17.08.2013 Views

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Bréfið er þinglesið 6. júní 1885 og innfært í landamerkjabók sýslumanns.

Að Hæðarenda liggja Búrfell, Klausturhólar og Miðengi. Er þá ekki tekið tillit til breytinga sem

orðið hafa á aðliggjandi jörðum eftir gerð landamerkjabréfsins. Landamerkjabréfið er áritað um

samþykki vegna allra framangreindra jarða.

Lýsingar á landamerkjum Hæðarenda er þannig að finna í heimildum frá 1586 og 1885. Þær eru

frábrugðnar að því leyti að samkvæmt áreiðarbréfinu er nyrsti punktur að vestanverðu í

Grenjabrekkum en í landamerkjabréfinu eru Þrasaborgir nyrsti punktur. Af örnefnalýsingu fyrir

Hæðarenda frá 1971 má ráða að Grenjabrekkur eru fyrir norðan Markagil, ekki langt suður af

Þrasaborgum.

Elstu heimildir um landamerki jarða á Lyngdalsheiði eru, auk framangreinds áreiðarbréfs, lýsing

merkja Laugarvatns og Snorrastaða frá 1497, vitnisburður frá 1618 um landamerki Laugarvatns

og lögfestur Klausturhóla frá 1830, 1842 og 1846. Samkvæmt þessum lýsingum utan merkjalýsingarinnar

og áreiðarbréfsins eru merki í Þrasaborgir. Klausturhólar eru næsta jörð austan við Hæðarenda

og Laugarvatnsjörðin gamla er handan við Þrasaborgir, beint norður af Hæðarenda. Í kjölfar

þess að landamerkjalög taka gildi 1882 eru gerð landamerkjabréf fyrir jarðir á Lyngdalsheiði, nánar

tiltekið á tímabilinu 1884-1890. Allar þessar merkjalýsingar ná í Þrasaborgir á miðri Lyngdalsheiði.

Með hliðsjón af gögnum um merki aðliggjandi jarða verður ekki talið að lýsing norðurmarka

Hæðarenda í áreiðarbréfi frá 1586 og merkjalýsing Laugarvatns frá 1497 gangi framar lýsingu

sömu marka í landamerkjabréfi sem gert er um 300 árum síðar.

Hér hefur að framan verið rakið hvernig Hæðarenda er getið í heimildum allt frá 16. öld. Af

þeim verður ráðið að um sjálfstæða jörð hafi verið að ræða, sbr. umfjöllun í kafla 10.4.2. Jafnframt

eru líkur til þess að landsvæði það, sem hér er til umfjöllunar, sé innan upphaflegs landnáms í

Grímsneshreppi. Þá benda fyrirliggjandi gögn til þess að landamerkjum Hæðarenda sé rétt lýst í

landamerkjabréfi, dags. 24. maí 1885. Ekki eru heimildir um annað en að jörðin hafi verið byggð

og nýtt eftir búskaparháttum og aðstæðum á hverjum tíma.

Svo sem að framan greinir tekur þjóðlendukrafa íslenska ríkisins ekki til jarðarinnar Hæðarenda.

Jafnframt benda þau gögn málsins, sem hér hafa verið reifuð, ekki til annars en að þar sé um

eignarland að ræða, sbr. einnig umfjöllun í kafla 10.6., án þess þó að tekin sé afstaða til þess hver

fari með þau eignarréttindi eða hver séu mörk milli eignarlanda, sbr. 7. gr. laga nr. 58/1998.

Það er því niðurstaða óbyggðanefndar að landsvæði það sem afmarkað er í landamerkjabréfi Hæðarenda

frá 24. maí 1885 teljist ekki þjóðlenda í skilningi 1. gr., sbr. einnig a-lið 7. gr., laga nr. 58/1998.

11.7. Kaldárhöfði

Kröfugerð íslenska ríkisins gerir ráð fyrir að þjóðlendulínan liggi norðan þess lands sem samkvæmt

landamerkjalýsingu frá 3. maí 1884 telst innan landamerkja jarðarinnar Kaldárhöfða og taki ekki

til lands innan þeirra. Þá lýsir sami aðili fyrir hönd Þingvallakirkju kröfu um beinan eignarrétt að

landi jarðarinnar innan sömu merkja. Kröfum þessum er nánar lýst í kafla 3.1. Um kröfugerð

Landsvirkjunar á svæðinu og úrlausn óbyggðanefndar um hana vísast til kafla 3.11. og 12.

Kaldárhöfði er ein þeirra jarða sem taldar eru upp í tilkynningu óbyggðanefndar, dags. 1. mars

1999, þegar norðurhluti Árnessýslu var tekinn til meðferðar. Ástæða er því til að gera sérstaka grein

fyrir athugun óbyggðanefndar á jörðinni, sbr. rannsóknarreglu 5. mgr. 10. gr. Þjóðlendulaga, nr.

58/1998.

Elsta heimild um Kaldárhöfða er frá 16. öld og jarðarinnar er einnig getið í jarðabókum árið

1686, 1695 og 1708. Kaldárhöfði er seldur undan Skálholtskirkju á stólsjarðauppboðinu 18. júní

1790 og kemst þá í einkaeign. Hans er einnig getið í jarðabókum 1847 og 1861. Í þessum heimildum

er ekkert fjallað um landamerki Kaldárhöfða.

Fyrstu lýsinguna á landamerkjum jarðarinnar er að finna í landamerkjabréfi, dags. 3. maí 1884.

Þar lýsir eigandi landamerkjum hennar þannig:

191

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!