17.08.2013 Views

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

2_2000 Grim.qxd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Árið 1830, 20. júní, lögfesti Jón Jónsson landamerki Klausturhóla:

Eptir skriflegum og munnlegum vitnisburðum þeirra gamalla manna, sem verið hafa á Klausturhólum

og þar í grend sem kunnugir og minnugir sömuleiðis eptir máldögum kirkna og Árna Magnússonar

jarðabók lögfesti eg undirskrifaður Klausturhólaland með þess gögnum og gæðum engium og ítökum

til lands og vatns innan hjer tjeðra landamerkja, sem eru að norðan úr Þrasaborgum sjónhending austur

eptir því hæðst liggjandi upp á Löngubrekkum og í hæðsta og austasta melinn á Hrólfshólahálsinum

og í gilið, sem þar byrjar neðan undir og rennur ofan á Sláttuflöt, sjónhending aptur úr því gili í þúfuna

eður giljaklafana austur af Lingdalsmýraroddanum, sem er hornmark á Klausturhólalandi, en

Bjarkarland tekur við að sunnan, og ráða þar mörkum litlu holtin milli Lingdalslækjanna og sjónhending

í stóra steininn austarlega á Langamel og þaðan stefnu í þúfurnar á Skógarholti til þeirrar syðstu,

þaðan aptur sjónhending í tvíbytnuna í Ljósaviki, ræður svo lækurinn úr henni í Engjatungulækinn, þá

úr Markakeldu, sem er á vestri lækjarbakkanum á straxnefndum Engjatungulæk og sjónhending eptir

þeim vörðum sem eru á Háfaleyti sömu stefnu neðan undir Hústóptinni í Arnahreysi, sem er hornmark,

og þaðan aptur sjónhending í Gráhellu, þaðan stefnu í vörðuna á Kálfshólakeri og sömu stefnu norður

í lækinn, ræður svo Hæðarendalækur mörkum og Bauluvatn, síðan Hrólfsgil upp undir miðja Nípuhólsflöt,

þá sjónhending í miðjan Nípuhól og sömu stefnu upp í Þrasaborgir. Sömuleiðis á kirkjan

skógarhögg í Miðengislandi til eldiviðar. Fyrirbýð eg einum og sjerhverjum að hagnýta sjer, yrkja eður

yrkja láta Klausturhólaland innan hjer tjeðra landamerkja nema mitt lof eða leyfi hafi, undir fullkomnar

bætur sem lög til segja. 1

Svipaðar lögfestur eru frá árunum 1842 og 1846. 2

Landamerkjabréf Klausturhóla með tilheyrandi hjáleigu var undirritað 3. júní 1890 og samþykkt

vegna jarðanna Hæðarenda, Stóruborgar, Neðra-Apavatns, Vaðness, Snæfoksstaða og Foss.

Bréfið var þinglesið á manntalsþingi að Stóruborg 6. júní 1890:

Milli jarðanna Klausturhóla og Neðraapavatns eru þessi merki: Þrasaborgir hornmark, þaðan bein

stefna í þúfu, sem er fyrir ofan austasta Lyngdalsmýrar oddan, þess þúfa er hornmark milli Klausturhóla

og Bjarkar.

Milli Klausturhóla og Bjarkar eru þessi merki: næstnefnd þúfa og úr henni sjónhending í stóran stein

(Stóri-Steinn) austarlega á Laugamel, þaðan sjónhending í syðstu þúfu á Skógarholti, sem er hornmark

milli jarðanna Klausturhóla, Bjarkar og Stóruborgar.

Milli Klausturhóla og Stóruborgar eru þessi merki: úr áðurnefndri þúfu á Skógarholti sjónhending í

Tvíbytnu í Ljósaviki, þaðan ræður Tvíbytnulækur og Engjatungulæk.

Milli Klausturhóla og Foss eru þessi merki: Markakelda, sem er vestri bakka Engjatungulækjar; úr

Markakeldu sjónhending í Árnahreysi, sem er hornmark milli Klausturhóla, Foss og Hraunkots.

Milli Klausturhóla, Hraunkots og Vaðness eru þessi merki: Úr áðurnefndu Árnahreysi í Gráhellu.

Úr Gráhellu er bein stefna í vörðuna á Kálfshólakeri þaðan sama bein stefna í Hæðarendalæk.

Svo ræður Hæðarendalækur mörkum uppí Bauluvatn, úr Bauluvatni ræður Hrólfsgil upp undir miðja

Nýpuhálsflöt, þá sjónhending í miðjan Nýpuhól og úr honum sama stefna í fyrstnefndar Þrasaborgir. 3

1 Skjal nr. 190 (5).

2 Skjal nr. 190 (8-10).

3 Skjal nr. 60.

151

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!