Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
handsalað L.S. L.S. 82

Þau skjöl varðandi Hólssel, Hól og Víðirhól, sem minnst er á í þessu bréfi,

hafa ekki komið fram.

Landamerkjabréf fyrir afréttarlandið var útbúið 3. júní 1890. Það var þinglesið

12. júní 1891:

Landamerkjaskrá fyrir afrjettarlandi jarðanna: Víðihóls, Hólssels, Fagradals

og Nýhóls í Skinnastaðahreppi: 83 Úr Falkakletti í há Reiði, þaðan beint austur

á fjallgarð á móts við Hafrafellstunguland og ræður þaðan

Hvammstaðafjallgarður suður í Mýrgil, þaðan í ytri Minnisöxl, og þaðan í

Klettagil. Þaðan suður austan við Bungu og suður á Austaribrekku við

Dauðagil, þaðan eftir Dauðagili í Krummaskarð þaðan í Hrafnaklett. Þess ber

að geta að Grundarhólseigandi á frían upprekstur fyrir geldfje sitt og eina

trippisgöngu í Nýhóls og Fagradals, ofanrituðu afrjettarlandi og 2/5tu úr svo

nefndum Flöt, ofan við Hrafnaklett. Samkvæmt landamerkjabrefi fyrir

Víðihóli dato 29. Júli 1848 eiga Viðihóls eigendur tveggja hesta vetrargöngu

óátalda í Hólsselsmelum. 84

Undir bréfið skrifuðu Helgi Guðlaugsson, Hólsseli, Kr. Kristjánsson, Kristín

Eiríksdóttir, Helga Jónsdóttir (þessi þrjú vegna Víðirhóls), S. Magnússon (gæti verið

Sölvi Magnússon á Grímsstöðum), Bjarni Jónsson (e.t.v. á Hóli/Nýhóli), Jón

Bjarnason (líklega í Fagradal), Sigtry[ggur] Benediktsson á Grundarhóli, S. S.

Eiríksson og G. Eiríksdóttir (þessi tvö síðastnefndu væntanlega vegna

Hafrafellstungu). Þorleifur Jónsson, prestur á Skinnastað, var samþykkur

landamerkjabréfinu (líklega vegna Hafursstaða).

5.6.1. Hóll á Fjalli/Nýihóll

Kirkjan á Skinnastað á land á móts við Hól á Fjalli samkvæmt máldaga sem talinn er

vera frá því um 1500. Þar kemur eftirfarandi fram:

kirkiann aa landareign framm vid gil framm fra lundum [Löndum, skv. einni

uppskrift og löndunum skv. annarri] oc vpp a motz vid hool a fialle. er þar

med fijskivatn oc Bæa stadur. oc v kapla gongu a vetur j hoolz jord a fialle. 85

Hinn 21. september 1566 seldi Þórður Pétursson séra Sigurði Jónssyni jörðina

Klifshaga í Öxarfirði. Í staðinn:

... lofadi sira Sigurdur og gaf jordina Hol a fialli med iiij kugildum fyrir xiiij

hundrud og ij kugillde er hann hia mier aa. og .ui. Kugilldi a hann mier ad

82 Skjal nr. 2 (140) a-b.

83 Strikað hefur verið yfir: Þess ber að geta ... Hólsselsmelum, og bætt við: ,,Ítökunum ekki lýst samkv.

áskorun 20. maí 1953. Eru þau því niður fallin. J. Skaptason.“

84 Skjal nr. 2 (6) a-b. Ályktanir varðandi þau, sem skrifa undir, eru byggðar á athugun á öðrum

landamerkjabréfum og sóknarmannatölum Víðirhólsprestakalls frá þessum tíma.

85 Skjal nr. 4 (51).

31