Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
Mál nr. 5/2005 - Óbyggðanefnd
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Litið er svo á að í kröfugerðinni felist jafnframt krafa um fullkominn

einkaafnotarétt þeirra í þjóðlendu innan merkja jarðarinnar, að öllum venjubundnum

afnotum, að fornu og nýju, fari svo ólíklega að einhver hluti landsins teljist þjóðlenda.

Þá er krafist málskostnaðar samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.

3.5. Kröfur Hafrafellstungu ehf. vegna Hafrafellstungu I og II

Þess er krafist að viðurkenndur verði beinn eignarréttur þinglýsts eiganda

Hafrafellstungu I og II að öllu landi jarðarinnar og að viðurkennt verði að

heildarlandamerki jarðarinnar séu þessi: „Að norðan úr svokölluðum lækjarfossum

ræður Gilsbakkaáin með lækjardals-og Gilsbakkalöndum í svokallaðan Bug, hvar hin

svonefnda Þverlaut liggur að ánni. Síðan upp úr henni syðst beint á Fjórðungshól,

þaðan í Þverfell á hlið við Sandfellshagaland og með því í vörðu þá er stendur á

Laugaás. Að austan á hlið með Svalbarðskirkjulandi ræður Langásinn til syðri enda

hans, þaðan beina stefnu í ás þann, er liggur úr norðausturhorni Stóra-Búrfellsvatns,

þaðan beina línu í hásuður yfir vatnið austan við hólma í því, á hól þann, er stendur

austan við norðausturhornið á Búrfelli, síðan sömu stefnu til Dettifossár, svo ræður

hún austur til Sandár, er svo ræður suður til Svartárkvíslar þar sem hún fellur í ána

síðan ræður kvíslin til upptaka sinna. Að sunnan á hlið við Víðirhólsland ræður úr

upptökum Svartárkvíslar bein stefna í vestur yfir fjallgarðinn og með fjallalöndum

sömu stefnu í há reiði. Að vestan ræður bein stefna úr há Reiði á hlið við Austara-

Landsland í Rauðhólaþúfu, er stendur syðst á svokölluðum Rauðhólum sunnan og

vestan við Tunguborgir, síðan sömu stefnu norðureftir Borgarás að austanverðu við há

Stórás, síðan sömu stefnu í vörðu á Urðarás með Bjarnastaða- og Smjörhólslöndum

og eftir honum í tjörn þá, er liggur við norðurenda hans, síðan í Smjörhólsá eftir garði

þeim, er liggur úr ytri enda tjarnarinnar í ána og ræður hún til hinna upphaflega

nefndu Lækjardalsfossa.“

Litið er svo á að í kröfugerðinni felist jafnframt krafa um fullkominn

einkaafnotarétt þeirra í þjóðlendu innan merkja jarðarinnar, að öllum venjubundnum

afnotum, að fornu og nýju, fari svo ólíklega að einhver hluti landsins teljist þjóðlenda.

Þá er krafist málskostnaðar samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.

3.6. Kröfur Oktavíu H. Ólafsdóttur og fleiri vegna „sameignarlands“ Hólssels,

Fagradals, Nýhóls og Víðirhóls

Þess er krafist að viðurkenndur verði beinn eignarréttur þinglýstra eigenda Fagradals,

Víðirhóls og Nýhóls að öllu „sameignarlandinu“ og að viðurkennt verði að

heildarlandamerki landsvæðisins séu þessi: „Úr Fálkakletti á há Heiði, þaðan beint

austur á fjallgarð á móts við Hafrafellstunguland og ræður þaðan Hvannstaða

fjallgarður suður í Mýrgil, það í ytri Minniöxl og þaðan í Klettagil. Þaðan suður

austan að Bungu og suður á Austaribrekku við Dauðagil, þaðan eftir Dauðagili í

Krummaskarð, þaðan í Hrafnaklett.“

9