You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
138

5. Máldagar

Íslenskt fornbréfasafn – Yfirfarið (sbr. minnisblað óbn., dags. 29.5.2000, skjal nr. 185).

6. Skjalasöfn stiftamtmanns, amtmanns og landshöfðingja

Lovsamling for Island – Yfirfarið (sbr. minnisblað óbn., dags. 20.6.2000, skjal nr. 180).

Stjórnartíðindi – Yfirfarið (sbr. minnisblað óbn., dags. 20.6.2000, skjal nr. 180).

Sjá að öðru leyti lið A-9 (óprentað efni úr skjalasöfnum ...).

7. Landnáma

Óbyggðanefnd hefur gengið úr skugga um að í málinu hefur verið lagt fram það efni Landnámu

sem varðar landnám á því svæði sem um er fjallað í málinu. Skjal nr. 201.

8. Bréfabækur biskupa

Bréfabók Guðbrands Þorlákssonar: Yfirfarin (sbr. minnisblað óbn., dags. 23.1.2001, skjal nr.

200).

Sjá að öðru leyti lið A-10 (óprentaðar bréfabækur biskupa).

9. Alþingisbækur Íslands

Yfirfarnar (sbr. minnisblað óbn., dags. 29.5.2000, skjal nr. 181).

10. Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns (1.-12. bindi)

Yfirfarin (sbr. minnisblað óbn., dags. 5.6.2000, skjal nr. 178).

Sjá einnig lið B-1 (13. bindi Jarðabókar ...).

11. Önnur prentuð frumgögn

Hvorki starfsmenn Þjóðskjalasafns né óbyggðanefndar töldu ástæðu til að yfirfara gögn í þessum

flokki.

4.4. Vettvangsferð

Vettvangsferð fór fram 9. ágúst 2000 og í henni tóku þátt, auk nefndarmanna, starfsmanna

óbyggðanefndar og lögmanna málsaðila, þeir Gunnar Þorgeirsson oddviti og Böðvar Pálsson,

fyrrverandi oddviti, af hálfu jarðeigenda. Heimamenn veittu leiðsögn um svæðið. Fyrst var haldið

eftir Gjábakkavegi þar til snúið var við á móts við Stelpuhelli. Við Reyðarbarm var beygt til norðurs

og haldið eftir vegarslóða að vörðunni Bragbót þar sem staðnæmst er og staðhættir skoðaðir. Þessu

næst er haldið áfram eftir vegarslóðanum uns snúið var við hjá stórum steini sem kallaður mun

Steingrímur, undir Skefilfjöllum. Var þá komin svo mikil þoka að ekki þótti fært að halda vettvangsferð

áfram. Þann 10. ágúst var vettvangsferð haldið áfram og í henni tóku þátt, auk nefndarmanna,

starfsmanna óbyggðanefndar og lögmanna málsaðila. Böðvar Pálsson veitti leiðsögn um

svæðið. Fyrst var haldið upp Miðdalsfjall í Laugardalshreppi og staðnæmst þar sem útsýni var yfir

staðhætti. Því næst var haldið áleiðis að Hlöðufelli og áð á Hlöðuvöllum. Þar gerði Ingvi Þorsteinsson

grein fyrir gróðurfari Grímsnes- og Laugardalsafrétta fyrr og nú. Haldið var áfram Eyfirðingaveg

en þaðan farið inn á svonefnda Langadalsleið og á vegarslóða þann undir Skefilfjöllum sem

ekinn var daginn áður og þaðan niður á Gjábakkaveg.

4.5. Skýrslutökur

Við aðalmeðferð málsins gáfu skýrslur þeir Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps

og garðyrkjubóndi í Ártanga, og Böðvar Pálsson, fyrrverandi oddviti og bóndi að Búrfelli

II-III.