Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Þá var ferðinni heitið að Sandskála sem er gangnamannaskáli. Gengið var

áleiðis í átt að Sandskála vegna bilunar í rútubifreið. Þar var gert matarhlé og þeir

Bragi, Kjartan og Jón Valgeirsson hdl. hættu þátttöku í vettvangsferð. Þá var haldið

áfram sem leið lá vestur slóða um Hólssand. Karl Sigurður lýsti staðháttum og fleiru

því sem fyrir augu bar. Síðan var ekið inn á gamla Hólsfjallaveg sem að sögn

heimamanna var ruddur um 1930. Staðnæmst var við gamalt sæluhús sem stendur við

veginn og myndir teknar. Áfram var haldið og beygt inn á Nýja Hólssandsveg sem

liggur meðfram Jökulsá á Fjöllum. Sigurður Karl sá áfram um leiðsögn. Ekið var

framhjá Dettifossi og Ásbyrgi. Beygt var inn á þjóðveg og ekið í norðurátt framhjá

afleggjara Hafrafellstungu. Þá var beygt til hægri upp afleggjara að Sandfellshaga og

áfram slóða upp á Öxarfjarðarheiði. Staðnæmst var við Vörðuhól og skyggnst yfir.

Framundan var m.a. Þverárhyrna. Síðan var ekið áfram. Ekið var fram hjá

Urðarbrúnum. Sýn opnaðist til suðurs og austurs. Búrfell sást vel og útsýni var gott.

Framundan voru Svalbarðsnúpar, Stóra Mosfell, Syðri-Hágangur og fleiri fjöll. Björn

Víkingur og Karl Sigurður sáu sameiginlega um leiðsögn. Bifreiðin var stöðvuð við

Brúnirnar og myndir teknar. Að svo búnu var ekið til baka niður á þjóðveg. Þar skildu

leiðir og heimamenn hættu þátttöku í vettvangsferð. Loks var ekið sem leið lá á

Raufarhöfn og komið þangað síðla kvölds.

4.4. Skýrslutökur

Við aðalmeðferð málsins gáfu eftirtaldir skýrslur og svöruðu spurningum

óbyggðanefndar og lögmanna: 1. Bragi Benediktsson, frá Grímsstöðum og býr í

Grímstungu II; 2. Gunnlaugur Ólafsson, Hallgilsstöðum II; 3. Karl Sigurður

Björnsson, Hafrafellstungu; 4. Björn Víkingur Björnsson, Sandfellshaga II; 5. Kristján

Benediktsson, Þverá.

Að einstökum efnisatriðum í skýrslum aðila er vikið í úrskurði þessum, eftir

því sem tilefni er til, en uppskriftir á þeim eru meðal gagna málsins.

13