötu 4a, 101 Reykjavík, innan

þriggja mánaða frá útgáfudegi þess tölublaðs Lögbirtingablaðsins sem tilkynning þessi birtist í. Með

kröfum þurfa að fylgja þær heimildir og gögn sem aðilar byggja rétt sinn á ásamt uppdrætti af mörkum

þess landsvæðis/jarðar sem kröfur lúta að, allt í fjórriti.

Sérstaklega er áréttað að tilkynning þessi nær til allra þeirra aðila sem telja til réttinda á ofangreindu

landsvæði, án tillits til þess hvort þeir koma fram í lýsingu á afmörkun svæðisins.

Tilkynning óbyggðanefndar var birt í Lögbirtingablaðinu 5. mars 1999. Útdráttur úr efni hennar

var birtur í Morgunblaðinu og víðar. Jafnframt lét nefndin þinglýsa yfirlýsingu þessa efnis á þær

fasteignir á svæðinu sem skráðar eru í þinglýsingabók sýslumannsins á Selfossi, sbr. 1. mgr. 10. gr.

laga nr. 58/1998. Málið var að auki kynnt fyrir sveitarstjórnum, sýslumannsembættum og fleiri

aðilum.

Óbyggðanefnd framlengdi hinn upphaflega frest í þeim tilvikum þegar leitað var eftir slíku með

rökstuddum hætti. Jafnframt vakti nefndin athygli málsaðila á augljósu misræmi eða villum í

málatilbúnaði og gaf færi á lagfæringum.

2.2. Lýstar kröfur og kynning

Óbyggðanefnd bárust kröfulýsingar íslenska ríkisins um þjóðlendur í 7 hreppum og 57 aðrar kröfulýsingar

sem sumar tóku til fleiri en einnar jarðar eða stærri landsvæða. Síðustu kröfulýsingar

bárust 22. október 1999.

Þann 29. október gaf óbyggðanefnd út yfirlit yfir lýstar kröfur og uppdrátt sama efnis. Lögboðin

kynning fór fram með því að yfirlit og uppdráttur lágu frammi á skrifstofu sýslumannsins á Selfossi,

dagana 1.-30. nóvember 1999, og að auki til loka athugasemdafrests 31. desember. Vakin var

athygli á kynningunni með auglýsingum í fjölmiðlum. Jafnframt fengu hlutaðeigandi sveitarstjórnir

og afréttarmálafélag yfirlit og uppdrátt óbyggðanefndar til upplýsingar.

Engar athugasemdir bárust fyrir desemberlok en eftir þann tíma hafa aðilar gert nokkrar breytingar

á kröfum sínum. Í janúar 2000 bárust kröfulýsingar fyrir fimm jarðir, allar í Hrunamannahreppi.

2.3. Afmörkun máls nr. 2/2000

Í janúar 2000 var aðilum tilkynnt að ákveðið hefði verið að fjalla um svæðið í eftirfarandi 7 málum

og var hreppamörkum þar fylgt í meginatriðum:

Mál nr. 1/2000; Þingvallakirkjuland og efstu jarðir í Þingvallahreppi.

Mál nr. 2/2000; Grímsnesafréttur og jarðir umhverfis Lyngdalsheiði í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Mál nr. 3/2000; Laugardalsafréttur og efstu jarðir í Laugardalshreppi.

Mál nr. 4/2000; Biskupstungnaafréttur og efstu lönd í Biskupstungnahreppi.

Mál nr. 5/2000; Hrunamannaafréttur og efstu lönd í Hrunamannahreppi.

Mál nr. 6/2000; Flóa- og Skeiðamannaafréttur.

Mál nr. 7/2000; Gnúpverjaafréttur, Þjórsárdalur og efstu jarðir í Gnúpverjahreppi.

Jafnframt var gerð grein fyrir því hvaða nefndarmenn færu með hvert mál. Þá fengu fyrirsvarsmenn

málsaðila afhent afrit kröfulýsinga og fylgigagna annarra aðila að viðkomandi máli. Óskað

var eftir athugasemdum við fyrirhugaða skiptingu svæðisins í mál og hæfi einstakra nefndarmanna

innan tiltekins frests. Engar athugasemdir bárust.

Vesturmörk þess svæðis, sem hér er til meðferðar, eru samkvæmt tilkynningu óbyggðanefndar

frá 1. mars 1999 „Mörk Árnessýslu og Borgarfjarðarsýslu og vestur- og suðurmörk Þingvallalands.“

Á fundi óbyggðanefndar 21. desember 1999 var eftirfarandi bókað um þetta atriði:

127