Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
132

stefna í þúfu, sem er fyrir ofan austasta Lyngdalsmýrar oddann, þess þúfa er hornmark milli

Klausturhóla og Bjarkar.

2. Milli Klausturhóla og Bjarkar eru þessi merki: Næstnefnd þúfa og úr henni sjónhending í stóran

stein (Stóri-Steinn) austarlega á Laugamel, þaðan sjónhending í syðstu þúfu á Skógarholti, sem er

hornmark milli jarðanna Klausturhóla, Bjarkar og Stóru-Borgar.

3. Milli Klausturhóla og Stóruborgar eru þessi merki: Úr áðurnefndri þúfu á Skógarholti sjónhending

í Tvíbytnu í Ljósvirki, þaðan ræður Tvíbytnulækur að Engjatungulæk.

4. Milli Klausturhóla og Foss eru þessi merki: Markakelda, sem er vestri bakka Engjatungulækjar úr

Markakeldu sjónhending í Árnahreysi, sem er hornmark milli Klausturhóla, Foss og Hraunkots.

5. Milli Klausturhóla, Hraunkots og Vaðness eru þessi merki: Úr áðurnefndu Árnahreysi í Gráhellu.

6. Úr Gráhellu er bein stefna í vörðuna á Kálfhólaskeri þaðan sama bein stefna í Hæðarendalæk.

7. Svo ræður Hæðarendalækur mörkum uppí Bauluvatn, úr Bauluvatni ræður Hrólfsgil upp undir

miðja Nýpuhálsflöt, þá sjónhending í miðjan Nýpuhól og úr honum sama stefna í fyrstnefndar

Þrasaborgir.

Litið er svo á að í kröfugerð felist jafnframt krafa um afnotarétt í þjóðlendu, að öllum venjubundnum

afnotum að fornu og nýju, komi til þess að einhver hluti landsins teljist þjóðlenda.

Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu, skv. framlögðum málskostnaðarreikningi.

3.8. Krafa þinglýsts eiganda Neðra-Apavatns vegna lands innan landamerkja

Af hálfu Ingibjargar Ebbu Magnúsdóttur er þess krafist að viðurkennt verði að þinglýstur eigandi

jarðarinnar Neðra-Apavatns eigi beinan eignarrétt að öllu landi hennar og að viðurkennt verði að

landamerki jarðarinnar séu þessi:

Úr Apármynni svo lengi sem Apaá ræður, fyrir norðan efra Smiðjuholt og úr áarbotninum þar beint í

Stórhól og þaðan sjónhending í Þrasaborgir, úr Þrasaborgum sjónhending í Markholt í þúfu á því, vestan

undir nyrsta odda á Lyngdalsmýrum, úr Markholti í þúfu á syðstu Lyngdalshæð, þaðan sjónhending

í þúfur á Melhól, mið Hoffmannahól, nyrsta Tjaldhól og beint í Morulækjarmynni, sem fellur í

Stangarlæk og ræður sá lækur merkjum út í Apavatn, sem ræður í fyrstnefnt Apármynni.

Litið er svo á að í kröfugerð felist jafnframt krafa um afnotarétt í þjóðlendu, að öllum venjubundnum

afnotum að fornu og nýju, komi til þess að einhver hluti landsins teljist þjóðlenda.

Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu, skv. framlögðum málskostnaðarreikningi.

3.9. Krafa þinglýstra eigenda Þóroddsstaða vegna lands innan landamerkja

Af hálfu Bjarna Þorkelssonar o.fl. er þess krafist að viðurkennt verði að þinglýstur eigandi jarðarinnar

Þóroddsstaða eigi beinan eignarrétt að öllu landi hennar og að viðurkennt verði að landamerki

jarðarinnar séu þessi:

Að norðaverðu úr Morulækjarminni vestur í þúfu á norðasta Tjaldhól, þaðan beina stefnu í þúfu á mið

Hofmannahól, þaðan áfram haldandi stefna um Melhól í Þúfu norðast í syðstu Lingdalshæð beint í

hornmark millum Klausturhóla og Neðra-Apavatns. Að austan og sunnan ræður Stangarlækur útí

Áttungslækjarminni, þaðan bein stefna út í syðstu þúfu á Stelpuhæð, þaðan sjónhending í opinn

Lingdalslæk fyrir austan Lingdal, þaðan bein stefna í áðurnefnt hornmark.

Litið er svo á að í kröfugerð felist jafnframt krafa um afnotarétt í þjóðlendu, að öllum venjubundnum

afnotum að fornu og nýju, komi til þess að einhver hluti landsins teljist þjóðlenda.

Þá er krafist málskostnaðar að skaðlausu, skv. framlögðum málskostnaðarreikningi.