Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
var færi á athugasemdum en engar slíkar komu fram. Lögð voru fram skjöl málsins

ásamt skjalaskrá og upplýst um ýmis atriði varðandi gagnaöflun. Skorað var á

lögmenn að fara yfir umrædd atriði af sinni hálfu og gera hið fyrsta athugasemdir ef

þeir teldu ástæðu til. Þá var athygli vakin á þinglýsingu athugasemdar um

yfirstandandi þjóðlendumál á jarðir á ágreiningssvæði, skv. 2. mgr. 10. gr. laga nr.

58/1998, og óskað eftir að lögmenn gerðu umbjóðendum sínum grein fyrir þessu.

Einnig var óskað eftir því að lögmenn skiluðu umboðum hið fyrsta og gerð grein fyrir

mikilvægi þess að lögmenn og óbyggðanefnd ynnu saman að því að þeir sem

hagsmuna ættu að gæta gerðust aðilar að málinu. Enn fremur var sérstaklega vakin

athygli á ákvæði 17. gr. þjóðlendulaga um samnýtingu á sérfræðiaðstoð o.fl. Þá var

því beint til lögmanna að kanna hvort ljúka mætti málinu að einhverju eða öllu leyti

með sátt, sbr. 15. gr. þjóðlendulaga. Jafnframt kom fram að í lok september væri

fyrirhugað að skoða vettvang, en þess ber að geta að sú ferð var síðar felld niður

vegna óhagstæðs veðurs.

Við aðra fyrirtöku málsins, 20. desember 2005, var lögð fram greinargerð af

hálfu íslenska ríkisins og fleiri gögn. Við sama tækifæri var öðrum málsaðilum veittur

frestur til 1. mars 2006 til skila á greinargerðum.

Við þriðju fyrirtöku málsins, 9. mars 2006, var lögð fram greinargerð af hálfu

gagnaðila ríkisins. Við þetta tækifæri voru einnig lögð fram frekari gögn og leitast við

að upplýsa málið að öðru leyti.

Aðalmeðferð fór fram dagana 3. og 4. júlí 2006 og skiptist í vettvangsferð,

skýrslutökur og munnlegan málflutning. Fram kom að lögmenn hefðu ekki talið

sáttagrundvöll í málinu, sbr. 1. mgr. 15. gr. þjóðlendulaga, nr. 58/1998. Að lokinni

aðalmeðferð var málið tekið til úrskurðar. Fundað var í félagsheimilinu Hnitbjörgum á

Raufarhöfn. Um vettvangsferðir og skýrslutökur er fjallað nánar í köflum 4.3.-4.4. og

vísast þangað.

Hinn 17. ágúst 2006 var málið endurupptekið og lögð fram ný gögn. Þau

höfðu áður verið kynnt lögmönnum og tækifæri gefið til athugasemda. Engar

athugasemdir komu fram. Var málið síðan tekið til úrskurðar að nýju.

6