Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
2.3. Lýstar kröfur og kynning

Kröfulýsingar fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um þjóðlendur á

Norðausturlandi bárust 11. nóvember 2004. Óbyggðanefnd birti tilkynningu um

málsmeðferð á framangreindu svæði og útdrátt úr kröfum ríkisins, ásamt uppdrætti, í

Lögbirtingablaðinu 28. desember 2004, Fréttablaðinu 7. janúar 2005 og

Morgunblaðinu 9. janúar, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998. Skorað var á þá sem

teldu til eignarréttinda á því landsvæði sem félli innan kröfusvæðis ríkisins að lýsa

kröfum sínum fyrir óbyggðanefnd í síðasta lagi 31. mars 2005. Þá kom fram að

yfirlýsingu um kröfugerð og málsmeðferð yrði þinglýst á þær fasteignir á svæðinu

sem skráðar væru í þinglýsingabók og málið varðaði, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr.

58/1998.

Kröfur fjármálaráðherra voru gerðar aðgengilegar almenningi á skrifstofum

sýslumanna á Seyðisfirði og í Húsavík, auk sveitarfélaga á kröfusvæðum og

heimasíðu óbyggðanefndar. Þá var málið kynnt í fjölmiðlum.

Frestur annarra til að lýsa kröfum á kröfusvæði ríkisins var framlengdur

lítillega í þeim tilvikum að leitað var eftir slíku með rökstuddum hætti og bárust

síðustu kröfulýsingar í maí 2005.

Gefið var út yfirlit yfir allar lýstar kröfur og þær færðar inn á uppdrátt.

Lögboðin kynning fór fram með því að yfirlit og uppdráttur lágu frammi á skrifstofum

sýslumanna á Seyðisfirði og í Húsavík, frá 25. maí til og með 30. júní 2005, sbr. 12.

gr. laga nr. 58/1998. Athugasemdafrestur var til 11. júlí 2005. Framangreind

kynningargögn voru jafnframt aðgengileg á skrifstofum viðkomandi sveitarfélaga,

skrifstofu óbyggðanefndar og heimasíðu óbyggðanefndar. Vakin var athygli á

kynningunni í fjölmiðlum. Engar athugasemdir bárust fyrir lok athugasemdafrests.

Fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins lagði fram kröfulýsingar um

þjóðlendur á svæðinu í 6 hlutum og 9 kröfulýsingar vegna jarðeigna ríkisins. Á móti

barst 101 kröfulýsing ýmissa aðila, sem sumar sköruðust eða náðu til fleiri en eins

landsvæðis.

2.4. Mál nr. 5/2005, Öxarfjarðarhreppur

Í júlí 2005 var lögmönnum aðila tilkynnt að óbyggðanefnd hefði ákveðið að skipta

þjóðlendukröfusvæði íslenska ríkisins niður í fimm mál, þ.e. mál nr. 1/2005, Fljótsdal

og Jökuldal austan Jökulsár á Jökuldal; mál nr. 2/2005, Jökuldal norðan og vestan

Jökulsár á Jökuldal ásamt Jökulsárhlíð; mál nr. 3/2005, Vopnafjarðarhrepp; mál nr.

4/2005, Svalbarðshrepp, Þórshafnarhrepp og Skeggjastaðahrepp, og mál nr. 5/2005,

Öxarfjarðarhrepp.

Mál nr. 5/2005 var fyrst tekið fyrir á fundi óbyggðanefndar og forsvarsmanna

málsaðila 17. ágúst 2005. Gerð var grein fyrir því að óbyggðanefnd skipuðu í málinu

þeir Karl Axelsson formaður, Allan Vagn Magnússon og Benedikt Bogason. Gefið

5