Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
æjarstæði Grímsstaða í Hrúthól austast á landsvæðinu eru um 30 km, mælt í beinni

loftlínu. Einnig ber þess að geta að talið er vafalaust að við upphaf landnáms hafi

gróðurþekja í Öxarfjarðarhreppi, svo sem á Íslandi í heild, verið mun meiri að víðáttu

og grósku en nú er, sbr. skjal nr. 15.

6.9.2. Sjónarmið aðila

Af hálfu íslenska ríkisins, sbr. skjöl nr. 1 og 1(6), er á því byggt að grundvöllurinn að

beinum eignarrétti að landi hérlendis hafi verið lagður á landnámsöld við nám. Eftir

það hafi lönd undirorpin beinum eignarrétti aldrei getað aukist heldur hafi eigendalaus

svæði orðið með tímanum fleiri. Þetta sé talið helst ráðið af lögtöku nýbýlatilskipunar

konungs 1776 sem beinlínis hafi verið lögtekin svo til væru úrræði til að gera

eigendalaus svæði að eignarlöndum og efla þar með byggð. Öxarfjörðurinn hafi verið

numinn eftir því sem greint er í heimildum en ekkert sé minnst á heiðarnar þar fyrir

ofan. Þar á móti komi svo landnám Ketils þistils, frá Hundsnesi til Sauðaness, sem

sömuleiðis geti ekki um hálendið og heiðarnar milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar.

Punktar 1-5 í kröfulínunni séu allt landamerkjapunktar Grímsstaðajarðarinnar. Í

landamerkjabréfi Grímsstaða segi að Grímsstaðir eigi land úr Hrútá þar sem hún falli í

Selá vestur Dimmagil í Svartfell. Þessari lýsingu mæti svo lýsingin í

landamerkjabréfinu á þá leið að farið sé frá upptökum Ytri-Vatnsleysu, þaðan beina

stefnu í Selá þar sem Hrútá falli í hana. Nú vilji svo til að bæði séu til Fremri-Hrútá og

Ytri-Hrútá og þessar fyrrgreindu lýsingar bendi frekar til að miðað sé við Fremri-

Hrútá þar sem Dimmagil er í nálægð Fremri-Hrútár en fjarri Ytri-Hrútá. Annað

Dimmagil finnist einnig norðar en sé lína dregin í þann punkt yrði stefnulínan frá

upptökum Ytri-Vatnsleysu í Hrútá afkáraleg.

Af hálfu gagnaðila, sbr. skjöl nr. 11 og 5(11), er byggt á þinglýstum

landamerkjabréfum og öðrum skráðum eignarheimildum sem þeir hafi fyrir þessari

eign sinni, og einnig þinglýstum landamerkjabréfum aðliggjandi jarða. Þá sé fullur

hefðartími liðinn frá því landamerkjabréfi fyrir Grímsstaði hafi verið þinglýst.

Gagnaðilar hafi farið með öll hefðbundin eignarréttindi Grímsstaða sem m.a. hafi lýst

sér í því að þeir hafi bannað öðrum not eignarinnar og öll nýting háð leyfi frá þeim. Á

því er byggt að ríkisvaldið hafi í aldanna rás margsinnis viðurkennt að umrætt land sé

undirorpið fullkomnum eignarrétti og aldrei haldið öðru fram. Taka verði Landnámu

með fyrirvara sem heimild og að það verði að telja röksemdir ríkisins, þess efnis að

landnám hafi ekki náð til heiða algerlega ósannaðar, enda ekki reistar á neinum

hlutlægum sönnunargögnum. Ekkert komi fram í kröfugerð ríkisins sem bendi til

annars en að allt land innan landamerkja Grímsstaða og Grundarhóls samkvæmt

landamerkjabréfum hafi verið nýtt sem fullkomið eignarland eftir búskaparháttum og

aðstæðum á hverjum tíma. Verði og að telja að það hafi mikla þýðingu að gagnaðilar

hafi um langt skeið gengið út frá því að merkjum sé rétt lýst og eigendur grannjarða

virt og viðurkennt merkin. Vísað er sérstaklega til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og

95