17.08.2013 Views

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

194

liggjandi jarða, nema Miðengis og Hraunkots. Landamerkjabréf Miðengis, dags. 24. maí 1885 og

þingl. 24. júní 1886, er hins vegar áritað vegna Klausturhóla. Landamerkjabréf Hraunkots er dags.

2. júní 1885 og þingl. 6. júní 1885. Enda þótt gagnkvæmar áritanir skorti ber bréfum Hraunkots og

Klausturhóla saman um að merki liggi úr Arnarhreysi að mörkum við Vaðnes, í stefnu á Gráhellu.

Lýsingar á landamerkjum Klausturhóla er þannig að finna í heimildum frá 1830 og 1890. Þeim

ber saman í öllum meginatriðum.

Hér hefur að framan verið rakið hvernig Klausturhóla er getið í heimildum allt frá 14. öld. Af

þeim verður ráðið að um sjálfstæða jörð hafi verið að ræða, sbr. umfjöllun í kafla 10.4.2. Jafnframt

eru líkur til þess að landsvæði það sem hér er til umfjöllunar sé innan upphaflegs landnáms í

Grímsneshreppi. Þá benda fyrirliggjandi gögn til þess að landamerkjum Klausturhóla sé rétt lýst í

landamerkjabréfi, dags. 3. júni 1890. Ekki eru heimildir um annað en að jörðin hafi verið byggð og

nýtt eftir búskaparháttum og aðstæðum á hverjum tíma.

Svo sem að framan greinir tekur þjóðlendukrafa íslenska ríkisins ekki til jarðanna Klausturhóla

og Hallkelshóla I og II. Jafnframt benda þau gögn málsins sem hér hafa verið reifuð ekki til annars

en að þar sé um eignarland að ræða, sbr. einnig umfjöllun í kafla 10.6., án þess þó að tekin sé afstaða

til þess hver fari með þau eignarréttindi eða hver séu mörk milli eignarlanda, sbr. 7. gr. laga

nr. 58/1998.

Það er því niðurstaða óbyggðanefndar að landsvæði það sem afmarkað er í landamerkjabréfi

Klausturhóla frá 3. júní 1890 teljist ekki þjóðlenda í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr., laga nr.

58/1998.

11.9. Neðra-Apavatn

Kröfugerð íslenska ríkisins gerir ráð fyrir að þjóðlendulínan liggi norðan þess lands sem samkvæmt

landamerkjalýsingu frá 2. júní 1890 telst innan landamerkja jarðarinnar Neðra-Apavatns og taki

ekki til lands innan þeirra. Enginn ágreiningur er því með fjármálaráðherra f.h. ríkisins og

Ingibjörgu Ebbu Magnúsdóttur, þinglýstum eiganda jarðarinnar, um eignarréttarlega stöðu þessa

lands. Kröfum íslenska ríkisins í Grímsnes- og Grafningshreppi er nánar lýst í kafla 3.1. og kröfum

þinglýsts eiganda jarðarinnar í kafla 3.8.

Neðra-Apavatn er á meðal þeirra jarða sem taldar eru upp í tilkynningu óbyggðanefndar, dags.

1. mars 1999, þegar norðurhluti Árnessýslu var tekinn til meðferðar. Ástæða er því til að gera

sérstaka grein fyrir athugun óbyggðanefndar á jörðinni, sbr. rannsóknarreglu 5. mgr. 10. gr. þjóðlendulaga

nr. 58/1998.

Elsta heimild um Neðra-Apavatn er frá 13. öld. Í jarðabók frá lokum 16. aldar er Neðra-Apavatn

skráð sem eign Skálholtsstóls. Jarðarinnar er einnig getið í jarðabókum 1686, 1695 og 1708. Hún

var seld undan Skálholtskirkju á stólsjarðauppboðinu 23. febrúar 1791. Þá er hennar getið í jarðabókunum

1847 og 1861. Í þessum heimildum er ekkert fjallað um landamerki Neðra-Apavatns.

Fyrstu lýsinguna á landamerkjum jarðarinnar er að finna í landamerkjabréfi, dags. 2. júní 1890.

Þar er merkjum lýst þannig:

Úr Apármynni svo lengi sem Apaá ræður, fyrir norðan efra Smiðjuholt og úr áarbotninum þar beint í

Stórhól og þaðan sjónhending í Þrasaborgir, úr Þrasaborgum sjónhending í „Markholt“ í þúfu á því,

vestan undir nyrsta odda á Lingdalsmýrum, úr Markholti í þúfu á syðstu Lingdalshæð, þaðan sjónhending

í þúfur á Melhól, mið Hoffmannahól, nyrsta Tjaldhól og beint í Morulækjarmynni, sem fellur

í Stangarlæk, og ræður svo sá lækur merkjum út í Apavatn, sem svo ræður í fyrstnefnt Apármynni.

Landamerkjabréf þetta er þinglesið 6. júní sama ár og innfært í landamerkjabók sýslumanns.

Að Neðra-Apavatni liggja jarðirnar Klausturhólar, Efra-Apavatn, Mosfell, Þóroddsstaðir og

Björk. Er þá ekki tekið tillit til breytinga sem orðið hafa á aðliggjandi jörðum eftir gerð landa-

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!