Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
40. gr. Hver hreppsnefnd haldi sjerskilda fjallskilabók staðfesta af oddvita

sýslunefndarinnar. Í hana skal rita auk þess, sem áður er tilgreint (sbr. 1. 4. og

12. gr.) allar þær ákvarðanir, sem hreppsnefndin gjörir um fjallskilamálefni.

Oddviti sýslunefndarinnar getur heimtað endurrit af fjallskilabókinni, hvenær

sem með þarf. 190

Síðasta fjallskilasamþykkt Norður-Þingeyjarsýslu austan Jökulsár var gefin út

árið 1996. Fyrstu greinarnar tóku þá nokkrum breytingum svo sem:

1. gr. Norður-Þingeyjarsýsla austan Jökulsár og Bakkahlaups er eitt

fjallskilaumdæmi sem skiptist í fimm fjallskiladeildir: Langanesdeild,

Þistilfjarðardeild, Sléttudeild, Núpasveitardeild og Öxarfjarðardeild.

Deildaskiptingu má breyta að fengnu samþykki héraðsnefndar.

2. Héraðsnefnd hefur yfirstjórn allra fjallskilamála í umdæminu, en

hreppsnefnd annast framkvæmd þeirra hver í sínum hreppi.

4. gr. Hver hreppsnefnd, eða fjallskilastjóri fyrir hennar hönd, skal halda

sérstaka fjallskilabók. Í þá bók skal skrá allt er viðkemur fjallskilamálum

hreppsins. ...

Greinar nr. 6-9 breyttust ekki, nema orðið héraðsnefnd kom í stað orðsins

sýslunefnd, og aftan við fyrri málsgrein 8. greinar kom:

eða fjallskiladeild .191

189 Skjal nr. 2 (92).

190 Skjal nr. 4 (6).

191 Skjal nr. 4 (12).

57