Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
84

liggur Mórauðifjallgarður með nokkra hnúka. Lambahnúkur (655 m) er sá syðsti en

hæsti hnúkurinn liggur fyrir miðjum fjallgarði og nær í 740 m hæð yfir sjávarmál.

Sunnan Mórauðafjallgarðs og Fjallgarðsár sem úr honum rennur, liggur strýtulaga

fjall er nefnist Hólskerling (801 m) og eru norðurhlíðar þess allbrattar. Norðaustan

Hólskerlingar liggur Haugsnybba (935 m). Austurhlíðar hennar eru allbrattar og renna

nokkrar smáár úr giljum þeirra í Haugsvatn.

Einnig ber þess að geta að talið er vafalaust að við upphaf landnáms hafi

gróðurþekja í Öxarfjarðarhreppi, svo sem á Íslandi í heild, verið mun meiri að víðáttu

og grósku en nú er, sbr. skjal nr. 15.

6.7.2. Sjónarmið aðila

Af hálfu íslenska ríkisins, sbr. skjöl nr. 1 og 1(6), er á því byggt að grundvöllurinn að

beinum eignarrétti að landi hérlendis hafi verið lagður á landnámsöld við nám. Eftir

það hafi lönd undirorpin beinum eignarrétti aldrei getað aukist heldur hafi eigendalaus

svæði orðið með tímanum fleiri. Þetta er talið helst ráðið af lögtöku nýbýlatilskipunar

konungs 1776 sem beinlínis hafi verið lögtekin svo til væru úrræði til að gera

eigendalaus svæði að eignarlöndum og efla þar með byggð. Öxarfjörður hafi verið

numinn eftir því sem greint sé í heimildum en ekkert sé minnst á heiðarnar þar fyrir

ofan. Þar á móti komi svo landnám Ketils þistils, frá Hundsnesi til Sauðaness, sem

sömuleiðis geti ekki um hálendið og heiðarnar milli Öxarfjarðar og Þistilfjarðar.

Landamerkjaskrá hafi verið rituð fyrir afréttarlönd jarðanna Víðirhóls, Hólssels,

Fagradals og Nýhóls en þetta afréttarsvæði kallist Útfjallgarður. Rök mæli með því að

telja Útfjallgarð til þjóðlendu.

Af hálfu gagnaðila, sbr. skjöl nr. 9, 10 og 5(11), er byggt á þinglýstum

landamerkjabréfum og öðrum skráðum eignarheimildum sem þeir hafi fyrir þessari

eign sinni, og einnig þinglýstum landamerkjabréfum aðliggjandi jarða. Þá sé fullur

hefðartími liðinn frá því landamerkjabréfunum hafi verið þinglýst. Öll afnot og nytjar

landsins séu háðar leyfi gagnaðila enda enginn notað landið með nokkrum hætti nema

eigendur þess. Upphaflega hafi verið til ein stofnjörð, þ.e. Hóll á Fjalli, en út úr henni

hafi síðan verið skipt einstökum jörðum, sbr. Fagradal, Víðirhól og Nýhól.

Landsvæðið sé hluti þeirrar stofnjarðar. Samkvæmt ofangreindum heimildum hafi

gagnaðilar óskoraðan eignarrétt fyrir þessu eignarlandi sínu með öllum gögnum og

gæðum, m.a. á grundvelli hefðar. Þá er vísað til þess að eignarheimildir hafi frá

upphafi verið taldar gildar í viðskiptum manna og því byggi eignarhaldið ennfremur á

viðskiptavenju. Ríkið hafi margsinnis í aldanna rás viðurkennt að umrætt land sé

undirorpið fullkomnum eignarrétti og aldrei haldið öðru fram. Vísað er sérstaklega til

jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og stjórnarskrár um að sambærileg mál hljóti sömu

niðurstöðu og að jafnræði ríki milli borgaranna. Gagnaðilar telja að taka verði

Landnámu með fyrirvara sem heimild og að það verði að telja röksemdir ríkisins, þess