Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Hólselsland að vestan útað bugaskurði, og ræður hann útað melagötu frá Hóli,

svo á hann allt utan við nefnda götu útað grjóthálsi mótsvið lambhaga; líka á

Hóll það af laufengi [sem: yfirstrikað] í lambhaga sem hann hefur áður

brúkað, og ábúendur Nýjahóls og Hóls lofa að skýra með auð kennilegum

merkjum sín í milli. Bugana framan við melagötu ofanvið Hólselsland, og svo

nefnda lauftorfu austan á fjarðarsundsás, brúka þessir 3. nefndu bæir - sem

skiptin eru gjörð á milli - í sameiningu til beitar. Og móana utan og vestan við

Þorgrímslæki, útað fornum heiðar merkjum, eiga þeir einsog heiðina fyrir

ofan í sameiníngu, eptir réttri tiltölu við dyrleika þeirra.

Melastikki því er nefndir bæir eiga inní Hólselslandi, er skipt með þeim

svoleiðis: að Fagridalur á utanaf nefndu stikki fram að beinni stefnu úr einbúa

í vörðu sunnan við gildruhóla í Hólsbeitarhús. Nýihóll á frá þeirri stefnu fram

að beinni stefnu úr sama einbúa í vörðu sunnaná gildru í Hólskelling. Og Hóll

á þar fyrir sunnan að Hólselsmerkjum, sem gömul skjöl tilgreina.

Af þessu landaskipta brifi leiðir að [allir] [hér hefur molnað úr skjalinu og er

þetta orð ágiskun] eldri samningar eru með því, úr gildi gengir, og hefur það

hér eptir fyrir alda og óborna fullkomið lagagildi.

Sama stað ár og dag sem upphaflega greynir

Árni Árnason Kristján Jóhannsson Sigurbjörn Guðmundsson

fyrir Hól fyrir Fagradal fyrir Nyjahól

viðstaddir vottar

Guðm. Árnason Jón Árnason Olafur Jónsson

V Nikulásson Kristján Kristjánsson. 123

Landamerkjum Fagradals var þinglýst 31. maí 1886:

Fagridalur á land að austan frá Hóli í Lækjum, beina stefnu út fyrir austan

fremri Fagradal og út mitt Fagradalsengi út fyrir Ytri-Fagradal þaðan beina

stefnu vestur sunnan við Krókavötn á austari Vegg. Að sunnan eru merki úr

Hól í Lækjum vestur utan við Brunkulæk í Fagradalsá og utan við hana í

vörðu vestan við næsta skurð vestan við Brotaveitu [breytt í uppskrift úr

Brotaveita] og úr henni beint í vörðu sunnan á yztu hæð, þaðan í vörðu syðst

á vestustu hæð og vestur á vegg, en veggurinn ræður að vestan.

Ennfremur fylgir Fagradals heimalandi, land eyðijarðarinnar Gamlahóls og

eru þar merki sem hér greinir, að austan frá Fragradalsá fram Langholt, úr því

í Hróagarð, þaðan í millubrot, þaðan í Miðdagsvörðu, þaðan í Einstökutjörn

og beint í Stóruhæð, þvert vestur af Stórasteini, þaðan þvert vestur að

123 Skjöl nr. 2 (141) a-b og nr. 2 (142) a-b.

39